Morgunblaðið - 25.07.1998, Side 14

Morgunblaðið - 25.07.1998, Side 14
14 LAUGARDAGUR 25. JÚLÍ 1998 MORGUNBLAÐIÐ LANDIÐ Katólsk messa á Þykkva- bæjarklaustri Hnausum - Katólsk messa var á Pykkvabæjarklaustri, í Álftaveri, sunnudaginn 19. júlí sl., jafnframt fyrsta katólska messan þar frá siða- skiptum, 1550. Sr. Jakob Rollard messaði og minntist þess að 800 ár voru frá því að Þorlákur Þórhallsson biskup var tekinn í helgra manna tölu. En Þorlákur var fyrsti ábótinn á Þykkvabæjarklaustri. í hans tíð var svo mikill ljómi yfir starfsem- inni þar, að útlendir menn komu að kynna sér hana, segir í Hungur- vöku. Klaustrið í Veri var stofnað 1168, leið því nokkur tími milli þessara tveggja viðurkenninga. Þorlákur helgi nam í Frakklandi og einnig á Englandi, þar eflaust bókagerð, eins og Páll Jónsson gerði síðar, sá er varð biskup og að lokum lagður í steinkistuna í Skálholti. Talið er að skóli hafi verið rekinn á Þykkvabæjarklaustri og að þar hafi lært Brandur Jónsson, síðar ábóti þar og biskup, og sáttasemjari í hörmungum Sturlungaaldar, þótt oft til lítils kæmi, þrátt fyrir yfir- burða mannkosti Brands Jónsson- ar. Ekki er vitað um bókagerð Þor- láks helga, en vitað að Brandur Jónsson átti við slíkt. Brandur Jónsson var af Svínfellingaætt og kemur sterklega til greina að hann hafi komið að ritun Njálu, þar sem allt er gert til að gera hlut Flosa sem bestan, og ekki vantar þar kirkjuleg áhrif í seinni hlutanum. Þama var allt sem til þurfti: Rík- asta klaustrið, bókagerðarfyrirtæki forveranna og eflaust listamenn í þjónustu. Búið var, þar sem klaustrið stóð, til 1945, en nærri 10 árum síðar kom fram á sýslufundi í Vík, tillaga um að reisa minnismerki á rúst- inni, flutt af Eyjólfi Eyjólfssyni hreppstjóra á Hnausum. Var sú til- Morgunblaðið/Villyálmur SR. JAKOB Rolland með messugestum fyrir framan altari heilags Þorláks í Þykkvabæjarklaustri. laga samþykkt og sá Kristján Eld- járn þjóðminjavörður, síðar forseti, um þá framkvæmd. Var minnis- merkið reist 1958 á rústum klaust- ursins í Þykkvabæ í Veri, sem áreiðanlega var örlagaríkt fyrir menningu og sögu þjóðarinnar. Gripir eru ekki frá gömlum tíma í Klausturskirkjunni, aðeins ein kórbjalla í Skógasafni. En tveir sjakar á altari og ljósakrónan eru úr franska spítalaskipinu St. Páli. Þeir voru við messu í rjómalogni og tóku ekki niður seglin. í miðri messu stóð skipið fast í fjörunni austan við Kúðaós. Skipverjar voru komnir í land er Meðallendingar og Alftveringar komu á strandstað, nær samtímis. Fóru Alftveringar yfir Kúðafljót norðan við ósinn. Gamlar sagnir eru um að altari Klausturkirkju í Álftaveri hafi frá fyrstu tíð alltaf verið á sama stað. Og bendir fleira til að svo sé. Göngugarpur í Stykkishólmi Stykkishólmi - Sænski göngu- garpurinn Eirk Reutersward, sem er að ganga meðfram strandlengju Islands, kom nýver- ið til Stykkishólms. Hann kom frá Grundarfirði þennan dag og var dagleiðin 46 kílómetrar. Eins og fram hefur komið í fréttum hefur Erik gengið meðfram öli- um ströndum Evrópu, nema fs- lands og Irlands, og stefnir hann á að ljúka því verkefni á næsta ári. Hann hefur verið á göngu síðustu átta ár. Hann hóf göng- una á Seyðisflrði 18. júní sl. og hefur hver dagleið verið um 50 km. Hann gengur þjóðveginn meðfram ströndinni, en ef fínn- ast gamlar gönguleiðir nær sjón- um fer hann þær. Það á betur við hann að ganga utan þjóðveg- ar. Þar nær hann betri tengslum við náttúru landsins, sem hann er mjög hrifínn af. Hann gistir á bændabýlum, ef þess er kostur. Á þann hátt kynnist hann betur fólkinu í landinu. Honum fínnst íslendingar búa í stressuðu sam- félagi, það sé eins allir búist við eldgosi á hverri stundu og því séu allir að flýta sér. Hann dvaldi í Stykkishólmi einn dag til hvíldar og skoðunar. Síðan hélt hann göngu sinni áfram og fór með Baldri yfir Breiðafjörð. Áætlar Erik göngugarpur að ljúka hringnum á Seyðisfirði 27. ágúst og halda þá brott með