Morgunblaðið - 11.06.1998, Page 54

Morgunblaðið - 11.06.1998, Page 54
54 FIMMTUDAGUR 11. JÚNÍ 1998 MORGUNBLAÐIÐ "Br Dýraglens HVAPA SPöTTiVeiNS KOHAI? ) | Oe H VAR. \ ( FTFlR pFSSOfA ER pETTA? <t/HtNM6RlPURj I 1 BFU GLUGGA- STÓFA GUX33A TfÖLPIN? ywtHIMNlNUAA M w| I ® r æ (1 yff SfL í - Tommi og Jenni HERE5 THE WORLP WARI FLYINé ACE RETURNIN6T0THE AERODROME... /HE KN0L)5 HI5 FAITHFUL \ / MECHANIC5 101LL JUMP UP \ ANP D0WN ANPCHEER WHEN/ VJHEV 5EE MIM LANP.. ' ^3 - "" 4 KI0 7 <?984 OAJIOÖ ♦ Q73 ♦ J43 |i 48Z CAGI07Í3 v/e<?J 0- 5 OQ765Z ♦<1096 *J«54Z * AQ965 OK52 OK.94-3 ♦A, ^ M i, ___r: Hér er flugkappinn úr Hann veit að dyggu vélvirkjamir fyrri heimsstyrjöldinni hans munu hoppa upp og niður a að snúa aftur til f kæti þegar þeir sjá hann lenda. flugvallarins. BREF TIL BLAÐSINS Kringlan 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329 „Au pair“ í Þýskalandi Frá Bimi Ólafí Hallgrímssyni: í SUNNUDAGSBLAÐI Morgun- blaðsins, 7. júní sl., var auglýsing frá þýskri fjölskyldu í Bremen, sem óskaði þar eftir að ráða „au pair“ til eins árs frá miðjum ágúst eða 1. september nk. Auglýsing þessi sker sig ekki úr öðrum slíkum um sama efni, sem oft má sjá á síðum fjöl- miðlanna, nema þá íyrir þær sakir, að viðkomandi á að vera „reyklaus" og svo því, að upplýsingar á staðn- um veitir íslensk stúlka, Eva Björg- vinsdóttir, sem nú sinnir starfinu. Þar sem ég þekki til fjölskyid- unnar, sem ber nafnið Diederich- sen, vil ég gjarnan koma fyrir al- menningssjónir nánari upplýsingum um hana og aðstæður ytra. Það mun hafa verið vorið 1994 sem dóttir mín, þá í síðasta bekk menntaskóia, rakst á auglýsingu frá fjölskyldunni í Mbl. eftir reykiausri „au pair“ til eins árs til að gæta eins barns. Hún tók sínar ákvarðanir og tryggði sér vistina en ég man að okkur foreldrunum fannst það óþægileg tilhugsun að sjá á eftir dóttur okkar til útlanda í starf hjá fólki, sem við vissum engin deili á. En væntanlegir vinnuveitendur hennar virtust hafa næman skilning á þessum áhyggjum og buðu því að fyrra bragði að við mættum tala við þau beint til að fá frekari upplýsing- ar. Eg hafði því samband við fjöl- skyldufoðurinn og ræddi um vistina við hann. Hann reyndist mér af- skaplega traustur og gaf mér m.a. upp nafn á íslenskum manni, sem ég gæti aflað mér upplýsinga hjá, okk- ur hjónum til hugarhægðar. Þetta gerði ég og fékk þegar upp var staðið tilfinningu fyrir að dóttir mín hefði komist í samband við vandað og traust fólk þar ytra. Dóttir mín fór síðan utan á um- sömdum tíma og var hjá fjölskyld- unni út sinn ráðningartíma. Reynsla hennar af dvölinni var mjög góð og fjölskyldan reyndist henni afar vel. A þessu svæði er töluð há-þýska og því einkar gagnlegt að hressa þarna upp á þýskukunnáttuna. Heimili fjölskyldunnar er í góðu húsi við ró- lega götu nærri miðbænum og með- an dóttir mín var ytra ráku nokkrar fjölskyldur saman bamaheimili í kjallara hússins og var því stutt að fara með bamið í gæslu þegar það átti við. Almenningssamgöngukerfi Bremen er mjög gott. Fljótlega eignaðist dóttir mín