Morgunblaðið - 25.07.1998, Síða 12
12 LAUGARDAGUR 25. JÚLÍ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Fjármálaráðherra kynnir skýrslu um einkaframkvæmd
Talin henta vel vegna
margra verkefna
NEFND á vegum fjármálaráðherra
leggur til í nýútkominni skýrslu að
ríkisstjómin samþykki að leggja
áherslu á að færa ýmis verkefni rík-
isins til einkaaðila með svokallaðri
einkaframkvæmd á næstu árum.
Leggur nefndin til að skoðað verði
sérstaklega hvort semja megi um
einkaframkvæmd við uppbyggingu
og rekstur Reykjavíkurflugvallar,
þar sem einkaaðili tæki að sér að
endurbyggja flugbrautir, reisa flug-
stöð og annast reksturinn. í öðru
lagi bendir nefndin á að rekstur
heilsugæslustöðva sé kjörið verk-
efni fyrir einkaaðila í þessu sam-
bandi og loks er lagt til að einkaaðil-
um verði falið að leggja til alla að-
stöðu og þjónustu við Iðnskólann í
Hafnarfírði á grundvelli einkafram-
kvæmdar. í gær var svo undirritað-
ur samningur milli ríkisins og Hafn-
arfjarðarbæjar um nýja aðstöðu og
rekstur Iðnskólans í Hafnarfirði
undir merkjum einkaframkvæmdar.
Nefndin var skipuð í ráðherratíð
Friðriks Sophussonar, fyrrv. fjár-
málaráðherra, en Geir H. Haarde,
fjármálaráðherra hefur kynnt
skýrslu nefndarinnar í ríldsstjóm-
inni. Einkaframkvæmd felur í sér
að ríkið gerir samning við einkaað-
ila um að veita tiltekna þjónustu og
era Hvalfjarðargöngin í reynd
fyrsta einkaframkvæmdin hér á
landi.
Fjármálaráðhema segir að engar
ákvarðanir hafi verið teknar um
hvort ráðist verði í einkafram-
kvæmd við endurbætur á Reykja-
víkurflugvelli eða vegna heilsugæsl-
unnar. Tillögur nefndarinnar séu
fyrst og fremst dæmi um hvemig
hagnýta megi kosti einkafram-
kvæmdar. Pessi mál verði þó skoð-
uð á næstunni. „Þetta er aðferð sem
þekkist víða um lönd og hefur gefist
vel þar sem hún á við,“ segir Geir.
Hann bendir á að þessi aðferð hafi
fjölmarga kosti í fór með sér við
réttar aðstæður. M.a. sé hagkvæmt
fyrir ríkið að þurfa ekki að fjár-
magna risavaxnar framkvæmdir í
einu lagi og annast rekstur þeirra
viðfangsefna sem um ræðir og
einkaaðilinn geti notið kosta einka-
rekstursins.
Einkaaðilinn tekur áhættuna
Nefndin bendir á í skýrslunni að
með samningum um einkafram-
kvæmd sé venjulega um að ræða
verkefni sem krefjist umtalsverðrar
fjárfestingar og er samnningstím-
inn yfirleitt langur, eða 20-30 ár.
Skarphéðinn B. Steinarsson, starfs-
maður nefndarinnar, bendir á að
mikilvægt sé að ríkið skilgreini ítar-
lega þá þjónustu sem það vill beita
sér fyrir að veitt verði og boðin út.
Með samningum um einkafram-
kvæmd fær einkaaðilinn forræði yf-
ir hönnun, byggingu, fjármögnun,
rekstrarfyrirkomulagi og öðra sem
lýtur að veitingu þjónustunnar og
hann tekur áhættuna af því að geta
veitt þjónustuna og breytingum
sem verða kunna á samningstíman-
um.
Nefndin kemst að þeirri niður-
stöðu að einkaframkvæmd megi
nota á nánast hvaða sviði sem er
þegar saman fari rekstur og fjár-
festing og henti vel til fjölmargra
verkefna.
