Morgunblaðið - 19.07.1998, Qupperneq 4
4 SUNNUDAGUR 19. JÚLÍ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
VIKAN 12/7 -18/7
►Á FUNDI nefndar fasta-
fulltrúa aðildarríkja Evrópu-
sambandsins í Brussel á mið-
vikudag voru ræddar hug-
myndir Frakka um að tak-
marka aðgang íslands og
Noregs að lögreglusamstarfi
í Schengen. Frakkar óttast
áhrif á lögreglusamstarf
ESB.
►LÖGREGLAN f Reykjavík
hefur lagt hald á um 300
grömm af kókafni, 160
grömm af hassi og 250
kannabisplöntur. Allt fannst
þetta í fórum manns á þrí-
tugsaldri sem aldrei hefur
komið við sögu fíkniefna-
mála áður. Rannsókn máls-
ins er á lokastigi og telst það
upplýst.
►SAMVINNULÍFEYRIS-
sjóðurinn hefur skert öll
áunnin réttindi sjóðfélaga
sinna um fímm prósent. Frá
og með 1. júlí sl. hafa lífeyr-
isþegar fundið fyrir lækkun-
inni en lífeyrir þeirra var þá
lækkaður um 5%.
►RÚMLEGA 83% íslendinga
16-75 ára telja Morgunblaðið
áreiðanlegan fréttamiðil,
samkvæmt markaðsrann-
sókn, sem Gallup gerði fyrir
Morgunblaðið. Rfkisfjölmiðl-
arnir njóta mests trausts
fólks sem fréttamiðlar.
►GEORG Kr. Lárusson, lög-
reglusljóri í Reykjavík, segir
brýnt að endurskoða hraða-
takmörk í borginni, bæði til
hækkunar og lækkunar.
Hann hefur lagt til við borg-
aryfirvöld, Vegagerðina og
Umferðarráð að leyfður
verði 80 km hraði á Miklu-
braut á kaflanum frá gatna-
mótum Skeiðarvogs og Rétt-
arholtsvegar, um Ártúns-
höfða og upp í Mosfellsbæ.
Akæra gegn eiganda
Gallerís Borgar
ÁKÆRA ríkislögreglustjóra gegn Pétri
Þór Gunnarssyni, framkvæmdastjóra
og eiganda Gallerís Borgar, var þing-
fest í Héraðsdómi Reykjavíkur á
fimmtudag. Pétri Þór er gefið að sök að
hafa blekkt þrjá viðskiptavini gallerís-
ins til að kaupa hver eitt málverk á
tveimur málverkauppboðum á vegum
fyrirtækisins. í ákæru segir að mál-
verkin séu eftir danska málarann Wil-
helm Wills en þau voru seld sem verk
Jóns Stefánssonar. Pétur Þór neitaði
öllum sakargiftum.
Norðmenn mismuna
fískveiðiríkjum
HALLDÓR Ásgrímsson utanríkisráð-
herra segir að norsk stjórnvöld beiti
reglum um fiskvemd á Svalbarðasvæð-
inu með mismunandi hætti, eftir því frá
hvaða ríki þau fiskiskip komi, sem veiða
á svæðinu í trássi við norskar reglur.
Norðmenn slepptu á mánudag rúss-
neskum togara, sem tekinn hafði verið
við veiðar á lokuðu svæði vestur af
Bjamarey. Þegar tveir íslenskir togar-
ar vom teknir á fiskvemdarsvæðinu ár-
ið 1994 vom þeir færðir til hafnar,
ákært í málum þeirra og útgerðirnar
dæmdar til greiðslu hárra sekta.
Seðlabankinn
harmar mismun
RÍKISE NDURSKOÐUN birti á mánu-
dag greinargerðir um kostnað Seðla-
banka íslands og Búnaðarbanka vegna
veiðiferða, risnu o.fl. á ámnum 1993-
1997. Seðlabankinn sendi í kjölfarið frá
sér athugasemd þar sem hann harmar
þann mismun sem var á kostnaði Seðla-
bankans á þessum ámm og þeirri upp-
hæð sem kom fram í svari viðskiptaráð-
herra við fyrirspum Jóhönnu Sigurðar-
dóttur á Álþingi sl. desember. Vegna
skamms tíma sem bankinn fékk til að
undirbúa svarið hafi orðið útundan
reikningar sem Ríkisendurskoðun taldi
til veiðikostnaðar, einnig sé oft álitamál
hvaða liði eigi að fella undir veiðikostnað.
