Morgunblaðið - 25.07.1998, Síða 31

Morgunblaðið - 25.07.1998, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. JÚLÍ 1998 31 I I i i 4 i i 4 4 i 4 t 4 4 4 3 4 € 4 4 1 AÐSENDAR/GREINAR MINNINGAR Herbalife - Hvers vegna þessi óhróður? í MORGUNBLAÐINU 5 júlí birt- ist grein undir fyiirsögninni Her- balife-æði - óðs manns æði eftir Olaf G. Sæmundsson og upplýst við lok greinarinnar að hann sé næringarfræðingur, starfandi á Heilsu- stofnun NFLÍ í Hvera- gerði. Trúlegt er að margir hafi áhuga á að kynna sér viðhorf og vísindi næringarfræð- ings, sem starfar við jafnvirta stofnun og Heilsustofnun NFLI. Það er skemmst frá að segja að grein næring- arfræðingsins er svo barmafull að rang- færslum, dylgjum og rógi að engu tali tekur. Það er afleitt þegar menn með menntunar- gráðu koma óorði á heila starfsstétt með slíku bulli þvert á vitneskju fjölda fólks - lærðra sem leikra. Erfitt er að sjá hvaða hvatir liggja að baki skrifi Ólafs G. Sæmundssonar, næringarfræðings, nema vera kynni öfund og illgirni. Ekki dett- ur mér í hug að draga í efa mennt- un hans né visku þótt lítt örli á í grein hans. Markaðssetning Erfítt er að sjá hvaða hvatir liggja að baki skrifí Olafs, segir Hallddr Stefánsson, nema vera kynni öfund og illgirni. Ólafi G. Sæmundssyni næring- arfræðingi er greinilega í nöp við markaðssetningu Herbalife-fæðu- bótarefna, sem að hans sögn hef- ur tekist afskaplega vel, og skal það ekki dregið í efa, þótt aðferð- in sé umdeilanleg, eða með hans eigin orðum: „Þeir sem selja Her- balife víla ekki fyrir sér að grípa til lyginnar til að ýta undir sölu, þar sem meðferðarárangur er lof- aður í hástert.“ Þetta veit hann Ólafur næringarfræðingur. Kannski er það markaðskerfi Herbalife, sem fer í taugarnar á Ólafi og fleirum, þar sem endur- greiðsla fæst ef árangur næst ekki með réttri notkun Herbalife. Endurgreiðir Ólafur næringar- fræðingur þeim sem ekki ná ár- angri með hans aðferðum? Sjálfur fullyrðir hann, „að langtímaár- angur best gerðu megrunarkerfa er því miður innan við 10 pró- sent“. Er ekki að furða þótt Olaf- ur næringarfræðingur standi skilningsvana frammi fyrir stað- reyndum, sem við honum blasa. Herbalife er hvergi í heiminum selt í stórmörkuðum eða lyfjabúð- um. Ástæðan er sú, að þannig myndast ekki persónusamband milli dreifenda og neytenda. Margir þurfa stuðning við þá ákvörðun að bæta heilsu sína með hollri næringu og jafnframt að ná kjörþyngd. Þann stuðning fá neytendur hjá sínum dreifanda og þannig myndast oft trúnaðarsam- band sem ekki verður gert að um- talsefni hér. Um tekjur af sölu Herbalife hafa spunnist tröllasög- ur, sem ástæðulaust er að elta ól- ar við. Ólafur næringarfræðingur er með töluna 48 milljónir í árs- laun. Málflutningur hans er allur á þessum nótum. Lækningamáttur? Ólafur G. Sæmundsson nær- ingarfræðingur hlýtur að vita, að holl næring hefur áhrif á líðan neytandans og mörg- um batna ýmsir kvill- ar við breytt matar- æði. Lækningamáttur líkamans er undra- verður og með hollri næringu hverfa oft einkenni, sem fólk kvartar undan. Þetta er engum undrunar- efni nema kannski næringarfræðingnum og þarf engin krafta- verk til. Holl næring á ekkert skylt við lyf, enda er Herbalife ekki lyf og er hvergi markaðssett sem slíkt. Þetta veit Ólafur G. Sæmundsson og fer nú heldur betur á flug í hugleiðing- um sínum. Eiturlyf Tilvitnun: „Þannig hafa