Morgunblaðið - 11.06.1998, Page 43

Morgunblaðið - 11.06.1998, Page 43
MORGUNBLAÐIÐ AÐSENDAR GREINAR FIMMTUDAGUR 11. JÚNÍ 1998 434 ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) Aumasta betlimál samtímans ÚT Á bátsnafnið Hafmey SF-100 barst mér fyrir allnokkru bréf frá Þingflokki jafnaðarmanna með ávarpinu „Ágætu sjó- menn“, ásamt „tillögu til þingsályktunar um veiðileyfagjald". Bréf þetta mun hafa verið fjölfaldað í stór- um stíl og ætlað að rata í bréfalúgur flestra sjó- manna landsins. I bréfinu er því með- al annars haldið fram að veiðileyfagjald sé brýnasta réttlætismál samtímans og látið að því liggja að þingsá- lyktunartillagan feli í sér kjarabæt- ur til handa sjómönnum. Lítum á rökin: „Veiðileyfagjald er tekið af hagn- aði útgerðarmanna og það tryggir Veiðileyfagjald er fráleitt brýnasta réttlætismál samtímans, segir Daníel Sigurðsson, heldur miklu fremur aumasta betlimál samtímans. einnig arðsemi í sjávarútvegi til lengri tíma. Það að auka arðsemi við fískveiðar skapar svigrúm til kjarabóta til handa sjómönnum.“ M.ö.o. er veríð að staðhæfa að auknar álögur á fyrirtæki auki arð- semi!! Efnahagsvandamál samtímans eru þá svona auðleyst eftir allt sam- an. Þeir hagfræðingar samtímans sem vilja á annað borð láta taka sig alvarlega hljóta að reka í rogastans við þessi tíðindi og þeir gengnu að snúa sér við í gröf sinni. Tollahækk- anir á brennivín hafa löngum verið drjúg búbót fyrir þurftarfreka ríkis- hít en eins og dropi í hafíð miðað við þá flóðgátt sem hagfræðiuppgötvun Þingflokks jafnaðannanna hefur nú opnað fyrir hinn nýja „skattmann" (G.H.H): Tollahækkanir á milljónir lítra af skipaolíu hljóta nú að vera á næsta leiti og allir græða! Þing- flokkurinn staðhæfir í bréfinu að veiðiheimildum sé úthlutað ókeypis til fámenns hóps útgerðarmanna. Skv. upplýsingum Fiskistofu mun www.mbl.is fjöldi útgerða sem nú fá úthlutað veiðiheim- ildum (sóknardaga- veiðiheimildir ekki meðtaldar) vera tals- vert á annað þúsund. Eru útgerðirnar í mörgum tilvikum al- menningshlutafélög og hleypm- hluthafafjöldi sumra hverra á þús- undum. Þrátt fyrir há- ar tölur er það þó stað- reynd að útgerðarfyr- irtækjum hefur fækk- að með tilkomu kvóta- kerfisins, enda eitt af markmiðunum með kerfinu að stækka fyr- irtækin. Tekið skal fram að með grein þessari er ekki verið að taka afstöðu til kvótakerfis- ins sem slíks heldur aðeins veiði- leyfagjalds. Þegar framsal veiðiheimilda var gefið frjálst féll markaðsverð sjálfra skipanna og bátanna og mörg fleyt- an varð nánast verðlaus. Þetta var það gjald sem útgerðarmenn í raun greiddu fyrir framseljanlegar afla- heimildir. Þegar á heildina er litið hefur aflaheimildum því engan veg- inn verið úthlutað ókeypis. Veiðileyfagjald er fráleitt brýn- asta réttlætismál samtímans heldur miklu fremur aumasta betlimál samtímans. Betl í skjóli skrumskæl- ingar á hugtakinu þjóðareign um beina hlutdeild í arðsemi höfuða- tvinnuvegs þjóðarinnar án þess þurfa að leggja eyri af mörkum sjálfur hvað þá svitadropa. „Rétt- læti“ eða hitt þó heldur gagnvart þúsundum hlutabréfakaupenda í sjávarátvegi og þeirra sem þar vinna! Veiðileyfagjald er brýnt kosningamál flokks sem finnst óréttlátt að vera smár á þingi. Flokki þessum hefur gengið illa að ná til kjósenda samanborið við syst- urflokka hans í Evrópu, enda virðist flokksvélin fremur gera ráð fyrir gervigreind en hyggjuviti meðal kjósenda þegar hún talar til þeirra. Talsmönnum flokksins væri hollt að fara að átta sig á því að sjómenn eru ekki trúgjamari en gengur og ger- ist þó vera kunni að þeir séu eitt- hvað hjátráarfyllri. Sjómönnum er auðvitað algerlega ljóst að kjör þeirra myndu rýrna en ekki batna við tilkomu veiðileyfagjalds. Skop- legt áróðursbréf Þingflokks jafnað- armanna mun þar engu breyta. í þingsályktunartillögunni er sér- tæk gjaldtaka Norðmanna af olíu- hagnaðinum færð sem rök fyrir því að við ættum að taka upp veiðileyfa- gjald í sjávarútvegi. Þessi rök- semdafærsla snýst upp í andhverfu sína þar sem Norðmenn leggja ekki veiðileyfagjald á sjávarátveginn. í Noregi er því ekki að finna rökin fyrir veiðileyfagjaldi heldur þvert á móti gegn því. En hvar skyldi þingflokkur þessi hafa fundið hugmyndabanka við sitt hæfi fyrst hann fann hann ekki í Noregi? I virtri amerískri hagfræði- stofnun e.t.v.? Nei, vísast til á ís- lenskri fornbókasölu. Hugmyndin að veiðileyfagjaldi sem sértækum skatti er nefnilega mörghundruð ára gamall uppvakn- ingur sóttur í óréttlátt verðlagskerfi dönsku Einokunarverslunarinnar á íslandi, en þar fór hluti af útflutn- ingsverðmæti fiskafurða í útflutn- ingsuppbætur landbúnaðarafurðí sem leiddu til þess að útgerð drabb- aðist niður og eymd þjóðarinnai jókst enn frekar. Það er út af fyrir sig virðingar- vert að þingflokkurinn skuli lesa séi til í íslandssögunni, en hitt er verrs að hann skuli ekki draga réttan lær- dóm af henni. Höfundur er véltæknifræðingur og kennari við Vélskóla fslands. I' allt sumar MÁLNINGARDAGAR Viðurkennd vörumerki Itmimábiing: STEINTEX 4 Ltr. Verð íirá kr. 2.807.- 10 Ltr. Verð írá kr. 6.595.- Takið teikningar með. Við reiknum emisþörfina Oll málningai'áliöld á hagstæmi verði. Grcnsásvcgi 18 s: 581 2444 Daníel Sigurðsson ...breytist með einu handtaki í.... .vandaöan svefnsófa með innbyggðri springdýnu. vœntir Amerísku svefnsófamir em frábær lausn þegar sameina þarf fallegan sófa og gott rúm. Werð frá79AM,- Raðgreiðslur í allt að 36 mánuði °férið velkomin HÚSGAGNAHÖLUN Bfldshöfðl 20 -112 Rvfk - S:510 8000

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.