Morgunblaðið - 25.07.1998, Side 13

Morgunblaðið - 25.07.1998, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ AKUREYRI LAUGARDAGUR 25. JÚLÍ 1998 13 Amtsbókasafnið á Akureyri Fjórar vélar frá jafnmörgum flugfélögum í Grímsey Mikil aukning á allri starfsemi Morgunblaðið/Erlendur Haraldsson Ný álma við Síðuskóla Fjögur tilboð FJÖGUR tilboð bárust í byggingu nýrrar álmu við Síðuskóla, en þau voru opnuð í gær. Kostnaðaráætl- un hljóðaði upp á 75,1 milljón króna. SS-Byggir bauð lægst í verkið, 67,2 milljónir króna, eða 89,5% af áætluðum kostnaði. Næstlægsta til- boðið kom frá SJS-verktökum, 68,5 milljónir króna, 91,2% af kostnaðar- áætlun. Þorgils Jóhannesson bauðst til að vinna verkið fyrir 69,3 milljón- ir króna og Fjölnir fyrir 72,1 milljón króna, eða um 96% af kostnaðará- ætlun. Um er að ræða byggingu rúmlega 600 fermeti-a álmu en í henni verða 7-8 kennslurými. Verkinu á að vera lokið 1. ágúst á næsta ári. Unnið er að byggingu tveggja lausra kennslu- stofa við Síðuskóla um þessar mund- ir en þeim á að skila fullbúnum 10. ágúst næstkomandi. Farið var yfir tilboð í gær og mun framkvæmdanefnd fjalla um tilboð- in á fundi á mánudag. Umferð innlendra ferðamanna hefur brugðist á Norðurlandi MIKIL aukning einkenndi alla starfsemi Amtsbókasafnsins á Akureyri á liðnu ári að því er fram kemur í ársskýrslu sem nýlega kom út, en safnið varð 170 ára í apríl á síðasta ári. Alls voru útlán á síðasta ári tæp- lega 153 þúsund sem er 23% meira var árið á undan. Mest varð aukn- ing útlána í september en þá jukust þau um helming miðað við fyrra ár. Útlán eru á bilinu frá rúmlega 10 þúsund upp í rúmlega 15 þúsund, mest í janúar en minnst var lánað í maí. Bækur lesnar sem alderi fyrr Fram kemur í ársskýslunni að það sé mikið ánægjuefni að Akur- eyringar sýni safninu slíkan áhuga og telur amtsbókavörður það til marks um að upplýsingasamfélagið sé farið að hafa áhrif á almenning, sem nýti sér þjónustu safnsins í stöðugt meira mæli. Þó svo að söfn skólanna hafi styrkst dragi það ekki úr aðsókn að Amtsbókasafn- inu. Einnig sé athyglisvert að þótt margir velti fyrir sér stafrænni framtíð og að bókin sé deyjandi fyrirbæri, sé raunin sú að bækur og blöð séu lesin meira nú en nokkru sinni áður. Enn eru bækur og blöð um 85% þess efnis sem lán- að er út af safninu, myndbönd eru í öðru sæti, 7% og hljóðbækur í því þriðja með 5%. Gestum í lestarsal fjölgaði um 19% milli ára og bækur sem lánaðar voru til afnota í salnum urðu fjórð- ungi fleiri en árið áður. Hið sama er uppi á teningnum þegar kemur að millisafnalánum, en þar nam aukn- ingin 144%. Samvinna við Grímseyinga Á síðasta ári var tekin upp þjón- usta við Eyjabókasafnið í Grímsey, sem felst í því að Amtsbókasafnið lánar Grímseyingum á bilinu 200 til 300 eintök af bókum sem þeir hafa í nokkra mánuði í senn. Þetta er fyrsti vísir að þeirri stefnu sem boð- uð er í nýjum lögum um almenn- ingsbókasöfn og felst í aukinni þjón- ustu stærri safna við hin minni. Heimilt er að taka gjald fyrir slíka þjónustu en í þessu tilfelli hefur það ekki verið gert, heldur litið svo á að um eins konar tilraunaverkefni sé að ræða. Æ stærri hluti af fjármunum til rekstrar safnsins er eigið aflafé eða framlög annarra en Akureyrarbæj- ar. Árið 1990 var hlutur bæjarins í rekstri safnsins 96%, en var á síð- asta ári um 81%. Annríki á flugvellinum ÞAÐ var heilmikið um að vera á flugvellinum í Grímsey nú ný- Iega, en þá voru íjórar flugvélar á vellinum samtímis. Af og til kemur það fyrir að íjórar flug- vélar séu á fíugvellinum í Gríms- ey á sama tíma, en þó er sjald- gæft þegar þær eru frá fjórum flugvélum eins og gerðist í þessu tilfelli. Á myndinni má sjá flug- vélar frá Flugfélagi fslands, Leiguflugi, Jórvík og Mýflugi. Helmingi færri Is- lendingar á ferðinni Morgunblaðið/Bjöm Gíslason HUGA þarf að hjólinu áður en lagt er af stað í langferð, eins og þessi tjaldbúi á tjaldstæðinu á Akureyri gerði í gærmorgun. ÞVÍ er ekki að neita að lausaum- ferð innlendra ferðamanna hefur verið mun minni síðustu vikur en vant er undanfarin sumur,“ sagði Tómas Guðmundsson, forstöðu- maður Ferðamálamiðstöðvar Eyjafjarðar, en kulda- og vætutíð á norðanverðu landinu hefur sett nokkurt