Morgunblaðið - 19.07.1998, Side 46
46 SUNNUDAGUR 19. JTJLÍ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
5 LEIKFELAG ;
REYKJAVÍKUR
BORGARLEIKHUSIÐ
eftir Jim Jacobs og Warren Casey.
fim. 23/7, uppsett,
fös. 24/7, uppseft,
iau. 25/7, uppsett,
sun. 26/7, uppsett,
sun. 26/7, aukasýning kl. 15.00,
fim. 6/8, örfá sæti laus,
fös. 7/8, örfá sæti laus,
lau. 8/8, örfá sæti laus.
Miöasalan er opin daglega
frá kl. 13—18 og fram að
sýningu sýningardaga.
Simapantanir virka daga frá kl. 10.
Greiðslukortaþjónusta.
Simi 568 8000 fax 568 0383.
Vesturgötu 3
SUMART
NLEIKAROÐ
KAFFILEIKHÚSSINS
„Út og suður“. Sigríður Ella
Magnúsdóttir flytur lög úr öllum áttum.
Fim. 23.7 kl. 21 laus sæti
„Fluga“. Hjörleifur Valsson og Havard
Oieroset leika „hot-club“ tónlist á fiðlu
og gítar. M.a. austur-evrópska sigauna-
tónlist, popp, rokk og diskó.
Lau. 25.7 kl. 21 laus sæti
■r' "" " "S
Matseðill sumartónleika
Indverskur grænmetisréttur að hætti
Lindu, borinn fram með fersku salati og
ristuðum sesamfræjum. Og í eftirrétt:
. „Óvænt endalok". Aðeins kr. 1000. „
Miðas. opin alla virka daga kl. 15-18.
Miðap. allan sólarhringinn í s. 551 9065.
Netfang: kaffileik@ishotf.is
Leikfélagið Regína
„Northern Lights“
eftir Frederick Harrison
í Möguleikhúsinu v/Hlemm
2. sýn. sun. 19.7. kl. 20.30.
3. sýn. fim. 23.7. kl. 20.30.
4. sýn. fös. 24.7. kl. 20.30.
5. sýn. lau. 25.7. kl. 20.30.
6. sýn. sun. 26.7. kl. 20.30.
Flutt á ensku/Performed in english
Miðasala í síma 562 5060
fj ölskyldum
ÞJONN
fim. 23/7 UPPSELT
fös. 24n UPPSELT
lau. 25/7 UPPSELT
sun. 26/7
fim. 6/8
fös. 7/8
UPPSELT
örfá sæti laus
UPPSELT
sun. 9/8 örfá sæti laus
Sýningamar hefjast Id. 20.00
Miðasala opin kl. 12-18
usottar pamanir seiöar aagiega
Miðasölusími: 5 30 30 30
Fituskert og létt-
saltað sveitapopp
frá sér sína þriðju breiðskífu, Nákvæmlega.
Sú leikur einfalt íslenskt sveitapopp, fituskert
og léttsaltað, eins og heyra má á plötunni, en
reyndar kemur á óvart hversu lítið stuð er í
Skítamóral á plasti því hún er annáluð fyrir
fjör á böllum.
Útsetningar laga eru flatar og lítt til þess
fallnar að lyfta lögunum uppúr meðalmennsk-
unni. Nefni til að mynda annað lag disksins,
Nóttina til að lifa, með einhæfri bassalínu og
frumstæðum trommuleik. Sama er upp á ten-
ingnum til að mynda í Drakúla og reyndar er
hryngrunnurinn yfirleitt veikur á plötunni
sem ýtir undir kraftleysi. Trommur og bassi
eru víðast of framarlega í hljóðblöndun og
spilla fyrir annars prýðilegum hugmyndum,
sjá þannig Augun, þar sem ágætis sprettir í
gítar og hljómborðum falla í skuggann af
geldum vélrænum trommutakti. Betur tekst
til með lagið Hugarflug, þar sem nánast næst
jafnvægi og Farin er líka ágætlega heppnað.
Söngur er Akkilesarhæll Skítamórals og hefði
mátt vinna hann betur.
Textar eru einhæfir, fjalla helst um ástir og
afbrýði, söknuð og þrá með barnalega blaut-
legum innskotum; eiga ágætlega við einfóld
lögin og eru víða sönglegir. Mjög hefur texta-
smiðum sveitarinnar farið fram.
Eins og getið er í upphafi er á disknum
margmiðlunarefni unnið af Radon ehf. Það er
bráðvel heppnað, uppsetning skýr og þægileg.
