Morgunblaðið - 19.07.1998, Page 41
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 19. JÚLÍ 1998 41
BRÉF TIL BLAÐSINS
1
<
1
:
<
KVENNAKÓR Hafnarfjarðar syngur í Hertogahöllinni í Marina de Massa. Stjómandi er Guðjón Halldór Óskarsson og undirleikari Hörður Bragason.
1
I
<
I
j
I
i
4
<
4
4
4
é
4
4
I
4
4
i
4
j
i
4
-í
SKEIFAN 11 • SÍMI 550-4444 • PÓSTKR. 550-4400
Ó, þetta er indælt líf
Frá Katrínu Óskarsdóttur:
KONURNAR teygja letilega úr sér
á sólbekkjunum. Ilmur af sólarolíu,
sandi og sjó liggur í loftinu, kliður
sóldýrkenda, öldugjálfur og ein-
staka lágvær söngur líður um loftið.
Söngur? Jú, fímmtíu og þrjár kon-
ur úr Kvennakór Hafnarfjarðar,
ásamt stjórnanda og undirleikara,
tóku skyndiákvörðun fyrir um
þremur mánuðum um að fara í söng-
ferðalag til Toscana í Ítalíu. Og eins
og konum einum er lagið voru þær
ekki lengi að öngla saman fyrir ferð-
inni og skipuleggja, með ómetan-
legri hjálp frá Margréti Pálmadótt-
ur, sem átti reyndar hugmyndina,
en hún var þarna á sama tíma með
sínar indælu Gospelsystur.
23. júní var lagt af stað til Piza í
flugvél íslandsflugs. Paðan var ekið
í um hálfa klukkustund til lítils bæj-
ar sem heitir Marisa de Massa. Á
Hótel Lídó tók fjölskyldan hans
Armandos á móti okkur.
Ég er búin að ákveða að í næsta
lífi ætla ég að vera svona fjölskylda
á svona hóteli. Afinn stjórnar
frammi, geymir peningana í vösun-
um, gengur um garðinn með ung-
bamið á öxlinni, amman ræður í eld-
húsinu. Litla mamman, tengda-
dóttirin, afgreiðir cappuccino og
drykki á barnum, synimir sópa
gangstéttir, leggja á borð og tína af
borðum, fara í þjónsbúning á kvöld-
in og bera fram matinn sem amman
eldar. Gamall hermaður hvílir lúin
bein fyrir framan sjónvarpið, milli
þess sem hann hjalar við ungbarnið
sem spriklar, skríkir og hlær. Hann
kom þama einn daginn, fór aldrei
aftur.
Kórinn hélt aðaltónleikana í Her-
togahöllinni í Massa föstudagskvöld-
ið 27. júní sl. Dögunum á undan var
varið í æfingar í setustofunni, í sól-
böð á ströndinni steinsnar frá Lídó,
á mörkuðum og stórkostlegri sigl-
ingu meðfram ströndinni, þar sem
lítil þorp í klettóttu landslagi voru
skoðuð.
Hertogahöllin í Massa er mjög
falleg, með stórum garði í miðjunni
þegar inn er komið. Breiðar súlur
halda uppi bogadregnum svölum all-
an hringinn, en beint á móti inn-
ganginum er lítil hvelfing þar sem
stytta af Neptúnusi trónir.
Tónleikarnir fóra fram í garðinum
undir beram himni kl. níu um kvöld-
ið, í daufri birtu frá ljóskeram sem
standa undir svölunum.
Hljómburðurinn var meiriháttar
og ekki bar á öðru en áheyrendum
líkaði flutningur kvennanna vel,
hvort sem var Ave veram Corpus,
Sofðu unga ástin mín, Á Sprengi-
sandi eða Úr útsæ rísa íslands fjöll.
Við söknuðum reyndar hundanna
sem við fréttum að hefðu hlustað á
annan íslenskan kór, sem var þarna
nokkru áður, og spangólað með á
háu tónunum.
Eftir tónleika komumst við að því
að fólk hafði safnast saman fyrir ut-
an höllina og út á svalir nærliggj-
andi húsa, það er víst mjög ítalskt.
