Morgunblaðið - 25.07.1998, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 25.07.1998, Blaðsíða 34
34 LAUGARDAGUR 25. JÚLÍ 1998 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ + Sigurður Óskar Sigvaldason var fæddur á Gilsbakka í Öxarfírði 6. des. 1908. Hann lést á Sjúkrahúsi Reykja- víkur 15. júlí síðast- liðinn. Foreldrar hans voru Sigvaldi Eliseus Sigurgeirs- son, f. 3. júlí 1871 í Geiraseli, d. 7. okt. 1922, bóndi á Hóli í Kelduhverfí 1895-96, Byrgi í Kelduhverfí 1896-1901 og Gils- bakka í Öxarfirði 1901 til dán- ardags, og kona hans Sigurlaug Jósefsdóttir, f. 13. febr. 1874 í Krossavíkurseli, d. 20. nóv. 1959 í Keldunesi. Börn þeirra voru: 1) Benjamín, f. 3. sept. 1895 á Hóli, d. 23. aprfl 1971. 2) Sigurður, f. 18. okt. 1897 í Byrgi, d. 15. okt. 1907. 3) Frið- geir, f. 6. maí 1899 í Byrgi, d. 11. mars 1966. 4) Sigrún, f. 31. okt. 1900 í Byrgi, d. 24. jan. 1975. 5) Halldór, f. 27. nóv. 1902 á Gilsbakka, d. 27. sept. 1988. 6) Ásfríður, f. 26. sept. 1904 á Gils- bakka, d. 2. maí 1980. 7) Krist- ín, f. 25. okt. 1906 á Gilsbakka, d. 1. des. 1996. 8) Sigurður Ósk- ar, sem hér er kvaddur. 9) Rak- Þrátt fyrir að öllum sé ljóst að jarðlíf okkar allra tekur enda fyrr en varir, fer ekki ekki hjá því að stund- um finnst manni að einhver fastur punktur í lífsbaráttunni, eitthvert haldreipi í tilverunni sé horfið, og ekkert muni koma í staðinn, þegar sumir einstaklingar hverfa af sjónar- sviðinu. Þannig varð mér innan- brjósts þegar ég frétti lát Óskars Sigvaldasonar, eða Sigurðar Óskars sem hann hét fullu nafni, en hann notaði Sigurðarnafnið mjög lítið. Hann var sá sem mest og best hafði samband við alla sína ættingja, og tengdi ættina saman á vissan hátt. Samt stofnaði hann sjálfur aldrei fjölskyldu, en öll ættin var hans fjölskylda. Óskar var bifreiðarstjóri að at- vinnu. Byrjaði með vörubíl heima í héraði, en fljótlega réðst hann sem áætlunarbílstjóri hjá BSA á Akur- eyri og ók þaðan rútum víða um land. Á þessum árum var bifreiða- akstur aðeins sumarvinna, og dvaldi Óskar því að mestu hjá foreldrum mínum yfir veti-artímann við ýmis störf. Árið 1943 flutti Óskar svo al- farið til Reykjavíkur, og ók í fyrstu vörubíl hjá Þrótti, en 1945 byrjaði hann sem leigubifreiðarstjóri hjá Hreyfli og var það meðan aldur leyfði. Bjó hann fyrst í ýmsum leigu- íbúðum, en 1968 keypti hann íbúð í Fellsmúla 14, og átti þar síðan heima til æviloka. Þegar ég man fyrst eftir mér, var það alltaf mikil tilhlökkun þegar Óskar kom á heimilið með haustinu, því hann var alltaf fullur af hugmyndum sem hann svo reyndi að koma í framkvæmd. M.a. kom hann upp rafstöð við bæjarlækinn og not- aði rafal úr gömlum vörubíl, og heimasmíðað spaðahjól. Entist þessi rafstöð nokkuð, en var að sjálfsögðu ekki afkastamikil. Árið 1947 var svo reist stærri rafstöð hér á Gilhaga, og var Óskar þá óþreytandi til aðstoðar, bæði að útvega efni meðan hann var fyrir sunnan, og svo kom hann norð- ur í sínu sumarfríi til að vinna við bygginguna með sínum eldlega áhuga. Alltaf var Óskar boðinn og búinn til aðstoðar hvort heldur það var í heimsóknum sínum norður, eða