Morgunblaðið - 11.06.1998, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 11.06.1998, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ « FIMMTUDAGUR 11. JÚNÍ 1998 47 + Bjarney Sigríð- ur Jóhannsdóttir fæddist í Arnarfirði 6. apríl 1909. Hún lést á hjúkrunar- heimilinu Grund 3. júní síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Guðríður Ein- arsdóttir ljósmóðir og Jóhann Guð- mundsson Asjómað- ur, sem bjuggu á Dynjanda í Arnar- firði. Eignuðust þau 17 börn og náðu tíu þeirra fullorðins- aldri en eru öll látin nú. Bjarney var tvígift, en eigin- menn báðir látnir. Börn hennar eru: Erna, Helga, Lilja og Jó- hann Þórarinsbörn og Ómar Ól- sen; sem nú er látinn. Utför Bjarneyjar fer fram frá Fríkirkjunni f Reykjavík í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. Elsku amma okkar er látin. Við kveðjum þig með söknuði og þakklæti fyrir allar góðu stundimar sem við áttum saman. Við geymum margar falleg- ar minningar um þig sem eiga eftir að fylgja okkur um ókomna tíð. Þú varst ávaJlt svo góð við okkur krakkana, alltaf með nýbakaðar vöfflur eða pönsur þeg- ar við komum í heim- sókn. M varst alvön í eldhúsinu, starfaðir sem matráðskona í mörg ár. Sér- staklega er það okkur minnisstætt þegar við komum til þín í heimsókn þar sem þú vannst á Flókadeild- inni. Þá fengum við alltaf eitthvað gott í gogginn í eldhúsinu sem í okkar bamsaugum var risastórt. Efst í okkar huga er ást þín til alls sem lífsanda dró, hjálpsemi þín MINNINGAR og falslaus fómai-lund. Friðarins guð þig sveipi h'elgri ró, elsku amma. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. (V. Briem) Hjartans kveðjur frá bamaböm- um í Bandaríkjunum, Magneu, Lee, Esther og Donald. Camilla, Haukur, Bjarney, Petrea, Ágústa og Arnar. Okkur langar til að minnast ömmu okkar. Nú iegg ég augun aftur. 0, guð, þinn náðarkraftur mín veri vöm í nótt. Æ,virstmigaðþértaka, mér yfir láttu vaka þinn engil, svo ég sofi rótt. (Þýð. S. Egilsson) Guð blessi minningu þína. Hvíl í friði, elsku amma. Ástrídur og Hrafnhildur. BJARNEY SIGRIÐUR JÓHANNSDÓTTIR + Fanney Jóns- dóttir, Stella, fæddist í Keflavík 11. nóvember 1941. Hún lést á heimili sínu í Reykjavík 10. maí síðastliðinn og fór útför hennar fram frá Bústaða- kirkju föstudaginn 15. maí. Það var sunnudag- inn 10. maí sl. (mæðra- daginn). Ég var á nám- skeiði frá kl. 13-16.30. A leiðinni heim ákvað ég að koma við í Langagerðinu en hætti snögglega við og sneri við og fór í blómabúð til að færa fóstur- móður minni blóm í tilefni dagsins. Þau, þ.e. fósturforeldrar mínir vildu endilega að ég dveldi fram yfir kvöldmat, sem mér fannst ég með engu möti geta, ég varð að fara heim (þar sem enginn beið). Ekki var ég búin að vera lengi heima, kannski 10-15 mín. þegar síminn hringdi. Það var Sigga, systurdóttir mín, að flytja mér þá harmafregn að móðir hennar væri látin. Höggið var svo þungt að ég veit ekki hvort ég get risið undir því. Enn var hann kominn maðurinn með ljáinn og fannst mér hann ganga of langt. Við vorum fímm systkinin, eru nú þrjú farin. Foreldrar okkar létust ung, mamma 37 ára og pabbi 52 ára. Hafsteinn bróðir okkar lést 49 ára, Soffia 43 ára og nú Stella 56 ára. Ég gæti skrifað heila bók um þig Stella mín og geri kannski seinna. Það er bara svo margt er leitar á hugann. Við fengum að alast upp saman þar til ég var 7 ára og þú 11 ára. En þá lést mamma og pabbi fimm árum síðar. Hópurinn tvístraðist eftir lát mömmu, en við héldum alltaf góðu sambandi. Þú fórst ung út í lífið og stóðst þig vel eins og alltaf. 15 ára held ég að þú hafir verið þegar þið Siggi kynntust. Var ekki laust við að ég væri afbrýðisöm út í hann, sem var mesti óþarfi, því hann reyndist mér sem besti bróðir. 12 ára gömul var ég send í sveit sem oftar norður í land og þið Siggi komuð og heimsóttuð mig sælla minninga. Seinna þegar ég var í Miðbæjarskólanum og þú flutt til Sigga þíns og hans foreldra átti ég oft athvarf þar þegar ég þurfti á þér að halda, sem var æði oft. Við syst- urnar vorum samrýmdar mjög og alltaf var hún boðin og búin til þess að hjálpa, hugga og hlusta á mig. Ég hafði selt minn hlut í fyrirtæki sem ég átti helming í og þá sagði hún: „Ertu nú ekki of fljótfær eins og svo oft.