Morgunblaðið - 25.07.1998, Side 15

Morgunblaðið - 25.07.1998, Side 15
MORGUNB LAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. JÚLÍ 1998 15 VIÐSKIPTI Deila olíufélaganna um auglýsinguna um „bestu dísilolíuna“ Málið tekið til meðferðar að nýju ESB leyfír samruna Chrysler/ Benz Briissel. Reuters. STJÓRN Evrópusambandsins hefur veitt skilyrðislaust sam- þykki fyrir sami-una bílafram- leiðendanna Daimler-Benz í Þýzkalandi og Chryslers í Bandaríkjunum. Eftirlitsyfirvöld ESB telja að starfsemi fyrirtækjanna muni skarast nokkuð, en að þau muni mæta samkeppni harðra keppinauta á við BMW, dótturfyrirtækið Rover og General Motors. Samruni fyrirtækjanna mun hafa aðeins takmörkuð áhrif í átt til samþjöppunar í atvinnu- greininni, segir í tilkynningu frá framkvæmdastjóminni. Daimler og Chrysler sögðu í maí frá meira en 40 milljarða dollara samningi um mesta samruna iðnfyrirtækja til þessa. SAMKEPPNISSTOFNUN hefur farið þess á leit við Olíufélagið hf. Esso að það auglýsi ekki svokall- aða gæðadíselolíu sem „bestu díselolíuna" þar til endanleg niður- staða samkeppnisyfirvalda liggur fyrir í deilu olíufélaganna tveggja um réttmæti þess hvort Esso megi auglýsa bestu díselolíuna. Stofnun- in fellst þar með á ósk Skeljungs hf. um frest til 10. ágúst til að koma að athugasemdum vegna málsins. Tildrög málsins eru þau að Skeljungur sendi Samkeppnis- stofnun kvörtun vegna auglýsinga Olíufélagsins hf. Esso þar sem sú fullyrðing kom fram að það seldi „bestu díselolíuna." Skeljungur rökstuddi erindið þannig að enginn algildur mælikvarði væri til á gæð- um díselolíu. Hugsanlega mætti telja díselolíu Olíufélagsins besta á mælikvarða brennisteinsmengunar en t.d. ekki á mælikvarða vélar- slits. Samkeppnisráð gaf Olíufélaginu kost á að sanna þá fullyrðingu, sem auglýsingin byggðist á, enda væri notkun lýsingarorða í efsta stigi, t.d. best, óheimil í auglýsingum samkvæmt samkeppnislögum, nema auglýsandi gæti á auðveldan hátt sannað mál sitt. Vísindalegur samanburður verður gerður Eftir að Olíufélagið hafði sent frá sér greinargerð vegna málsins taldi Samkeppnisstofnun að ekki væri ástæða til að gera athugasemdir vegna auglýsingarinnar. Stofnunin taldi að þar sem umrædda díselolí- an innihéldi MFDA bætiefni væri ekki ástæða til að gera athugasemd- ir við notkun lýsingarorðsins „best“ vegna hennar. I framhaldi af þessari niðurstöðu hefur Skeljungur tilkynnt að lögð verði fram frekari gögn í málinu sem breyta muni íyrri niðurstöðu. Hyggst félagið láta bera díselolíu sína saman við dlselolíu Olíufélags- ins með vísindalegum aðferðum. Samkeppnisstofnun hefur nú fallist á að málið verði tekið aftur til með- ferðar og farið fram á það við Olíu- félagið Esso að það auglýsi ekki díselolíu sína sem „bestu díselolí- una“ á meðan hún stendur yfir. Fær Skeljungur frest til 10. ágúst til að koma að frekari upplýsingum og at- hugasemdum í málinu. Landsvirkjun Skulda- bréfaútboð undirbúið LANDSVTRKJUN hefur að undan- fórnu átt í viðræðum við innlendar lánastofnanir um möguleika á því að ráðast í skuldabréfaútgáfu hérlendis á næstu vikum. Stefán Pétursson, deildarstjóri fjármáladeildar Landsvirkjunar, staðfesti að fyrirtækið hefði í athug- un að gefa út skuldabréf fyrir allt að tveimur milljörðum króna á næst- unni. ,Aðstæður eru ákjósanlegar um þessar mundir þar sem lítið er um hágæða skuldabréf til langs tíma á markaðnum. Við teljum því að það sé sóknarfæri fyrir Landsvirkjun að gangast fyrir myndarlegri skulda- bréfaútgáfu á næstunni. Ekki er þó búið að ákveða hvenær ráðist verður í útgáfuna né heldur endanlega fjár- hæð hennar.