Morgunblaðið - 25.07.1998, Page 1
166. TBL. 86. ÁRG.
LAUGARDAGUR 25. JÚLÍ 1998 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Skotum hleypt af í bandaríska þinghúsimi
Reuters
LÖGREGLUÞYRLA flytur eitt fórnarlambanna á sjúkrahús.
Fjármála-
markaðir bíða
með sinn dóm
Obuchi verður forsætisráðherra Japans
Washington, Trimdon í Englandi, Brussel, Peking, Tdkýd. Reuters.
LEIÐTOGAR helstu ríkja kepptust
í gær við að óska Keizo Obuchi, ut-
amíkisráðherra Japans, til ham-
ingju með sigurinn í leiðtogakjöri
Frjálslynda lýðræðisflokksins
(LDP) í fyrrinótt.
Mike McCurry, talsmaður Bills
Clintons Bandaríkjaforseta, sagði
Bandaríkjastjórn þekkja Obuchi af
góðu einu og sir Leon Brittan, sem
fer með viðskiptamál í fram-
kvæmdastjórn Evrópusambands-
ins, hvatti Obuchi til að grípa þegar
til nauðsynlegra aðgerða til að létta
á efnahagsvanda Japans. Tony Bla-
ir, forsætisráðherra Bretlands, ít-
rekaði einnig mikilvægi þess að
Obuchi léti hendur þegar standa
fram úr ermum, efnahagsvandi
Japans hefði áhrif á heiminn allan.
Tang Guoqiang, talsmaður kín-
verska utanríkisráðuneytisins, tók
sérstaklega fram að Obuchi hefði
unnið gott starf í átt til þess að
bæta samskipti Japans og Kína og
sagðist vonast til þess að framhald
yrði á.
Nokkur óánægja ríkti í fyrstu á
mörkuðum með kjör Obuchis og féll
japanska jenið gagnvart bandaríska
dollaranum en náði síðan fljótt fyrri
stöðu á nýjan leik. Ljóst er hins
vegar að aðilar á fjármálamörkuð-
um fylgjast með hverju skrefi
Obuchis og mun það reynast honum
erfið prófraun að styrkja japanskan
efnahag, sem er í sinni verstu lægð
frá lokum seinni heimsstyrjaldar.
■ Obuchis bíða/18
Tveir lögreglu-
menn létu lífíð
Ung kona særðist alvarlega
Washingfton. Reuters.
Alexander Lebed hefur í hotunum
við Moskvustjórnina
Krasnojarsk verði
„kj arnorku veldi “
Moskvu. Reuters.
Stjörnur
staðnar að
geimáti
Washington. The Daily Telegraph.
STJÖRNUFRÆÐINGAR hafa
orðið vitni að svokölluðu
geimáti í fyrsta sinn. Sást til
tifstjörnu rífa í sig aðra slíka.
„Þessi vitneskja fyllir upp í
stórar eyður í kenningum um
þróun tifstjarna,“ segir
Nicholas White hjá NASA
Goddard-geimferðamiðstöðinni
í Maryland í Bandaríkjunum.
Tifstjömur snúast um sjálfar
sig og þær geta verið nokkrir
kílómetrar í þvermál með massa
á við sólina. Venjulega hægii' á
ferð tifstjama á tugum milljóna
ára en tifstjaman gráðuga virð-
ist óvenjuleg að því leyti að hún
snýst enn um sjálfa sig á fimmri
ungi ijóshraðans á sekúndu.
TVEIR lögreglumenn létu lífið
þegar byssumaður hleypti af skot-
um í bandaríska þinghúsinu í gær.
Byssumaðurinn særðist og var
fluttur á sjúkrahús. Ung kona,
sem var í skoðunarferð í þinghús-
inu, særðist einnig alvarlega.
Að sögn lögreglunnar í Wash-
ington hljóp byssumaðurinn inn í
þinghúsið, skaut að lögreglumanni
við vopnaeftirlitshlið við inngang-
inn, hljóp áfram inn gang og
hleypti af fleiri skotum. Lögreglu-
menn eltu hann og hæfðu hann
nokkrum skotum.
Leyniþjónustumenn skýrðu frá
því í gærkvöldi að byssumaður-
inn, sem er hvítur og á miðjum
aldri, hefði áður sýnt „ógnandi
hegðun í garð forseta Bandaríkj-
anna“.
Skotunum var hleypt af í aust-
urhluta þinghússins, nálægt
minjagripaverslun á fyrstu hæð,
þar sem var fjöldi ferðamanna.
Fundarsalur fulltrúadeildarinnar
er á annarri hæð í sömu álmu.
Þingfundur var í gangi, en helstu
mál dagsins höfðu verið afgreidd
og fáir þingmenn voru í salnum.
