Morgunblaðið - 19.07.1998, Side 2
2 SUNNUDAGUR 19. JÚLÍ 1998
FRETTIR
MORGUNB LAÐIÐ
Færanleg endurvinnslustöð Hringrásar fyrir brotajárn nú á Isafírði
Morgunblaðið/Halldór Sveinbjömsson
FÆRANLEG endurvinnslustöð Hringrásar vinnur nú brotajárn á Isafirði.
Utanríkisráðherra um stofnun sakamáladómstóls SÞ
Mikilvægasta framlag til
réttlætis frá stofnim SÞ
„Umhverf-
isvæn
lausn“
EINAR Ásgeirsson fram-
kvæmdastjóri Hringrásar ehf.
segir hagsmunamál fyrir Vestur-
land að fá endurvinnslustöð á
Grundartanga, „þetta er um-
hverfisvæn og hagkvæm lausn.“
Hringrás hefur verið gefið vil-
yrði stjórnvalda um lóð á Grund-
artanga undir starfsemi sína,
fyrir móttökustöð, endurvinnslu
og útfiutning á brotajárni frá
Vesturlandi.
Einar segir hugmyndir enn á
frumstigi og að fyrirtækið hafi
ekki haft tækifæri til að kynna
sína starfsemi fyrir hlutaðeig-
andi aðilum, „en það hefði vita-
skuld verið betra áður en það
komst í fjölmiðla," segir Einar.
„Við eigum eftir að ræða við
fulltrúa sveitarsljórna á svæðinu
en vonum að þeir átti sig á því
að þetta er mjög umhverfisvænn
kostur og það er alrangt að
rugla endurvinnslu á brotajárni
saman við stóriðju, við erum lítið
þjónustufyrirtæki og starfsemin
ekkert í lfkingu við það sem fyr-
ir er í nágrenninu."
Einar segir að stefnt sé að því
að reisa manir í kringum stöðina
með því að ryðja upp jarðvegi og
gera umhverfi þannig úr garði
að ekki verði um sjónmengun að
ræða. „Það hefur verið reynt að
velja þessum stöðvum þannig
stað að þær séu sem minnst
áberandi. En það fellur alltaf til
brotajárn og það þarf að koma
því burt.“
Einar segir Grundartanga
uppfylla þau skilyrði sem mót-
tökustöð brotajárns þarf að upp-
fylla, auðvelt aðgengi og að stutt
sé í útskipunarhöfn. „Þetta er
hagkvæmur kostur. Við erum
með færanlega endurvinnslustöð
sem við flytjum á milli söfnunar-
staða á landinu."
Ospektir við
Hafnargötu
í Keflavík
TALSVERT var kvartað undan
óspektum og ónæði vegna
drykkjuláta á Hafnargötu í Keflavík
aðfaranótt gærdagsins.
Ein líkamsárás var tilkynnt til
lögreglu og hlaut fórnarlamb
áverka á nefi. Einnig var glei-flösku
kastað í bifreið með þeim afleiðing-
um að bíllinn skemmdist lítillega.
Bfl stolið
I gærmorgun klukkan sex heyrðu
síðan starfsmenn SES-verktaka á
Fitjabraut í Njarðvík að bíll var
ræstur fyrir utan vinnustað þeirra.
Fóru þeir út í glugga og sáu þar
dökkhærðan mann aka sendibíl fyr-
irtækisins á brott. Lögregla í
Reykjanesbæ leitar nú bílsins, sem
er með skráningarnúmerið II 076,
og biður þá sem verða hans varir að
láta lögreglu vita.
♦ ♦♦
Ólæti í Gjá
og títlaga
TIL slagsmála kom á veitingastaðn-
um Gjánni á Selfossi aðfaranótt
laugardagsins og var maður, sem
veittist að dyravörðum staðarins,
færður í fangageymslur lögreglu.
Lögreglan á Selfossi hafði einnig af-
skipti af ólátum gesta á veitinga-
staðnum Útlaganum í Hruna-
mannahreppi en skakkaði leikinn
áður en til átaka kom.
