Morgunblaðið - 19.07.1998, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 19. JÚLÍ 1998 37
MINNINGAR
KIRKJUSTARF
GUNNAR
FREYSTEINSSON
+ Gunnar Frey-
steinsson fædd-
ist á Selfossi 27.
apríl 1970. Hann
lést í bílslysi 5. júlí
síðastliðinn og fór
útför hans fram frá
Kópavogskirkju 15.
júlí.
Slysin gera ekki boð
á undan sér, góður
vinur og skólabróðir
er látinn. Þvílíkt reið-
arslag og hann sem
fyrir fáum mánuðum
mátti sjá á eftir bróður sínum í
blóma lífsins. Það virðast engin
takmörk vera fyrir því hvað hægt
er að leggja á foreldra hans og
sysþur.
Eg kynntist Gunnari fyrir átta
árum er við hófum nám í skógfræði
í Noregi. Mér varð fljótt ljóst að
þar fór afburðanámsmaður. Hann
var ekki lengi að renna í gegnum
námsefnið og síðan var tíminn not-
aður í áhugamálin s.s. landafræði
og mannkynssögu. Þvílíkur hafsjór
af fróðleik sem svo ungur maður
hafði yfir að ráða. Gunnar var mjög
dagfarsprúður maður og hafði mik-
ið jafnaðargeð. Hann var ekki fyrir
að trana sér fram en á sinn ein-
staka hátt ávann hann sér virðingu
samferðamanna. Samband Gunn-
ars við fjölskyldu sína var sérlega
gott. Þau komu oft inn í umræðuna
og hann sagði skemmtilegar sögur
af ferðum þeirra innanlands og ut-
an.
Ragnhildur systir hans var í
miklu uppáhaldi og vorið sem hún
útskrifaðist úr menntaskóla var
fylgst vel með gangi mála, ég er
ekki frá því að það hafi verið smá
keppni í gangi.
Eftir að skólagöngu lauk fór
Gunnar fljótlega að vinna hjá
Skógrækt ríkisins við undirbúning
Suðui’landsskóga. Þar vann hann
framúrskarandi gott starf og sunn-
lenskir skógarbændur eiga honum
mikið að þakka. Hann var svo af-
kastamikill og eftir hann hggur
mikið efni sem mun nýtast okkur
vel í framtíðinni. Gunnar var um
það bil að taka nýju starfi á
Mógilsá og ég samgladdist honum
innilega því þar var kominn réttur
maður á réttan stað. En vegir guðs
eru órannsakanlegir og að lokum
vil ég þakka fyrir að hafa átt svo
góðan og traustan vin sem Gunnar
var.
Ég votta Ingi-
björgu, Freysteini og
Ragnhildi mína dýpstu
samúð.
Sigrún
Sigurjónsdóttir.
I hendi Guðs er hver ein tíð,
í hendi Guðs er allt vort stríð,
hið minnsta happ, hið mesta
fár,
hið mikla djúp, hið litla tár.
(M. Joch.)
Það er alltaf erfitt
að sætta sig við það
þegar fólk hverfur á braut í blóma
lífsins og á svo margt ógert. Gunn-
ar var afar rólegur að eðlisfari og
kom okkur skólasystkinum oft fyr-
ir sjónir sem einfari. Hann var
bráðgreindur og vel að sér á mörg-
um sviðum, ekki síst kunni hann
skil á ýmsu sem fyrir öðram var
sem lokuð bók. Má t.d. nefna að
hann var í sigurliði spuminga-
keppni framhaldsskólanna vetur-
inn 1989.
Gunnar var mikill náttúruunn-
andi og í MK notaði hann hverja
stund til að njóta náttúrannar.
Meðan aðrir sátu inni í frímínútum
fékk Gunnar sér góðan göngutúr
og skerpti athyglisgáfuna fyrir
næstu kennslustund. Gunnar var
traustur, áreiðanlegur og stóð
ávallt fyi-ir sínu. Við kveðjum góð-
an dreng og biðjum Guð að styrkja
fjölskyldu hans í sorg sinni.
