Morgunblaðið - 14.06.1998, Blaðsíða 16
MORGUNBLAÐIÐ
16 B SUNNUDAGUR 14. JÚNÍ 1998
siiman
■
Eignastu
tónlistina
vinsælustu
Kvikmyndin verður (endur)frumsýnd
í Háskólabíói 19. júní næstkomandi.
PÆGURTONLIST
BIIASTÆÐI ,m . .
BÚHHUB l
BLANDA
RÚSSÍBANARNIR komu
sáu og sigraðu með breið-
skífu sinni á síðasta ári þar
sem þeir hrærðu saman
ólíkum straumum
skemmtitónlistar. Platan
seldist bráðvel og selst enn
og því ekki að furða að þeir
félagar séu aftur komnir á
kreik og hyggist senda frá
sér skífu með haustinu.
Jón Steinþórsson verður fyrir svör-
um hjá Rússibönum og segir að
þeir séu að leggja síðustu hönd á nýtt
lagasafn sem kemur út í haust. Hann
segir að tónlistinni svipi til þeirrar
sem var á hinni fyrri plötu, enda fram-
hald af henni, þó beinskeyttari, enda
sé meira af kletzmer-lögum og tvö
fmnsk lög sem koma inn fyrir tilstilli
hannonikkudeildar Rússibana.“Þetta
verður svipuð blanda, þó minna um
brasilíska tónlist, en klassísk stef eru
á sínum stað.“ Sama mannaskipan á
Rússíbönunum og á fyrstu skífunni,
en Jón segir að ýmsir gestir komi við
sögu á plötunni þótt ekki sé tímabært
að nefna nöfn.
Jón segir þá félaga hafa haft yfrið
nóg að gera í vetur og fram á vor;
þannig hafi þeir til að mynda leikið á
böllum í Hlaðvarpanum og heppnast
hafi vel. Framundan er frekari spila-
mennska, sveitin leikur í Miðbænum
sautjánda júm, en einnig er framundan
tónleikaferð á framandi slóðum, því
þeir steiha á tónleikahald í Neskaup-
stað 19. júní og á Seyðisfirði daginn eft-
ir. „Þetta verður fyi-sta ferð okkar út á
land og reyndar gaman fyrir mig að
koma á heimaslóðir," segir Jóhn, en
bætir við að vonandi verði ferðin
forsmekkur að frekara flandri um
landið; „það er alltaf gaman að spila
fyrir ný andlit".
GANAN Kussibanar
Morgunblaðið/Amaldur
Morgunblaðið/Arnaldur
ovart
FÁIR tónlistarmenn hafa valdið
poppskiíbentum og blaðamönnum
öðrum eins heilabrotum og Tricky.
Bæði er að tónlist hans getur verið
í senn fráhrindandi myrk og
drungaleg, en í næstu andrá legg-
ur hún líkn með þraut; mýkir,
bætir, græðir. Skammt er síðan
Tricky sendi frá sér nýja breið-
skífu.
Tricky, sem gegndi í eina tíð
nafninu Adrian Thaws, átti erf-
iða æsku eftir því sem blöð og
tímarit hafa greint frá, og fetaði
um tíma glapstigu þótt hann vilji
sjálfur gera lítið
úr því; segist
vissulega hafa
stundað hasssölu
og jafnvel verið
hvinnskur um
tíma, en það sé
eftif Árno háttur fjölmiðla
Matthíosson að gera sem mest
úr hlutunum og þannig hafi ein
fjöður oftar en ekki orðið að tíu
hænum.
Tricky var og er mikill áhuga-
maður um rapp og hóf að rappa
með sveit sem kallaði sig þá The
Wild Bunch. Síðar breyttist nafnið
í Massive Attack og sem aukamað-
ur samdi Tricky tvö lög á fyrstu
skífu Massive og lagði að auki til
texta og rödd á tveimur lögum á
næstu skífu. Lögin hans þrjú voru
tilraunir Trickys til að semja og
flytja hiphop en niðurstaðan þótti
framandleg og var snemma kölluð
nýju nafni, triphop, en einnig
kennd við heimaborg Trickys,
Bristol. Á skífunni var Adrian
Thaws orðinn að The Tricky Kid
og þegar hann flutti til Lundúna að
hefja sólóferil tók hann hluta
nafnsins með sér; hét eftir það
Trieky.