ALEXANDER Lebed, ríkisstjóri í
Krasnojarsk í Síberíu, lét að því
liggja í gær, að hann myndi færa
kjamorkuheraflann á svæðinu
undir sína stjórn ef Moskvustjórn-
in greiddi ekki hermönnunum
útistandandi laun.
Kemur þetta fram í opnu bréfi
Lebeds til Sergeis Kíríjenkos, for-
sætisráðherra Rússlands, og
minnir um leið á þær áhyggjur,
sem margir hafa af hugsanlegri
upplausn Rússlands, en þær áttu
sinn þátt í að Alþjóðagjaldeyris-
sjóðurinn, IMF, féllst á að lána
Rússum þúsundir milljarða ísl.
króna.
„Eg hef velt því alvarlega fyiir
mér að færa kjarnorkuheraflann
undir Krasnojarsk-hérað. Her-
mennirnir eru hungraðir og reiðir
og sem gamall hermaður skil ég þá
vel,“ segir Lebed í bréfinu. „Við
íbúarnir í Krasnojarsk erum sárfá-
tækir en gerðumst við „kjarnorku-
veldi“ myndum við axla þá ábyrgð
að annast hermennina. Um leið
yrðum við sams konar höfuðverkur
fyrir heimsbyggðina og Indland og
Pakistan."
„Kampavínsskipiða
upp af hafsbotni
Rauma í Finnlandi. Reuters.
Reuters
KAMPAVINIÐ komið á land og einn kafaranna gerir sig
líklegan til að bragða á herlegheitunum.
FLAKINU af skipi, sem var
sökkt í Eystrasaltið árið 1916
með stóran kampavínsfarm inn-
anborðs, var loks lyft upp af
hafsbotninum í gær, eftir lang-
an undirbúning sænska kafar-
ans Claes Bergvalls og félaga
hans, sem fundu það fyrir ári.
Með því að nota stóran, fljót-
andi krana, tókst að lyfta flak-
inu í áföngum af 64 m dýpi upp
að yfirborðinu. Tréskipið Jön-
köping var á sínum tíma á leið
frá Svíþjóð með flmm þúsund
flöskur af Heidsieck-kampavíni
af árgangnum 1907 ásamt
nokkrum ámum af konfaki og
öðru víni, en farmurinn var ætl-
aður yfirmönnum rússneska
hersins í Finnlandi, þegar þýzk-
ur kafbátur sökkti því um 25
sjómflur undan vesturströnd
Finnlands.
Nokkur hundruð flöskur af
kampavíninu hafa verið sóttar í
skipið frá því það fannst. Þær
voru þaktar slími og tapparnir
svartir af seltu, en þeir skutust
úr með glæsibrag og innihaldið
reyndist í bezta lagi.
Franskir sérfræðingar, sem
smökkuðu á veigunum, sögðu að
vínið hefði geymzt við kjörað-
stæður á köldum og dimmum
botni Eystrasaltsins, og vonir
standa til að koniakið sé líka
neyzluhæft. Hugsanlegt er að
hægt yrði að fylla allt að 80.000
flöskur ef allt innihald ámanna
hefur geymzt og er í lagi.
Liðið sem stendur að endur-
heimt herlegheitanna fyrir vín-á-
hugamenn vonast til að farmur-
inn geti skilað milljónum dollara
á uppboðum. Þeir halda að hver
kampavínsflaska geti selzt á sem
svarar um 200.000 ísl. kr. og að
koníakið ætti ekki að vera minna
verðmætt, þegar það hefur verið
blandað og sett á flöskur.
IMF-lánin geta hjálpað
A1 Gore, varaforseti Bandaríkj-
anna, sem var í Moskvu í gær, var
inntur álits á þessum ummælum
Lebeds og vildi hann ekki gera of
mikið úr hættunni á að Krasn-
ojarsk, sem er sjöundi hluti Rúss-
lands, yrði kjarnorkuveldi eins og
Indland og Pakistan. Kvaðst hann
telja, að Lebed væri fyrst og
fremst að vekja athygli á ástandinu
og sagði, að lánin frá IMF myndu
koma hér að góðu gagni.
Lebed, sem er fyrrverandi hers-
höfðingi og var öryggisráðgjafi
Moskvustjórnarinnar um tíma,
bauð sig fram i forsetakosningun-
um 1996 og margir telja, að hann
hyggi á framboð í kosningunum ár-
ið 2000. Er hann kunnur fyrir að
vera mjög einráður og fyrir aðdáun
sína á Augusto Pinochet hershöfð-
ingja og fyrrverandi forseta Chile.
Ottast sumir, að hann muni snúa
lýðræðisþróuninni í Rússlandi við
komist hann til valda.