„ÉG TEL þetta vera mikilvægasta
framlag til aukins frelsis, réttlætis
og mannréttindaverndar frá stofn-
un Sameinuðu þjóðanna. Ég held að
það sé líka alveg Ijóst að þetta muni
auka mjög líkur á friði í heiminum
því að þegar búið er að stofna þenn-
an dómstól og hann farinn að starfa
getur enginn verið óhultur með þá
hræðilegu glæpi sem hafa verið
framdir í heiminum, allt fram á okk-
ar tíð. Því miður hafa ýmsir komist
undan réttlætinu í gegnum tíðina,"
sagði Halldór Ásgrímsson utanrík-
isráðherra í samtali við Morgun-
blaðið um þá ákvörðun að setja á
stofn alþjóðlegan sakamáladómstól,
en stofnsáttmáli hans var sam-
LUNDAVEIÐI hefur verið góð i
Vestmannaeyjum það sem af er
lundatíma. Veiði hófst 1. júlí og veiði:
tímabilið stendur til 15. ágúst. í
fyrrasumar var lundaveiði afar slök
og höfðu lundaveiðimenn engar
skýringar á því en vegna einhverra
náttúruskilyrða lét lundinn lítið sjá
sig. Það var því talsverður spenning-
ur í veiðimönnum um hvernig veiðin
yrði í sumar og þeir hafa ekki orðið
fyrir vonbrigðum. í flestum úteyjum
er nú búið að veiða meira en allt
sumarið í fyrra og virðist veiði alls
þykktur á alþjóðlegri ráðstefnu Sa-
meinuðu þjóðanna sl. fostudags-
kvöld.
Fram að þessu hafa alþjóðlegir
dómstólar, sem fjallað hafa um þjóð-
armorð, glæpi gegn mannkyninu og
stríðsglæpi, einungis starfað tíma-
bundið og tekið á staðbundnum
stríðsglæpum. Halldór sagði mikil-
vægt að þessi nýi dómstóll yrði
starfræktur allt árið. Hann yrði því í
grundvallaratriðum ólíkur dóm-
stólnum sem settur var á fót eftir
stríðið í Bosníu. Þar með yrði tryggt
að þeir sem stæðu fyrir stríðsglæp-
um og mannréttindabrotum yrðu
sóttir til saka, óháð því hvar og
hvenær glæpirnir væru framdir.
staðar vera mjög góð þrátt fyrir ein-
muna blíðu og ríkjandi norðlægar
áttir sem ekki hafa talist til bestu
lundaveiðiátta í Eyjum.
Samkvæmt þeim upplýsingum
sem fengust frá veiðimönnum í Eyj-
um má reikna með að búið sé að
veiða um 400 kippur, 40.000 lunda,
það sem af er lundatíma. Mest hefur
veiðin verið í Ystakletti, rúmar 90
kippur, 9.000 fuglar. Þar hefur veiðin
þó ekki verið meiri en í fyrra en þá
veiddust í Ystakletti um 140 kippur,
14.000 lundar, á lundatímanum.
Ekki hægt að standa
utan við dómstólinn
Halldór sagðist ekki hafa trú á að
þjóðir myndu neita að skrifa undir
stofnsáttmála dómstólsins. „Þjóðir
sem það gerðu yrðu fordæmdar um
allan heim sem þjóðir sem ekki virtu
mannréttindi. Ég hef ekki nokkra
trú á að margar þjóðir treysti sér til
að standa utan við þennan dómstól.“
Bandaríkin, Indland og nokkur
fleiri lönd hafa sett fram ákveðna
fyrirvara við aðild að dómstólnum.
Halldór sagðist ekki hafa trú á að at-
hugasemdir þessara landa yrðu til að
koma í veg fyrir aðild þeirra að dóm-
stólnum. Of mikið væri í húfí.
200 lítrar af
gambra gerðir
upptækir
LÖGREGLAN á Selfossi gerði
200 lítra af gambra upptæka á
fóstudagskvöld. Gambrinn var á
framleiðslustigi, að sögn lögregl-
unnar. Á sama stað fundust einnig
suðutæki sem ætluð voni til landa-
framleiðslu og lagði lögregla hald
á þau.
