Morgunblaðið - 19.07.1998, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 19. JÚLÍ 1998 15
GOLF
er meira en að segja það. Þetta er
ótrúlega harður skóli og menn
þurfa að leika vel í hvert sinn - ekki
eiga einn og einn góðan hring. Ég
ætla í sjálfu sér ekki að fara að
nefna nein nöfn, en það er sjálfsagt
að nefna Örn Ævar [Hjartarson,
GS] vegna þess að hann er þegar
búinn að vinna afrek sumarsins
[vallarmet á nýja vellinum á St.
Andrews, 60 högg]. Það er ótrúlegt
afrek og hlýtur að opna honum dyr í
nánast hvaða skóla sem er í Banda-
ríkjunum," segir Hannes.
íslenskur kylfingur
í Ryder-lið Evrópu?
Er talið barst að undankeppni
Birgis Leifs um sæti í Opna breska
meistaramótinu fyrir viku, varð
mönnum tíðrætt um að fyrrverandi
kylfíngar sem léku í Ryder-keppn-
inni urðu að sætta sig við að komast
ekki áfram - rétt eins og Birgir
Leifur. Þá sagði Hannes: „Af hverju
eigum við ekki að geta átt þátttak-
anda í Ryder-keppninni eins og
Danir? Það mælir ekkert gegn því.“
Hvíið um fólksfjölda?
„Nei, nei! Hann hefur ekkert að
segja. Við þurfum bara einn. Við
þurfum hins vegar að geta hjálpað
þeim sem þykja mjög efnilegir enn
frekar. Það gæti verið eitthvað svip-
að og hlutafélagið er að gera fyrir
Birgi Leif. Við þurfum að gera
mönnum kleift að helga sig íþrótt-
inni í tvö til þrjú ár - þurfum að
geta séð hvort menn standist prófið
og nái árangri. Það verður stórverk-
efni sambandsins í framtíðinni. En
þá verða þeir að njóta þess allt árið
um kring.“
Þá komum við að Afreksmanna-
sjóði ÍSÍ.
„Hann er náttúrlega ótrúlega
veikburða. Ég sit nú í stjórn þessa
sjóðs og vandamálið er að kylfingar
eiga nánast enga möguleika á að fá
styrki úr honum, ef marka má skil-
greiningu sjóðsins. Þar segir að
menn þurfi að vera á meðal tuttugu
bestu í heiminum í sinni grein til að
fá A-styrk, fjörutíu bestu til að fá B-
styrk og ég hef gjarnan sagt við
stjórn sjóðsins, að ef einhver
kylfinga okkar er kominn á meðal
fjörutíu bestu gæti hann styrkt
sjóðinn, ef hann hefði áhuga á því(!)
Afreksmannasjóðurinn nær því ekki
að hjálpa kylfingum, nema að hann
getur styrk efnilega kylfinga um
nokkur hundruð þúsund krónur.
Ómar Halldórsson fékk þrjú hund-
ruð þúsund krónur í fyrra og það
skiptir máli fyrir þessa stráka. Við
munum aldrei fá styrk allt árið, því
þá yrði sjóðurinn gjaldþrota."
Já, og stúlkur líka. Við höfum verið
að berjast við að fjölga stúlkum í
íþróttinni. Það er búið að vera
markmið sambandsins og það hefur
tekist í yngri flokkunum. Nú eru
komnir einhverjir tugir stúlkna,
sem eru að keppa í flokki fimmtán
ára og yngri. Þær eru samt enn að-
eins fjórar um hituna á hæsta stigi.
