Morgunblaðið - 11.06.1998, Blaðsíða 57
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 11. JÚNÍ 1998 5 7
)
í
>
■
I
I
I
>
I
i
r
í
l
$
I
i
l
l
l
l
i
I
í DAG
Hlutveltur
fT r\ÁRA afmæli. í dag,
O V/fimmtudaginn 11.
júní, verður fímmtugur
Jón Gunnar Gunnarsson
frá Hornafirði. Hann og
sambýliskona hans Tom-
csányi Zsuzsanna taka á
móti vinum og ættingjum
að heimili sínu Naphegy
tér 4, Búdapest þegar
þeir eiga leið um.
BRIDS
IJmsjóii (iuilmiindiir
l'áll Arnarson
Hinn pólski Piotr Garwis
sat við stýrið í spilinu i gær
og stóð sig óvenju illa. I dag
er Garwis í betra formi, en
hann heldur hér á spilum
suðurs:
Vestur gefur; enginn á
hættu.
Norður
* 54
V 10653
♦ ÁKD109
*K8
Vestur Austur
* ÁD10932
VÁK74
* 5
* 75
*K8
VG2
♦ 74
*DG109432
Suður
* G76
VD98
* G8632
* Á6
VesUir Norður Austur Suður
1 spaði 2 ttglai' 2 spaðar 2 grönd!
3 spaðar 3 grönd Pass Pass
Pass
Tveggja granda sögnin er
dæmigerð fyrir Garwis, en
hún hafði hafði þann tilgang
fyrst og fremst að fæla AV
frá hugsanlegu spaðageimi.
„Til vara“ gat sögnin gefíð
góða raun ef norður átti
sterk spil, með til dæmis Áx
í spaða, en þá er betra að
spila þrjú grönd í suður. En
það er ekki að sjá að Garwis
hafí grætt á bröltinu, því
fjórir spaðar vinnast ekki í
AV, en þrjú grönd eiga að
fara fjóra niður.
Vestur vissi hins vegar
ekkert um það! Hann taldi
sig á hinn bóginn vita fyrir
víst að Garwis ætti
spaðakóng og óttaðist að
það væri níundi slagurinn ef
hann kæmi þar út. Vestur
byrjaði því á hjartaás, en
skipti svo yfir í lauf þegar
hann sá hjartafjórlitinn í
borði. Nú gat Garwis tekið
sjö slagi og sætt sig við tvo
niður, en hann hafði meiri
metnað. Hann tók
lauflsaginn heima, ÁK í tígli
og spilaði svo hjarta úr
borði á gosa, drottningu og
kóng. Vestur fékk nú þriðja
tækifærið til að spila
spaðanum, en gerði það
ekki, heldur hélt áfram með
laufið. Hvers vegna?
Vestur féll fyrir annarri
blekkingu Garwis.
Lesandinn ætti að setja sig í
spor vesturs. Hvers vegna
tekur sagnhafí ÁK í tígli, en
hættir svo við litinn þegar í
ljós kemur að vestur á
einspil? Er það ekki vegna
þess að austur situr á eftir
blindum með gosann fjórða
eða fímmta? Vestur hélt
það, og spilaði laufí. Og þá
gat Garwis lagt upp.
ÞESSAR stúlkur, Brynja Guðmundsdóttir og Kristín
Jónína Einarsdóttir, héldu tombólu og söfnuðu 1.367
kr. til styrktar Barnaspítala Hringsins.
ÞESSAR ungu myndarlegu stúlkur færðu Rauða krossi
íslands 1.761 kr. að gjöf, en peningunum söfnuðu þær á
tombólu. Þeir heita frá vinstri talið: Fjóla Kristín Guð-
mundsdóttir, Elísa Lífdís Malmo Óskarsdóttir og Odd-
ný Alda Bjarnadóttir.
ÞESSIR ki-akkar héldu fyrir skömmu hlutaveltu á Arn-
arhrauni í Hafnarfirði og létu afraksturinn, rúmlega
2.800 ki'., renna til Barnaspítala Hringsins. Á myndinni
eru Sveinn Magnús, Kolbrún Fjóla, Rakel og Auður
Inga fremst.
SKAK
llmsjnn Margcir
Pétursson
STAÐAN kom upp í sveita-
keppni í Lettlandi í vor.
Circenis var með hvítt, en
Krakops hafði svart og átti
leik.
