Morgunblaðið - 11.06.1998, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 11. JÚNÍ 1998 25
ERLENT
Lebed
áhugalaus
um for-
setastól
ALEXANDER Lebed, ný-
kjörinn héraðsstjóri í Kra-
snojarsk í Síberíu, lýsti því yfir
í gær að nýja
starfið væri
það tíma-
frekt að hann
neyddist til
að leggja
hugmyndir
um forseta-
framboð á
hilluna, í bili.
Kvaðst hann
ekki hafa
áhuga á forsetakosningum nú
en hann hefur verið talinn einn
líklegasti og sterkasti fram-
bjóðandinn sem eftirmaður
Borís Jeltsíns.
Sviss sakað
um samvinnu
við nasista
SVISSNESK yfirvöld, þar á
meðal forseti landsins, hafa
vísað á bug fullyrðingum stofn-
unar Simons Wiesenthals, um
að landsmenn hafi vísað fjöl-
mörgum gyðingum frá landa-
mærum sínum í heimsstyrjöld-
inni síðari og að Svisslending-
ar hafi átt samstarf við þýska
nasista, t.d. þjálfað hermenn.
Hjálparstarfs-
menn myrtir
ÞRÍR súdanskir starfsmenn
Rauða krossins og matvæla-
stofnunar Sameinuðu þjóð-
anna voru myrtir í Súdan I
gær. Voru mennirnir við hjálp-
arstörf í Kadugli-héraði er
skotið var á tíifreið þeirra.
Mannskæður
eldsvoði
ÁTTA manns létu lífið er eldur
kom upp í íbúðarhúsi i Bochum
í Þýskalandi í gær. Útigangs-
fólk var oft í húsinu og því er
ekki vitað hversu margir voru
inni. Ekki er vitað hver elds-
upptökin voru.
Morðingi
fundinn?
FIMMTUGUR Dani hefur
verið úrskurðaður í gæsluvarð-
hald, grunaður um að hafa
myrt hina tíu ára gömlu Susan
Raach Ipsen, sem fannst myrt
í Brondby, skammt frá Kaup-
mannahöfn fyrir helgi. Maður-
inn býr í sömu blokk og stúlk-
an en morðið hefur vakið mik-
inn óhug í Danmörku.
Er Kohl rokk-
stjarna?
SAMKVÆMT könnun sem
gerð hefur verið á meðal há-
skólanema í Kúveit, er þekk-
ing þeirra á erlendum málefn-
um all-brotakennd. Hefur
komið í ljós að um 49% þeirra
telja að Madeleine Albright,
utanríkisráðherra Bandaríkj-
anna, sé kvikmyndastjarna, og
71% taldi Helmut Kohl Þýska-
landskanslara vera rokk-
stjörnu.
Lebed
Öræfajökull
Hæsti tindur Islands er Hvannadalshnúkur í Öræfajökli, 2119 m hár.
Fyrstur Islendinga til ad ganga á Öræfajökul var Sveinn Pálsson, læknir
og náttúrufrædingur, árió I 794. Skipulagdar ferdir med þjálfudum
leiðsögumönnum eru til dæmis frá Skaftafelli og tekur hver ferd fram
og til baka 12 til IS klukkustundir.
£'%■ .3
Upp til fjalla,
út til stranda,
inn á jökla.
i, 'iWB.TTTff;
Fyrstu skrefin ...
Hvert sem ferðinni er
- upp til fjalla,
út til stranda,
inn á jökla, í helgarútilegu eða eins
-SMMR fWMtíR
Snorrabraut 60 • 105 Reykjavík
Sími 511 2030 • FaxSII 2031
www. itn. is/skatabudin
veitir það ákveðið
öryggi að taka fyrstu
skrefm í Skátabúðinni.
Stærri verslun,
aukið vöruúrval,
sérhæfð þjónusta!
Við höfum stækkað
búðina, aukið
vöruvalið og
bætt við þekktum
merkjum og leggjum sífellt meiri
áherslu á þjónustu starfsfólks með
víðtæka reynslu af útivist.
Sérstök ráðgjöffyrir
byrjendur.
Segðu okkur hvað þig
vantar - við aðstoðum þig við að
finna það rétta.