Morgunblaðið - 25.07.1998, Síða 8

Morgunblaðið - 25.07.1998, Síða 8
8 LAUGARDAGUR 25. JÚLÍ 1998 FRETTIR MORGUNBLAÐIÐ ÞIÐ verðið að muna það að í kvótaumræðunum er Ijótt að nota orð eins og eignatilfærsla, gjafa- kvóti, sægreifí, þjóðareign og leiguliði... Umhverfísáhrif gatnamóta Miklubrautar og Skeiðarvogs Skeiðarvogur lokaður við Fákafen og Mörkina HAFIN er frumathugun hjá Skipu- lagsstofnun á mati á umhverfisá- hrifum mislægra gatnamóta við Miklubraut og Skeiðarvog. Fyrir- hugað er að framkvæmdir hefjist í sumar og að verklok með endanleg- um frágangi verði vorið 2000. Með- an á framkvæmdum stendur verður Skeiðarvogur lokaður frá gatnamót- unum við Fákafen og Mörkina og verður lagður vegur til bráðabirgða milli Suðurlandsbrautar og Miklu- brautar austan Skeiðarvogs. I frétt frá Skipulagsstofnun segir enn fremur að samkvæmt frum- matsskýrslu sé markmið fram- kvæmdanna að auka umferðarrýmd og draga úr slysahættu á gatnamót- unum. Auk þess er talið að fram- Isuzu-sýning um helgina NYR Isuzu Trooper jeppi verður sýndur hjá umboðinu, Bflheimum í Reykjavík, nú um helgina. Er hann fáanlegur með dísil- eða bensínvél. Með 3,0 lítra og 159 hestafla dísilvél kostar bfllinn, sem er sjö manna, 2.750.000 kr. Sé hann með 3,5 lítra bensínvél sem er 215 hestöfl kostar hann 3.650.000 kr. Á sýningunni um helgina verður hægt að sjá bíl sem breytt hefur verið fyrir 33 tommu hjólbarða. Bflasýningin er opin milli klukkan 14 og 17 í dag og á morgun. kvæmdin muni auðvelda umferð gangandi og hjólandi vegfarenda yf- ir Miklubraut og Skeiðarvog. Fjórir kostir I frummatsskýrslu eru kynntir fjórir mismunandi kostir við út- færslu gatnamótanna en metin eru umhverfisáhrif tvöfaldrar slaufugatnamóta á mótum Miklu- brautar og Skeiðarvogs. Samkvæmt tillögunni mun Skeiðarvogur liggja á brú yfir Miklubraut, frá Fákafeni og Mörkinni að norðan að gatna- mótum við Sogaveg að sunnan. Suð- vestan gatnamóta Miklubrautar og Réttarholtsvegar verður lögð frá- rein og umferðarslaufa í skeringu í brekkunni neðan við Sogaveg. Norðaustan gatnamótanna verður lögð frárein og umferðarslaufa á fyllingu og verða gatnamót við Skeiðarvog ljósastýrð. LYKILHÓTEL Mývatn, sem er það sjötta í röð Lykilhótela og er á Skútustöðum, hefur enn ekki fengið starfsleyfi þrátt fyrir að hafa verið opnað íyrir um mánuði. Jón Ragn- arsson, eigandi Lykilhótela, segist eiga von á leyfinu í næstu viku. Fulltrúi sýslumanns á Húsavík tjáði Morgunblaðinu að fyrir kæmi að rekstur væri hafinn áður en formleg leyfi lægju fyrir og taldi stutt í að leyfið yrði gefið út fyrir Lykilhótel Mývatn. Sýslumaður gefur út hótelleyfi að fenginni umsögn vinnueftirlits, eldvarnaeftirlits, heilbrigðisnefnd- ar og sveitarstjórnar vegna áfeng- isveitingaleyfis. Fulltrúi sýslu- manns á Húsavík sagði unnið að undirbúningi útgáfu hótelleyfisins Fram kemur að framkvæmdin er ekki í samræmi við aðalskipulag Reykjavíkur og eru breytingar aug- lýstar um leið og mat á umhverfisá- hrifum. Samkvæmt frummats- skýrslu verður ekki komist hjá nokkrum óþægindum fyrir íbúa nærliggjandi svæða og vegfarendur á meðan á framkvæmdum stendur. Mestu