ef maður átti leið suður. Eru þær orðnar margar ferðirnar sem hann hefur faiið með okkur ýmissa erinda. Hann hafði farið ungur á íþrótta- skólann á Haukadal, og keppti í íþróttum á sínum tíma, og hvatti okkur krakkana til íþrótta og leikja og tók sjálfur þátt með okkur. Var þá oft mikill handagangur í öskjunni og uppátækin hjá Óskari oft hin ótrúlegustu. Var ekki að furða þótt maður hafi reynt að taka hann sér snemma til fyrirmyndar á flestum sviðum. Hann þurfti alltaf að hafa el, f. 23. júní 1910 á Gilsbakka, 10) Guð- nv Ingibiörg, f. 15. okt. 1911 á Gils- bakka, d. 21. nóv. 1988. 11) Sesseþ'a, f. 28. jan. 1913 á Gils- bakka. 12) Guð- björg, f. 11. febr. 1915 á Gilsbakka, d. 21. okt. 1989. Óskar var lengst af leigubifreiða- stjóri í Reykjavík. Hann stundaði nám við íþróttaskólann í Haukadal, gerðist snemma langferðabflstjóri hjá BSA á Akureyri og var í áætl- unarferðum víða um landið. Ár- ið 1943 fluttist hann til Reykja- víkur og ók vörubifreið hjá Þrótti, en 1945 gerðist hann leigubifreiðasljóri hjá Hreyfli. Starfaði hann þar mikið að fé- lagsmálum, sá m.a. um allar myndir í afmælisbók félagsins og var þar heiðursfélagi. Hann var áhugaljósmyndari og hafa myndir hans birst í mörguni ferðabókum. Seinni ár vann hann mjög að söfnun á þjóðleg- umfróðleik. Utför Óskars fer fram frá Skinnastað í Öxarfírði í dag og hefst athöfnin klukkan 14. eitthvað fjrir stafni, og vildi sem flest reyna og ótaldar voru þær nýj- ungarnar sem hann bryddaði upp á þegar hann var heima. Lætur nærri að flestar nýjungar sem komust í gagnið á heimilinu á þeim árum hafi að einhverju leyti komist á vegna Óskars. Þess má þó geta til gamans, að íyr- ir kom að nýjungar Óskars reyndust ekki sem heppilegastar. Einu sinni stóð svo á að steinolíulaust varð á heimilinu, en hann átti bensínlögg á brúsa, sem hann setti þá á lampana í olíustað, og með aðgát blessaðist þetta þar til hann sofnaði frá logandi ljósi hjá sér eitt kvöldið. Lampinn sprakk í tætlur, og var síðan ekki sett bensín á fleiri lampa. En svona var Óskar, hann var aldrei ráðalaus, en alltaf tilbúinn að prófa eitthvað nýtt. T.d. hefur það áreiðanlega ekki þótt arðvænlegt á sínum tíma að gera bifreiðaakstur að atvinnu, starf sem aðeins var hægt að sinna á sumrin, og hann var sá eini hér um slóðir sem fór á íþrótta- skóla. Eg minnist þess líka, að hann var sá fyrsti maður sem ég þekkti sem kunni að meta bækur Halldórs Laxness, en Laxness var ekki hátt skrifaður meðal alþýðu manna lengi vel. En þarna eins og í svo mörgu öðru var Óskar á undan sinni samtíð. Eftir að hann flutti til Reykjavík- ur, fékk hann áhuga á ljósmyndun, og eins og að öðru gekk hann að því af brennandi áhuga, sótti námskeið og varð sér úti um vandaðar mynda- vélar. Varð þetta síðan stærsta áhugamál hans það sem eftir var æv- innar, og lagði hann á sig mikla vinnu við þetta hugðarefni sitt. Tók hann bæði litskyggnur, kvikmyndir og seinustu árin prófaði hann mynd- bandstökur. Bestum árangri náði hann þó áreiðanlega með svart-hvít- ar myndir, en þær framkallaði hann sjálfur og vann eftir eigin höfði. Var hann búinn að