“ En þegar ég keypti aðra stofu 1. febr. sl. komu þau hjón strax til þess að hjálpa mér og þá sérstak- lega hún. Hún kenndi mér margt þó svo að ég kæmist aldrei með tæmar þar sem hún hafði hælana. Elsku systir mín, ég veit að vel var tekið á móti þér og að þér líður vel. Sárt er að sætta sig við að þú sért farin, eins lífsglöð og full af orku og þú alltaf varst. En enginn veit hvenær kallið kemur. „Við áttum dálítið út af fyrir okk- ur. Bemskuárin með vonum sínum og skelfingum, leyndarmálum sínum og fyrirætlunum. Aðeins við vitum hvað gerir okkur að því sem við vor- um. Aðeins við munum litlu ávinn- ingana og vonbrigðin því enginn annar veit hvað að baki lá. Við þekktum það sem bjó innra með okkur.“ (Pam Brown.) Elsku Siggi, Dóra, Soffia, Ragn- ar, Sigga, Einar, Angantýr, Ella og bamaböm, missir okkar er mikill og bið ég góðan guð að gefa okkur Persónuteg, alhliða útfararþjónusta. Sverrir Olsen, Sverrir Einarsson, útfararstjóri útfararstjóri Útfararstofa íslands Suðurhlið 35 ♦ Sími 581 3300 Allan sólarhringinn. FANNEY (STELLA) JÓNSDÓTTIR Le9“ , ' ■s*2ÉiU v/Nýbýlaveg SÓLSTEINAR 564 4566 Upplýsingar í símum 562 7575 & 5050 925 HOTEL LOFTLEIÐIR i (~ II > » » » I »_MOTi l » Glæsileg kaffihlaðborð FALLEGIR SALIR OG MJÖG GÓÐ ÞJÓNUSTA ^niii iii xx^g H H H Erfidiykkjur LEGSTEINAR t Marmari Islensk framleiðsla Granít Vönduð vinna, gott verð Blágrvti Sendum myndalista Gabbró MOSAIK Líparít Hamarshöfði 4, 112 Reykjavík sími 5871960, fax 5871986 + Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir og amma, UNNUR JÓNA GEIRSDÓTTIR, Sléttuvegi 15, lést á heimili sínu 9. júní. Ragnheiður Hrefna Gunnarsdóttir, Karl Hjartarson, Margrét Beta Gunnarsdóttir, Benedikt Eyjólfsson, Ágústína Gunnarsdóttir, Kári Bjarnason, Sigurgeir Snorri Gunnarsson og barnabörn. t Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir, systir og amma, ANNA SÆBJÖRNSDÓTTIR, Bakka, Seltjarnarnesi, sem lést föstudaginn 5. júní sl., verður jarðsungin frá Dómkirkjunni í Reykjavík föstu- daginn 12. júní kl. 13.30. Blóm eru vinsamlega afþökkuð, en þeim sem vilja minnast hennar, er góðfúslega bent á heimahlynningu krabbameinssjúkra. Rúrík Haraldsson, Björn Rúriksson, Guðfinna Karlsdóttir, Haraldur Steinn Rúriksson, Susan Palfreeman, Ragnhildur Rúriksdóttir, Jón Raymond Miller, Elín Sæbjörnsdóttir, Guðmundur Árnason og barnabörn. t ÓLI JÓHANNES SIGMUNDSSON fyrrv. byggingameistari og kaupmaður á ísafirði, sem andaðist á Hrafnistu í Reykjavík sunnu- daginn 7. júní, verður jarðsunginn frá Digra- neskirkju föstudaginn 12. júní kl. 13.30. Aðstandendur. t Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinar- hug við andlát og útför ástkærrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, UNNAR ERLENDSDÓTTUR frá Vatnsdal. Sérstakar þakkir viljum við senda starfsfólki Kristnesspítala fyrir mjög góða umönnun og hlýhug. Kristbjörg Guðmundsdóttir, Haraldur Jóhannsson, Ólína Guðmundsdóttir, Egilína Guðmundsdóttir, Eggert Haraldsson, Gyða Guðmundsdóttir, Marías Sveinsson, Kristinn Guðmundsson, Margrét Ingvadóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Birting afmælis- og • • minnmgargrema MORGUNBLAÐIÐ tekur afmælis- og minningargreinar til birtingar endurgjaldslaust. Greinunum er veitt viðtaka á ritstjórn blaðsins í Kr- inglunni 1, Reykjavík, og á skrifstofu blaðsins í Kaupvangsstræti 1, Akureyri. Þá er enn fremur unnt að senda greinarnar í símbréfi (569 1115) og í tölvupósti (minning@mbl.is) — vinsamlegast sendið greinina inni í bréfinu, ekki sem viðhengi. Um hvern látinn einstakling birtist ein uppistöðugrein af hæfílegri lengd, en aðrar greinar um sama einstakling takmarkast við eina örk, A-4, miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd, - eða 2.200 slög (um 25 dálksentimetra í blaðinu). Tilvitnanir í sálma eða ljóð takmarkast við eitt til þrjú erindi. Greinarhöfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. Við birtingu afmælisgreina gildir sú regla, að aðeins eru birtar greinar um fólk sem er 70 ára og eldra. Hins vegar eru birtar afmælisfréttir ásamt mynd í Dagbók um fólk sem er 50 ára eða eldra. Mikil áhersla er lögð á, að handrit séu vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi útprent- uninni. Það eykur öi-yggi í textameðferð og kemur í veg fyrir tvíverkn- að. Auðveldust er móttaka svokallaðra ASCII-skráa sem í daglegu tali eru nefndar DOS-textaskrár. Þá eru ritvinnslukerfin Word og Wordperfect einnig auðveld í úrvinnslu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.