áhrifin verða við Réttarholts- veg og neðan Sogavegar þar sem fráreinin liggur minnst í um 35 metra fjarlægð frá íbúðarhúsum. Frummatsskýrslan liggur frammi frá 22. júlí til 26. ágúst 1998 á Borgarskipulagi, í Bústaðasafni í Bústaðakirkju, í Þjóðarbókhlöðunni og hjá Skipulagsstofnun, Laugavegi 166. Almenningi gefast fímm vikur til að kynna sér framkvæmdina og leggja fram athugasemdir. Þær þurfa að berast Skipulagsstofnun eigi síðar en 26. ágúst 1998. og sagði framangreindar umsagnir á leiðinni. Sagðist fulltrúinn búast við að leyfið yrði gefið út fljótlega, oft færi þó starfsemi af stað áður en svo væri þótt segja mætti að slíkt væri ekki gott til eftirbreytni. Leyfin eru gefín út til fimm ára í senn. Jón Ragnarsson hótelhaldari sagðist hafa sótt um fyrir rúmum mánuði og bjóst hann við að leyfið fengist í næstu viku. Hann kvaðst þó hafa byrjað starfsemi en nokkrir hópar ferðamanna hafa þegar gist á Lykilhótelinu að Skútustöðum. Hann sagði starfsemi sem þessa oft tekna út þegar hún væri komin í gang og eftir það lægju umsagnir fyrir og hægt væri að gefa leyfi út í framhaldi af því. Lykilhótel Mývatn bíður starfsleyfís Sölumál í síbreytilegri samkeppni Viðhorfsstjórar stýra vinsældum fyrirtækja Hallgrími Óskars- syni, sem skipu- lagði alþjóðlega ráðstefnu Imarks hér á landi í vor, hefur verið boðið á sumarnámskeið hjá Harvard-háskóla. Einn fyrirlesara á ráð- stefnunni, John A. Deighton, prófessor í markaðsfræðum við Har- vard Business School, bauð Hallgrími að sækja námskeið ytra í lyölfar ráðstefnunnar. Segir Hallgrímur að yfirleitt sendi alþjóðleg stórfyrir- tæki önnum kafna stjórn- endur sem ekki hafi tíma til þess að leggja stund á hefðbundið meistaranám á slík námskeið og þurfa þátttakendur þá að greiða um tvær milljónir króna fyrir. - Hvaða möguleika veitir slíkt námskeið? „Námskeiðið fjallar um mark- aðs- og sölumál í síbreytilegu sam- keppnisumhverfi sem mörg fyrir- tæki þurfa að glíma við. Nemend- ur þurfa að leggja fram raunhæf verkefni og leysa í samvinnu við prófessora við skólann og einnig munu gestafyrirlesarar úr banda- rísku atvinnulífí flytja erindi." - Hvað eru skipulagðar vin- sældir fyrirtækis? „Sum fyrirtæki eru í þeirri stöðu að viðskiptavinir þess vilja gjaman kaupa af þeim vöm, jafn- vel þótt þeir viti að þær séu í sum- um tilvikum dýrari en hjá keppi- nautum. Vinsældir fyrh’tælds skapa þetta ástand, þ.e. ekki bara eftirspurn heldur mikla löngun hjá viðskiptavininum til þess að eiga samskipti við fyrmtækið. Flugfélagið Virgin Atlantic Airwa- ys er gott dæmi en viðskiptavinir þess eru stoltir af því að skipta við fyrirtækið og gorta sig jafnvel af því. Þjónusta þess er ekki endi- lega betri en stjórnendum hefur tekist að skapa fyrirtækinu þannig ímynd að það þyki bæði áhugavert og spennandi að skipta við það. Viðskiptavinir þess þurfa því síðm- hvatningu til þess með auglýsingum. I þessu felst kjarni málsins. Fyrirtæki eru auðvitað alltaf að reyna að auka tekjur og minnka kostnað og sköpun þess konar viðhorfs er ný leið til hag- ræðingar í rekstri.