strik í reikning þeirra sem stunda ferðaþjónustu. Miðað við síðustu sumur má gera ráð fyr- ir að fækkunin nú hlaupi á ein- hverjum tugum þúsunda að sögn Tómasar, en útlendingar eru þó síst færri en verið hefur. Tómas sagði að ferðaþjónustu- fólk á svæðinu hefði orðið vart við að mun færri innlendir ferðamenn væru á ferðinni og væri það veðr- ið sem gerði það að verkum. Gott veður syðra þýddi að fólk þaðan héldi sig á þeim slóðum, „og mað- ur getur vel unnt þeim þess að vera heima hjá sér í svona góðu veðri“. Einkum eru það tjaldsvæði, gistihús og verslanir sem sam- drátturinn kemur niður á, en Tómas sagði hljóðið í hótelfólki ekki slæmt. Mikið væri um útlenda ferðahópa, þeir væru búnir að skipuleggja sína ferð langt fram í tímann og veðrið hefði ekki áhrif á ferðalög þeirra. Ekki hægt að veðja á veðrið Tómas sagði það ekki eins alvar- legt þótt sumarsveiflan léti á sér standa á Akureyri, ferðamanna- straumur væri mikill til að mynda bæði vor og haust í tengslum við ráðstefnur, fundi og annað og eins væri hann vaxandi að vetrinum. Ástandið væri verra á þeim stöð- um sem alfarið byggðu sína af- komu á hinu stutta ferðasumri. „Fyrir minni staði skiptir sumarið öllu máli og vitanlega er það afar slæmt þegar það bregst, en menn verða að gera sér grein fyrir því að veðrið er eitthvað sem ekki er hægt að veðja á. Júlímánuður var slæmur, en að margra mati er besti tíminn framundan og ef veðr- ið batnar geta menn bætt sér hann upp.“ Algjört hrun Ketill Tryggvason umsjónar- maður í Vaglaskógi sagði fækkun gesta mikla, en um helmingi færri gestir hafa heimsótt skóginn mið- að við árið á undan. Tvær síðustu helgar hafa vart sést næturgestir í Vaglaskógi. „Það er ekkert óskaplega bjart yfir okkur, það hafa enn sem komið er ekki komið neinar stórar helgar," sagði Ket- ill. „Við erum ekki með neina fasta rútuhópa, hingað koma næstum eingöngu íslendingar, þannig að við verðum óþyrmilega vör við þessa fækkun ferða- manna," sagði Ketill. „Þetta er algjört hrun,“ sagði Haraldur Guðmundsson á tjald- stæðinu Húsabrekku gegnt Akur- eyri. Þetta er sjöunda sumarið sem tjaldstæðið er rekið og sagði Haraldur þetta það allra lakasta. „Ég hef ekki séð það svartara, ekki einu sinni 1993, sem var þó aumt,“ sagði Haraldur en kvaðst búinn að sætta sig við ástandið. „Þetta á ekki að koma manni á óvart, en auðvitað er þetta bölvað þegar það ríður yfir,“ sagði hann. Gestir Húsabrekku er að minnsta kosti helmingi færri en þeir voru í fyrra og sagði Haraldur að Islendingar hefðu vart sést, það væru útlendingar sem héldu þessu uppi í sumar. Messur Guðsþjónusta í Akureyi-ar- kirkju kl. 21 annað kvöld. Sr. Svavar A. Jónsson messar. Cantica-stúlknakórinn frá Hor- sens í Danmörku syngur. Sumartónleikar kl. 17 á sunnu- dag. Cantica-stúlknakórinn syngur, stjórnandi Klaus Lyng- GLERÁRPRESTAKALL: Messað verður í Lögmannshlíð- arkirkju kl. 21 á sunnudags- kvöld. HVÍT ASUNNUKIRK J AN: Bænastund í dag, laugardag, frá 20 til 21. Sunnudagaskóli fjölskyldunnar á morgun kl. 11.30. Aldursskipt biblíu- kennsla og léttur hádegisverð- ur á eftir. Samkoma sama dag kl. 20, mikill söngur, G. Theó- dór Birgisson predikar. Skrefið á þriðjudag kl. 17.15. Landsmót hvítasunnumanna hefst í Kirkjulækjarkoti í Fljótshlíð næsta fimmtudag. Bifreiðastjórar Hafið bílabænina í bílnum og orð hennar hugfbst þegar þið akið. Droitmn Guð, veit mér vernd þina, og tát mig minnast ábyrgðar minnar er ég ok þessari bifreiö. i Jesú nafni. Amen. Fæst í Kirkjuhúsinu Laugavegi 31, Jötu, Hátúni 2, Reykjavík, Hljómveri og Shellstöðinni v/Hörgárbraut, Akureyri, Litla húsinu, Strandgötu 13B, Akureyri. Verð kr. 200. Orð dagsins, Akureyri AKSJON Laugardagur 25. júlí 21.00Þ-Sumarlandið Þáttur fyrir ferðafólk á Akureyri og Akureyringa í ferðahug. Surmudagur 26. júlí 21 .OOKSumarlandið Þáttur fyrir ferðafólk á Akureyri og Akureyringa í ferðahug. Mánudagur 27. júlí 21 .OO^Sumarlandið Þáttur fyrir ferðafólk á Akureyri og Akureyringa í ferðahug. Skemmtileg verslun TOTO Hafnarstræti 98, Akureyri sími 461 4022 Sumarhús til leigu Nýlegt rúmgott sumarhús á rólegum stað, 22 km frá Akureyri. Upplýsingar í síma 463 1355.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.