Útför sfðasta
keisara Rússlands
LÍKAMSLEIFAR Nikulásar II Rússa-
keisara og fjölskyldu hans vom á
fimmtudag fluttar til Sankti Péturs-
borgar, höfuðborgar hins liðna keisara-
veldis, og á fóstudag lagðar þar til
hinztu hvílu í dómkirkju Péturs og Páls
þar í borg, þar sem allir keisarar Rúss-
lands hafa verið jarðsettir frá því Pétur
mikli andaðist 1725. Fór athöfnin fram
nákvæmlega 80 ámm eftir að bolsévíkar
tóku keisarafjölskylduna af lífi. Athöfn-
in var mjög umdeild í Rússlandi en hún
þótti fara vel fram og meirihluti þjóðar-
innar fylgdist með henni í beinni út-
sendingu.
Rússneska stjómin náði í vikunni
samkomulagi við Alþjóðagjaldeyrissjóð-
inn (IMF) um lán upp á alls 22,6 millj-
arða Bandaríkjadala, í því skyni að
styrkja stoðir efnahagsúrbótaáætlunar
stjómvalda. Dúman, neðri deild rúss-
neska þingsins, hafnaði eða breytti mik-
ilvægum þáttum áætlunarinnar.
Alþjóðlegur saka-
dómstóll á laggirnar
SAMÞYKKT var á ráðstefnu Samein-
uðu þjóðanna í Róm á fóstudag stofnun
alþjóðlegs sakadómstóls. Við umræður í
aðalsamninganefnd ráðstefnunnar um
drög að stofnsamningi var breytingatil-
lögum Bandaríkjamanna og Indverja
vísað frá. 120 ríki, þ.á m. ísland, greiddi
atkvæði með stofnuninni, sjö vom á
móti, þ.á m. Bandaríkin, og 21 sat hjá.
Dómstóllinn mun hafa aðsetur í Haag
og fjalla um þjóðarmorð, glæpi gegn
mannkyni og stríðsglæpi.
Átök í sljónarflokkn-
um í Japan
MIKIL átök hafa verið í vikunni innan
stjómarflokks Japans, Frjálslynda lýð-
ræðisflokksins, eftir að Ryutaro Has-
himoto ákvað að segja af sér forsætis-
ráðherraembættinu, eftir mikinn ósigur
flokksins í kosningum til efri deildar
japanska þingsins sl. sunnudag.
►STJÓRNMÁLAFLOKKAR
Albana í Kosovo-héraði
stofnuðu á fímmtudag eigið
þing, sem hvorki stjérn Ser-
biú né ráðamenn í öðrum
ríkjum viðurkenna.
►STÆRSTI fjöldafagnaður
á götum franskra borga frá
þvf bundinn var endi á her-
nám Þjóðveija átti sér stað í
byijun vikunnar, þegar
Frakkar fögnuðu sigri lands-
liðs sfns f heimsmeistara-
keppninni f knattspyrnu.
Stóðu fagnaðarlætin nær
óslitið yfír frá þvf leiknum
lauk á sunnudagskvöldi fram
á þriðjudag, en þá var Ba-
stilludagurinn, þjóðhátfðar-
dagur Frakka.
► RÍKISST J ÓRNIN í Súdan
féllst á fímmtudag á þriggja
mánaða vopnahlé til að
greiða fyrir matvælasend-
ingum til svæða í suðurhluta
landsins, þar sem hung-
ursneyð hefur ríkt. Daginn
áður hafði Frelsisher Súd-
ans, sem berst við stjómar-
herinn um yfirráð yfir Suð-
ur-Súdan, lýst einhliða yfir
þriggja mánaða vopnahléi í
þessu skyni.
►VEÐRIÐ hefur verið nyög
undarlegt víða um heim að
undanförnu, svækjuhiti sums
staðar en hrollkalt annars
staðar og víða skammt á
milli þessara öfga í veðra-
brigðum. í N-Noregi ríkti f
vikunni hitabeltisveðrátta
með 30 gráðu hita á daginn
og á Spáni hefur hitinn legið
í um 40 gráðum. Annars
staðar í Evrópu hrylla menn
sig yfír köldu og vætusömu
veðri.
FRÉTTIR
A Arnarstapa
ÞAÐ jafnast fátt á við að leika sér úti á sumrin. Þessi gutti var alltént hæstánægður með sig á
leikvellinum á Arnarstapa á Snæfellsnesi.
Skoðanakönnun um notkun á fréttamiðlum á Netinu
Fleiri skoða fréttavef
Morgunblaðsins en Yísi
NOKKRU fleiri heimsækja frétta-
vef Morgunblaðsins en fréttavef
Vísis ef marka má nýja skoðana-
könnun Gallups. Af þeim sem nota
alnetið heimsækja 45,3% fréttavef
Morgunblaðsins, en 41,1% frétta-
vef Vísis. Um 70% þeirra sem nýta
sér þessa miðla eru karlar og 30%
konur.
