Morgunblaðið - 25.07.1998, Side 4

Morgunblaðið - 25.07.1998, Side 4
4 LAUGARDAGUR 25. JÚLÍ 1998 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Tvær öku- leyfissvipt- ingar ógiltar TVÆR ökuleyfíssviptingar til bráðabirgða, önnur vegna ölvunar við akstur og hin vegna hraðakst- urs, voru í gær gerðar ógildar í Héraðsdómi Reykjavíkur. I hvor- ugu tilvikanna mættu lögreglu- menn sem framkvæmdu svipting- arnar fyrir dóminn og var skortur á nánari skýringum frá þeim nefndur í rökstuðningi fyrir ógild- ingunum. I báðum málum vísuðu ökumennirnir til óvissu varðandi gildi nýrra reglna um ökuleyfís- sviptingar og sektir. Afengismagn í ökumanni sem stöðvaður var af lögreglu 16. júní síðastliðinn mældist 0,376 mg/1 en hann kvaðst hafa drukkið eitt til tvö glös af bjór. Lögreglan notaði tæki sem mælir vínandamagn í út- öndunarlofti. í niðurstöðu dómsins segir að lögreglumenn hafí ekki mætt til að gefa skýrslu um ástand ökumannsins eða framkvæmd mælingarinnar. Þá segir að sátt sem ökumanninum var boðin í mál- inu miðist við sekt og ökuréttar- sviptingu samkvæmt nýrri reglu- gerð sem ágreiningur sé um. Þar sem ökumaðurinn hafi hafnað sátt- inni megi búast við ákæru á hend- ur honum og fyrirsjáanlegt sé að málsmeðferð muni taka lengri tíma en þann sem ökumaðurinn yrði sviptur ökurétti ef sekt hans yrði sönnuð. Niðurstaða dómsins var því sú að láta ákvörðun um svipt- inguna bíða dómsúrlausnar. I byrjun júní síðastliðnum mældu lögreglumenn á Akureyri ökumann á 103 km hraða á Drottn- ingarbraut þar sem þeir töldu há- markshraða vera 50 km á klukku- stund. Ökumaðurinn taldi há- markshraða á þeim stað vera 70 km á klukkustund. I niðurstöðum dómsins kemur fram að engin gögn hafi komið fram sem sýni hvort sé rétt, enda mættu lögreglumennim- ir ekki fyrir dómi, og vafa skuli skýra ökumanninum í vil. I mál- flutningi lögmanns ökumannsins var vísað til óvissu um gildi nýrra reglna um ökuleyfíssviptingar og sektir en ekki var tekin afstaða til þess í niðurstöðum dómsins. Morgunblaðið/AIdís Hafsteinsdóttii' FJOLMARGIR matreiðslumenn vildu örugglega fara höndum um þetta hráefni, en hér er það Stefán Orn Þórisson hótelsfjóri sem kannar guðlaxinn. Gómsætur guðlax Hveragerði - Skipverjar á Breka VE fengu óvænt tvo stóra guðlaxa í netin þar sem þeir voru að veið- um á Reykjanesgrunni nú nýverið. Vógu guðlaxamir annars vegar 53 kg og hins vegar 30 kg. Það er af- ar sjaldgæft að guðlax flækist hingað. En þó slæðast alltaf 2-3 fískar í net sjómanna á ári hveiju. Veitingahús hafa keppst um að ná til sín þessum fáu fískum, enda er hér um algjört lostæti að ræða. Skipveijar buðu Stefáni Emi Þórissyni, hótelstjóra Hótels Sel- foss, fískana, enda vitað að hann væri sérstakur áhugamaður um furðufiska. Að sögn Stefáns verður Betri stofan á Hótel Selfossi með guðlax á matseðlinum meðan birgðir end- ast. „Það er ekki á hveijum degi sem fólki gefst kostur á að bragða jafn sjaldgæfan físk og guðlax, en kjötið af honum líkist helst venju- legum laxi, rauðbleikt á lit. Mat- reiðslumeistarinn okkar, Tómas Þóroddsson, er að kanna það hvernig best sé að matreiða físk- inn og efa ég ekki að það verður gimilegt," sagði Stefán. I bókinni íslenskir fískar eftir Gunnar Jónsson era heimkynni guðlaxa sögð vera öll tempmð höf. Hér í Norður-Atlantshafí hef- ur hann fundist stöku sinnum. Guðlax er miðsævis- og úthafsfisk- ur og Iifír einkum á smokkfiski. Framkvæmdum vegna breikkunar Gullinbrúar miðar vel Ríkislögreglusljóri Umferð beint framhjá hringtorginu FRAMKVÆMDUM vegna breikkunar á Gullinbrú miðar samkvæmt áætlun að sögn Stef- áns Hermannssonar borgarverk- fæðings. Frá 7.