Morgunblaðið - 14.06.1998, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 14.06.1998, Qupperneq 4
4 B SUNNUDAGUR14. JÚNÍ1998 MORGUNBLAÐIÐ Kommúnisminn er tal- inn vera valdur að dauða 85-100 milljóna manna, en nasisminn um 25 milljóna. Nas- isminn er hvarvetna fyrirlitinn en kommún- ismann sjá menn víða í rómantísku ljósi. Samt eru fórnarlömb komm- únismans fjórum sinn- um fleiri. Hvers vegna er það víða svo á Vest- urlöndum að nasisminn er álitinn hin „algera illska“, en kommúnism- inn hálf-meinlaus óþekkt við auðvaldið og Bandaríkin? Jakob F. Asgeirsson segir frá umræðum sem spunn- ist hafa um Svartbók kommúnismans sem gefin var út í Frakk- landi í fyrra og er fyrsta tilraun fræði- manna til að rannsaka ógnarverk kommún- ismans á heimsvísu. AÁTTATÍU ára afmæli valdaráns bolsévika í Rúss- landi sl. haust kom út í Frakklandi bók eftir franska sagnfræðinga sem áætluðu að fómarlömb kommún- ismans á þessari öld væru á milli 85 og 100 milljónir manna. Bókin heitir „Le livre noir du commun- isme - Crimes, terreur, repression“ eða Svartbók komm- únismans - glæpir, ógn og kúgun. Bók þessi hefur vakið geysimikla athygli út um heim, en af einhverj- um ástæðum hefur verið hljótt um hana hér á landi. Hlýtur það að teljast með nokkrum ólíkindum í ljósi pólitískrar umræðu í þessu landi á undanfómum áratugum, en málsvarar kommúnismans, sem hér áttu meira undir sér en víðast annars staðar á Vesturlöndum, kölluðu það áratugum saman „Moggalygi" þegar birtar vora fréttir af ógnarverkum kommún- istastjórna út um heim. Svartbók kommúnismans er fyrsta tilraun háskólamanna til að fjalla á fræði- legan hátt um fómarlömb komm- únismans á heimsvísu. Fræði- mennimir komast að þeiiTÍ niður- stöðu að kommúnistastjómir beri ábyrgð á dauða 55-72 milljóna Ástæðan er vafalaust sú að í þess- um löndum hefur ekki verið farið dult með ógnarverk kommúnism- ans allt frá upphafi kalda stríðsins og stefnan átt þar fáa formælend- ur. Demókratar vora við stjómvöl- inn í Bandaríkjunum þegar kalda stríðið hófst og Verkamannaflokk- urinn sömuleiðis í Bretlandi. í báð- um löndum var nánast einhugur um stefnuna í utanríldsmálum. í Frakklandi - og einnig á íslandi - bjuggu menn hins vegar við öflug- an kommúnistaflokk sem neitaði statt og stöðugt að horfast í augu við staðreyndir og breiddi út áróð- ur um kommúnismann og ríki hans áratugum saman. í báðum löndum hafa marxistar og Sovétvinir verið ráðandi í umræðum menntamanna. Þess vegna era enn óuppgerðar sakir á umræðuvettvanginum, jafnt á íslandi sem í Frakklandi. Ritstjórinn, Stephen Courtois, segir í formála bókarinnar að stað- reyndir verði ekki umflúnar, kommúnistastjórnir hafi gengið af 85-100 milljónum manna dauðum, en nasistar 25 milljónum. Hann kannast fúslega við að nasisminn og kommúnisminn hafi um ýmis- legt verið ólíkir í framkvæmd, en margt hafi þeir engu að síður átt sameiginlegt. í báðum kerfunum hafi verið um að ræða einn flokk, drottnun einnar hugmyndafi-æði, alræði flokks yfir stjómarstofnun- um, leiðtogadýrkun og fjöldaógn. Hann segir að aðferðir þær sem Lenín hafi tekið upp, og Stalín og hans líkar fullkomnað, minni ekki aðeins á aðferðir nasista heldur hafi þær flestar verið Hitler bein eða óbein fyrirmynd. Þá telur Co- urtois að ekki sé eðlismunur á kerf- isbundinni útrýmingu nasista á gyðingum og markvissri útrým- ingu kommúnista á tilteknum stéttum - og skilgreinir hvort tveggja sem „glæpi gegn mann- kyni“. Courtois bendir einnig á að hneigð kommúnistastjórna til „var- anlegs borgarastríðs", þ.e. að beita þegnana stöðugu ofbeldi, byggist á fræðilegum granni - kenningum marxismans um stéttastríðið, hina „ofbeldishneigðu ljósmóður sög- unnar“. Á sama hátt sé ofbeldi nas- ismans að einhverju leyti byggt á kenningum samfélagsdarwinism- ans um úrval þjóðanna sem skuli drottna yfir lítilmótlegri kynþátt- um. Ennfremur hafi hvorki nasist- ar né kommúnistar myrt fómar- lömb sín vegna þess að þau hefðu brotið eitthvað sérstakt af sér, heldur fyrst og fremst