Er heim var komið á Lídó til fjöl-
skyldunnar var sungið og skálað, en
gengið snemma til náða, því næsta
dag var fyrirhuguð ferð tH Flórens.
Og Flórens, þvílíkt augna og andans
konfekt. Og kaffið á Italíu! Ég fæ
mér kaffivél, flotta, svo ætla ég að
læra ítölsku - mikið á ég gott að
eiga það eftir.
Dómkirkjan, Maríukirkjan, brúin
þar sem áður rann blóð slátraranna,
nú glóir þar gull skartgripasalanna.
Davíð sjálfur, sem þótti svo dónaleg-
ur, enda á typpinu, þetta var reynd-
ar afsteypa, ekta Davíð er vel
geymdur á safninu. Listaverkin era
hvert sem litið er. Þið verðið bara að
fara þangað sjálf.
Næsta dag, sunnudag, átti kórinn
ásamt Gospelsystram að syngja við
óskaplega merkiiega messu í Massa.
Kirkjan er afar falleg og undurfagr-
ar blómaskreytingar prýða hana í
tilefni dagsins. Kóramir þjöppuðu
sér saman umhverfís orgelið fyrir
aftan prestana, kardinálana, og hvað
þeir nú heita þessir kaþólsku allir.
Messan tók u.þ.b. eina ldukkustund.
Hörður Bragason, undirleikari
Kvennakórsins, sá um undirleikinn
og Guðjón Halldór Óskarsson
stjórnandi og Margrét Pálmadóttir
skiptu með sér stjórninni. Það var
mikil upplifun að taka þátt í mess-
unni, því kórarnir sáu um allan tón-
listarflutninginn, hallelújumar,
santúsana og allt sem tUheyrir
svona messu. Við vorum alveg
heilagar lengi á eftir.
Eftir kvöldverð, hjá ömmunni, var
ekið aftur til dómkirkjunnar þar
sem Gospelsystur sungu á tröppun-
um af miklum krafti. Margrét
Pálmadóttir var í góðu formi og sló í
gegn. Hún var eins og negrakerling
sem hefur lent í klór, gæti bara ekk-
ert verið betri þótt hún væri alvöra
svört. Sönggleði einkenndi hópinn
og áheyrendur skemmtu sér kon-
unglega. Kvennakórinn tók undir í
einstaka lögum og skapaði það
frjálslega og skemmtilega stemmn-
ingu.
Og aftur var ekið á hótelið þar
sem enn og aftur upphófst söngur
og gleði. Armando-synirnir kunnu
ágætlega að meta sönginn og tóku
undir ef þeir könnuðust við lögin.
Þeir vora t.d. fljótir að læra Ó sóle
míó, bjóddu mér í bíó, o.sirv. (skyldi
Kristján kunna það?). Skakki turn-
inn í Piza var auðvitað skoðaður,
ótrúlegu marmarafjöllin, sem munu
endast næstu þúsund árin, og bæj-
arstjórinn í Massa bauð okkur að
syngja í lok ferðarinnar á tröppum
ferðamálaskiifstofunnar, og var það
okkur mikill heiður. Það voru brún-
ar og sælar konur og karlar sem
settust í rúturnar árla morguns eftir
vikudvöl á Italíu. Lokaáfanginn var
Mílanó og þaðan skyldi flogið heim
síðdegis. Þessi ferð er án efa há-
punkturinn í starfí Kvennakórs
Hafnarfjarðar á fimm ára starfsferli
hans og ómetanleg reynsla sem
gagnast mun kórnum á komandi
starfsári. Það verða því hressar og
veraldarvanar konur sem hittast aft-
ur að loknu sumri.
KATRÍN ÓSKARSDÓTTIR,
Hverfisgötu 6,
Hafnarfirði.
ÚT-
SALA
Minnst 40% afsláttur
Hefst á morgun, mánudag
m
RCWELLS
Kringlunni 7, sími 5 88 44 22
.. FYRIR ALLA í
► FJOLSKYLDUNNH
Armstóll
3QQu m2 sýningarsalur
TM - HUSGOGN
Furuhúsgögn Oynur
Stólar Rúm
Skrifstofuhúsgögn Sófasett
SIÐUMULA 30 • SIMI 568 6822
Opið á laugardaginn kl.10-10