Mikill ókostur er þó hvað texti er illa próf-
arkalesinn; talsvert er um stafabrengl, mUdð
af n-villum. 1-vUlum og y-villum, málviUur á
hverju strái og svo má telja (á sjötta tug
slæmra stafsetningar- og málvillna er í sögu-
texta). Vissulega má kíma að klúðri eins og
þegar rætt er um þá „rengi“, sagt frá því er
sveitin lék í Eyjum „við góðan orðstír Eyja-
manna“ og þegar síðar kemur í ljós að „eitt
leiddi af örðu“, en þvUíkt klám á hvergi að
sjást.
Síðasta breiðskífa Skítamórals var mesta
hrat, en Nákvæmlega er mun metnaðarfyllri
plata og bendir til þess að þeir félagar vilji
hefja sig upp úr miðjumoðinu. Áður en það
tekst þurfa þeir þó að temja sér agaðri
vinnubrögð og þróa með sér smekkvísi. Ná-
kvæmlega hefur selst bráðvel og á vísast eft-
ir að seljast enn á meðan þeir félagar leika
víða um land, en hún skilur nákvæmlega
ekkert eftir.
Árni Matthíasson
lÓM.ISI
Geisladiskur
NÁKVÆMLEGA
Nákvæmlega, breiðskífa hljómsveitarinn-
ar Skítamórals. Sveitina skipa Gunnar
Ólason gítarleikari og söngvari, Herbert
Viðarssor. bassaleikari, Amgrímur Fann-
ar Haraldsson, Jóhann Bachmann
trommuleikari og Einar Ágúst Víðisson
slagverksleikari og söngvari. Lög eftir þá
félaga að mestu, en einnig komu að laga-
smíðum „siggi fannar“ og „einar bárðar“.
Upptökustjórn og útsetningar voru í
höndum Þórðar Guðmundssonar og Haf-
þórs Guðmundssonar. Á disknum er
margmiðlunarefni úr smiðju Radons ehf.
og hljómsveitarinnar. 38,41 mfn. Septem-
ber gefúr út, Skífan dreifir.
VTNSÆLASTA ballsveit landsins nú um
stundir er Skítamórall sem sendi fyrir nokkru
FÓLK í FRÉTTUM
Stóra svið kl. 20.00
Miðaverö kr. 1100 fyrir karla
kr. 1300 fyrir konur
Vöröufélagar Ll fá 30% afslátt
Sýnt i (slensku óperunni
Miðasðluslmi 551 1475
SKIPTINEMASAMTÖK
IN AFS munu í næsta
mánuði taka á móti 40
skiptnemum víðs vegar að
úr heiminum sem dvelja
munu á landinu í eitt ár.
Samtökin eru alþjóðleg og
hafa starfað á Islandi í
fjörutíu ár. Grillveisla var
haldin í Nauthólsvík fyrir
skömmu þar sem íslenskir
skiptinemar á leið út í
hinn stóra
heim og er-
lendir skipt-
nemar sem bú-
ið hafa á Is-
landi í eitt ár
voru kvaddir.
„Aðalverk-
efnið okkar núna er að
finna heimili fyrir krakk-
ana sem koma til landsins
21. ágúst. Það hefur geng-
ið hægt hingað til og við
höfum verið velta því fyrir
okkur hvort markaðurinn
hafi mettast eða hvort við
berum okkur vitlaust að
við að nálgast fjölskyld-
urnar,“ sagði Petrína Ás-
geirsdóttir, framkvæmda-
stjóri AFS á íslandi.
Það er skilyrði samtak-
anna að fósturfjölskyldan
búi í bæ þar sem fram-
haldsskóli er enda þurfa
krakkarnir að halda áfram
hefðbundnu námi og læra
auk þess íslensku. Þau eru
öll á aldrinum 16 til 18 ára.
„Við erum komin með
13 öruggar fjölskyldur,
sem eru búnar að ganga
frá pappírsvinnu, og því
vantar okkur enn 27 fjöl-
skyldur. Einhverjir eru að
hugsa sig um en við ber-
um ákveðna ábyrgð gagn-
vart þessum krökkum og
verðum helst að virða þá
reglu að þau séu komin
með fjölskyldu 2-3 vikum
fyrir brottför frá heima-
landinu. Við finnum það
hjá íslensku krökkunum
sem eru að fara út og eru
ekki komin með fjöl-
skyldu að þau eru
óþreyjufull.“ ÁFS-skipti-
nemasamtökin á Islandi
eru um þessar mundir að
senda 90 ís-
lenska krakka
út á sínum
vegum og því
má segja að
verið sé að
endurgjalda
greiðann með
því að taka á móti hópn-
um að utan.