“ Að sögn Stefáns stendur nú yfir athugun á þvf hvort hagkvæmt sé að gefa bréfin út í íslenskum krónum samkvæmt evrópskum rammasamn- ingi um lántökur (Euro Medium Term Note). Forstjóri Skeljungs segir lög um jöfnun á flutningskostnaði mismuna olíufélögum Hafa ótvíræð áhrif á rekstur KRISTINN Björnsson, forstjóri Skeljungs hf. , segist vera afar hissa á athugasemd Olíufélagsins hf. sem birtist í Morgunblaðinu á fimmtudaginn. Þar kom fram Olíu- félagið teldi flutningsjöfnunarsjóð vera til að jafna verð á olíuvörum um land allt. Innheimta á flutn- ingsjöfnunargjaldi og endur- greiðslur úr flutningsjöfnunarsjóði hafi engin áhrif á rekstur olíufé- laganna. Sem kunnugt er hefur Skeljungur hf. sent kvörtun til Eftirlitsstofnunar EFTA, þar sem haldið er fram að framkvæmd laga um jöfnun á flutningskostnaði stangist á við meginreglur EES um frjálsa samkeppni. Kristinn segir Skeljung ekki eiga neitt sökótt við Olíufélagið varðandi flutningsjöfnunarsjóð. „Við teljum hins vegar að lög um sjóðinn mismuni olíufélögunum. Að okkar mati liggur alveg fyrir að sömu rök eiga alls ekki við nú og fyrir 50 árum, þegar lögin um jöfn- un á flutningskostnaði frá 1951 voru fyrst rædd á Alþingi. Að halda því fram er dónaskapur við skynsemi almennings. Gífurlegar framfarir hafa orðið í samgöngum, flutningatækjum og tækni í dreif- ingu. Fiskiskipin sem nota olíuna eru miklu stærri, geymar hjá sveitabýlum eru mun stærri og reyndar keyra flestir bændur nú- orðið á næstu bensínstöð." Kristinn segir að fullyrðing 01- íufélagsins um að flutningssjóður hafi ekki áhrif á rekstur olíufélag- anna sé röng. „Olíufélagið greiðir miklu minna í sjóðinn en það fær út og við greiðum miklu meira í hann en við fáum út. Þetta verður til þess að liðurinn dreifingar- kostnaður í rekstrarreikningi Skeljungs er 25-40 milljónum hærri á hverju einasta ári en ella. Sami liður er að sama skapi 20-40 milljónum lægri hjá Olíufélaginu. Ef menn halda fram að þetta hafi ekki áhrif á rekstrarniðurstöðu kunna þeir ekki að lesa reikninga," segir Kristinn. ----------------- Leiðrétting í SÍÐASTA viðskiptablaði Morgun- blaðsins gætti nokkurrar óná- kvæmni í starfstitlalýsingu starfs- manna Islenskrar erfðagreiningar. Axel Nielsen er fjármálastjóri, Hannes Smárason framkvæmda- stjóri fjármála- og þróunarsviðs, Elín Þórðardóttir forstöðumaður fjárreiðu og Sveinn Valfells fram- kvæmdastjóri rekstrarsviðs ís- lenskrar erfðagreiningar. Nýjung á lánamarkaði við fjármögnun Kringlunnar Utborgun láns hagað í samræmi við greiðsluþörf TEIKNING af fyrirhugaðri tengibyggingu Kringlunnar en hún tengir saman á núverandi Kringlutorgi Kringluna 8-12 og Kringluna 4-6. BYGGINGARKOSTNAÐUR vegna stækkunar Kringlunnar nem- ur um 200 þúsund krónum á fer- metra sem er nokkru hærra en tíðkast hefur að undanfömu við byggingu verslunarhúsnæðis. Þrír bankar lána til framkvæmdanna og þykir óvenjulegt við þessa fjár- mögnun að hluti lánsins er svokall- að bundið veltilán (lánalína). Með því er átt við að lánið er ekki allt greitt út í einu, heldur er útborgun- um þess háttað þannig að þær eru í samræmi við greiðsluþörf sjálfra framkvæmdanna. Fjárfestingarbanki atvinnulífsins hf. (FBA), Landsbanki íslands hf., og Union Bank of Norway hafa samið við Eignarhaldsfélagið Kr- ingluna hf. um að fjármagna fram- kvæmdir vegna stækkunar Kringl- unnar eins og fram kom í blaðinu í gær. Aætlað er að kostnaður við framkvæmdimar muni nema um 1.800 milljónum króna. Þetta mun vera stærsta lánveiting, sem ís- lenskir bankar hafa haft forgöngu um til einkaaðila hérlendis. Kringlan „sprungin" Ragnar Atli Guðmundsson, fram- kvæmdastjóri Eignarhaldsfélagsins Kringlunnar hf., segir að fermetra- verð vegna stækkunar Kringlunnar þyki e.t.v. hátt en á hinn bóginn megi benda á að vandað sé til verks- ins og mikið lagt í frágang. Áætlað er að arðsemi fram- kvæmdanna verði 8-9%. Ragnar seg- ir arðsemina viðunandi eða svipaða og tíðkast við sambærilegar fram- kvæmdir erlendis. Otvíræð