Morgunblaðið - 25.07.1998, Qupperneq 21

Morgunblaðið - 25.07.1998, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ PAUL March og fjölskylda. VIÐ Löngulínukajann BJARNE og Jette. þeir stærri og stæltari hressa sig á bjór og romm-kók-dósum. Þarna er á ferðinni Paul Morch með fjöl- skyldu sína, börn og barnabörn, því í dag er sérstakur dagur: I fyrsta skipti um árabil hefur skipastigi í Suðurhöfninni verið opnaður og því hægt að koma að sunnan upp í höfn- ina. Þessu fagnar Mprch-fjölskyldan með helgarferð. Mprch hefur ánægju af að dunda við bátinn, sem er 2,3 tonna trébát- ur, byggður á stríðsárunum. En hann er þó vanur stærri skipum, því hann var um árabil vélameistari á Dronning Alexandrine og kom þá til Islands aðra hverja viku. Það glaðn- ar ærlega yfír honum að rifja upp Kgl. bókasafnið: Proviantgár- den þar sem handritin voru einu sinni geymd. þarna á lúxusfleyjum eða skemmti- ferðaskipum. Við vitann á enda hafnargarðsins hefur fallegur lítill trébátur lagst að til að sækja fjöl- skyldunni morgunhressingu. Börn og barnslegar sálir fá sér ís úr ís- búðinni á hafnargarðinum, meðan M 1 LAUGARDAGUR 25. JÚLÍ 1998 21 minningarnar, því á íslandi eignað- ist hann góða vini, sem sýndu hon- um landið. Hlýlegt fólk og heitar laugar: Þannig man hann ísland. En hann man líka að honum fannst Reykjavíkurbragurinn meira amer- ískur en norrænn. Seinna í sumar liggur leiðin hins vegar til Frakk- lands, þar sem fjölskyldan ætlar að leigja fljótabát og sigla um Bour- gogne, eftir að hafa kynnst Austur- Englandi á þennan hátt í fyrra. Fallegastí blettur borgarinnar? Frá iðandi mannlífinu við Löngu- línu og ferðamönnunum, sem frá því strax í bítið streyma fótgangandi og í rútum að litlu hafmeyjunni, er að- eins um tíu mínútna hjólatúr niður í garðinn við Konunglega bókasafnið. Það ríkir himnesk friðsemd og ró í þessum garði sem að mati okkar sumra er fallegasti og sérstæðasti blettur borgarinnar. Verið er að byggja við safnið, en í gamla Próví- anthúsinu voru íslensku handritin til húsa um áratugabil. Hingað rekst aðeins stöku túristi á stangli. „Bello, bello,“ fallegt, fal- legt, segir ítölsk kona á efri árum, sem gengur inn í garðinn ásamt manni sínum. Þau láta sér nægja að láta augun reika þarna eitt augna- blik, áður en næsti staður er heim- sóttur og honum lokið af, væntan- leg_a á sama hátt. Á bekk situr par, spjallar saman og borðar mat, sem þau hafa komið með að heiman. Umræðuefnið er hvort þau ættu að flytja í vistvænt sambýli úti á Norður-Sjálandi. Bjar- ne og Jetta búa úti á Amager, sakna þess örlítið að hafa ekki garð, svo þau hafa tekið upp þann sið þegar vel viðrar að koma á sunnudags- morgnum í bókasafnsgarðinn. „Það er fínt að eiga garð á þennan hátt,“ segir Jette með bros á vör. „Þá hef- ur maður bara ánægjuna og enga fyrirhöfn." Fyrirhöfnin er í höndum bæjarstarfsmanna, sem hugsa makalaust vel um garðinn. En það hefur sumsé hvarflað að þeim að flytja úr borginni, því þó þau séu fjarska ánægð með að búa alveg við miðborgina þá lokkar nátt- úran ögn. Á móti kemur að það tek- ur 70 mínútur að komast í vinnuna og annað eins að fara heim aftur. Ekki auðvelt val. Vistvænt og lífvænt Á Ráðhústorginu er aldrei þessu vant eitthvað um að vera. Torgið er hálfgerður vandræðagepill borgar- innar. Sjálft ráðhúsið frá aldamótun- um er glæsilegt, en það er eitt um glæsileikann þarna við torgið, sem var gert upp í tilefni menningarárs- ins 1996, án þess að það batnaði til muna. Torgið er of stórt til að vera notalegt og húsin í kring í fremur óáhugaverðum stíl og útbíuð ljósa- auglýsingum megna ekki að skapa því áhugaverðan ramma. En þennan morgun er þarna markaður með vistvænum vörum, því það er vistvæn vika í borginni þessa dagana. Jprgen Sorensen er þarna með afurðir sínar, grænmeti, hunang og fleira gott. Jarðarberin era alveg sérlega falleg. Hann hefur ræktað vistvænt um langa hríð, var byrjaður löngu áður en það komst í tísku og þekkir Dani, sem starfa við vistvænan landbúnað á íslandi. Þar ætti að vera kjörið umhverfi fyrir slíkan landbúnað, álítur hann. Frá Ráðhústorginu er aðeins tíu mínútna hjólatúr yfir vötnin og út á Austurbrú. Hinn víðfeðmi Fælled- parken tekur við þeim, sem ætla sér að spila fótbolta, stunda aðra leiki, sóla sig eða sýna sig og sjá aðra. Þarna safnast saman vinnufélagar og nágrannar. Afmælisveislur eru í gangi, auðvelt fyrir æft auga að sjá, þvi þá er pappírs-Dannebrog rekin niður um víðan völl. Á borðum, öllu heldur á grasinu, er þá rjómakaka, sem innfæddir kalla lagköku og sem er með ómerkilegri kökutegundum fyrir alla aðra en Dani: Svampbotn- ar með sultu og rjóma og svo kannski glassúr eða súkkulaði yfir. Sólin er komin hátt á loft. Það fjölgar jafnt og þétt í garðinum, enda komið yfir hádegi og hvað þá tekur við er auðvitað allt önnur saga. Þessi sunnudagsmorgunninn er liðinn... J0RGEN Sorensen á vistvæna markaðnum. Hverjum Fiat Marea Weekend 1.6 ELX sem seldur er fyrír 15. ágúst fylgir 5 manna risahústjald frá Skátabúðinni. Fiat Palio Weekend Mikill bíll fyrir 1.190.000 Hústjald + bíll kr. 1.550.000 Istraktor =

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.