koma sér upp allgóðri aðstöðu til framköllunar og mynd- vinnslu heima hjá sér. Fékk hann verulegar viðurkenn- ingar fyrir myndir sínar, og eru myndir eftir hann í mörgum land- kynningarbókum, og oft á almanök- um hér áður fyrr. Hann var mikill náttúruunnandi, og ferðaðist mikið um landið, bæði á eigin vegum og í annarra félagsskap. Var hann orðinn mjög gagnkunnugur landinu. En sérstöku ástfóstri tók hann tók hann þó við sitt heimahérað. Leið aldrei svo sumar að hann kæmi ekki norður á æskustöðvamar, venjulegast oftar en einu sinni, og reyndi þá að hitta sem flesta ættingja sína, en hafði þó jafnan fast athvarf á Gilhaga. Fór hann oft gangandi um óbyggðir sýsl- unnar til finna góð myndefni, og þá gjarnan á sömu slóðir og árið áður, því oft var hann ekki alveg sáttur við myndirnar sem hann hafði tekið, vfldi t.d. taka myndina á öðrum tíma dags svo skuggarnir féllu eins og honum líkaði. Dvaldi hann oft allan sólarhringinn við myndatökm' til fjalla þegar veðrið var hagstætt til myndatöku. Síðar tók hann sér fyrir hendur að taka myndir af öllum býlum sýslunn- ar, og eignaðist gott safn af þeim frá ýmsum tímum. I framhaldi af því fór hann að safna upplýsingum um eyði- býli í sýslunni. Lét hann sér ekki nægja að safna bóklegum upplýsing- um, heldur gerði hann sér ferð á hendur til að finna hvert einstakt eyðibýli, staðsetja það á korti og taka af því mynd. Síðan hóf hann að taka saman ábúendatal sveitabæja í sýslunni, byrjaði á sinni heimasveit, Öxarfirðinum og síðan öðrum sveit- um. Sat hann þá löngum á söfnum til að viða að sér heimildum, og naut oft góðrar aðstoðar. Er sérstaklega Öx- arfjarðarþátturinn mjög viðamikill og merkilegur, en honum entist ekki heilsa og aldur til ljúka við hina þættina eins og hann vildi hafa þá. Einnig er til í handriti hjá honum bú- skapar- og ættarsaga foreldra hans á Gilsbakka, sem hann var lengi með í smíðum, og taldi sjálfur ekki að öllu lokið. Árið 1965 var Árbók Ferðafélags Islands helguð Norður-Þingeyjar- sýslu, og var Gísli Guðmundsson al- þingismaður höfundur lesmáls. Við þá samantekt fór Óskar með Gísla í eins konar yfirreið um héraðið, og eru langflestar myndir í bókinni eftir Óskar. Þegar ákveðið var að gefa út byggðasögu Norður-Þingeyinga, var strax ákveðið að leita til Öskars að sjá um myndir í bókina, og gerði hann það fúslega, og taldi ekki eftir sér neina fyrirhöfn í útvegun og töku mynda í bókina. Fór hann þá aftur sérstaklega um allt svæðið í því skyni. Bók þessi kom út 1985, en árið 1988, þegar hann stóð á áttræðu, kom út bókin Hreyfilsmenn, saga og félagatal Hreyfils, og þar sá Öskar einnig um allar myndir og myndmál, sem var mikið verk og var Óskar kjörinn heiðursfélagi Hreyfils um það leyti. Seinustu árin tók Óskar sér fyrir hendur að koma skipulagi á sitt mikla safn af myndum og öðrum upplýsingum, en jafnframt var hann að bæta við ýmsu sem honum fannst vanta. Hann var mjög vandur á verk sín, og margvann sumt áður en það var eins og honum líkaði. Hann gaf Bóka- og byggðasafninu við Kópa- sker stóran hlut af safni sínu, og mun það varla eiga betur heima en þar, enda