Bekkjarfélagar úr
Menntaskólanum í
Kópavogi.
Kveðja frá Menntaskólanum
í Kópavogi
Á þessum sólríku sumardögum
berst sú harmafregn að Gunnar
Freysteinsson hafi látist í umferð-
arslysi. Einu sinni enn verður oss
dauðlegum mönnum sú vanmátt-
uga spurn á vöram hví forsjónin
hrífi svo skyndilega brott ungan
efnilegan mann í blóma lífsins frá
ástvinum og ættingjum. Þegar slík-
ir sorgaratburðir gerast verður
mönnum orðs vant.
Gunnar Freysteinsson var nem-
andi í Menntaskólanum í Kópavogi
á áranum 1986-1990 er hann lauk
stúdentsprófi af náttúrafræði-
braut. Hann var greindur og góður
námsmaður, einstaklega ljúflyndur
og dagfarsprúður piltur, vinsæll af
kennurum og skólafélögum. Gunn-
ar átti sæti í spumingaliði skólans
er sigraði í spumingakeppni fram-
haldsskólanna árið 1989 en þar
nýttust vel hans fjölbreyttu hæfi-
leikar enda var Gunnar vel lesinn
og áhugasvið hans lágu víða.
Eftir lifir minning um góðan
dreng og þakklæti fyrir að hafa
mátt njóta samvistanna við hann.
Fyrir hönd allra í Menntaskólan-
um í Kópavogi sendi ég aðstand-
endum Gunnars okkar dýpstu sam-
úðarkveðjur og biðjum algóðan
Guð að styrkja þá og blessa í
óbærilegri sorg þeirra.
Margrét Friðriksdóttir
skólameistari.
Á sólríkum sumarmorgni era
mér færðar þessar hræðilegu frétt-
ir að Gunnar sé dáinn. Skyndilega,
eins og hendi sé veifað, er sem ský
fari fyrir sólina og það dimmir yfir
öllu. Traustur vinur og vinnufélagi
er fallinn frá, hrifinn burt frá okk-
ur í blóma lífsins. Aldrei aftur fáum
við að heyra framlegar vangaveltur
um mannkynssöguna eða skondnar
stökur um hrakfarir samstarfs-
manna. En minningin um
skemmtilegar samverastundir fær
okkur til að brosa. Gunnar aðstoð-
aði mig mikið við lokaverkefni mitt
í Garðyrkjuskólanum og fæ ég
honum seint þakkað. Hann sat með
mér dögum saman við að setja
endapunktinn á ritgerðina og
kvartaði aldrei þótt neminn hans
væri kominn í annarlegt ástand,
eins og hann orðaði það, vegna of
langrar setu við tölvuskjáinn. Þetta
lýsir Gunnari vel því hann var
alltaf tilbúinn til að hjálpa manni
og hann hafði alltaf svör á reiðum
höndum ef maður þurfti að vita
eitthvað. Skógrækt átti hug hans
allan og hann hafði svo gaman af
því að fræða mann um hitt og þetta
tengt skógrækt.
Þitt skarð verður seint fyllt, en
minningin um þig mun lifa í hjarta
okkar um ókomna framtíð.
Kæra fjölskylda Gunnars, ég
sendi ykkur innilegar samúðar-
kveðjur og Guð gefi ykkur allan
þann styrk sem þið þurfið á að
halda. Við hugsum til ykkar.
Agnes Brá.
