Morgunblaðið - 19.07.1998, Síða 50

Morgunblaðið - 19.07.1998, Síða 50
MORGUNBLAÐIÐ li^cISD Meó því að nota TREND naglanæringuna færðu þínar eigin neglur sterkar og heilbrigðar svo þær hvorki klofna né brotna. TREND handáburðurinn með Duo-liposomes. Ný tækni i framleiðslu húðsnyrtivara, fallegri, teygjanlegri, þéttari húð. Sérstaklega græðandi. EINSTÖK GÆÐAVARA 1 P IHEND Fást í apótekum og snyrti- vöruverslunum um fand allt. Ath. naglalökk frá Trend fást í tveimur stærðum VERKTAKAR SALERNI FYRIR VINNUSTAÐI Eigum til sðlu og afgreiðslu strax mjðg vandaðar salerniseiníngar. Stálgrind klœdd msð litaðri stálklœðningu mað "URETHAN" sinangrun á milli. Stærð 1 »1x120 em. Vatnssalemi, vaskur, hitakútur og rafmagn. Verð kr. 190.000 + vsk epBirþo [íhtejíaalla iintnirM isnmarr Auglýsendur Pantanatími auglýsinga er fyrir kl. 16.00 á þriðjudögum. finpnUii^ AUGLÝSINGADEILD Sími: 569 1111 • Bréfasími: 569 1110 • Netfang: augl@mbl.is FÓLK í FRÉTTUM V ^ Morgunblaðið/Jim Smart ER ÞAÐ svona sem Leopold nær sér í endur út í tjörn? Leopold og Hjálmar Knerrir eru feðgar. Faðirinn er kokkur og sonurinn er þjónn á veitinga- húsinu Alveg við Tjörnina. Hildur Loftsdóttir fór í mat til þeirra og spurði hvort einhver þjónanna hefði lent í súpunni. Úr Suðursveit BLM: „Eruð þið feðgar búnir að reka þennan veit- ingastað lengi?“ Hjálmar: „Við erum ný- búnir að opna.“ Leopold: „Eg var bara ráðinn kokkur, ég veit ekkert hver á þetta.“ Hjálmar: „Já, við réðum pabba sem kokk, hann er margverðlaunaður kokk- ur. Hann vann t.d. á Gull- fossi í gamla daga.“ BLM: „Hvað á svo að bjóða gestum upp á á Al- veg við tjörninaV‘ Leopold: „Það er þessi syngjandi matseðill sem við bjóðum gesti okkar velkomna með. Hvernig hljómar hann aftur? Steiktur fískur og grillaðir kjúklingar. Hjálmar: „Það verða að- allega tveir réttir í boði; fískipottréttur og kjúklingapasta. Léttir réttir á vægu verði.“ BLM: „Hvaðan eruð þið feðgar ættaðir?" Leopold: „Eigum við að láta allt uppi? Jæja, við ól- umst upp í Suðursveit.“ Hjálmar: „Eg fór svo með mömmu þegar þau skildu fyi-ii- 30 árum. Leo- pold er svolítill óreglu- maður.“ BLM: „Byrjaðir þú með veitingastaðinn, Hjálm- ar?“ Hjálmar: „Já, ásamt Gerði, kærustunni minni, og Sillý Dillý, systur hennar, sem vinnur hjá okkur. Svo hóaði ég í pabba. Leopold: „Það þurfti traustan mann til að sjá um matargerðina. Það hefur gengið upp og allir eru ánægðir. A yfirborð- inu a.m.k.“ Iljálmar: „Já, já, hann Polli hefur alltaf geta eld- að, hann er bara svolítið slæmur í skapinu.“ Leopold: „Svo er nú gott að hafa endumar svona nálægt, það er alltaf hægt að bæta í pottinn.“ BLM: „Já, en hentugt! En segðu mér Hjálmar, er Það kitlar ekki eitthvað stirt á milli ykkar Gerðar?“ Hjálmar: „Jú, mjög stirt. Þannig myndast svo- lítil spenna á vinnustaðn- um. Það er spenna á milli mín og hennar. Spenna á milli mín og pabba. Spenna á milli pabba og hennar.“ Bessi: „Eilíf spenna. Þetta er spennuleikrit." Kjartan: „Það veit eng- inn hvað gerist næst, ekki einu sinni leikaramir.“ Bessi: „Þetta er mjög óvenjulegt en gaman. Að minnsta kosti eftir á.“ YFIRÞJÓNNINN, Hjálmar Knerrir, lendir í ýmsu í vandasömu starfi sinu. BLM: „En kunnið þið eitthvað fyrir ykkur í elda- mennsku og að þjóna?“ Kjartan: „Eg vann sem þjónn í heilt ár á Holiday Inn. Líka á Horninu eitt sumar og í New York.“ Bessi: „Eg kem aldrei nálægt eldamennsku heima, en þegar þarf að grilla þá sé ég um það. Það er voða gaman að grilla austur í sumarbú- stað.“ BLM: „Er þetta leikrit ekki eitthvað nýtt fyiir þér, þrátt fyrir þinn langa feril?“ Bessi: „Það er varla hægt að kalla þetta leikrit, þetta eru frekar uppákomur. Æfíngarn- ar eru bæði vandasam- ar og óvenjulegar. Eg hef aldrei áður tekið þátt í svona sýningu áður nema kannski í Sumargleðinni, þá var alltaf eitthvað nýtt að fæð- ast hjá okkur strákunum. Enda eru ungu leikararnir miklu fljótari að ná þessu en ég. Eg er orðinn svo gamall. En það er gaman að vera með þeim, þau eru hress. Æfíngarnar eru leiðinlegastar fyi-ir mig, ég er búinn að vera að leika í 45 ár. Þetta fer að verða gott. Maður var ferskur í gamla daga eins og krakk- arnir. Eg er samt að leika úti um allt og bjóst ekki við að fara í „Súpuna“. En þau komu á eftir mér upp í sumarbústað." Kjartan: „Stundum er Bessi með svo steinrunnið andlit að maður heldur að hann hafí engan áhuga á því sem við erum að segja. Við Edda fórum til hans í sumarbústaðinn og lýstum sýningunni fyrir honum, sem hann gaf ekkert út á og ég hélt að hann hefði engan áhuga. Svo þegar Bessi fór eitthvert afsíðis þá sagði Edda að fyrst hann hefði spurt tveggja spurn- inga þá væri hann mjög heitur.“ Bessi: „Eg ætlaði svo sannai-lega ekki að vera með, sérstaklega þar sem ég hef svo mikið að gera í hinum leikhúsunum. En það kitlaði mig að þau skyldu muna eftir mér og vilja hafa mig með. Maður á ekki von á því á þessum aldri, svo er svo erfítt að neita. Maður veit aldrei nema þetta verði seinasta sýningin. Ha, ha.“

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.