Það styttist þó í að fleiri blandi sér í
baráttuna. Það verður líklega á
næsta ári eða þarnæsta. Til þess að
við fáum unga kylfinga, sem eiga
möguleika á að gerast atvinnumenn,
þarf að vinna markvisst að því. Við
verðum fyrst og fremst að hafa
góða kennara. Það er ákveðið
vandamál eins og við töluðum um
áðan. Það er því ekkert til fyrir-
stöðu að við getum eignast kylfinga
í fremstu röð, ef við vinnum nógu
markvisst að því og byrjum nógu
snemma að kenna þeim. Svíamir
byrja að kenna þriggja eða fjögurra
ára börnum, leyfa þeim bara að
leika sér með kylfu og einhverja
plastbolta. Áhersla er lögð á að þau
hafi gaman af þessu, „golf og gam-
an“ er þeirra meginmarkmið. Við
erum að gera okkur grein fyrir því
að það er hægt að byrja miklu fyrr
með krakkana. Ég held að okkar
vandamál liggi ekki í því að fá börn
út á golfvöllinn. Þau hafa gaman af
því að leika sér í golfi, en hvað tekur
við hjá dreng sem er orðinn sautján
eða átján ára, sem er kominn með
einn í forgjöf og hefur mikla tækni?
Það þarf að koma í veg fyrir að
hann staðni. Því þarf að lengja
tímabilið. Þá er ekki nóg að vera sex
eða sjö mánuði á hverju ári í þessu.
Þá verða menn að geta stunda
íþróttina allt árið. Það er, eins og ég
sagði áðan, framtíðarverkefni hjá
sambandinu.
Vantar peninga
Kemur til greina að senda fleiri
unga kylfínga á einstaklingsmót er-
lendis í stað þess að senda ávallt
landsliðin í keppnisferðir?
„Já, já. Menn hafa verið að
breyta stefnu sinni í þessum málum,
að senda menn frekar á einstak-
lingsmót til þess að veita mönnum
reynslu og einnig til þess að fleiri
kylfingar fái smjörþefinn af keppni
erlendis. Segjum að við séum með
tuttugu manna hóp og allir innan
hans séu með forgjöf frá tveimur og
upp í fjóra. Maður veit ekkert hver
þeirra komi til með að skara framúr
- það gæti alveg eins verið sá sem
er með fjóra í forgjöf. Þannig að við
þurfum að gefa fleirum tækifæri en
við erum að gera núna. Okkur vant-
ar bara peninga, það er stærsta
vandamálið. Golfsambönd á Norð-
urlöndum, t.d. Svíarnir, hafa verið
að senda kylfinga niður á Spán og
okkur stendur þetta allt til boða. En
þetta kostar auðvitað peninga.
Norðmenn er til dæmis nokkuð
aftarlega á merinni í golfi, en þeir
eiga nokkra kylfinga sem hafa verið
að leika á stærstu atvinnumanna-
mótunum. Ég veit ekki betur en að
það séu drengir sem hafa leikið á
Norðurlandamótum og tapað fyrir
okkur.
Hvað þykir þér um frammistöðu
bestu kylfínga okkar nú í sumar?
„Það sem ég hef séð hefur verið
mjög gott. Ég fór á Hellu og fylgd-
ist með Björgvini Sigurberssyni,
Sigupáli [Geir Sveinssyni] og Þórði
[Emil Ólafssyni] - og þeir voru að
leika mjög vel allan tímann. Það var
virkilega gaman að fylgjast með
þeim. Þegar þessir strákar eru í
þessum ham eru þeir að gera mjög
góða hluti og leika alveg frábært
golf. Aftur á móti virðist sem leikur
þeirra sé ekki nógu jafn. Það virðist
hrjá okkur mest. Ef til vill er það al-
þjóðlegt vandamál, ég veit það ekki.
En það sést á árangrí okkar í Evr-
ópukeppni áhugamanna og fleiri
mótum að bestu kylfingar okkar eru
á réttri leið.“
Við sjáum á fjölda þeirra sem eru
með núll í forgjöf eðajafnvel lægra,
að við erum í stöðugri framfór?
„Já, maður heyrir samt að vell-
irnir hér á landi séu ekki metnir
nægilega erfiðir - að þeir ættu að
teljast erfiðari. Menn hafa verið að
lækka sig í forgjöf erlendis, en ekki
heima hjá sér. Það er ekki sam-
kvæmt því sem maður skyldi ætla.
Það er náttúrulega eilífðar þrætu-
efni.“
Er hægt að lagfæra slíkt?