við efna- greiningu fundist efni í Herbalife sem hafa hægðalosandi áhrif en misnotkun sh'kra eíha getur leitt til bullandi niðurgangs og þar með þyngdartaps." Þama er gefið í skyn að þetta séu almenn áhrif Herbalife. Ekkert er nefnt í hvaða vöruflokki þessi efni eru né hver þau eru. Get- ur Ólafur næringariræðingur mis- notað sveskjur í sama tilgangi? Eða ætlar Ólafur næringarfræðingur að vara fólk við öllum efnum og mat- vöru sem hægt er að misnota? Hvað er þá eftir? Nú styttist í eiturlyfj- umræðuna hjá næringarfræðingn- um og Ma huang-jurtina. Hún á að innihalda hið stórhættulega efedrín - nánast amfetamín. Ekkert efedrín þekki ég hér á markaðnum nema efedrín í hóstamixtúru, sem seld er í handkaupi í apótekum og engum hefur orðið meint af mér vitanlega. Nauðsynlegt væri að Ólafúr G. Sæ- mundsson næringarfræðingur til- greindi þann vöruflokk, sem hann á við og upplýsti hvort hann er seldur hér á landi, því _ „er rétt að geta þess að Fæðu- og lyfjaeftirlit Bandaríkjanna (FDA) hefur miklar áhyggjur af neyslu efedríns í formi Ma huang og telur að minnsta kosti 38 dauðsföll megi rekja til neyslu þess“. Mig undrar ekki að Ólafi næringarfræðingi sé órótt ef bráð- drepandi eiturlyf flæðir hér um markaðinn og „þeir sem selja Her- balife víla ekki íyrir sér að grípa til lyginnar til að ýta undir sölu.“ Við sem seljum Herbalife hér á landi höfum orðið að sitja undir óhróðri og rógi nokkurra aðila, sem þykjast í krafti visku sinnar og menntunar geta sagt almenn- ingi fyrir verkum um mataræði sem aðra hegðun. Við erum sökuð um að hafa neytendur að fíflum í taumlausri gróðafíkn. Sem betur fer eru þúsundir karla og kvenna Herbalife-neytendur á íslandi, sem vita miklu betur um hollustu framleiðsluvara Herbalife og fyll- ast undrun yfir þeim sleggjudóm- um og rógi sem einstaka fólk lætur frá sér fara. Eg hvet áhugafólk um heilsueflingu til að lesa grein Ólafs G. Sæmundssonar næringarfræð- ings því hún sannar best sjálf þann hatursáróður sem einhverra hluta vegna er á sveimi. Höfundur er sölumaður og neytandi Herbalife. Halldór Stefánsson SÓLEY SESSELJA MAGNÚSDÓTTIR + Sóley Sesselja Magnúsdóttir fæddist á Hóli í Bol- ungarvík 22. júní 1911. Hún lést á heimili sínu á Hvols- velli 7. júlí síðastlið- inn. Foreldrar hennar voru Magn- ús Árnason, tré- smiður, f. 14. ágúst 1885, d. 1957, og Guðmundína Sigríð- ur Sigurðardóttir, húsmóðir, f. 14. ágúst 1889, d. 1967. Systkini hennar eru: Magnús Vilhjálmur, skipstjóri, f. 28. maí 1910, d. 1977, Kristján Bjarni, skipstjóri, f. 9. okt. 1913, d. 1979, Rannveig, húsmóðir, f. 18. des. 1915, Halldór Georg, f. 4. okt. 1918, d. 1941, Guðmundur Jón, skipstjóri, f. 4. okt. 1924, d. 1989, Hansina Sigríður, hús- móðir, f. 10. júlí 1926, Lilja, húsmóðir, f. 8. júlí 1928. Tvö barna Magnúsar og Guðmund- ínu létust í frumbernsku. Sóley hóf búskap í V-Garðs- auka árið 1940 með Jóni Ein- arssyni, bónda, f. 24. júlí 1909, d. 1985. Börn þeirra eru: 1) Sjöfn Halldóra, f. 20. mars 1939, skrifstofumaður hjá Landssím- anum á Selfossi, maki hennar er Þorsteinn Þorsteinsson, f. 9. sept. 1944, raf- virkjameistari. Syn- ir þeirra eru: Jón Logi, f. 3. nóv. 1965, bóndi í V-Garðs- auka, Þorsteinn Garðar, f. 14. okt. 1968, grunnskóla- kennari á Selfossi. 2) Einar, f. 29. júní 1940, verktaki í Reykjavík, maki hans er Sigríður S. Heiðberg, f. 30. mars 1938. Sonur Einars er Daníel Orri, f. 1. ágúst 1971, móðir hans er Auður Haralds, rithöf- undur, f. 11.12. 