Morgunblaðið - 25.07.1998, Page 40
40 LAUGARDAGUR 25. JÚLÍ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Niðjamót
Jóhanns og
Þuríðar frá
Saurbæ
AFKOMENDUR Jóhanns Jóhanns-
sonar og Þuríðar Símonardóttur frá
Saurbæ í Lýtingsstaðahreppi,
Skagafirði, ætla að hittast á Steins-
stöðum laugardaginn 15. ágúst. Far-
ið að Saurbæ um miðjan dag. Gist-
ingu er hægt að fá í skólanum á
Steinsstöðum og næg eru tjaldstæð-
in. Þátttöku þarf að tilkynna fyrir 29.
júlí til Hrefnu, Margeirs, Reynis eða
Þórdísar.
íslandsmót í
dráttarvela-
akstri
ÍSLANDSMÓT í dráttarvélaakstri
verður haldið á Hvanneyri laugar-
daginn 15. ágúst nk. Ökukeppnin
verður með sama sniði og var á 22.
iandsmóti UMFÍ í Borgarnesi 1997.
Nánari upplýsingar um keppnina
og keppnisreglur verða á heimasíðu
Hvanneyrarskóla, www.hvanneyri.is.
Þar geta væntanlegir keppendur
skráð sig fram til 10. ágúst. Askilinn
er réttur til þess að takmarka endán-
legan fjölda keppenda verði þátttaka
mikil.
Islandsmótið er haldið i tengslum
við Dag dráttarvélanna. Tilefni hans
er að um þessar mundir eru 80 ár
liðin frá því að fyrstu dráttarvélarn-
ar komu til landsins. Gamlar og nýj-
ar dráttarvélar verða sýndar og ýmis
fleiri atriði verða í boði á Hvanneyri
þennan dag. Tilstandið er á vegum
búvélasafnsins á Hvanneyri og bú-
tæknideildar RALA.
TAL opnar í
Kringlunni
TAL opnar nýja GSM-verslun í Kr-
inglunni í dag, laugardag. Verslunin
sem er á 1. hæð við hliðina á Byggt
& búið, er önnur verslun TALs en í
maí sl. opnaði fyrirtækið veslun og
þjónustumiðstöð í Síðumúla 28.
Verslun TALs í Kringlunni mun
bjóða upp á mikið úrval GSM-far-
síma ásamt fylgihlutum. Öll þekkt-
ustu vörumerki í GSM-símum hér á
landi verða á boðstólum. Einnig
verður þar boðin öll þjónusta TALs,
hægt að velja símanúmer jafnframt
því sem starfsfólk fyrirtækisins mun
leiðbeina viðskiptavinum um notkun
GSM-síma og veita ráðgjöf varðandi
val á GSM-símum og þjónustuleiðum
TALs.
í tilefni opnunarinnar verður boð-
ið upp á sérstakt tilboð á nýjum
GSM-farsímum frá Motorsola SLim
Lite ásamt hleðslutæki, leðurtösku
og TAL-símkorti fyrri 14.900 krón-
ur.
Lífeðlisfræði-
fyrirlestur
DR. Bryndís Birnir, ANU, Cam-
berra, Astralíu, heldur fyrirlestur
þriðjudaginn 28. júlí kl. 16. Fyrir-
lesturinn er á vegum Líffræðistofn-
un Háskóla Islands, og verður hald-
inn í stofu G-6, Grensásvegi 12.
Fyrh'lesturinn nefnist: Lífeðlis-
fræði GABA-ganga í taugum: Hlut-
verk GABA og benzodoazepine og
barbiturate lyfja.
LEIÐRÉTT
Finn Óskar Óskarsson
I frétt Morgunblaðsins í gær var
ranglega farið með nafn kafarans
sem var hætt kominn við köfun á
Kýpur, þegar sprengja sprakk í
sjónum í grennd við hann. Kafarinn
heitir Finn Óskar Óskarsson. Er
beðist velvh'ðingar á þessum mistök-
um.
Morgunblaðið/Hartmann Guðmundsson
Haldið upp á daginn
ÍSLENDINGAR í Suður-Afríku
hafa sent blaðinu mynd sem tek-
in var af hópnum þegar þjóðhá-
tíðardagurinn var haldinn hátíð-
legur í Jóhannesarborg. Að venju
hittust allir Islendingarnir þann
dag og borðuðu íslenskan mat,
s.s. hangikjöt, flatkökur og harð-
fisk að ógleymdum brauðtertun-
um. íslendingar í Suður-Afríku
halda vel hópinn og hittast
nokkrum sinnum á ári.