vegna upp- runa þeirra (ættemis eða stéttar). Courtois vekur athygli á því að geysimikið hafi verið ritað um glæpi nasismans, en engin heildar- úttekt hafi fyrr verið gerð af fræði- mönnum á glæpum kommúnism- ans. Ástæðan sé m.a. hversu marg- ir menntamenn hafi smitast af byltingarhugmyndum marxismans, ekki síst í Frakklandi. Courtois vekur þannig máls á samsekt þeirra Vesturlandamanna sem gerðu Lenín, Stalín, Maó, Fidel Castro eða Pol Pot að hetjum sín- um og útbreiddu áróðurslygar þeirra. Eins og fleiri á Courtois erfitt með að sætta sig við hvemig þessir menn hafa komist upp með að yfirgefa hetjur sínai- þegjandi HITLER og Stah'n - nasisminn og kommúnisminn - eru hliðstæður, ekki andstæður. Það er ein meginniðurstaða Svartbókar kommúnismans. manna í Kína, 20 milljóna í Sovét- ríkjunum, 2,3 milljóna í Kambódíu, 2 milljóna í Norður-Kóreu, 1,7 milljóna í Afríkuríkjum, 1 milljónar í Víetnam, 1 milljónar í Austur- Evrópuríkjum og um 150.000 manna í Suður-Ameríkulöndum. Samtals era fómarlömb kommún- ismans því, sem fyrr segir, á bilinu 85-100 milljónir. Engin önnur harðstjóm í samanlagðri sögu mannkyns kemst í hálfkvisti við harðstjóm kommúnismans - og má til samanburðar nefna að fómar- lömb nasismans era talin um 25 milljónir. Svartbókin er geysimikil að vöxtum, um 850 bls. Ellefu sagn- fræðingar eiga ritgerðir í bókinni og byggja þeir á framrannsóknum að miklu leyti, þ.á m. heimildum úr nýopnuðum skjalasöfnum fyrrver- andi kommúnistaríkja í Áustur- Evrópu. Sagnfræðingamir era allir mikils virtir í heimalandi sínu. Flestir hneigðust þeir til kommún- isma á yngri áram, vora m.a. maóistar og trotskistar. Þeir unnu að bókinni í sátt og samlyndi, en á lokasprettinum kom til nokkurs ágreinings. Mestur ágreiningur var um ýmsar fullyrðingar ritstjór- ans, Stephane Courtois, í formála og niðurlagi bókarinnar, t.d. þá staðhæfingu hans að ógn væri höf- uðeinkenni kommúnismans. Fyrir þá sem aldrei hafa aðhyllst komm- únisma sýnist þetta ekki róttæk fullyrðing, en fræðimennimir sem hér áttu í hlut höfðu sem fyrr segir allir laðast að þeirri stefnu og væntanlega af annarri ástæðu en hrifningu yfir ógnarverkum Sta- líns. Þá voru ekki allir höfundar bókarinnar jafnánægðir með þann samanburð sem Courtois gerði á kommúnismanum og nasismanum. Tveir þeirra, Jean-Louis Margolin og Nicholas Werth, drógu sérstak- lega í efa þá ályktun Courtois að leggja mætti að jöfnu múgmorð (sem nasistar frömdu) á tilteknum kynþáttum og múgmorð sem fremja átti á stétt manna (og kommúnistar frömdu). Ymsir höfðu áhyggjur af þessum deilum, t.d. sagði Parísarblað sósíalista, Li- beration, að deilumar vörpuðu skugga á það mikla framlag sem bókin væri til skilnings á þeim glæpum, ógnarverkum og kúgun sem kommúnistaleiðtogar hefðu gerst sekir um. Útkoma bókarinnar olli nokkra fjaðrafoki í Frakklandi. Kom til harðra deilna í blöðum og á þingi, en kommúnistar sitja nú i ríkis- stjóm í Frakklandi í fyrsta skipti síðan 1981. Blað kommúnista, L’Humanité, lagði áherslu á að í bókinni væri ekki sögð saga komm- únismans, heldur brugðið upp vissu sjónarhomi á þá glæpi og þá kúgun sem framin hefði verið í nafni kommúnismans! Gamli stalínistinn Georges Marchais, sem í rúma tvo áratugi var formaður franska kommúnistaflokksins, sagði örfáum dögum fyrir andlát sitt að það væri fráleitt að halda því fram að kommúnisminn væri ekkert annað en stórkostlegt múg- morð og minnast ekki á hvernig hann hefði leyst fólk úr ánauð! Svipaðar viðbárur heyrast jafnan úr rauðum herbúðum á íslandi þegar fjallað er um glæpi kommún- istaleiðtoga. Eru þær af sama meiði og viðbárar nasista sem segja jafnan þegar minnst er á ódæðisverk Hitlers að ekki megi gleyma því að hann hafi upprætt atvinnuleysið í Þýskalandi og kom- ið á röð og reglu í landinu! Svartbókin vakti einnig mikið umtal í Þýskalandi, ekki síst vegna samanburðarins við nasismann. En athyglin í Bretlandi og Bandaríkj- unum hefur verið í minnsta lagi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.