Fyrsta sólóskífa Trickys hét eft-
ir móður hans sem hann misti á
barnsaldri, Maxine Quaye, og þótti
mikið meistaraverk. Á henni þró-
aði hann áfram tónlistarstefnuna
sem hann átti snaran þátt í og mót-
aði vel studdur af frábærri söng-
konu, Martinu.
Platan seldist afskaplega vel, fór
á toppinn í Bretlandi og seldist
bráðvel vestan hafs. Ekki þótti
önnur breiðskífan síðri, en á henni
var öllu meira um tilraunir en á
Maxinquaye og platan fjölbreyttari
fyrir vikið.
Þriðja skífan, Angels With Dirty
Faces, sem kom út nýverið eins og
getið er, stendur þeir tveim fyrri
ekki að baki; er ef eitt. Hér er
ógetið safnskífu sem Tricky gaf út
undir enn einu dulnefni, Nearly
God, en á þeirri syngja ýmsir lög
hans, þar á meðal Neneh Cheny,
Alison Moyet, Terrv Hall og
Björk.
Ókunnugum gæti sýnst Tricky
vera helst þekktur fyrir það að
binda bagga sína ekki sömu hnút-
um og samferðarmennirnir; því
tónlistin á það til að falla í skugg-
ann af sérkennilegum yfirlýsingum
og framferði eins og til að mynda
því að fara tónleikaferð um Banda-
ríkin með sviðið myi-kvað, eða yfir-
lýst ánægja hans með Spiee Girls,
en eins og hann segir sjálfur þá
eru þær einlægar í sinni sölu-
mennsku.
A VÆNTANLEGRI safn-
skífu Sprota sem kallast
Kvistir eiga ýmsar sveitir lög
og þar á meðal Mausverjar
reyndar tvö slík. Birgir
Steinarsson Mausari segir að
annað lagið á skífunni sé
hálfgert slys.
Birgir segir að lögin á
safnskífunni séu ólíkrar
gerðar; annað er endurannin
Ki-istalsnótt af síðustu skífu,
sem hafi orðið til fyiir ein-
hverja slysni. „Þegar við vor-
um að taka upp plötuna fékk
einhver þá skemmtilegu hug-
mynd að slökkva á trommun-
um og öllum rafmagnshljóð-
færum og þá varð til þessi
skemmtilega órafmagnaða
útgáfa. Við fóram svo í hljóð-
ver og tóku upp harmonikku
og kontrabassa og þá var
komið allt annað lag þó það
sé eins í grunnþáttum með
sama söng. Það var reyndar
aldrei planað að gefa þetta
út, en svo langaði okkiir að
prófa það fyrst við áttum það
til,“ segir Birgir og bætir við
að ])etta sé eins og hver örm-
ur endurhljóðblöndun. „í
stað þess að gera 40 útgáfúr
af hverju lagi eins og
dansliðið gerum við bara
tvær.“ m
Birgir segir að útgáfan
])ýði ekki að þeir eigi eftir að
gera fleiri slíkai- tilraunir.
„Það er gaman að gera þetta,
en það má ekki vera eitthvað
sem er fyrirfram ákveðið;
það verður að gerast óvart til
að tapa ekki galdrinum."
Hitt lagið á disknum, Allt
sem þú lest er lygi, segir
Birgir að sé „standard
rokkari", „Það er ekki
svakalega aðgengilegt og að
vissu leyti keimur af því og til
að mynda Síðustu ástinni
fyrir pólskiptin, en þó meiri
keyrsla og drungi. Það er 1
meiri reiði í textanum, é
að kvarta sem ég ger:
sjaldan."
Birgir segir að þeir félagar
stefni ekki á plötu í hausf
þeir hafi haft það mikið a
gera að þeir séu rétt að byrja
á lagasmíðum og vilji t
sér góðan tíma. „Við gæt
eflaust gert plötu í haust en
við viljum gera góða plötu o
]>\'í liggur ekkei-t á.“