Framkvæmdir við flugvöllinn
gætu hafist 1999
Bent er á í skýrslunni að á næstu
misseram þurfi að hefja endurbygg-
ingu Reykjavíkurflugvallar og
byggingu flugstöðvar. Með einka-
framkvæmd væri einkaaðilum falin
bygging og rekstur flugbrauta,
bygging og rekstur flugstöðvar og
öll þjónusta við flugumferð. Flug-
brautir verði áfram þrjár en skipta
þurfi um undirbyggingu og yfírborð
og gera þær þannig úr garði að þær
uppfylh' allar kröfur sem gerðar era
til flugbrauta. Þá bendir nefndin á
að mætti hugsa sér að í flugstöðinni
verði ýmis þjónustustarfsemi sem
höfðaði til breiðari hóps en flugfar-
þega, s.s. verslanir, veitingastaði og
kvikmyndahús. Nefndarmenn telja
að fela mætti einkaaðilum allan
rekstur á flugvellinum, s.s. snjó-
raðning, slökkvilið, viðhald og flug-
umferðarstjóm. Flugvallarfyrir-
tækinu verði veitt verulegt svigrúm
til að ákveða hvaða starfsemi verði í
flugstöðinni og á flugvallarsvæðinu.
Kröfur stjórnvalda í útboðslýsingu
verði að flugfélög og flugfarþegar
eigi greiðan aðgang að þjónustu
þar. Tekjur flugvallarfyrirtækisins
verði fyrst og fremst þjónustugjöld
sem greidd séu af notendum flug-
vallarins.
Nefndarmenn telja jafnframt að
ætla megi að undirbúningur útboðs
tæki 12-15 mánuði þannig að ef
ákvörðun liggi fyrir fljótlega um að
fara þessa leið, gætu framkvæmdir
hafist á árinu 1999.
Einnig er bent á í skýrslunni að
vel mætti hugsa sér að einkaaðilum
verði falið með samningi að byggja
upp, fjármagna og reka heilsu-
gæsluþjónustu. í útboðslýsingu
væri þá m.a. skilgreint með ná-
kvæmum hætti hvaða heilsugæslu-
þjónustu ætti að veita.
Lögregla
eykur eftirlit
á vegum
Ríkislögreglustjóraembættið hefur fengið
sérútbúna bifreið til umráða þar sem fram
fer öndunarsýnataka úr þeim sem grunaðir
eru um ölvunarakstur. Guðjón Guðmunds-
son fylgdist með aðgerðum lögreglu á
Reykjanesbraut í fyrrakvöld þar sem mörg
hundruð ökumenn voru stöðvaðir.
RÍKISLÖGREGLUSTJÓRI á
samstarf við hin ýmsu lögregluemb-
ætti um landið um eflda löggæslu á
vegum úti sem lýtur meðal annars
að því að draga úr ölvunar- og
hraðakstri. Ríkislögreglustjóraemb-
ættið leggur til tækjabifreið sem
búin er fullkomnum mælitækjum
sem koma í stað blóðsýnatöku hjá
ökumönnum sem granaðir eru um
ölvunarakstur. Auk þess leggur
embættið til ómerktar lögreglubif-
reiðir sem búnar era myndavélum
sem greina hraða ökutækja. Sama
gildir um þessar bifreiðar og varð-
skip Landhelgisgæslunnar, enginn,
utan lögreglunnar, veit hvar bílam-
ir era hverju sinni.
Öndunarsýni tekin
í fyrrakvöld störfuðu lögreglulið-
in í Kópavogi, Hafnarfirði, Keflavík
og frá Ríkislögreglustjóra saman að
eftirliti við afleggjarann að Vogum
á Reykjanesbraut. Stöðvaðir voru
mörg hundruð bílar og ökumenn
krafðir um ökuskírteini. Sumir vora
jafnframt beðnir um að blása í
handhelda áfengismæla, svokallaða
SD2 mæla, sem gefa vísbendingu
um hvort ökumaður hafi haft áfengi
um hönd. Mælist 0,45 prómill áfeng-
is eða meira í útöndun er viðkom-
andi færður yfir í tækjabifreiðina og
telst frá þeirri stundu vera handtek-
inn. Þar er hann látinn blása í annað
og nákvæmara mælitæki sem tengt
er tölvu og mótaldi. Það tæki mælir
áfengismagn í milligrömmum í lítra
(mgd), og sýni það t.d. 0,30 mg/1 er
sú tela margfölduð með tveimur til
að fá út áfengismagn í blóði í pró-
millum. Vínandamagn í blóði
mannsins telst því vera 0,60 prómill
sem hefur í fór með sér ökuleyfis-
sviptingu í einn mánuð og sekt upp
á 24 þúsund kr.
23 mínútur í stað þriggja vikna
15 mínútur verða að líða milli íyrri
mælingar og þeirrar seinni og sagði
Hjálmar Björgvinsson lögreglumað-
ur, sem ásamt fjóram öðram lög-
reglumönnum hefur hlotið sérstaka
þjálfun í öndunarsýnatöku í Noregi,
ástæðuna vera þá að ökumaður gæti
hafa fengið sér áfengissopa rétt áður
en hann var stöðvaður. Það getur
raskað áreiðanleika mælinganna. A
þessu tímabili má hinn gnmaði
einskis neyta. Samtals tekrn- sýna-
takan og mælingin um 23 mínútur.