marga vini í Bremen og upp úr áramótunum var hún farin að sækja ýmis námskeið, m.a. í háskólanum og einnig að kenna nokkrum áhugasömum Þjóð- verjum íslensku á námskeiði, sem þýsk vinkona hennar kom á laggim- ar. Vinnu dóttur minnar var þannig háttað, að hún gat ferðast talsvert í frítíma sínum um Þýskaland og einnig til nálægra landa. Nokkm eftir að dóttir mín kom svo heim bárust fréttir af því að þau hjónin ættu von á tvíburum og því em nú bömin orðin þrjú. Það er svo afar athyglisvert og ánægjulegt að þessi ágæta fjöl- skylda vill framar öllu íslendinga til að gegna þessu starfi. Dóttir mín var númer tvö í röðinni og nú senn er fimmta íslenska stúlkan í röð að ljúka vist sinni hjá fjölskyldunni. Vonandi verður fjölskyldunni að ósk sinni um að sjötti starfsmaðurinn verði einnig íslenskur. Og vonandi höldum við íslendingar enn um sinn þessum „landvinningi" svo að ís- lensk ungmenni geti áfram eflt þýskukunnáttuna og víkkað sjón- deildarhringinn með dvöl hjá þess- ari ágætu fjölskyldu. Hafi einhver áhugasamur farið á mis við auglýsinguna bendi ég á að rétt er að hafa samband við: Evu Björgvinsdóttur, s. 0049 421- 3469898. Utanáskriftin er: Familie Diederichsen / Benquestr. 15, / D- 28209 - BREMEN. Með þökk fyrir birtinguna. BJÖRN ÓLAFUR HALLGRÍMSSON, hæstaréttarlögmaður, Sigluvogi 13, Reykjavík. Sverrir er minn maður Frá Guðmundi Sigtryggssyni: EG undirritaður er fæddur á Langa- nesinu og alinn upp í Þistilfirðinum á kreppuámnum. Þá var það kaupfélagið sem sá um að fólkið fengi útteknar brýnustu nauðsynjar. Árið 1934 var ég kominn í fóstur á íhaldsheimili eins og það var kallað í þá daga. Þá kom til valda vinstri stjórn með Hermann Jónasson sem forsætisráð- herra. Ég ákvað þá 12 ára gamall að ég væri framsóknarmaður og hefi kosið þann flokk fram að þessu. í dag er Sverrir Hermannsson minn maður. Hann er það vegna þess að þegar hann var ráðherra, lýsti hann því yf- ir að Samvinnuhreyfingin hefði unn- ið stórvirki í uppbyggingu hinna dreifðu byggða um allt land. Hann er það vegna þess að hann gerði upp við þrotabú SÍS á þann hátt, að allir komust frá því uppgjöri með óskert mannorð, og til hagsbóta fyrir alla þjóðina. Hann er það vegna þess að hann stendur í dag sterkari en áður eftir að misheppnaðir stjórnmálamenn og fylgifiskar þeirra em búnir að fara hamförum til að svipta hann mann- orðinu og æranni, þrátt fyrir að hann sé sennilega besti bankastjóri sem starfað hefir við Landsbanka ís- lands. Nú er ég búinn að segja mig úr Framsóknarfélaginu og bíð eftir að geta gengið í nýja frjálslynda flokk- inn sem hann ætlar að stofna til þess að berjast fyrir tilvem smærri út- gerðarmanna og um leið fyrir fram- tíð ungu bændanna sem í dag sitja fastir í ranglátu kvótakerfi og þar með vinna stórvirki í björgun dreifðu byggðanna í landinu. Nú skora ég á minn mann að halda sínu striki og slá hvergi af, og ég hefi þá tilfinningu, að fleiri standi með honum en hann granar. GUÐMUNDUR SIGTRYGGSSON, Sandbúðum, Kópaskeri. Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.