Það var mikil gleði í mínu hjarta
og eftirvænting þegar ákveðið var
nú í vor að ráða Gunnar Frey-
steinsson sem sérfræðing við
Rannsóknastöðina á Mógilsá. Við
ætluðum okkur að vinna sameigin-
lega að tveimur nýjum og yfir-
gripsmiklum rannsóknarverkefn-
um. Gleði mín var ekki aðeins til-
SVEINBJORG EDDA
GUÐMUNDSDÓTTIR
GERBRACHT
+ Sveinbjörg Edda Guð-
mundsdóttir Gerbracht
fæddist í Reylqavík 17. október
1941. Hún andaðist á heimili
sínu í Richardson 7. júlí síðast-
liðinn. Edda var húsmóðir í Ric-
hardson, Texas. Fyrri eigin-
maður Eddu er Ralph LePaugh
og eignaðist hún með honum
eina dóttur, Christine, en hún
er gift Fritz Anderson. Árið
Með örfáum orðum vil ég kveðja
góða vinkonu, hana Eddu, og
þakka henni góð kynni. Ég hitti
hana fyrst hjá Mæju systur minni
sem býr í Dallas, reyndar kynntist
ég öllum vinkonum Mæju sem voru
í saumaklúbbnum „Týndu nálinni",
þeim Eddu, Ernu, Sigrúnu og
Nancy. Nú era þær Edda og Ema
báðar farnar, Edda barðist hetju-
lega við krabbamein, en varð und-
an að láta. Það vantar mikið næst
þegar ég kem til Dallas, engin
Edda. Þakklæti er mér efst í huga,
fyrir að hafa kynnst svo góðri
stúlku og átt vináttu hennar. Það
1972 giftist Edda síðari eigin-
manni sínum, Donald O. Ger-
bracht. Dóttir Donalds og stjúp-
dóttir Eddu er Schauna, gift
Bill Richards. Barnabörn Eddu
og börn Christine og Fritz eru
Calvin Osmund og Edda Brynn.
Útför Sveinbjargar fer fram
frá kapellunni í Fossvogi,
mánudaginn 20. júlí og hefst at-
höfnin klukkan 10.30.
var sama hvenær var komið í heim-
sókn til Eddu, á hennar fallega
heimili, brosandi kom hún til dyra
og fagnaði gestum, og veitingar
frábærar. Þá var hlegið og masað
og rifjað upp hvað hefði gerst síðan
síðast.
Edda bjó manni sínum Donald
(Donna) fagurt heimili og voru þau
samhent í öllu.
Ég bið góðan guð að styrkja
aldraða móður Eddu, Unni, en hún
dvelur nú á sjúkrahúsi. Eigin-
manni Eddu, Donald, dóttur henn-
ar, Stínu, og börnum hennar,
Brynju systur hennar og fjöl-
skyldu sendi ég innilegar samúð-
arkveðjur og bið guð að styrkja
þau og blessa.
Fagna þú, sál mín. Allt er eitt í Drottni,
eilíft og fagurt - dauðinn sætur blundur.
Þótt jarðnesk dýrð og vegsemd visni og
þrotni,
veit ég, að geymast handan stærri undur.
Þótt stórtré vor í byljum jarðar brotni,
bíður vor allra um síðir Edenslundur.
(Jakob J. Smári)
Guð blessi minningu Eddu.
Jóhanna Kristinsdóttir
Elsku Edda. Við eram þakklát
fyrir þá gjöf að hafa átt þig að.
Vissan um það, að drengimir okk-
ar munu alltaf búa að því, hve þú
miðlaðir þeim ríkulega af hjarta-
hlýju þinni, er okkur óendanlega
mikils virði. Þótt okkur finnist að
þú takir með þér svo mikið af okk-
ur, þá skilurðu mun meira eftir í
hjörtum okkar. Þær gullnu stundh-
sem við áttum saman í Richardson
og hér heima verða ekki fleiri og
ekkert getur komið í stað þeirra.
Okkur fannst oft erfitt að kveðj-
ast eftir frábærar samverastundir,
en þessi kveðjustund er sú erfið-
asta.
Guð blessi þig.
