Morgunblaðið - 25.07.1998, Side 23

Morgunblaðið - 25.07.1998, Side 23
MORGUNB LAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. JÚLÍ 1998 23 MARGMIÐLUN Talað við leiðinlegt fólk KONAMI gaf nýlega út hlutverka- og ævintýraleikinn Mystical Ninja (Starring Goemon). Mystical Ninja er um ferðalanginn Goemon sem hefur ákveðið að stöðva geimver- umar sem lentu í risastóru geim- skipi (sem lítur út eins og ferskja) í Oedo-þorpinu. Leiðin þangað er full af hættum, og bæjum, sem Goemon þarf að yfírstíga og sigr- ast á. Goemon hefur með sér þrjá fé- laga sem hann getur notað í neyð- artilfellum, en félaginn kernur þá í stað Goemon þegar þörf er á. Fé- lagamir em hin kvenlega Ebisum- aru, hinn fljúgandi Sasuke og haf- meyjan Yae. Hver leikmaður hefur sinn eigin töfrakraft og hreyfíngar. Ovinir leiksins ráðast á leikand- ann og sumir láta hann missa orku, sumir peninga og svo framvegis. Mikill fjöldi er af mismunandi óvinum. A leið sinni yfir landið rekst Goemon á marga, bæði vini og óvini. Meirihlutinn af þessu fólki bullar bara eitthvað sem þú þarft ekkert að vita en svo koma inni á milli fróðleiksmolar sem þú þarft að vita. Þetta þýðir það að Goemon þarf að eyða fleiri ldukkutímum í að tala við leiðinlegt fólk sem hefur í raun ekkert að segja. Þetta verð- ur leiðigjarnt afai' fljótt og dregur leikinn ansi mikið niður. Grafík leiksins er með afbrigðum góð þrátt fyrir fjölmarga galla í umhverfi hans. Sumir gallamir eru líklega vísvitandi vegna þess hversu greinilegir þeir eru; tökum sem dæmi þegar Goemon þarf að ná sambandi við kónginn til að komast út úr þorp- inu sínu. Þá þarf hann að eyða löngum tíma í að komast fram hjá vörðum sem eru um það bil 30 sm háir og Goemon getur bæði stokkið yfír þá og grindverkið við hliðina á þeim, þó stoppar hann bara á ósýni- legum vegg. Mystieal Ninja hefði getað orðið frá- bær hlut- verkaleikur, en kemur í stað- inn út sem leiðigjam leikur þar sem allt tekur of mikinn tíma og efasemdir vakna strax um hvort hann sé tím- ans virði. Ingvi M. Árnason LEIKUR Mystical Ninja, leikur fyrir Nintendo 64 frá Konami. VEFFÖNG Tvöfalt hrað- virkari en hvað? ÞEGAR örgjörvar eru teknir til kosta horfa menn yfirleitt fyrst og fremst á hraðann, þ.e. tiftíðn- ina, þó að hún segi vissulega ekki alla söguna. Miklu skipt- ir til að mynda hvemig búið er að örgjörvanum í við- komandi tölvu og einnig hverrar gerðar hann er, hvort hann er RISC líkt og PowerPC-örgjörvi Motorola, CISC líkt og Intel-ör- gjörvarnir vora fram að Pentium, eða blanda af hvora tveggja, líkt og Pentium II. Apple berst nú fyrir lífi sínu á einkatölvumarkaðnum og hefur orðið vel ágengt meðal annars með snjöllum auglýsingum þar sem snigill silast áfram með Pentium II örgjörva á bakinu. Enda stæra Apple-menn sig af því að G3 PowerPC-örgjörvinn sé sá öflugasti sem völ sé á og hafa nokkuð til síns máls. Ekki er munurinn þó eins mikill og þeir vilja vera láta, að minnsta kosti er því haldið fram í grein í tölvublaðinu Boot að Apple sé að hagræða sannleikanum. Boot er helgað PC-samhæfðum tölvum og rétt að hafa það í huga áður en lengra er haldið, en höf- undur gi'einarinnar er meðal rit- stjóra Byte, eða réttara sagt var, því Byte er hætt að koma út. í greininni segir Tom Halfhill að Apple noti forritasafn sem kall- ast BYTEmark og sé sérhannað fyrir hraðamælingar á tölvum. Hann nefnir sem dæmi tilraunir sem Macintosh-blaðið MacAddict hafi gert þar sem blaðið ber sam- an 333 MHz Pentium-tölvu og 266 MHz Macintosh G3 og fær út að Makkinn sé allt að því tvöfalt hraðvirkari. Þetta segir Halfhill í raun hálfan sannleika, því sé rýnt í niðurstöðurnar komi í ljós að ör- gjörvinn sé vissulega mun hrað- virkari, en tölvan sjálf sé ekki telj- andi hraðvirkari, að minnsta kosti ekki í ýsmum Photoshop-aðgerð- um sem framkvæmdar voru í prófuninni. I greininni segir Halfhill að rit- stjórn Byte hafi ákveðið að fram- kvæma sams konar prófanir í kjöl- far auglýsingaherferðar Apple og í ljós hafi komið að þó að örgjörvinn sé upp í tvöfalt hraðvirkari hafi Pésinn verið hraðvirkari í ýmsum aðgerðum sem gefi til kynna að Makkinn sé ekki að nýta allt aflið. Hann klykkir og út með því að í auglýsingunum segi Apple að ör- gjörvinn í G3-gerðinni sé allt að því tvöfalt hraðvirkari en örgjörvinn í