Morgunblaðið - 19.07.1998, Side 9
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 19. JÚLÍ 1998 9
FRÉTTIR
Hefur liturinn á
stuðaranum dofnað?
Eru listarnir orðnir Ijótir?
Gefðu þeim nýtt líf með
Simoniz Back to Black.
Þú bara úðar, strýkur
yfir með klút og á nokkrum
sekúndum hafa stuðararnir,
listarnir og hliðarspeglarnir
öðlast nýtt líf. Back to Black
er glært efni og hentar því
skínandi vel á alla liti.
ELDUR logaði í ruslafótu í íbúð við
Vesturgötu þegar slökkvilið bar þar
að á þriðja tímanum á fostudag, eftir
að starfsmaður rakarastofu þar við
hliðina á hafði tilkynnt um reykjar-
lykt frá íbúðinni.
Enginn var í íbúðinni þegar
slökkviliðið kom á vettvang og þykir
Ijóst að verr hefði farið, hefði athug-
ull nágranninn á rakarastofunni ekki
fundið lyktina og gert viðvart. Litlar
skemmdir reyndust hafa orðið á
íbúðinni en hún var reykræst.
----------------------
Níu teknir
ölvaðir
LÖGREGLAN í Kópavogi tók fjóra
menn vegna ölvunar við akstur
aðfaranótt laugai-dags og á
laugardagsmorgun og lögreglan í
Reykjavík tók þrjá menn vegna
ölvunaraksturs í fyrrinótt. A Selfossi
voru ölvaðir ökumenn einnig á ferð
en lögreglan þar tók tvo menn
ölvaða við akstur aðfaranótt
laugardagsins.
-------♦-♦-♦-----
Röng mynd
VEGNA mistaka var birt röng
mynd með minningargreinum um
Baldur Bjarnason frá Vigur á blað-
síðu 32 í Morgunblaðinu í gær, laug-
ardag, og birtist þar mynd af al-
nafna hans, sem er nýlátinn. Hlut-
aðeigendur eru beðnir afsökunar á
mistökunum.
Fleiri minningargreinar um Bald-
ur eru á blaðsíðu 36 í blaðinu í dag.
Sjálfvirk athugunarstöð Vegagerðarinnar við Blönduós
Mikil eftirspurn
eftir barra
GUÐMUNDUR Örn Ingólfsson,
framkvæmdastjóri Máka hf. á Sauð-
árkróki, segir mikla eftirspurn eftir
baiTa í Evrópu og Bandaríkjunum.
Barraeldið er rétt að fara af stað hjá
fyrirtækinu eftir þá þróunarvinnu
sem hefur verið þau fimm ár sem
fyrirtækið hefur starfað.
Stefnt er að því að framleiða tutt-
ugu tonn af barra í ár og eru þau
þegar seld. Kaupandi er breskt fyr-
irtæki, Superfresh, en mOligöngu um
söluna annast Seemark, dótturíyrir-
tæki SH. Fyrir hálft kíló fást 720 kr.
sem gefur 600 kr. í skilagjald til
Máka. Fyrir smærri fisk fæst lægra
verð eða um 550 kr. í skilagjald.
Verðmæti framleiðslunnar í ár er því
á bilinu 26 til 29 milljónir en verð-
mæti barra fer eftir þyngd, því
stæni fiskur því meira verð.
Guðmundur segir að í kjölfar
greinar sem rituð var um fyrirtækið í
tímaritið Seefood Intemational hafi
fyrirspurnum rignt inn til Máka hf.,
aðallega frá Evrópu en einnig hafi
bandarískir aðilar sýnt áhuga. Það
þurfi hins vegar mikla framleiðslu-
getu til að fara inn á þann markað.
„Barri er einn gæðamesti fiskur í
Evrópu og áhugi kaupenda er greini-
lega mikill.“
Hugmyndin að Máka hf. kviknaði
hjá Guðmundi þegar hann var við
doktorsnám í Kaupmannahöfn og
var að velta fyrir sér hvernig hægt
væri að nýta varmann hér á landi.
Það kom í ljós eftir úttekt sem sjáv-
arútvegsstofnun gerði að barraeldi
var arðvænlegast. Næsta skrefið
var að stofna fyrirtækið og vinna
þróunarvinnu. Frá árinu 1996 hefur
Máki hf. verið aðili að þróunarverk-
efni í samvinnu við Evrópusam-
bandið og voru erlendir aðilar þess
staddir hér á landi á dögunum og
lýstu því yfir að fyrirtækið væri til-
búið að stíga skrefið til frekari
framleiðslu.
Greint var frá því í Morgunblað-
inu á miðvikudag að Máki hf. stefnir
að yfirtöku á Miklalaxi. Guðmundur
segir framleiðslugetu Máka hf. muni
aukast í þrepum eftir að það hefur
verið gert. Þegar seiðastöðin hafi
verið tekin í notkun verði fram-
leiðslugetan 150 tonn, þegar allt eld-
isrými verði komið í gagnið þá verði
framleiðslugeta 500-800 tonn, háð
stærð fisksins.
Mælir bæði
veður og
bílaumferð
Blönduósi. Morgvnblaðið.
SKAMMT austan við Blönduós er
að komast í gagnið sjálfvirk veð-
urathugunarstöð Vegagerðarinn-
ar. Það er verkfræðistofan Vista
sem sér um að reisa þessar stöðv-
ar fyrir Vegagerðina og er þessi
stöð við Blönduós sú fjórða af sjö
sem byggðar verða á þessu ári.
Birgir Antonsson hjá verkfræði-
stofunni Vistu hefur komið að
uppsetningu 25 stöðva fyrir Vega-
gerðina í gegnum tiðina. Birgir
segir að auk þess að mæla hina
hefðbundnu þætti veðursins telji
þessi stöð bifreiðar sem leið eigi
um veginn. Birgir sagði að gald-
urinn við að telja bfla væri fólginn
í því að koma fyrir segulsviði und-
ir veginum og þegar bfll fer yfir
rýfiir hann segulsviðið og er þar
með talinn. Búfénaður hefúr eng-
in áhrif á segulsviðið og kemst því
ótalinn um vegina. Aðspurður
sagði Birgir Antonsson að þessar
sjálfvirku veðurathugunarstöðvar
Vegagerðarinnar hefðu sloppið
við skemmdai*verk í gegnum tíð-
ina. Þeir sem hafa aðgang að
textavarpi Sjónvarps eða alnetinu
ættu að fara að sjá upplýsingar
frá Blönduósstöðinni bráðlega.
-----♦ ♦♦----
Eldur í rusla-
fötu í mann-
lausri íbúð
Morgunblaðið/Jón Sigurðsson
BIRGIR Antonsson við nýjustu sjálfvirku veðurathugunarstöð Vega-
gerðarinnar skammt austan við Blönduós.
HS
skínatuU bíll