32. _ Hxc4! 33. hxg7 (Eða
33. Bxc4 _ Rxa3+! 34. Bxa3
_ Dxa3 35. Dxd4 _ Da2+
36. Kcl _ Dc2 mát) 33. _
Bxg7 34. Bxc4 _ Rxa3+!
35. Kcl _ Rxc4 og hvítur
SVARTUR leikur
og vinnur
gafst upp, því eftir 36.
Dxc4 _ Bh6+ lokast flótta-
leið hvíta kóngsins og hann
er óverjandi mát.
HÖGNI HREKKVÍSI
STJÖRIVUSPA
cftir Frances brakc
TVIBURARNIR
Aímælisbarn dagsins: Þú
ert mikill lista- og hand-
verksmaður og átt gott með
að kenna og þá sérstaklega
börnum.
Hrútur
(21. mars -19. apríl)
Ef þig langar að taka fjár-
hagslega áhættu þarftu að
vera tilbúinn til að standa og
falla með ákvörðun þinni.
Naut
(20. aprfl - 20. maí)
Það er óþarfi að kjafta frá
sér allt vit þótt gaman sé að
skiptast á orðum við aðra.
Vertu var um þig.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Þú þarft að skipta deginum
á milli fjölskyldunnar og
vinnunnar. Sinntu hvoru
tveggja af sömu alúðinni.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Þú ert starfssamur þessa
dagana og ættir að geta lyft
þér upp og auðgað andann
með lestri góðrar bókar.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst) M
Sýndu aðgát þegar gengið
er frá fjárhagslegum samn-
ingum og leitaðu ráða hjá
þeim sem þú treystir best.
Meyja
(23. ágúst - 22. september) éxí
Ef þú sýnir ekki þolinmæði
og sanngmni færðu sam-
starfsmenn þína upp á móti
þér. Sinntu gömlum félaga.
(23. sept. - 22. október) m
Persónuleg samskipti þín
við aðra ganga einkar vel
þessa dagana og þú hefur
mikla gleði af vinum þínum.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóvember)
Láttu ekki happ annarra
fara í taugarnar á þér.
Reyndu heldur að samgleðj-
ast og sinntu svo þínum
störfum.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. desember) 4á
Varastu að gagnrýna aðra
um of. Vingjarnlegar ábend-
ingar eru í góðu lagi, en
farðu varlega í sögðum orð-
um.
Steingeit
(22. des. -19. janúar)
Láttu ekki óþarfa fjárhagsá-
hyggjur blinda þér sýn.
Sestu samt niður og farðu í
gegnum málin með þínum
nánustu.
Vatnsberi
(20. janúar -18. febrúar) Cfint
Mundu að í öllum samning-
um skipta smáatriðin ekki
síður máli en aðalatriðin.
Sýndu því glöggskyggni.
Fiskar
(19. febrúar - 20. mars)
Þú ert í skapi til að fá góða
félaga í heimsókn og eiga
með þeim ánægjulega sam-
verustund yfir góðum mat.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ektí byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
STEINAR WAAGE
SKÓVERSIUN
Breiðir og með góðu innleggi
Einir bestu „fyrstu" skórnir
DomusMedica 551 8519
Kringlunni 568 9212
Toppskórinn 552 1212
Verð: 3.995,-
Tegund: Jip 623
Hvítt, rautt, blótt, svart, bleikt og
brúnt leður í stærðum 18-24
V
Kven- oe barnafataverslunin
Stjörnur, Míóddinni
MARKAÐSDAGAR
í sönáusöíunni fimmfudasinn 11. júní oá
fösfudafíinn 12. júní
GERIÐ GÓÐ KAUP
Kven- og barnafataverslunin
miiA iStfösi+uísi. rL-
U Álfabakka 12 - i Mjóddinnl -Slml 557 7711
Tilboð
Bama, fjölskyldu og stúdenta
myndatökur
I öllum okkar myndatökum eru
allar myndimar stækkaðar í
13 x 18 cm tilbúnar til að gefa
þær, að auki 2 stækkanir
20 x 25 cm og ein stækkun
30 x 40 cm í ramma.
Nokkrir tímar lausir í júní.
Passamyndir á fimm mínútum
alla virka daga. opið í
hádeginu.
Ljósmyndastofa Kópavogs
sími: 554 30 20
Ljósmyndastofan Mynd
sími: 565 42 07
SKO - SKO - SKÓ
—MARKAÐUR
ÁRMÚLA 23, vesturenda
Opið frá kl. 12—18
laugard. kl. 10—13
Mikið úrval af skóm
á góðu verði.