“ - Er endanlegt takmark fyrir- tækja þá að hætta að kaupa aug- lýsingar í fjölmiðlum ? „Það má segja að þetta sé ný leið. Fyrirtækin þurfa samt sem áður að koma sér á framfæri, hvort sem er í auglýsingum, eða með almennri umfjöllun. En leiðin að vinsældunum er fyrst og fremst sú að skapa spennandi og áhugaverða ímynd í stað þess að auglýsa eiginleika sína. Það virkar einfaldlega ekki lengur því þekking og geta fyrirtækja til þess að framleiða góða vöru og veita góða þjónustu er orðin svo alrnenn." - Hvaða íslensku fyrirtækjum hefur tekist að skapa sér það við- horf aðþykja spennandi og áhuga- verð? „Það má nefna dæmi á borð við Islenska erfðagreiningu, Kaupþing, Oz og Flugleiðir. í rannsókn sem ég gerði fyrir ráðstefnuna nefndi fimmti hver háskólanemi Islenska erfðagreiningu sem fyrirtækið sem hann vildi helst starfa hjá.“ - Er það ekki vegna þeirra góðu launa sem spurðist út að væru í boði? Hallgrímur Óskarsson ► Hallgrímur Óskarsson fædd- ist á Akureyri árið 1967. Hann Iauk stúdentsprófí frá Mennta- skólauum á Akureyri árið 1988 og BS-prófi í verkfræði með áherslu á rekstrar- og mark- aðsfræði frá Háskóla Islands árið 1993. Árið 1994 hóf Hall- grímur störf sem sérfræðingur á markaðssviði Flugleiða og stýrði árið 1995 uppbyggingu Flugleiða á netinu. Árið 1996 tók hann við stöðu deildar- sljóra tekjustýringar- og mark- aðskerfa hjá Flugleiðum. Hann er jafnframt höfundur ýmissa bóka um tölvu- og tæknimál sem komið hafa út á almennum markaði. Fólk velur fyr- irtæki á sama hátt og vini „Ástæðan er fyrst og fremst það viðhorf sem fólk hefur til fyr- irtækisins. Það vekur áhuga og þykir spennandi og er því vinsælt að þessu leyti þótt starf þar sé í eðli sínu ekki meira spennandi en sambærilegt starf hjá öðru rann- sóknafyrirtæki." - Er spurningin þá sú að skapa glansímynd af rekstrinum? „Eg myndi ekki nota orðið glansímynd en þetta er sambæri- legt ferli og fólk þekkir í mannleg- um samskiptum. Fólk velur sér fyrirtæki til þess að skipta við með sama hætti og það velur einstak- linga til þess að blanda geði við.“ - Hvernig fara fyrh-tækin að því að skapa sér þetta viðhorf? „Innan markaðsfræðinnar er að þróast ný grein sem nefnist „perception management" sem út- leggja má sem viðhorfsstjómun. Ég sé fyrir mér að mörg stóríyrh'- tæki hafi í framtíðinni viðhorfs- stjóra í sínum röðum til þess að skilgreina viðhorf í huga viðskipta- vina og almennings sem hentar fyr- irtækinu. Fyrirtæki reyna auðvitað alltaf að skapa sér einhverja ímynd en þetta gengur miklu lengi-a því unnið er að því með skipulögðum hætti að koma tiltekn- um viðhorfum að í huga fólks.“ - Einhverjum dytti í hug að tala um heilaþvott í þessu samhengi? „Þetta er ekki meiri heilaþvott- ur en annað upplýsingaflæði sem berst fólki í dag. Það er ekki verið að neyða fólk til neins.“ - En viðtakandinn á væntan- lega erfíðara með að leggja sjálf- stætt mat á fyrirtækið en ella? „Þetta er sá veruleiki sem blas- að hefur við Vesturlandabúum stóran hluta aldarinnar, að fyrir- tæki reyni að koma tilteknum við- horfum á framfæri. Nú er kannski bara verið að gera það með skipu- lagðari hætti.“

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.