Með blóðsýnatöku getur það tekið
allt að þrjár vikur að fá niðurstöðu.
Kosturinn við þessa nýju mæliaðferð
er því ótvíræður, bæði fyrir þann
sem sýnið gefur og lögreglu.
Enginn reyndist undir áhrifum
áfengis þær klukkustundir sem eft-
irlitið stóð yfir á Reykjanesbraut-
inni frekar en kvöldið áður þegar
lögregluliðið á Selfossi ásamt Ríkis-
lögreglustjóra héldu uppi eftirliti á
Selfossi. Þar vora stöðvaðir 400-500
bflar. Nokkrir voru þó áminntir um
að nota bflbeltin.
Sérútbúin tækjabifreið Rfldslög-
reglustjóra var tekin í notkun 25.
júní síðastliðinn. Nýlega kom hún
úr hringferð um landið og hafði ver-
ið embættunum úti á landi til að-
stoðar og sagði Hjálmar að óþarf-
Morgunblaðið/Golli
ÖKUMENN tóku lögreglunni almennt mjög vel þegar þeir voru stöðvaðir á Reykjanesbrautinni í fyrrakvöld.
HJÁLMAR Björgvinsson lögreglumaður tekur öndunarsýni í sérútbú-
inni bifreið Ríkislögreglustjóra. Sá er sýnið gaf var ekki handtekinn
maður heldur starfsbróðir Hjálmars, Birgir Hilmarsson.
lega margir ökumenn hefðu komið í
mælingu inn í bílinn.
Nýi tækjabúnaðurinn er þróaður
í Bandaríkjunum. Nefnd sérfræð-
inga sem skipuð var af norska
dómsmálaráðuneytinu hefur, í sam-
ráði við framleiðanda, aðlagað það
að norskum kröfum. Dómsmála-
ráðuneytið ákvað að sömu kröfur
giltu hér á landi. Tækið mælir
áfengismagn í útöndunarlofti með
innrauðum Ijósgeisla. Við gegnum-
lýsingu útöndunarlofts era notaðar
sérstakar síur. Skynjari tækising
greinir áfengismagn í útöndunar-
lofti grunaðs manns mjög nákvæm-
lega. AJlar niðurstöður geymast í
minni tækisins og era þær fluttar
um mótald og símkerfi til Ríkislög-
reglustjóra. Tvö slík tæki era til í
landinu. Annað þeirra er í tækja-
bflnum en hitt er í vörslu Lögregl-
unnar í Reykjavík.
Tækin koma í stað hefðbundinnar
mælingar á áfengismagni í blóði.
Samkvæmt umferðarlögum má
svipta þann sem neitar að láta önd-
unarsýni í té ökurétti í eitt ár.
Hraðamyndavélar
Lögregluaðgerð, eins og sú við
afleggjarann að Vogum í fyrra-
kvöld, er ekki síst ætluð til að vekja
ökumenn til umhugsunar um að
slíkt eftirlit geti verið í gangi hvar
sem er á landinu og menn hugsi sig
um vandlega áður en þeir setjist
undir stýri undir áhrifum.
Tveir menn eru í sérútbúnu lög-
reglubifreiðinni en annað gildir um
ómerktar bifreiðar Rfldslögreglu-
stjóra, sem eru tvær. Þar er aðeins
einn lögreglumaður þar sem þeir
sem gerast brotlegir era ekki stöðv-
aðir. í bflunum eru hraðamyndavél-
ar sem taka aðeins myndir af þeim
bílum sem ekið er vel yfir leyfilegan
hámarkshraða. Bílarnir eru tveir og
fara þeir ört á milli lögregluum-
dæma. Á myndunum kemur fram
tími, dagsetning, staðsetning, mynd
af bílnum og skráningamúmeri og
oft einnig af andliti ökumanns. Bfl-
eigandi fær síðan senda sekt. Hafi
hann ekki ekið bílnum er honum
skylt að upplýsa lögreglu um hver
hafi ekið honum. Snorri Sigurjóns-
son, hjá Ríkislögreglustjóra, segir
að það kæmi ekki á óvart að hraða-
myndavélum fjölgi á næstunni.
Verslunarmannahelgin nálgast
og má búast við að lögregla um allt
land hafi uppi mikinn viðbúnað og
eftirlit. Ljóst er að sérútbúin tækja-
bifreið lögreglunnar verður í notk-
un en enginn veit, nema lögreglan,
hviU--.