Árni, Brynja og strákarnir.
komin vegna þess að ég vissi að til
þessara verkefna var að ráðast
maður með afburða hæfileika á
sviði skógfræða, heldur hafði ég
einnig átt því láni að fagna að vinna
með Gunnari í stuttan tíma fyrir
þremur áram og kynntist honum
þá ágætlega. Gunnar var í einu orði
sagt gull af manni. Nú hefur hann
verið hrifsaður burt í blóma lífsins.
Svart ský dregur fyrir sólu og
kuldinn læðist að. Harmurinn er
mikill og tilgangsleysi atburðarás-
arinnar algjört.
En persóna Gunnars var svo
upplífgandi og sterk að ég finn að
hún lifir í huga mínum og í huga
okkar allra sem báram gæfu til að
fá að umgangast hann. Hann mun
því lifa í störfum okkar og verk-
um.
Þegar ég hugsa til Gunnars þá
hugsa ég um þreytta ferðalanga á
leiðinni heim úr vinnuferð, það er
rætt um heima og geima. Hann gat
lyft umræðunni á hærra plan þegar
hann byrjaði að fræða mann um
þjóðflutninga í Evrópu eða hvernig
hægt er að útskýra upprana hinna
ýmsu ömefna sem á leið okkar
urðu út frá gelísku máli. Þessir fyr-
irlestrar vora svo skemmtilegh- að
maður varð hálfleiður þegar heim
var komið að fá ekki að heyra
meira.
Nú er ferð Gunnars meðal okkar
lifenda lokið og ég kveð góðan vin
og félaga.
Freysteinn, Ingibjörg og Ragn-
hildur, ég samhryggist ykkur inni-
lega.
Arnór Snorrason.
Safnaðarstarf
Friðrikskapella. Kyrrðarstund í há-
deginu á morgun, mánudag. Léttur
málsverður í gamla félagsheimilinu
að stundinni lokinni.
Grensáskirkja. Mæðramorgunn
mánudag kl. 10-12.
Fella- og Ilólakirkja. Bænastund og
fyrirbænir mánudaga kl. 18. Tekið á
móti bænaefnum í kirkjunni.
Grafarvogskirkja. Bænahópur kl.
20. Tekið er við bænarefnum í kirkj-
unni alla daga frá kl. 9-17.
Seljakirkja. Mömmumorgnar á
þriðjudögum kl. 10.
Hvítasunnukirkjan Ffladelfía.
Brauðsbrotning kl. 11. Ræðumaður
Vörður L. Traustason. Almenn sam-
koma kl. 20. Ræðumaður Gylfi
Markússon.
Sauðárkrókskirkja. Kvöldmessa í
Sauðárkrókskirkju í kvöld kl. 20.30.
Sr. Hjálmar Jónsson þjónar. Gestir
eru sjónvarpstrúboðar kristilegu
sjónvarpsstöðvarinnar Omega, Kol-
brún og Guðlaugur Laufdal, sem
leiða kvöldþáttinn Kvöldljós.
Hvítasunnukirkjan Akureyri
Samverustund í Hvítasunnu-
kirkjunni annað kvöld kl. 21.
Sjónvarpstrúboðar kristilegu
sjónvarpsstöðvarinnar Omega,
Kolbrún og Guðlaugur Laufdal,
sem leiða kvöldþáttinn Kvöldljós
þjóna ásamt gestum.
www.mbl l.is
Sími 588 9090 • Kax 588 9095 • SÍOmiu'ilu 2 I
Seltjarnarnes - sérbýli
óskast. Höfum ákveöinn kaupanda I
að einbýli, parhúsi eða raðhúsi á Seltjam-
arnesi. Sterkar greiðslur í boði fyrir rétta
eign. Nánari upplýsingar veitir Magnea.
Lindir - Smárar - raðhús
óskast. Höfum ákveðinn kaupanda
að 90-150 fm raðhúsi i Lindum eða
Smárum í Kópavogi. Staðgreiðsia i boði.
Nánari uppi. veitir Magnea.