1947. 3) Guðrún, f. 5. des. 1945, kennari á Akur- eyri, maki hennar er Björn Sig- urðsson, f. 9. des. 1946, læknir á Akureyri. Börn þeirra eru: Þór- unn Sóley, stúdent, f. 7. jan. 1976, og tvíburarnir Þorgerður Anna og Jón Einar f. 7. júlí 1985. Sóley fluttist á öðru aldursári með Qölskyldu sinni til Suður- eyrar við Súgandaíjörð og bjó þar til fuliorðinsára, en fluttist þá búferlum til Reykjavíkur. Síðustu æviárin bjó hún á Hvolsvegi 26, Hvolsvelli. Útför Sóleyjar fer fram frá Stórólfshvolskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14. Elsku amma mín, mikið eigum við margar góðar minningar saman, allt frá því að ég var fjögurra ára og þú bakaðir kleinur í kflóavís. Mér þótti svo gott að vera nálægt þér að afi var farinn að skammast í mér. Þegar ég var sex ára sagði hann eitt sinn: „Daníel, þú hangir alltaf frammi í eldhúsi utan í kerling- unni.“ Eg held að ekki hafi liðið það sumar í minni æsku án þess að ég kæmi austur og dveldi nokkrar vikur í senn hjá þér og afa. Þú kenndir mér að fara með Faðir vorið og að maður mætti ekki tala eftir að hafa sagt amen. Við áttum það fljótt sameigin- legt að sofna mun betur eftir að hafa farið með bænina. Amma, þú varst svo iðin við að rækta og blómga garð- inn þinn og gróðurhús. Það vakti at- hygli á Hvolsvelli, man ég. Svo útbjó ég blómabeð úti á túni þar sem ég kom fyrir blómum og hermdi eftir þér. Hver veit nema þetta eigi við fleiri þætti í lífinu. Með öðrum orð- um, það sem ég hef erft frá þér, amma, er að hafa tilfinningú fyrir hlutunum og leggja rækt við þá. Núna síðustu árin kom ég svo oft austur til þín og þú þakkaðir mér fyr- ir að hjálpa þér með húsverldn. En það er ég sem þakka þér fyrir allar þær góðu stundir sem við áttum sam- an og alla hlátrana. Ég lenti í alvar- legu slysi þann 9. maí síðastliðinn. Þú varst búin að heimsækja mig á sjúkrahúsið og sjá fram á að ég myndi ná fullum bata. Fyrir það er ég þakklátur. Amma mín, ég enda KRISTIN JÓNASDÓTTIR + Kristín Jónas- dóttir fæddist á Stuðlum við Reyðar- Ijörð hinn 12. ágúst 1919. Hún lést á Landakoti hinn 8. júlí síðastliðinn og fór útför hennar fram frá Fossvogs- kirkju 16. júlí. Ein af mínum fyrstu minningum úr æsku er frá Kristínu frænku. Hún leyfði mér oft að gista heima hjá sér og alltaf fannst mér það jafn gaman. Það besta var þó þegar hún dró út tvö handklæði á morgnana, breiddi úr þeim á gólfið og við gerðum saman alls kyns teygjur og beygj- ur í morgunleikfimi. Ef maður gisti hjá Kristínu frænku þá þurfti maður aldrei að hafa áhyggjur af að maður hefði engan að leika við, frænka var dugleg að finna eitt- hvað handa manni að gera og gera það með manni. Hún átti svo skemmtilega brautarteina sem við vorum duglegar að byggja úr nýj- ar og nýjar brautir. Við töluðum lengi um það eftir á þegar við náð- um í eitt skiptið að setja alla kubbana í eina risastóra braut. Frænka var uppáhalds frænka mín. „Amma númer þrjú“, sagði ég við þá sem ekki þekktu til. Það var alltaf jafn gaman að koma í heim- sókn til hennar, þó ég væri bara að sækja hana ef hún ætlaði í heimsókn til okkar þá dró hún mig alltaf inn í smá spjall og þá var auðvitað ekki hægt annað en að bjóða manni upp á eitthvað gott í gogg- inn. Það var svo gott að tala við Kristínu frænku, hún hlustaði alltaf á mann þó