Athugasemd frá Miðlun
I FRAMHALDI af frétt í Morgun-
blaðinu 23. júlí undir fyrirsögninni
„Upplýsingasími 118 kærður til
Samkeppnisstofnunar“ vill Miðlun
láta eftirfarandi koma fram:
„Miðlun hefur í 11 ár rekið upp-
lýsingasíma undir heitinu Gula lín-
an, sem er skrásett vörumerki.
Starfsemin byggist á því að svara
fyrirspumum í sima um vömr, um-
boð og þjónustu og vísa fyrirspyrj-
anda á réttan stað til að gera sín
viðskipti. Afkoma Gulu línunnar
byggist á skráningartekjum og er
símtalið ókeypis. Árlega svarar
Gula línan yfir 200.000 fyrirspurn-
um í síma og á Neti um vömr og
þjónustu. Veruleg fjárfesting liggur
að baki starfseminnar og vinna níu
manns beinlínis við þessa starfsemi
í símsvömn, sölumennsku og rit-
stýringu, auk nokkurra annarra
starfsmanna í bókhaldi og stjórnun.
Landssíminn (áður Póstur og
sími) rekur símaþjónustu 118 þar
sem hægt er að fá símanúmer upp-
gefm. Eftir síðustu hækkun eru inn-
heimtar 39,90 kr. fyrir mínútu +
.9,36 kr. fyrir hvert byrjað símtal.
Forsvarsmenn Landssíma (áður
Pósts og síma) hafa ítrekað lýst því
yfir, líkt og fram kemur hjá upplýs-
ingafulltrúa Landssímans að upp-
lýsingaþjónusta 118 takmarkist ein-
vörðungu við að veita upplýsingar
um símanúmer og aðsetur símnot-
enda og er litið á þessa þjónustu
sem skyldu við símnotendur til þess
að þeir megi hafa full not af síma-
þjónustu. Landssíminn hefur í
símaþjónustu 118 margsinnis verið
staðinn að því að fara út fyrir verk-
svið sitt og svara með skipulögðum
hætti spurningum um vörur, umboð
og þjónustu.
Miðlun býr við óþolandi sam-
keppnismismunun vegna þess sem
felst m.a. í að Landssíminn veiti
þjónustu sem nær útfyrir það svið
sem þeim er skylt með þriggja stafa
númeri, en ítrekuðum óskum Miðl-
unar um þriggja stafa númer fyrir
þjónustu Gulu línunnar hefur verið
hafnað. Einnig hefur óskum Miðl-
unar um að taka sams konar gjald
og 118 verið hafnað. í Ijósi nýlegra
jrfirlýsinga forsvarsmanna Lands-
símans (áður Pósts og síma) um
margra ára taprekstur á þjónustu
118 og á sama tíma vaxandi umsvifa
fyrirtækisins í símaskrárrekstri á
Neti án nokkurra sjáanlegra tekna,
þá er nauðsynlegt að samkeppnis-
ráð skoði sérstaklega fjárhagslegan
aðskilnað milli þess hluta rekstrar
sem er í samkeppni og þess sem er
verndaður með einkaleyfi. Ber sér-
staklega að vitna til þess að sam-
keppnisráð hefur áður lýst yfir
áhyggjum vegna símaskrárstarf-
semi Pósts og síma/Landssíma sem
sjá má í niðurstöðum og ákvörðun-
arorðum 1. september 1997, vegna
k\'örtunar Alnets: „Hyggist Póstur
og sími nú hefja útgáfu símaskrár-
innar á tölvutæku formi með reglu-
lega endurnýjuðum upplýsingum í
samkeppni við aðra hvílir að mati
samkeppnisráðs sérstaklega rík
skylda á fyrirtækinu sökum stöðu
þess að gæta þess að athafnir fyrir-
tækisins hafi ekki skaðleg áhrif á
þeim markaði". Telja verður víst að
slíkt hljótist af núverandi starfsemi
Landssímans á Neti.