Norrænu. Morgunblaðið/Guttormur Þormar UNDIRBÚNINGSVINNA fyrir sáningu í gróðrarstöð Barra. Húsið er 100 m að lengd. Gert er ráð fyrir að hagnaður yfir- standandi árs verði mun minni. Ástæðan fyrir því er minni sala til Skógræktar ríkisins en á síðasta ári, auk minni framleiðslu í ár, sem kem- ur fram í lækkun vörubirgða í árslok. Fjárfestingum er haldið í lágmarki og aðhalds er gætt með alla rekstr- arþætti. Árið 1997 voru afhentar samtals 1.816.000 plöntur frá gróðr- arstöðinni Barra hf. og skiptist af- hendingin þannig: Héraðsskógar, vorafhending 641.000, haustafhend- ing 353.000, samtals til Héraðsskóga 994.000. Samtals til Landgræðslu- skóga 738.000. Önnur afhending en til nefndra aðila nam 85.000 plöntum á sl. ári. Megin uppistaðan í plöntu- framleiðslunni er rússalerki, birki og stafafura eða samtals 86%. Sumarið 1997 var sáð tvisvar í gróðurhúsið. Samtals var sáð í 2.486.000 hólf. Áætlað er að fram- leiðslan skili um 1.875.000 plöntum sem er rúmlega 75% nýting. Barri hf. hefur tekið þátt í verk- efni í samstarfi við Iðntæknistofnun, RALA og Rannsóknarstofnun Skóg- ræktar ríkisins, um smitun elris með vaxtarhvetjandi örverum. Verkefnið er styrkt af RANNÍS og í ár fengust 1,9 millj. kr. í verk- efnið. Þetta er annað árið sem verk- efnið er í gangi og þegar hefur náðst umtalsverður árangur með smitun elrisplantna með hreinræktuðu frankia-smiti. Nú eru til plöntur í gróðrarstöð Barra sem smitaðar eru með þessum hætti. Framkvæmda- stjóri er Jón Kristófer Arnarson. Hagnaður hjá Barra Geitagerði - Aðalfundur Barr hf. Egilsstöðum var haldinn 2. júlí sl. I skýrslu formanns, Sveins Jónssonar, kom fram að hagnaður af rekstri fé- lagsins á sl. ári nam 3.679.796 kr. og er það verulega meiri hagnaður en árið á undan. Þetta er fjórða árið í röð sem félagið skilai’ hagnaði. Egið fé félagsins er bókfært á kr. 51.607.000 sem er hækkun um 4,6 millj. kr. frá síðasta ári. Sérstakur póst- stimpill í Vestur- farasetrinu Hofsósi - í Vesturfarasetrinu á Hofsósi var nýverið opnuð lítil sýn- ing um póstinn og póstsamgöngur á tímum fólksflutninga til Vestur- heims. Er sýningunni ætlað að minna á veigamikið hlutverk pósts- ins fyrr á tíð og margþætt gildi bréfanna sem fóru milli Ameríku og Islands í kjölfar vesturferða. Við opnun sýningarinnar flutti Einar Þorsteinsson, framkvæmda- stjóri íslandspóstsj ávarp, en sýn- ingin er styrkt af Islandspósti ehf., sem lét útbúa sérstakan póststimpii fyrir Vesturfarasetrið. Gestir Vest- urfarasetursins geta nú fengið bréf og póstkort stimpluð á staðnum. Stimpillinn sýnir gufuskip á sigl- ingu og minnir á að í farmi skipanna vestur um haf voru mikilvæg bréf sem fluttu milli heimsálfa langþráð- ar fréttir, fjármuni og skjöl. Við opnun póstsýningarinnar voru bréf og kort einnig dagstimpluð og sýndu frímerkjasafnarar þessum degi mikinn áhuga. Að lokinni opnun sýningarinnar flutti Böðvar Guðmundsson rithöf- undur fyrirlestur um íslensku Amer- íkubréfin. í fyrirlestrinum dró Böðv- Morgunblaðið/Áslaug SÉRSTAKUR póststimpill Vesturfarasetursins. ar upp mynd af margvíslegu inni- haldi og efni bréfanna; bai- þau sam- an við Ameríkubréf í öðrum löndum og fjallaði um sérstöðu þeirra. I fyr- irlestri Böðvars kom glöggt fram að í bréfunum eru fólgnar mildlvægar heimildir, auk þess sem málsögulegt gildi þeirra er einstakt. Vísir að safni Ameríkubréfa í Vesturfarasetrinu er vísir að safni Ameríkubréfa, en setrinu hafa verið gefin frumrit og afrit af bréfum, sem eru eins og öll rit í bókasafninu aðgengileg fyrir gesti og fræðimenn. Að sögn starfsfólks er stefnt að frekari söfnun, enda mikill fengur í bréfunum og gera þar góð afrit sama gagn og frum- rit. Sýningin um póstinn, sem er í anddyri og verslun Vesturfaraset- ursins, er opin alla daga frá 11-18. MorgunblaðfyGunnlaugur SÆNSKI göngugarpurinn Erik Reutersward kom til Stykkishólms á leið sinni meðfram strönd íslands.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.