-24. ágúst verður allri umferð beint framhjá hring- torginu við Fjallkonuveg á með- an unnið verður við nýju gatna- mótin. „Við völdum þennan tíma þegar flestir eru í sumarfríi og umferð í lágmarki,“ sagði hann. Umferðinni verður þá hleypt um Lokinhamra, vestan við Gullin- brú og framhjá hringtorginu og að austan um Fjallkonuveg. Gerðar hafa verið ráðstafanir til að beina sorpflutningum og steypubílum annað til að koma í veg fyrir tafir og hefur verið óskað eftir aðstoð lögreglunnar við umferðarsljórnun. Morgunblaðið/Ásdís Ki Vegrgerðin »g ^Reykjevíkurborg breikka GuUinbrú Starfshópur um stefnu- mörkun skipaður RÍKISLÖGREGLUSTJÓRI hefur skipað starfshóp lögreglustjóra til að gera tillögur um stefnumörkun lögreglunnar til næstu fimm ára. Þórir Oddsson vararíkislög- reglustjóri leiðir starf hópsins en auk hans eiga þar sæti Georg Kr. Lárusson, settur lögreglustjóri í Reykjavík, Bjöm Jósef Arnviðar- son, sýslumaður á Akureyri, Þor- leifur Pálsson, sýslumaður í Kópa- vogi, Ólafur K. Ólafsson, sýslumað- ur í Stykkishólmi, og Inger Lind Jónsdóttir, sýslumaður á Eskifirði. Starfshópnum er ætlað að skila tillögum til ríkislögreglustjóra inn- an sex mánaða. Bókasafn og leikhússalur í viðbyggingu við Borgarleikhúsið Menning í alfaraleið BORGARBÓKASAFNIÐ mun flytja Bú- staðaútibú sitt í fyrirhugaða viðbyggingu við Borgarleikhúsið. Þar verður einnig leikhús- salur sem eignarhaldsfélagið hefur til ráð- stöfunar næstu 15 árin en fellur til Reykja- víkurborgar eftir 15 ár, á móti leggur Reykjavíkurborg fram fé til framkvæmd- anna nú. Stefán Hermannsson borgarverkfræðing- ur segir að samkvæmt viljayfirlýsingu frá í apríl sé gert ráð fyrir að heildarkostnaður borgarinnar við gerð torgs, grænna svæða og bflastæða við Kringluna verði um 140 milljónir á næstu fimm árum. Kostnaður vegna innréttinga í útibúi Borgarbókasafns og endurgreiðslna til eignarhaldsfélagsins verði 40 til 50 milljónir á næstu 15 árum og 30 milljónir fari í gerð gatna og göngustíga í nágrenni Kringlunnar. Stefán segir kostnað- inn fara inn á fjárhagsáætlun borgarinnar, þetta geti þó eitthvað breyst áður en endan- legur samningur verði undirritaður. Opið leikhús Páll Baldvin Baldvinsson, formaður Leik- félags Reykjavíkur, segir LR hafa komið að hönnun leikhússals í fyrirhugaðri tengibygg- ingu milli Borgarleikhúss og Kringlunnar með ráðgjöf. Leikfélagið hafi lýst yfir áhuga á því að taka að sér rekstur salarins og samningaviðræður standi enn yfir við Eign- arhaldsfélag Kringlunnar. Eignarhaldsfélagið mun samkvæmt vilja- yfirlýsingu sem samþykkt var í apríl reisa húsið og hefur salinn til ráðstöfunar í 15 ár og mun þá hafa af honum leigutekjur og eftir 15 ár fellur salurinn til Reykjavíkurborgar. En Páll segir LR hafa áhuga á að taka salinn á leigu undir leiklistarstarfsemi um leið og hann verður tilbúinn. Páll segir salinn hugsaðan af hálfu þeirra ráðgjafa sem hefbundinn leikhússal með föstum sviðspalli og hallandi áhorfendasvæði fyrir 250 til 270 áhorfendur. Páll segir gerð grunnteikninga langt komna og endanleg hönnun á salnum fari fram þegar þær liggi fyrir. Páll segir LR hafa lagt áherslu á það i sínum tillögum um húsnæðið að salurinn verði hugsaður sem sjálfstæð eining en geti notfært sér aðstöðu í Borgarleikhúsinu. Sal- urinn sé kærkomin viðbót við húsnæði Borgarleikhússins. „Ein af grunnhugmynd- unum við byggingu Borgarleikhússins á sín- um tíma var að anddyrið væri framhald af götumyndinni fyrir utan og hluti af mark- aðstorgi, flæðandi umferð væri af fólki um verslunarhúsnæðið þar sem einnig væri leikhús, sem fólk ætti þá leið um án þess að vera beinlínis að fara í leikhús, þannig verð- ur það opnara, hluti af umhverfi fólks,“ seg- ir Páll. Hann segir að með viðbyggingunni sé verið að fylgja þessari hugmynd betur eftir, tengja leikhúsið og verslunina betur saman. Bústaðabókasafn í Kringluna Bústaðabókasafn mun flytja starfsemi sína í fyrirhugaða viðbyggingu við Borgar- leikhúsið sem tengir það við Kringluna. Dóra Thoroddsen, deildarstjóri Bústaðabókasafns, segir að samkvæmt áætlunum muni Eignar- haldsfélag Kringlunnar afhenda húsnæðið tilbúið til innréttingar í september 1999. Það verði svo innréttað af Reykjavíkurborg og kostnaður við bygginguna endurgreiddur á 15 árum. Dóra segir starfsemina verða með hefð- bundnu sniði í nýja húsnæðinu, útlán, upp- lýsingaþjónusta og bamastarf en ekki sé ljóst hvar miðstöð bókabflanna verði en hing- að til hefur hún verið í Bústaðasafni. Núver- andi húsnæði safnsins er leighúsnæði í eign Bústaðakirkju. Dóra telur mjög jákvætt að almenningsbókasöfn séu þar sem fólk sé mikið á ferðinni og staðsetningin í Kringl- unni sé því góð.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.