Morgunblaðið - 19.07.1998, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ
___________ERLENT_________
Tour de France í hættu
veg’iia ólöglegra lyfja
Reuters
SVISSNESKI hjólreiðakappinn Alex Zulle ræðir
við fréttamenn. Grunur leikur á að keppnisiið
hans, Festina, hafi notað ólögleg lyf til að
bæta frammistöðu sína.
París. The Daily Telegraph.
FRÖNSK dagblöð telja að
framtíð Tour de France,
þekktustu hjólreiðakeppni
heims, sé í hættu vegna
ásakana um að margir kepp-
endur hafí notað ólögleg lyf.
Blöðin segja þetta umfangs-
mesta hneykslismál sem
komið hafi upp í sögu keppn-
innar.
Franska lögreglan hefur
hafíð sakamálarannsókn
vegna ásakananna og fransk-
ir fjölmiðlar sökuðu skipu-
leggjendur keppninnar og
keppendur um „þagnarsam-
særi“. Dagblöðin Liberation
og Le Figaro sögðu að svo
kynni að fara að keppnin yrði
lögð niður vegna málsins.
Málið snýst einkum um eitt af
helstu keppnisliðunum, Festina.
Framkvæmdastjóri og læknir liðs-
ins voru hnepptir í varðhald eftir að
nuddari þess, Willy Voet, var hand-
tekinn í vikunni sem leið við landa-
mæri Frakklands og Belgíu með
400 skammta af amfetamíni, stera-
lyfjum og ólöglegum vaxtarhormón-
um. Við yfirheyrslu kvaðst hann
hafa verið að hlýða skipunum „að
ofan“ og bætti við að þetta væri
ekld í fyrsta sinn sem hann
smyglaði ólöglegum lyfjum.
Lögreglan leitaði einnig í höfuð-
stöðvum keppnisliðsins nálægt
Lyon og fann þar steralyf og efni
sem notuð eru til að breyta blóð- og
þvagsýnum við lyfjapróf. Lögreglan
leitaði einnig í hóteli í Cholet, þar
sem níu hjólreiðamenn Festina
dvöldu fyrir fimmta áfanga keppn-
innar á fimmtudag.
Pótt keppnisliðin í Tour de
France hafi margoft verið sökuð
um að hafa notað ólögleg lyf hafa
skipuleggjendur keppninnar lengi
verið tregir til að rannsaka ásakan-
irnar til hlítar og auðvelt er fyrir
liðin að ónýta lyfjaprófin. Jean-
Marie Leblanc, framkvæmdastjóri
Tour de France, hafnaði í fyrra
beiðni íþróttamálaráðherra Frakk-
lands um „trúnaðarskýrslu" um
líkamlegt ástand allra keppend-
anna.
Reyna að gera iítið úr málinu
Forystumenn Alþjóðlega hjól-
reiðasambandsins (UCI) hafa
reynt að gera sem minnst úr mál-
inu og látið nægja að reka fram-
kvæmdastjóra Festina, Bruno
Roussel, um tíma. Leblanc hefur
sakað fjölmiðlana um að birta
„heimskulegar kjaftasögur" og
segir að ekki komi til greina
að vísa Festina-liðinu úr
keppninni, en tveir af hjól-
reiðamönnum þess, Richard
Virenque og Alex Zulle,
þykja sigurstranglegir í
keppninni í ár.
Segir 99% keppendanna
nota ólögleg lyf
Dr. Gerald Gremion,
svissneskur sérfræðingur í
íþróttalæknisfræði, fullyrti
fyrr í vikunni að 99% at-
vinnumanna í hjólreiða-
keppnum notuðu lyf til að
bæta frammistöðu sína. „I
fyrra annaðist ég lið at-
vinnumanna... og hver
keppandi var með sérstaka
tösku fyrir lyf og sprautur," sagði
hann. „Þeir sprautuðu sig sjálfir.
Mér blöskraði þetta og ég sagði
skilið við liðið.“
Gilles Delion, einn af fræknustu
hjólreiðamönnum Frakka, varð að
draga sig í hlé í fyrra þegar hann
gagnrýndi notkun hjólreiðamanna á
lyfinu EPO, sem bætir upptöku súr-
efnis í blóðið. Þótt notkun lyfsins
auki hættuna á hjartaáföllum er
næstum ógjörningur að greina það í
blóð- eða þvagsýnum.
Delion segist alltaf hafa neitað að
taka inn EPO en margir keppinaut-
ar hans hafi látið til leiðast. „Þeir
áttu einskis annars úrkosti, en skað-
inn er hryllilegur."
Hann telur einnig að lyfjaprófin
séu nánast gagnslaus. „Menn
þurfa að vera algjör fífl til að koma
upp um sig í lyfjaprófum nú á tím-
um.“
SUNNUDAGUR 19. JÚLÍ 1998 13
'V LANCOME
sumarkokkteill
BggSbgr'*------’
: ■ ■
LANCÖME
PARIS
LANCOME býður viðskiptavinum
sínum upp á einstakan kaupauka:
Rúmgóð og falleg hliðartaska fylgir
kaupum á LANCOME snyrtivörum
fyrir 5.000 kr.*
Margar spennandi nýjungar eru í boði, s.s.
nýtt líkamskrem, glossvaralitir, naglalakk og
virkar nýjungar fyrir feita og blandaða húð.
*Fáanlegt á öllum útsölustöðum LANCÖME,
á meðan birgðir endast.
A EINST0KU TILB0ÐI I N0KKRA DAGA
Hyundai Sonata er flaggskip Hyundai flotans;
svipsterkur og glæsilegur bíll á góðu verði.
Hyundai er breiður og rúmgóður eðalvagn
með 139 hestafla 2000 vél og er einstaklega
lipur og mjúkur í akstri. Tveir liknarbelgir,
ABS bremsukerfi, styrktarbitar í hurðum o.fl.
tryggir öryggi farþeganna.
N Ú E R LAG - S0NATA
- til framtíðar
Ármúla 13 • Sími 575-1220 - 575 1200 Fax 568 3818 • bl@bl.is • www.bl.is
f I I o n /