Morgunblaðið - 19.07.1998, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 19. JÚLÍ 1998 17
LISTIR
KRISTÍN Halldórsdóttir Eyfells: Saddam Hussein, forseti Iraks.
„Frægar ásjón-
ur“ Kristínar
Söngkonur í sumar-
Sumar-
námskeið í
íslenskum
miðalda-
fræðum
TVEGGJA vikna alþjóðlegt sum-
arnámskeið í íslenskum miðalda-
fi’æðum í Háskóla Islands hefst
mánudaginn 20. júlí. Heimspeki-
deild, Stofnun Arna Magnússonar
og Stofnun Sigurðar Nordals
gangast fyrir námskeiðinu. Stofn-
un Sigurðar Nordals annast skipu-
lagningu þess og stjórnar for-
stöðumaðui' hennar því. Þetta er í
annað skiptið sem slíkt námskeið
er haldið.
Þátttakendurnir verða 15 að
þessu sinni og koma frá 7 löndum.
Á námskeiðinu verður sérstaklega
fengist við norræna goðafræði og
íslenskar miðaldabókmenntir í
evrópsku samhengi.
Auk þess verða fluttir fyrirlestrar
m.a. um dróttkvæði, biskupasögur,
riddarasögur, fornsögurnar í ljósi
fomleifafræðinnar og viðtökur
sagnanna á síðari tímum. Þá gefst
þátttakendum tækifæri til að
heimsækja söfn og skoða sig um á
söguslóðum. Kennt verður á
ensku.
Mikill áhugi er á íslenskum mið-
aldafræðum víða um lönd, ekki síst
í Norður-Evrópu og Norður-Am-
eríku. Fomíslenska og miðalda-
bókmenntir era kenndar við
marga háskóla og rannsóknir
stundaðar.
Fræðirit á sviðum íslenskra mið-
aldafræða og þýðingar á fombók-
menntum eru gefnar út á mörgum
tungumálum. Til marks um hinn
mikla áhuga á miðaldafræðum má
benda á að um 200 manns sóttu
þing um norræna miðaldamenn-
ingu og miðlun hennar sem Stofn-
un Sigurðar Nordals stóð að og
haldið var í Kaupmannahöfn í apríl
sl. Að jafnaði sækja á þriðja hund-
rað manns alþjóðleg fornsagna-
þing sem haldin eru þriðja hvert
ár.
Ellefta fomsagnaþingið fer fram í
Ástralíu árið 2000. Vegna þessa
mikla áhuga er eðlilegt að Háskóli
Islands bjóði erlendum stúdentum
sumarnámskeið um íslenskar mið-
aldir enda er háskólinn miðstöð ís-
lenskra fræða í heiminum.
SÝNING á málverkum Kristín-
ar Halldórsdóttur Eyfells stend-
ur nú yfír í sýnirými listadeild-
ar háskólans í Mið-Flórída.
Yfírskrift sýningarinnar er
„Famous Faces“, Frægar ásjón-
ur, en þar glfmir listakonan
með sfnum hætti við ásjónur
fólks sem flest hefur sett svip
sinn á öldina sem er að líða. Má
þar nefna Bandaríkjaforsetana
Reagan, Eisenhower, Carter og
Kennedy, bresku forsætisráð-
herrana Churchill og Thatcher,
Saddam Hussein íraksforseta,
tónskáldið Igor Stravinsky,
heimspekinginn Bertrand
Russell, myndlistarmanninn
Salvador Dali, leikarann Sean
Connery og hnefaleikakappann
Mike Tysoii. Þá eru myndir af
nokkrum Islendingum á sýning-
unni, eins og myndhöggvurun-
um Ragnari Kjartanssyni og Jó-
hanni Eyfells, eiginmanni Krist-
ínar, auk sjálfsmyndar listakon-
unnar.
Kristín hefur haldið fjöl-
margar sýningar ein og með
manni sinum, auk þess að taka
þátt f samsýningum á Islandi, f
Bandarfkjunum og víðar. Verk
eftir hana eru í eigu listasafna
víða um heim. í tengslum við
sýninguna í Flórída hefur verið
gefin út vegleg sýningarskrá,
þar sem margar af myndunum
er að fínna.
Sýningunni lýkur 7. ágúst
næstkomandi.
skapi
Á TÓNLEIKARÖÐ Iðnó á þriðju-
dagskvöldið 21. júlí n.k. verðaFjór-
ar klassískar, með tónleika í Iðnó.