Pentium II-tölvum, en engu sé lof- að með hraðann á sjálfii tölvunni. Mestu ræður í því sambandi að innri gerð MacOS-stýrikerfisins er gamaldags og Makkamenn bíða í ofvæni eftir MacOS X sem kemur að ári. •Sífellt verður auðveldara að afla sér upplýsinga um opinberar stofnanir fyrir tilstilli Netsins, þó þar á bæ hafi menn verið lengi að taka við sér. Stjórnarráðið hefur komið sér upp umfangsmikilli heimasíðu, http://www.stjr.is/, þar sem meðal annars má komast á síður ráðuneytanna sem öll virð- ast með heimasíður nema félags- málaráðuneyti og landbúnaðar- ráðuneyti af einhverjur orsökum. Mjög er þó misjafnt hversu langt á veg ráðuneytin era komin með að nýta sér Netið. Þannig fæst upp tóm síða sé beðið um forsæt- isráðuneytið, þó tenglar séu í dálki vinstra megin á síðunni, og sömu sögu er að segja um sam- gönguráðuneytið, utan að á þeirri síðu er myndskreyting. Vefimir era líka mislangt á veg komnir, en miðar í rétta átt. •Með fyrstu opinbera stofnunum til að koma sér fyrir á Netinu er Alþingi Islendinga sem hefur jafnt og þétt bætt þjónustu við Netverja. Þannig er hægt að afla sér upplýsinga um alþingismenn, lesa ræður þeirra og kynna sér fyrir hvaða málum þeir hafa beitt sér á þingi. Einnig er hægt að leita í gagnasafni Alþingis að texta framvarpa og fylgjast með því hvernig málum miðar í gegn- um þingið, þó ekki séu upplýsing- arnar alveg nýjar. Mest um vert er þó að hægt er að leita að end- anlegum lagatexta í öflugri texta- leit. Slóðin er http://www.alt- hingi.is/. •Ríkistollstjóraembættið hefur verið opið fyrir tækninýjunum og þannig er nokkuð um liðið síðan embættið fór að taka við EDI- færslum. A vefsetri Ríkistoll- stjóra, http://www.tollur.is/, er mikinn hagnýtan fróðleik að finna, meðal annars Tollahandbók II - Tollskrá 1998 og hægt að leita í henni að atriðisorðum. Ekki er enn hægt að fylla út toll- skýrslur á vefnum en kemur ef- laust að því. •Vefsetur Landlæknisembættis- ins er ekki mikið fyrir augað, en gagnlegt. Þeir sem eru í ferða- hugleiðingum geta til að mynda komist yfir miklar upplýsingar um smitsjúkdóma í framandi löndum og hvernig best sé að haga ferðum sínum til að komast hjá því að smitast. Einnig er á setrinu umfangsmik- ið safn laga varðandi heilbrigðisþjónust- una, sitthvað er um nokkur fíkniefni, am- fetamín, barbítúröt, „Designer11 efni, kannabis, kókaín, LSD og ópíöt. Þar era og atvinnuaug- lýsingar og lækna- skrá sem hver og einn getur meira að segja sótt inn á tölvu sína, en hún er á átt- unda hundrað bæta óþjöppuð. •Lögreglan í Reykjavík hefur ekki náð að koma sér upp nema heimasíðu þar sem stendur að vefsíða Lögregl- unnar í Reykjavík verði opnuð síðar. Samkvæmt upplýsingum á síðunni var síðast átt við síðuna 3. febrúar sl. Slóðin er http://www.police.is/. •A vefsetri ísafjarðarbæjar hef- ur Slökkvilið ísafjarðar komið sér vel fyrir. Á slóðinni http://wwTA'.isafjord- ur.is/is/slokkvilid/main.htm má lesa sitthvað um slökkviliðið, hvernig kalla eigi það til ef vá ber að höndum, en einnig er skrá yfir tól slökkviliðsins, sagt frá aðdrag- anda þess að það varð til og gagn- merk myndskreytt frásögn er af Fellsbrananum, mesta brana í sögu Isafjarðar. •Nokkuð er síðan Reykjavíkur- borg kom sér upp vefsetri sem vex óðfluga. Þar er saman komið gríðarlegt magn upplýsinga um stofnanir borgarinnar, meðal ann- ars síma- og bréfsímanúmer, nöfn forstöðumanna og einnig nefndar- manna fjölmargra nefnda á veg- um borgarinnar. Sem vonlegt er í svo stóra apparati sem stjómkerfi Reykjavíkurborgar er er sum- staðar lítið á bak við tengla, og þannig fékkst auð síða þegar búið var að rekja sig inn vefinn á Ár- bók Reykjavíkur. Slóðin er hppt://www.rvk.is/. Alvöru vél á netið! ■J Boss ATX turnkassi ■I Pentium II Celeron 266 Mhz ■1 15" skjár ■l 32 MB SDRAM vinnsluminni ■l Grafixstar 4Mb skjákort ■l 32x hraða geisladrif ■I Sound Blaster 16 hljóðkort ■1 280 watta hátalarar ■I 33.600 bps mótald með faxi og símsvara ■I 4 mán. Internetáskrift hjá Islandia eða Margmiðlun ■1 Windows lyklaborð ■I Logitech PSI2 mús ■1 Windows 95 stýrikerfi . Colorpag< myndlesa y30 bita myndlesari A4 • 4800 pát prentaraportstengdur Netvélin: Pentium II BT • SKEIFAN 11 • SIMI 550-4444 • PÓSTKRÖFUSÍMINN 550-4400

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.