Eigandi gambrans og suðutækj-
anna hefur ekki komið við sögu
lögreglu áður. /
Hélt hnatt-
ferð sinni
áfram
FLUGKAPPINN á fisinu,
Brian Milton, hélt för sinni í
kringum hnöttinn áfram í
gærmorgun. Milton lagði af
stað frá Höfn um tíuleytið í
þungskýjuðu veðri.
Á föstudag gerði Milton til-
raun til að yfirgefa Höfn, hann
lagði af stað um níuleytið en
varð að snúa við eftir klukku-
stundar flug vegna þoku.
Að sögn lögreglu á Höfn á
hádegi í gær var ekki annað
vitað en Milton hefði getað
haldið ferð sinni til Bret-
landseyja áfram.
A_________________________
► 1-56
Meö fyrirhyggjuna
í farteskinu
►Augu æ fleiri opnast fyrir þvi
að ástæða er til að huga að sparn-
aði til elliáranna. / 10
Heldur Menem
krúnunní?
►Forseti Argentínu hyggst kýja
fram stjómarskrárbreytingu, öðru
sinni, til að tryggja sér eitt Igör-
tímabil til viðbótar. /12
Frumvarp um gagna-
grunna á heilbrigðis-
sviðl séð að utan
►íslenskar heilbrigðisupplýsingar
eru dýrmæt auðlind. /18
Eins og þruma úr
heiðskíru lofti
►Bandaríski stjarneðlisfræðing-
urinn Jack G. Hilis er íslenskur
að uppruna en hefur alið nær allan
sinn aldur vestra. /24
Sjálfstæði í stað
miðstýringar
►I Viðskiptum/Atvinnulífi á
sunnudegi er rætt við Þórólf Gísla-
son kaupfélagsstjóra KS. /26
B________________________
► 1-16
Bátasmiðurinn á
Bjargi
►Á Bjargi á Djúpavogi smíðar
Snorri Gíslason bátalíkön. Bátarnir
þykja listasmíði. /1,2,8-9
Fjársjóðir uppi
á hálofti
►Friðrik Weisshappel er að gera
upp elsta steinbæ í vesturbænum
í Reykjavík. /4
Safnið út tii fólksins
►Rætt við safnstjórann í Byggða-
safni Skagfirðinga í Glaumbæ. /6
Spunl og orðfimi
►Rappið ertónlistarform sem
sækir stöðugt í sig veðrið. /10
c
FERÐALOG
► 1-4
Umfjöll og firnindi
í þoku og sól
►Það er margt hægt að gera í
vikulangri ferð til Færeyja. /2
Ótakmörkuð fjöl-
breytní í gönguleiðum
►Reykjanesfólkvangur býður upp
á skemmtilegar gönguleiðir. /4
ÍD BÍLAR
► 1-4
6 nýir bílar fyrir
aldamót
►Nýir bílar sem eiga eftir að vekja
talsverða athygli eru væntanlegir
frá framleiðendum. /2
Heimilisbíllinn gas-
knúinn í f ramtíðinni?
►Volvo V70 bíl, sem gengur bæði
fyrir gasi og bensíni, hefur verið
hértil reynslu./4
Eatvinna/
RAÐ/SMA
► 1-16
FASTIR ÞÆTTIR
Fréttir 1/2/4/8/bak Brids 42
Leiðari 28 Stjömuspá 42
Helgispjall 28 Skák 42
Reykjavíkurbréf 28 Fólkífréttum 46
Skoðun 31 Útv./sjónv. 44,54
Minningar 32 Dagbók/veður 55
Myndasögur 40 Mannl.str. llb
Bréf til blaðsins 40 Dægurtónl. 13b
ídag 42
INNLENDAR FI ÉTTIR:
2-4-8-BAK
ERLENDAR FRÉTTIR: 1&6
Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson
LUNDINN háfaður í Eyjum.
Góð lundaveiði í Vestmannaeyjum
Meira veitt en allt
sumarið í fyrra
Vestmannaeyjum. Morgunblaðið.