er það mikið skoðað af gestum safnsins. Haustið 1995, þeg- ar Óskar var að koma að norðan á leið suður seint að kvöldi, lenti hann í árekstri við dráttarvél með vagn, og varð bíllinn gjörónýtur og Óskar slasaðist mikið. Eftir það var hann meira og minna á sjúlorastofnunum, en hvert sinn sem hann var heima hjá sér, hélt hann áfram að sinna hugðarefnum sínum af sömu eljunni. I þessum veikindaerfiðleikum kom vel í ljós hve Óskar var vinmargur, og urðu margir til að heimsækja hann og aðstoða á ýmsan hátt. Má sérstaklega nefna systursyni hans fyrir sunnan, þá Ara, Pálma og Sig- urð Gils, sem allir voru honum til mikillar hjálpar og aðstoðar. En enginn ræður við elli kerlingu, og þegar við bættist að sjúkdómur sem hann hafði lengi þurft að stríða við, færðist í aukana, fór svo að hann átti ekki afturkvæmt af sjúkrahús- inu. En hann hélt merkilega miklu andlegu þreki tfl hinstu stundar, og vildi í lengstu lög trúa því að starfs- degi sínum væri ekki að fullu lokið. Blessuð sé minning hans. Brynjar Halldórsson. Nú er Óskar frændi farinn frá okkur og er hans sárt saknað. Fyrir okkur, börn systkina hans, var hann sérstakur frændi, sem okkur langaði öll til að líkjast. Flest okkar hafa orðið fyrir margþættum áhrifum frá honum, sérstaklega hvað varðai' náttúru landsins og sögu. Þegar Óskar kom í heimsókn, sem var oft, þá var glatt á hjalla. Hann var barn- góður, kátur og hress og kunni þá list að gera börn og unglinga þátt- takendur í áhugamálum sínum sem voru ótrúlega margþætt og átti þátt í að móta þau á jákvæðan hátt. Óskar ólst upp á Gilsbakka í stór- um barnahóp þar sem fjölskyldufað- irinn féll frá langt fyrir aldur fram. Ekkjan hélt áfram búskap með böm- unum af myndarskap og heimflið í uppsveit Öxarfjarðar veitti mörgum aðstoð sem áttu við erfiðleika að stríða. Að Gilsbakka var gott að koma, þar ríkti hjálpsemi og vilji til að veita þeim aðstoð sem á þurftu að halda. Foreldrar hans voru dugleg og fylgdust vel með því sem var að gerast úti í hinum stóra heimi. Margar nýjungar í sveitinni litu dagsins Ijós á Gflsbakka og má þar til dæmis nefna byggingu kornmyllu sem knúin var vatni úr læk í túnjaðr- inum. Óskar var hugmyndaríkur og nýj- ungagjarn og heimilið veitti honum tækifæri til að nýta þá eiginleika. Hann var smiður góður og brallaði margt um dagana. Sem dæmi kom hann upp rafstöð á sínum heima- slóðum. Þegar ég man fyrst eftir mér var Óskar leigubílstjóri á Hreyfli og átti „drossíu" af Dodge-gerð með númer- inu R2333. Fyrstu ferðir mínar norð- ur í land á æskuslóðir mömmu voru farnar með Óskari í þeim ágæta bíl. Það var alltaf glatt á hjalla í bíl með Óskari. Hann kunni ógrynni af sög- um og virtist þekkja hvern blett á landinu enda hafði hann verið bíl- stjóri hjá BSA og ók þá m.a. á mflli Reykjavíkur og Akureyrar. Reyndar var ekið til Akraness eða í Borgames og síðan farið með skipi í bæinn. Eins ók hann áætlunarbíl frá Akureyri til Neskaupstaðar en síðasti spölurinn var reyndar farinn á sjó úr Viðfirði yfir fjörðinn til Neskaupstaðar. Óskar stundaði mikið ferðalög um óbyggðir og tók þátt í ýmsum af fyrstu