Hörgshlíð - einb./tvíb. Vorum aö
fá í sölu gott steinsteypt u.þ.b. 250 fm einbýlis-
hús á tveimur haeðum á eftirsóttum stað. Einnig
er í húsinu góð 2ja herbergja íbúð með sér-
inngangi. Fallegt hús á grónum stað. Stór og
gróin lóð. V. 20,0 m. 7993
RAÐHUS
Gaukshólar. Vorum að fá í sölu 3ja
herb. 74,3 fm íb. sem skiptist í hol, baðh., tvö
herb., eldh. og stofu með svölum út af. V. 5,9
m.8053
Hrafnhólar. Vorum að fá í sölu fallega
3ja herb. 69 fm íb. á 4. hæð í lyftuh. Blokkinni
verður skilaö nýviðg. Laus fljótl. V. 5,9 m. 8055
EIGNAMMUMN
___________________________ Starfsmenn: Sverrir Kristinsson lögg. fasteignasali, söiustjóri,
Þorteifur St.Guðmundsson.B.Sc., sðlum., Guðmundur Sigurjónsson Iðgfr. og lögg.fasteignasali, skjalagerð.
Stefán Hrafn Stefánsson Iðgfr., sðlum., Magnea S. Sverrisdóttir, Iðgg. fasteignasali, sólumaður,
Stefán Ami Auðóifsson, sðlumaður, Jóhanna Valdimarsdóttir, auglysingar, gialdkeri, Inga Hannesdóttir,
slmavarsia og ritari, Ólðf Steinarsdóttir, öflun skjala og gagna, Ragnheiður D. Agnarsdóttír.skrifstofustðrf. NÍ
Opið virka daga frá kl. 9-18. Lokað um helgar í sumar.
Um 500 eignir kynntar á alnetinu -www.eignamidlun.is
Freyjugata - rúmgóð. Vorum að
fá í sölu fallega 5 herb. 142 fm hæð í 4-býli. Auk
þess fylgir 32 fm bílsk. Húsið hefur allt nýl. ver-
ið standsett. íb. er laus strax. V. 12,8 m. 8042
Kóngsbakki. Vorum að fá í sölu snyrtil.
4ra herb. íb. sem skiptist ( hol, 3 herb., baðh.,
þvottah., eldhús og stofu með svölum. Gott
hús. V. 6,9 m. 8047
Engjasel. Björt og opin 114 fm íbúð með
stæði í bílag. (búðin skiptist í forstofu, hol, eld-
hús, bað með þvottav., 3 herb. og stofu með
svölum. V. 7,9 m. 8051
Háaleitisbraut - Sigvalda-
hús. Vorum að fá í sölu fallega 102 fm 4ra
herb. íbúð á 3. hæð í fjölbýlishúsi. þvottahús í
íbúð. Stórar suðursvalir. V. 7,9 m. 8054
Laugavegur - rúmgóð. Vorum
að fá í sölu 122 fm 4ra herb. íb. á 2. hæð í fal-
legu steinhúsi við Laugaveg. íb. fylgir bílastæði
á baklóð. Miklir möguleikar. V. 7,5 m. 8056
Víkurbakki. Vorum að fá í sölu gott
endaraðhús með innbyggðum bílskúr. Húsið
skiptist í 4 herbergi, stofu með stórum svölum
út af, eldhús með borðkrók o.fl. Húsið hefur
verið klætt að utan. V. 11,9 m. 8037
Kirkjusandur - glæsieign.
Vorum nú að fá til sölu einkar glæsil. 83 fm íbúö
í einu af þessum eftirsóttu lyftuhúsum. íbúðin er
öll hin vandaðasta bæði innréttingar og gólfefni.
Áhv. 5,9 m. hagstæö lán. V. 10,5 m. 8057
Hrísrimi - útsýni. Snyrtil. 3ja herb.
88,5 fm íb. með sérinng. (b. skiptist í hol, tvö
herb., geymslu, bað, eldh. og stofu með svöl-
um. Stutt er í skóla og alla þj. V. 7,3 m. 8044