Tónleikarnir eru liður í tónleikaröð
hússins. Fjórar klassískar eru
þrjár söngkonur og píanóleikari,
þær Aðalheiður Þorsteinsdóttir pí-
anóleikari, Björk Jónsdóttir söng-
kona, Jóhanna V. Þórhallsdóttir
söngkona og Margrét J. Pálmadótt-
ir söngkona sem jafnframt útsetur
fyrir hópinn. Þær hafa unnið saman
síðan 1995.
Eins og nafnið bendir til hafa tón-
Saga um
kynskipti
og ást
BANDARÍSKA bókaforlagið Vik-
ing-Penguin hefur ákveðið að greiða
sem svarar til um 25 milljóna ísl. kr.
fyrir fyrstu bók manns er skrifar
um kynlífshneyksli, sem skók Dan-
mörku á millistríðsáranum. Segir
bókin frá hjónunum og listamönn-
unum Gerdu og Einar Wegener en
hann var fyrsti maðurinn sem fór i
kynskiptiaðgerð, að því er segir í
Berlinake Tidende.
Saga Wegener-hjónanna var um
margt sérstök og hreifst Banda-
ríkjamaðurinn David Ebershoff af
henni, svo mjög að til varð skáld-
saga byggð á lífi Gerdu og Einars,
er nefnist „The Danish Giri“. Tals-
menn Viking-Penguin viðurkenna
að greiðslan fyrir útgáfuréttinn sé
óvenju há, en minna jafnframt á að
sagan sé einstök. Raunar hefur
Ebershoff ekki lokið við bókina, en
spennan vegna hennar er orðin svo
mikil að útgáfurétturinn hefur verið
seldur til Bretlands, Brasilíu, Ítalíu
og Þýskalands.
Listmálararnir Einar og Gerda
Wegener bjuggu í Kaupmannahöfn
og París. Sat Einar oft fyrir hjá
konu sinni, klæddur kvenmannsföt-
um. Er hann gekkst undir kyn-
skiptiaðgerðina studdi Gerda hann
með ráðum og dáð og bjuggu þau
saman að henni lokinni. „Bókin
fjallar ekki eingöngu um aðgerð-
ina... þetta er sagan um hvernig
ástin á sér alltaf einhverja útleið,"
segir Ebershoff. Áætlað er að bókin
komi út í Bandaríkjunum í janúar
árið 2000.
í Iðnó
listarkonurnar klassískan bakgrann
en tengjast einnig leikhústónlist,
popptónlist og djasstónlsit og litast
dagskráin af því.
Fjórar klassískar hafa sungið á
tónleikum hér í borginni og á lands-
byggðinni og stefna fljótlega á tón-
leikaferð til Mið-Evrópu.
Á fyiri hluta efnisskrárinnar eru
létt lög sem hæfa kaffihúsum og
danshúsum. Síðari hluti efnisskrár-
innar kemur úr leikhúsinu, lög eftir
Kurt Weil og Hans Eisler. Textarn-
ir era flestir eftir Bertolt Brecht.
MYND eftir Lilju.
I ellefta
himni
LILJA Kristjánsdóttir opnar sýn-
ingu í dag sunnudaginn 19. júlí í Bíl-
ar og List á Vegamótastíg 4 og
stendur hún til 5. ágúst.
Lilja Kristjánsdóttir er fædd
1971, hún útskrifaðist frá málara-
deild Myndlista- og handíðaskóla
íslands 1995. Hún stundaði einnig
nám á Myndlistabraut FB til 1992
og fór í námsdvöl til Svíþjóðar í
Kongelige Konstfacktskolen 1995.
Þetta er önnur einkasýning Lilju,
verkin eru unnin með olíu á striga á
þessu ári og er þema sýningarinnar
I ellefta himni.
Sýningasalurinn Bílar og List er
opinn alla virka daga frá kl. 10-18,
laugardaga frá kl. 10-16 og sunnu-
daga frá kl. 14-17.
Christie’s í mál við
listaverkasafnara
London. The Daily Telegraph.
HIÐ virta uppboðsfyrirtæki
Christie’s hefur höfðað mál á
hendur listaverkasafnara
vegna falsaðrar myndar. Verk-
ið, sem safnarinn seldi fyrir
milligöngu Christie’s, kallast
„Spænsk kona með rautt sjal“
og var sagt eftir expressjónist-
ann Alexej von Jawlensky. Það
var selt á uppboði Christie’s
fyrir um 540.000 pund, um 60
milljónir, árið 1994.