Könnun Gallups var gerð 27. júm'
til 10. júlí og náði til 1.200 einstak-
linga alls staðar af landinu á aldrin-
um 16-75 ára. Nettósvörun var
71,7%.
Af þeim sem svöruðu sögðust
37,1% nota Netið og 62,9% sögðust
aldrei nota það. 13,8% sögðust nota
Netið daglega, 5,7% 3-6 sinnum í
viku, 10,4% 1-2 sinnum í viku og
7,3% sjaldnar en einu sinni í viku.
Notkunin var meiri meðal karla en
kvenna og sömuleiðis meiri meðal
þeirra sem búa á höfuðborgar-
svæðinu en meðal þeirra sem búa
utan þess.
Af þeim sem nota Netið skoðuðu
31,9% fréttavef Morgunblaðsins
oftar en þrisvar sinnum í viku, en
sama tala fyrir fréttavef Vísis er
29,3%.
15% skoða vefína
annan hvern dag eða oftar
Notkun á netmiðlum var einnig
könnuð í neyslukönnun, sem Fé-
lagsvísindastofnun gerði í júní sl.
Miðlarnir fengu að ráða því hvern-
ig spumingarnar voru orðaðar og
getur það hafa skipt máli þegar
niðurstöðumar era skoðáðar. Sp-
uming Vísis var: „Heimsækir þú
Vísi?“ 12,4% svöruðu spumingunni
játandi og 87% neitandi. Spuming
Morgunblaðsins var: „Lest þú
fréttavef Morgunblaðsins?" 11,1%
sögðu já og 88,9% nei. Ekki er töl-
fræðilega marktækur munur á
þessum tölum.
Spuming RÚV var: „Skoðar þú
textavarp RÚV á Intemetinu?“
8,1% svaraði spumingunni játandi
og 91,9% neitandi. Spuming Is-
landia var orðuð svona: „Heimsækir
þú fréttavef Islandia á Intemetinu?“
4,7% sögðu já og 95,3% sögðu nei.
Hversu oft heimsækir þú fréttavef Morgunblaðsins,
9
mbl.is
Daglega
3-6 sinnum
í viku
Sjaldnar en 2
sinnum í viku
Aldrei
25%
Fjöldi aðspurðra 314
-tókuafstöðu 313
-tóku ekki afstöðu 1
55%
Hversu oft heimsækir þú fréttavef DV,
Daglega
3-6 sinnum
í viku
Sjaldnar en 2
sinnum í viku
Aldrei
24%
riT»a
Fjöldi aðspurðra 314
-tókuafstöðu 314
-tóku ekki afstöðu 0
59%
GALLUP Markaðsrannsókn júní-júlf 1998
Einnig var fólk sem notar vefina
spurt hversu oft það heimsækti þá.
Niðurstöðumar voru nánast þær
sömu fyrir Vísi og fréttavef Morg-
unblaðsins. Um 15% sögðust nota
vefina daglega eða annan hvern
dag. Um 35% sögðust nota þá einu
sinni til tvisvar í viku. 50% sögðust
skoða Vísi sjaldnar en einu sinni í
viku en 46,8% sögðust nota frétta-
vef Morgunblaðsins sjaldnar en
einu sinni í viku. Einnig var spurt
hve lengi fólk staldraði við á vefj-
unum. Svörin vora einnig nánast
þau sömu. 40% sögðust staldra við
í skemmri tíma en 5 mínútur og
53% sögðust staldra við í 6-15 mín-
útur. 5-6% stöldruðu við lengur en í
16 mínútur.
Neyslukönnun Félagsvísinda-
stofnunar, sem er skrifleg, var lögð
íyrir 1.340 manns á aldrinum 14-80
ára og svöraðu 856.
Handtekinn
fyrir að sýna á
sér kynfærin
LÖGREGLAN í Reykjavík handtók
á föstudag karlmann á sjötugsaldri,
sem sýnt hafði konu kynfærin á sér
í Elliðaárdal.
Lögreglu hafa að undanförnu
borist tilkynningar um karlmann
sem hefur sýnt börnum, konum og
unglingum á sér kynfærin í Elliða-
árdal og nágrenni og var maðurinn
grunaður um að hafa verið að verki
í þeim tilvikum.
Maðurinn var yfirheyrður af
rannsóknardeild lögreglunnar í
gær. Hann neitaði öllum sakargift-
um. Honum hefur nú verið sleppt úr
haldi.