óbyggðaferðum, um leiðir, sem nú eru fjölfarnar ferðamanna- leiðir. Má þar nefna að Óskar var með þegar fyrsta ferðin um fjalla- baksleið nyi'ðri var farin og kvik- myndaði þá ferð. Eins var hann með þegar Guðmundur Jónasson og Páll Arason fóru saman í sína fyrstu ferð norður yfir Vatnajökul, svokallaða Gæsavatnaleið. í þeirri ferð tók hann kvikmynd af fossinum Gjallanda. Sýnir hún að þá var steinbogi yfir hluta af fossinum. Er þetta eina myndin, sem til er af þessu náttúru- fyrirbæri, en steinboginn hefur trú- lega brotnað næsta vor í leysingum. Ómar Ragnarsson sýndi þessa mynd í sjónvarpinu fyrir nokkrum árum. Óskar fór margar ferðir á Vatnajök- ul með Sigurði Þórarinssyni og gekk m.a. upp á Hvannadalshnjúk. Átti hann nokkrar myndir í bók Sigurðar urn Vatnajökul. Óskar var mjög góður landslags- ljósmyndari og tók þátt í sýningum Félags áhugaljósmyndai-a auk þess sem myndir eftir hann birtust víða, t.d. á dagatölum Eimskips og í Ár- bókum ferðafélagsins. Fyrir kom að við höfðum verið saman á ferðalagi og vorum báðir að taka myndir af sama staðnum. Eg undraðist oft hversu næmt auga hann hafði fyrir myndefninu enda var mikill munur á árangrinum. Ein fyrsta ferð mín í óbyggðirnar var með Óskari, við fónim í Dyngju- fjöll til að skoða ummerki eftir gosið í Öskjuopi árið 1961. Síðasta ferð okkar var einnig farin norður fyrir Vatnajökul til að skoða fossinn Gjallanda. Þá var Óskar kominn á ní- ræðisaldur og heilsan farin að bila. Aðaltilgangurinn var að ná myndum af sama stað og hann hafði tekið myndir af fossinum þegar steinbog- inn stóð enn. Það var gaman að fylgjast með Óskari þegar komið var á Sprengisand þar sem hann virtist þekkja hverja þúfu. Hann lifnaði all- ur við og allt vildi hann sýna okkur. Það var erfitt að fá hann til að halda heim og við, sem með honum vorum, fundum greinilega þá ást sem hann hafði á landinu og hvað hann kvaddi hálendið með miklum söknuði þegar heim var haldið. Óskar var sístarfandi og skorti aldrei áhugaverð verkefni. Eitt sinn kom hann til mín með þær fréttir að hægt væri að fá loftljósmyndir af Is- landi. Hann hafði áhuga á því að fá myndir af sveitinni sinni, Öxarfirði, og merkja á loftmynd allar rústir af eyðibýlum. Afraksturinn af þessari vinnu var skrá yfir öll eyðibýli í Öx- ÓSKAR SIGVALDASON arfirði ásamt ábúendatali og eins safnaði hann miklum fjölda af mynd- um sem tengdust þessu verkefni. Það eru ekki mörg ár síðan hann sýndi mér lista yfir allar kfl'kjur á ís- landi og sagðist hafa áhuga á að ná myndum af þeim öllum. Hann lét ekki sitja við orðin tóm. Innan nokk- un-a mánaða hafði hann náð mynd- um af öllum kirkjum landsins. Nú er Óskar horfinn og í huga okkar í „Gflsbakkaættina" er skarð fyrir skfldi. Við söknum hans við laufabrauðsskurðinn en kökurnar hans Óskars voru listaverk, sem vöktu óskipta aðdáun viðstaddra. Við söknum þess að geta ekki lengur set- ið í sófanum hjá honum og skoðað með honum myndir eða heyrt frá- sögur af lifnaðarháttum fyrr á öld- inni. En Óskar mun lifa áfram í verk- um sínum. Hans verður minnst fyrir fágætt starf í þágu byggðasögu