Fram að þeim tíma hafði
aldrei fengist jafn hátt verð
fyrir mynd eftir rússneskan
listamann. En Adam var ekki
lengi í Paradís, og tveimur ár-
um eftir söluna vöknuðu grun-
semdir um að hún væri fölsuð.
Listfræðingar hafa staðfest
þann grun.
Christie’s hefur nú krafið
Kanadamanninn Charles Ta-
bachnick, um 340.000 pund,
um 40 milljónir, þann hluta
verðsins, sem trygging fyrir-
tækisins nær ekki yfir. Fyrir-
tækið hefur gert upp við kaup-
anda myndarinnar.
Talið er fullvíst að málið
muni hafa mikil áhrif á lista-
verkamarkaðnum, sem er afar
viðkvæmur fyrir ásökunum um
listaverkafalsanir. Er talið víst
að það muni ýta undir ásakanir
um falsanir á verkum eftir
aðra þekkta listamenn.
Þá er málið einnig áfall fyrir
Tabachnick, sem hefur notið
virðingar og viðurkenningar á
meðal listunnenda um tveggja
áratuga skeið en hann hefur
verið einn mikilvirkasti kaup-
andi expressjónískra og
fauvískra listaverka.
Tabachnick fékk helsta
keppinaut Christie’s, Sothe-
by’s, til að selja 21 verk fyrir
sig á síðasta ári, en ekki er
ljóst hvort að sú ákvörðun
tengist ásökunum um fölsun.
Þar á meðal var verk eftir
Jawlensky, sem ekki er talinn
neinn vafi á að sé raunveru-
lega eftir hann. Hins vegar
hafa skotið upp kollinum fleiri
verk eftir Jawlinsky, sem
grunur leikur á að séu fölsuð
og hefur það valdið miklum
deilum á meðal erfingja hans,
sem hafa úrskurðarvald um
hvaða verk séu ekta.
Sumarkvöld við orgelið
ÞRIÐJU tónleikarnir í tónleika-
röðinni Sumarkvöld við orgelið
verða í kvöld, sunnudagskvöld 19.
júlí kl. 20.30.
Þar kemur fram þýski organist-
inn Jörg Sondermann. Á efnisskrá
hans er Svíta við annað tónlag eftir
Clérambault, Tríósónata í Es-dúr
eftir Bach, allir sex Schubler-for-
leikirnir eftir Baeh og Prelúdía og
fúga um nafnið BACH eftir Liszt.
Schubler-forleikimir era sjaldan
leiknir allir í einu á tónleikum en
þeir era allir umritanir á aríum úr
kantötum Bachs, en á meðan kan-
töturnar heyrðust bara þegar þær
pössuðu í kirkjuárinu gat Bach
notað sálmaforleikina við mörg
tækifæri. Æskuvinur Bachs, Jo-
hann Georg Schubler, gaf þá út í
kringum 1748. Sálmarnir vora
meðal þeirra vinsælustu í þýsku
mótmælendakirkjunni á tímum
Bachs og fjórir þeirra eru notaðir
hér á Islandi undir lagboðunum
„Vakna, Síons verðir kalla“, „Gleð
þig, Guðs sonar brúð“, „Hver, sem
ljúfan Guð lætur ráða“ og „Lofið
vom Drottin, hinn líknsama fóður
á hæðum“.
Hinh' tveir era „Lofsöngur Mar-
íu“ (Önd mín lofar Drottin) og
„Ach bleib’ bei uns, Herr Jesu
Christ", sem er ekki til í íslenskri
JÖRG Sondemanil. Morgunblaðið/Amaldur
þýðingu. Jörg Sondermann er
fæddur árið 1957 í Witten í Þýska-
landi og hefur haldið tónleika víða
um heim.
Hann hefur einnig hljóðritað
fyrir útvarp, m.a. allar sex tríó-
sónötur Johanns Sebastians
Bachs, en í efnisvali sínu leggur
hann mesta áherslu á verk J.S.
Bachs og jafnframt á verk Max
Regers og samtímamanna hans.
A árunum 1979-1997 starfaði
hann sem organisti og kórstjóri í
Westfalen og frá árinu 1985 stóð
hann fyrir árlegri tónlistarhátíð er
nefnist „Westfálische Bach-Tage“.
Jörg Sondermann flutti tfi ís-
lands haustið 1997 og starfar nú
sem organisti við Hveragerðis-
kirkju.