Miðlun ehf. er 15 ára gamalt fyrir-
tæki sem auk Gulu línunnar, rekur A
til Ö þjónustuskrá og gefur út Net-
fangaskrá, allt vörur í beinni sam-
keppni við símaskrárrekstur Lands-
símans. Arsvelta fyiirtækisins er
áætluð 140 milljónir og afkoma und-
anfarinna ára hefur verið ágæt.“
Morgunblaðið/Aldís Hafsteinsdóttir
FINNSKI þjóðdansahópurinn Salmeleiset
nýtur veðurblfðunnar á hverasvæðinu.
Vinabæjamót
haldið í Hveragerði
Hveragerði - Um 150 gestir frá
öllum Norðurlöndunum sóttu
Hveragerði heim helgina
17.-19. júlí en þar var þá haldið
vinabæjamót. Vinabæir Hvera-
gerðis ei'u Brande í Danmörku,
Ornsköldsvik í Svíþjóð,
Ánekoski í Finnlandi og Sigdal í
Noregi og mættu stórir hópar
frá öllum þessum stöðum. Hver-
gerðingar tóku höfðinglega á
móti gestum sínum og gistu um
130 manns á einkaheimilum yf-
ir helgina. Það að gestirnir gisti
í heimahúsum er stór liður í því
að mót sem þetta heppnist því
þannig myndast oft bestu kynn-
in. Var það samdóma álit gesta
mótsins að móttökurnar hefðu
verið frábærar og bæjarbúar
með eindæmum gestrisnir.
Við gerð dagskrár var lögð
áhersla á að kymia Hveragerði
og þá starfsemi sem þar fer
fram fyrir gestunum. Bæjarfull-
trúar allra bæjanna funduðu
saman og var þeina þess fundar
samskipti. Þar var rætt vítt og
breitt um þá möguleika sem ný
tækni skapar og hvernig hún
getur nýst í norrænum sam-
skiptum. Stjórnir Norrænu fé-
laganna funduðu einnig og
ræddu mál sem snerta félögin.
Að lokinni viðamikilli dag-
skrá á laugardeginum þar sem
meðal annars var farið í göngu-
ferð um bæinn, fyrirtæki skoð-
uð, hverasvæðið kannað og
tijám plantað var haldin kvöld-
vaka í Básnum, Ölfusi. Þar
sýndu fulltrúar allra þjóðanna
skemmtiatriði og dansað var
fram eftir nóttu. Dagskrá
sunnudagsins hófst með sam-
norrænni guðsþjónustu í Hvera-
gerðiskirkju. Eftir hádegi var
farið í rútuferð með suður-
ströndinni og söfnin á Eyrar-
bakka skoðuð. Lokahóf vina-
bæjamótsins var haldið á Hótel
Örk, þar sem gestgjafar og
gestir komu saman og áttu
notalega kvöldstund. Þar voru
forseta bæjarstjórnar í Hvera-
gerði og formanni Norræna fé-
lagsins afhentar gjafir frá hin-
um vinabæjunum ásamt því að
skemmtiatriði voru flutt. Söng-
sveit Hveragerðis flutti nokkur
lög. Jörgen Sundequist konsert-
harmoníkuleikari lék listir sín-
ar, finnski þjóðdansaflokkurinn
Salmeleiset sýndi finnska þjóð-
dansa og dúettinn Bal-ladies
söng þekkt lög frá Danmörku.
Hóparnir notuðu allir tæki-
færið og dvöldu lengur á Is-
landi. Var það greinilegt að
veðráttan þessa daga kom á
óvart því skafheiður himinn,
logn og hiti er ekki eitthvað
sem búist er við þegar farið er í
frí hingað frá hinum Norður-
löndunum.
Mót sem þetta eru haldin
annað hvert ár til skiptis í vina-
bæjunum fimm. I lokahófinu
bauð Nancy Nielsen fyrir hönd
Brande til næsta móts sem
haldið verður í Brande,
Danmörku í lok júní árið
2000.
Skipuleggjendur mótsins
voru ákaflega ánægðir með það
hvernig til tókst. Vildu þeir
leggja á það áherslu að góð
tengsl og samstarf milli Norð-
urlandaþjóðanna verður seint
ofmetið og brýnt er að sam-
vinna og samstarf Norðurland-
anna aukist frekar en hitt.
150 GESTIR frá öllum Norðurlöndunum
sóttu vinabæjamótið í Hveragerði.