Norður-Þingeyinga. Félagar hans á Hreyfli gerðu hann að heiðursfélaga fyrir mikið starf í þágu félagsins. Fyrir okkur í „Gilsbakkaættinni" var hann einnig heiðursfélagi sem hélt sterku sambandi við skyldmennin og til hans var leitað um fréttir af ætt- inni. Ég þakka Óskari fyrir okkar kynni og það sem hann hefur gefið mér með því að veita mér innsýn í náttúru landsins og sögu og meta mikilvægi þess að þekkja fortíð sína en jafnframt að hafa trú á framtíð- inni og leitast við að nýta þá mögu- leika sem hún býður upp á. Sigurður G. Björgvinsson. Mig langar með fáeinum orðum að minnast móðurbróður míns sem var mér afar kær, enda mikill mann- kostamaður sem sá björtu hliðarnar á öllum málum og var um leið vinur þein-a sem áttu um sárt að binda. Það var alltaf hátíð í bæ þegar hann kom í heimsókn til foreldra minna í Þórunnarsel. Það var ein- hver ferskleiki sem hann flutti með sér. Hann var einn af fyrstu bílstjór- unum sem hélt uppi áætlunarferðum milli Akureyrar og Raufarhafnar. Þá voru vegirnir afar slæmir, svo það þurfti lagni til að komast á leiðar- enda án þess að lemstra farþega og bfl. Þær voru ófáar ferðirnar sem ég fór suður í Lindarbrekku með bréf- miða í vasanum sem tflgreindi erindi sem hann var beðinn að greiða úr á Húsavík eða Akureyri. Alltaf tók hann fagnandi á móti mér. Ekki gleymi ég þegar hann kom fannbarinn heim í Þórunnarsel skömmu fyrir jól 1940, ásamt Sig- valda bróður mínum sem þá var að- eins 12 ára gamall og nýkominn af skurðarborðinu eftir kviðslitsaðgerð. Höfðu þeir gengið langleiðina frá Akureyri. Þessi jól voru okkur öllum ógleymanleg. Þetta var líkt og sólar- geisli sem lýsti upp allt umhverfið. Við fengum öll einhverjar jólagjafir sem var fremui' sjaldgæft í þá daga. Óskar byrjaði snemma að taka ljósmyndir og minnist eg þess að í fyrsta sinn sem eg kom til Reykja- víkur og heimsótti Guðbjörgu systur hans að þá kom Óskar í heimsókn og sýndi okkur skuggamyndir. Voru þetta mest myndir af æskustöðvum okkar, m.a. dagur í lífi Halldórs bróður hans, bónda í Gflhaga. Þar gaf hann okkur innsýn í gamla bú- skaparhætti, s.s. klyfjahesta og torfristu, að ógleymdum myndum af blómum og runnagróðri. Það var alltaf gaman að heim- sækja Óskai' í Fellsmúla 14 og rabba við hann um gamla og nýja tímann, því hann var ótrúega minnugur á menn og málefni. Þegar saga Norð- ur-Þingeyinga var gefin út birtust myndii' af öllum bændabýlum í sýsl- unni og voru flestar myndirnar tekn- ar af Óskari. Hann átti mikið safn ljósmynda sem hann hafði tekið. Hann átti myndfr af öllum kirkjum landsins, þ. á m. bænahúsi í Papey. Óskai' hafði mjög gaman af að kanna óbyggðir landsins og tók hann marg- ai' fágætar myndir af slóðum ferða- manna auk þess sem hann myndaði nokkuð á Grænlandi. í bók Teódórs Gunnlaugssonar frá Bjannalandi um þjóðgarðinn í Jökulsárgljúfrum birt- ust margar af bestu myndum Óskars af náttúruperlum þjóðgai'ðsins og sýna þær myndir vel hversu natin og hæffleikaríkur ljósmyndari hann var. Elsku Rakel og Sella ég votta ykk- ur mína innilegustu samúð. Páll Þór Jónsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.