hún hefði kannski aðrar skoðanir. Hún sýndi mér oft bækur sem hún vildi að ég læsi eða ég bað um að fá eina lánaða, sem var sjálf- sagt. Ég var líka meir en lítið hissa þegar hún dró eitt sinn fram heilt handrit að leikriti handa mér, einmitt á þeim tíma sem ég hafði verið að leita að leikriti í öllu mínu leiklistarstússi. Hún var líka dug- leg að draga fram blússur og pils, hálsmen eða annað sem hún vildi gefa mér. Ef mér leist ekki á, þá þrengdi hún bara, stytti eða geymdi það til að gefa einhverjum öðrum. Ég er svo lánsöm að hafa fengið að kynnast frænku því hún gaf mér svo margt, bæði verald- lega hluti jafnt sem fagrar minn- ingar, faðmlög og bros. Minning hennar mun lifa í mér um ókomna daga, óteljandi minningar um Kristínu frænku, uppáhalds frænku mína. Ýrr Geirsdóttir. þessi kveðjuorð á bæninni sem þú kenndir mér. Faðirvor, þú sem ert á himnum. Helgist þitt nafn, til komi þitt ríki, verði þinn vilji svoájörðusemáhimm. Gef oss í dag vort daglegt brauð, og fyrirgef oss vorar skuldir, svo sem vér og fyrirgefúm vorum skuldunautum. Eigi leið þú oss í freistni, heldur frelsa oss frá illu. Pví að þitt er nkið, mátturinn og dýrðin að eilífu. Amen. Hvfl í friði, elsku amma. g Daníel Orri Einarsson. Afmælis- og minn- ingar- greinar MIKILL fjöldi minningar- greina birtist daglega í Morg- unblaðinu. Til leiðbeiningar fyrir greinahöfunda skal eftir- farandi tekið fram um lengd greina, frágang og skilatíma: Lengd greina Um hvern einstakling birtist ein uppistöðugrein af hæfilegri lengd á útfarardegi, en aðrar minningargreinar um sama einstakling takmarkast við eina örk, A-4, miðað við meðal- línubil og hæfilega línulengd, - eða 2200 slög (um 25 dálksenti- metrar í blaðinu). Tilvitnanir í sálma eða ljóð takmarkast við eitt til þrjú erindi. Formáli Æskilegt er að minningar- greinum fylgi á sérblaði upp- lýsingar um hvar og hvenær sá, sem fjallað er um, er fædd- ur, hvar og hvenær dáinn, um foreldra hans, systkini, maka, og börn, skólagöngu og störf og loks hvaðan útför hans fer fram. Ætlast er til að þessar upplýsingar komi aðeins fram í formálanum, sem er feitletrað- ur, en ekki í greinunum sjálf- um. Undirskrift Greinarhöfundar eru beðnir að hafa skírnamöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. Frágangur og móttaka Mikil áherzla er lögð á að handrit séu vel frá gengin, vél- rituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt að disk- lingur fylgi útprentuninni. Það eykur öryggi í textamenferð og kemur í veg fyrir tvíverkn- að. Þá er ennfremur unnt að senda greinar í símbréfi - 569 1115 - og í tölvupósti (minn- ing@mbl.is). Vinsamlegast sendið greinina inni í bréfinu, ekki sem viðhengi. Skilafrestur Eigi minningargrein að birt- ast á útfarardegi (eða í sunnu- dagsblaði ef útför er á mánu- degi), er skilafrestur sem hér segir: í sunnudags- og þriðju- dagsblað þarf grein að berast fyrir hádegi á föstudag. I mið- vikudags-, fimmtudags-, föstu- dags- og laugardagsblað þarf greinin að berast fyrir hádegi tveimur virkum dögum fyrir birtingardag. Þar sem pláss er takmarkað, getur þurft að fresta birtingu minningai-- greina, enda þótt þær berist innan hins tiltekna skilafrests. Berist grein eftir að skilafrest- ur er útrunninn eða eftir að út- för hefur farið fram, er ekki unnt að lofa ákveðnum birting- ardegi.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.