þörf hafi verið fyrir stækkunina enda sé Kr- inglan í raun „sprungin“ og hún anni ekki eftirspum um 50 daga á ári. Þessi aðferð lengi tíðkast erlendis Það þykir sérstakt við lánveitingu bankanna þriggja er að við hana er notast við nýja aðferð, svokallaða bundna veltilántöku, til að lágmarka neikvæðan vaxtamun. Þessi aðferð hefur lengi tíðkast erlendis við stór fj árfestingarverkefni. Vaxtakostnaður lántaka lágmarkaður Alexander Guðmundsson, hjá FBA segir að með „bundnu veltiláni sé útborgunum lánsins hagað þannig að þær séu í samræmi við greiðsluþörf sjálfra fram- kvæmdanna. „í venjulegri lánveit- ingu er yfirleitt um nokkrar stórar útborganir að ræða, sem ekki em endilega í samræmi við fjárþörf verkefnisins, sem lánað er til. Með því að haga útborgun lánsins í sam- ræmi við greiðsluflæði er vaxta- kostnaður lántaka á framkvæmda- tíma lágmarkaður og lánveiting er í samræmi við framgang fram- kvæmdanna. Bundið veltilán gerir einnig mögulegt að stjóma afborg- unarferlinu innan vissra marka í takt við tekjur fyrirtækisins. Þetta fyrirkomulag getur haft vemleg áhrif á vaxtakostnað lántaka að teknu tilliti til áhættu,“ segir Alex- ander. 1.500 starfsmönnum sagt upp hjá Rover Frankfurt. London. Reuters. ROVER GROUP í Bretlandi, dótt- urfyrirtæki þýzka lúxusbílafram- leiðands BMW AG, hyggst segja upp 1.500 starfsmönnum af 40.000 og taka upp fjögurra daga vinnu- viku í tveimur verksmiðjum sínum til að hamla gegn áhrifum styrk- leika pundsins. Bílaframleiðandinn hefur orðið fyrir þungum búsifjum vegna stöðugrar hækkunar punds gegn marki og ætlar Rover einnig að kaupa fleiri bílahluta erlendis, svo að atvinna fleiri verkamanna í Bret- landi mun komast í hættu. Til að draga úr áhrifum hækkunar brezka gjaldmiðilsins mun Rover auka notkun erlendra bifreiðahluta í 25% úr 15%. Fyrirtækið, sem framleiðir Rover, Land Rover, Mini og MG, kveðst ætla að biðja 40.000 starfs- menn sína í Bretlandi að taka upp sveigjanlegri vinnutíma og segir að það geti þýtt að hluti þeirra verði að hætta til bráðabirgða þegar lítið sé að gera. Rover segir að ákveðið hafi verið að grípa til þessara ráða eftir ítar- lega athugun og misheppnaðar til- raunir til að fá brezku stjómina til að hlusta á kvartanir útflytjenda. Skýrt er frá þessum aðgerðum, þótt Rover búist við aukinni sölu og er tilkynningin alvarlegustu skila- boðin sem brezka stjórnin hefur fengið á síðari mánuðum um áhrif pundsins á iðnaðarframleiðslu og atvinnu í Bretlandi. Pundið hefur selzt á tæp þrjú mörk í rúmt ár, en framleiðendur telja að raunverulegt gengi þess sé 2,60 mörk. Aðalverkalýðsfélag starfsmanna Rover Group hefur mótmælt fyrir- ætlunum fyrirtækisins og hugsan- legri launalækkun starfsmanna, en ekki hótað verkfalli. í tilkynningu frá verkalýðsfélag- inu sagði að vinnutími yrði styttur í fjóra daga í viku á þessu ári og að á næsta ári yrði 37 tíma vinnuvika lengd án kauphækkunar. Hluti af stærra máli Talsmaður Ihaldsflokksins í við- skipta- og iðnaðarmálum, John Redwood, sagði að uppsagnimar hjá Rover væm vandamál sem væri ekki bundið við fyrirtækið og hluti af stærra vandamáli í iðnaði, þar sem uppsögnum færi fjölgandi. „Ef allir framleiðendur fara að dæmi Rovers verða meira en 250.000 störf í iðnaði lögð niður,“ sagði Redwood og skellti skuldinni á Tony Blair forsætisráðherra og Gordon Brown fjármálaráðherra. Hlutabréf í móðurfyrirtækinu hafa lækkað í verði vegna uppsagn- anna hjá Rover, styrkleika pundsins og vegna lakari afkomu fyrri hluta árs. Verð venjulegra bréfa í BMW lækkaði um 5% í tölvuviðskiptum í 1.729 mörk, en forgangshlutabréfa um tæp 13% í 1.033 mörk. Að sögn BMW jókst nettóhagnaður á fyrri hluta árs um 17% í 511 milljónir marka, sem er verri afkoma en spáð hafði verið.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.