Að sögn Petrínu vekur
það athygli að margir
þeirra sem eru að taka að
sér skiptinema núna hafa
áður gerst fósturfjöl-
skyldur í eitt ár og hafa af
því góða reynslu. „Þetta
gefur svo mikið til baka.
Það er ákveðin vinna sem
þú leggur í þetta eins og
allt uppeldi en þú færð
svo mikið í staðinn," sagði
Petrína sem sjálf á „son“
frá Venesúela. ,Að sjálf-
sögðu hefur það áhrif á
fjölskylduna þegar nýr
meðlimur bætist í hana.
Ætlunin er hins vegar
ekki sú að fólk breyti sínu
mynstri eða venjum. ís-
lenskir foreldrar eru að
vinna úti og unglingar sjá
að mestu um sig sjálfir.
Krakkarnir ganga í skóla
og eignast vini þar og það
er ekki ætlast til að fjöl-
skyldan sé að hafa ofan af
fyrir þeim frekar en öðr-
„Upplifun fóst-
urforeldranna
ekki síðri en
skiptinem-
anna.“
um börnum fjölskyldunn-
ar. Fólk er ef til vill
smeykt við að verða of
bundið en aðrir hafa hrein-
lega ekki pláss fyrir nýjan
fjölskyldumeðlim."
Reynsla Petrínu og fjöl-
skyldu hennar sem fóstur-
fjölskyldu er öli af hinu
góða og hvetur hún alla
sem hafa áhuga að kynna
sér málið. „Það er mjög
skemmtilegt að hafa
skiptinema inni á heimilinu.
„Sonur“ minn frá Venesú-
ela var að fara frá okkur
núna fyrir stuttu. Ég var
sjálf skiptinemi á sínum
tíma og fannst því mjög
gaman að kynnast því að
vera skiptinemamóðir og
upplifunin var ekki síðri
fyrir manninn minn að
verða faðir og dóttur mína
að verða systur. Þetta var
talsverð breyting fyrir okk-
ur í upphafi en svo verður
maður svo vanur nýja fjöl-
skyldumeðlimnum að eftir-
sjáin er mikil. Það er mjög
gaman að eiga fósturbam í
öðrum heimshluta."
Petrína segir lærdóm
og upplifun fósturforeldr-
anna ekki síðri en krakk-
anna sjálfra því auk þess
að kynnast ólíkum siðum
og menningu skiptinem-
ans hafi hún kynnst ís-
lenskri tungu og eigin
menningu á allt annann
hátt. „Fólk lærir svo mik-
ið um sína eigin fjöl-
skyldu, menningu og
tungumál. Það er mjög
gaman að kenna íslensku
og okkar strákur var mjög
áhugasamur nemandi.
Flestir krakkanna sem við
kvöddum um daginn voru
búnir að ná ótrúlega góðu
valdi á íslenskunni,“ sagði
Petrína sem vonast til að
íslenskar fjölskyldur sjái
sér fært að taka á móti
skipinemunum sem eru
væntanlegir í næsta mán-
uði.
HLJÓMSVEITIN Skíta-
mórall er vinsælasta
ballsveit landsins nú um
stundir.
Sýningar h«fjojf id. 20.00. Ójóttor pantonir toidar
föstudaginn 24. júlí • laugardaginn 25. júlí.
Sýningar hefjast kl. 20.
Midasala simi 551 1475.
Opin alla daga kl. 15-19. Símapantanir frá kl. 10 virka daga og frá kl. 13 um helgar.
ÍSLFASKA ÓPEKAN
síMUMOosala 551 1475
Gamanleikrit í leikstjóm
Sigurðar Sigurjónssonar
fim 23/7 KL. 21
Sýnt miðv. - fóstud. kl. 14:30
Lau. - sun. kl. 14:00 og
Miðapantanir • Nótt&Dagur • 562 2570
www.mbl l.is
Tilkynning frá fógetanum i Nottingham
25.000 gullpcningar í hoði t'yrir jiann sem
liandsamar úilagann Hróa liiitt
llroi hóiturcr í sirkustjaldinii í Ihistlvragarðimim
.Vliðaverð: 790,- (640.- I'yrir hópa)
Innil'alið í vcrði cr aðtiöngumiði á llróa hött.
aðgöngumiði i Fjölsk>’ldu- og Húsdýragarðinn
og trítt í öli tæki í garðinuni