„Nei, þetta er allt saman gert eft-
ir alþjóðlegum reglum, þannig að
menn verða bara að gera vellina
erfiðari og fá þannig vallarmetið
hækkað, þar sem það er hægt.“
Allir á Stiö
9
Fyrsta deild karla
sunnudag kl. 20
í Garðabæ
V
Stjarnan
BH
Víkingur
Olís er styrktaraðili Stjörnunnar
UTSf'
ÍJ'f'Q
UTSALA
Íjjf'v
UTSAL4
Oáuntu.,,
v/Nesveg, Seltjarnarnesi.
Sími 561 1680
IJTSALA
Leitin að réttu eigninni
hefst hjá okkur
Vettvangur fólks f fastejgnaleit /*,
mbl.is/fasteignir
Kæru viðskiptavinir
Ég er komin til landsins á ný
og hef hafið störf í
Klipphúsinu,
Bíldshöfða 18,
sími 567 2044.
Ingibjörg Helgadóttir
hársnyrtir
Verið velkomin
Helgarferð
tn Prag
2. okt.
frá kr. 29.960
Föstudagsmorgunn
til sunnudagskvölds
Beint leiguflug
Borg hinna þúsund tuma, gimsteinn
Evrópu, borg töfranna, gullna borgin.
Það er engin tilviljun að Prag hefur
verið nefnd öllum þessum nöfnum,
borgin er einstök og á engan sinn líka
í Evrópu. Borgin var stærsta og
ríkasta borg Evrópu á 14. og 15. öld, ‘
menningarhjarta Evrópu, og hún er
ótrúlegur minnisvarði um stórkost-
lega byggingarlist og kúltúr. Hér
frumflutti Mozart Don Giovanny
ópemna, hér hélt Beethoven reglulega tónleika, hér samdi Mahler tónlist og
Kafka og Einstein sátu við skriftir. Hradcany kastalinn gnæfir yfir borgina, hið
gamla stjómarsetur konunga allt frá níundu öld og nú aðsetur forsetaskrifstofu
Havels. Heimsferðir bjóða nú einstakt tækifæri til að kynnast þessari ótrúlegu
borg með beinu flugi til Prag, föstudaginn 16. október. í boði em góð 3ja og
4ra stjömu hótel og spennandi kynnisferðir um kastalann og gamla bæinn þar
sem þú kynnist alveg ótrúlega heillandi
mannlífi á milli þess sem þú eltir óendan-
lega ranghala gamla bæjarins með íslensk-
um fararstjómm Heimsferða.
Aðeins 50 sæti
á sértilboði
Tónleikar ♦ Glæsilegir veitingastaðir
Næturlíf ♦ Kynnisferðir ♦ íslenskir fararstjórar
Hótei Quality
Eitt besta þriggja stjömu hótel í Prag, 240 herbergi. í 10 mínútna fjarlægð frá
gamla bænum, öll herbergi með sjónvarpi, síma, minibar, baðherbergi. Veit-
ingastaður, bar, stór móttaka. Mjög snyrtileg herbergi.
Don Giovanni
Líklega besta 4ra stjörnu hótel í Prag. Staðsett rétt hjá Quality-hótelinu. Öll
herbergi með loftkælingu, sjónvarpi, síma, baðherbergi, minibar, öryggishólfi.
Herbergisþjónusta. Góður veitingastaður, píanóbar, skemmtistaður. Topphótel.
Hilton Prag
Topphótel í hinum fræga hótelhring. Skammt frá gamla bænum. Stærsta hótelið í
Prag, öll herbergi með sjónvarpi, síma, baði, minibar, loftkælingu, baði. Veitingastað-
ir, barir, ráðstefnuaðstaða.
Verð kr.
29.960 Verð kr. 39.960
Flugsæti til Prag fyrir fullorðinn með
sköttum.
M.v. 2 í herbergi Quality Hotel, flug,
gisting, ferðir til og frá flugvelli, ís-
lensk fararstjóm, skattar.
Verð kr.
43.860
M.v. 2 í herbergi, Don Giovanni, flug,
gisting m. morgunverði, fararstjóm,
ferðir til og frá flugvelli, skattar.
U_l X ISFE RÐIR
\ y
Austurstræti 17, 2. hæð,
sími 562 4600.
www.mbl.is/fasteignir