Morgunblaðið - 25.07.1998, Page 45
MORGUNBLAÐIÐ
i
i
I
I
I
I
I
(
(
I
I
(
<
(
<
<
FÓLK í FRÉTTUM
Sótti um skilnað
►EIGINKONA fjölmiðlakóngs-
ins Ruperts Murdoch, Anna
Murdoch, sótti um skilnað í
vikunni og fer hún fram á með-
lagsgreiðslur en auk þess að
eiga dagblöð og sjónvarps-
stöðvar er Murdoch eigandi
hafnarboltaliðsins Los Angeles
Dodgers.
Anna og Rupert hafa verið
gift í 31 ár en þau kynntust
þegar Anna var í starfsþjálfun
sem blaðamaður á dagblaðinu
Sydney Daily Mirror í Ástralíu.
Fyrir þremur mánuðum var
svo greint frá því að þau hefðu
skilið að borði og sæng en ætl-
uðu að leita lausna á vanda-
málum sínum.
Sem fyrr segir fer Anna
fram á meðlagsgreiðslur en
eftir á að ákvarða hverjar
sameiginlegar eignir hjónanna
eru. Fregnir herma að
Murdoch hafi keypt hafna-
boltaliðið fyrrnefnda á litlar
320 milljónir dollara en fyrir-
tæki hans eiga útbreidd dag-
blöð eins og London Times,
Tlie Sun og kvikmyndaverið
20th Century Fox. Það má því
ætla að skipting auðæfanna
eigi eftir að kosta einhveija
vinnu.
LAUGARDAGUR 25. JÚLÍ 1998 45
MYNDBÖNP
Tölvu-
úlfar
í París
Amerískur varúlfur í París
(An Amerícan Werewolf in Paris)
Hryllingsmynil
★★
Framleiðandi: Richard Claus. Leik-
stjóri: Anthony Waller. Handritshöf-
undur: Tim Burns, Tom Stern og
Anthony Wafler. Kvikmyndataka:
Egon Werdin. Tdnlist: Wilbert
Hirsch. Aðalhlutverk: Tom Everett
Scott og Julie Delphy. (98 mín.)
Bandarísk. Skífan, júlí 1998. Myndin
er bönnuð börnum innan 16 ára.
GOÐSÖGUR um varúlfa hafa
verið til í ýmsum myndum frá alda
öðli og endurspegla þær togstreitu
hins dýrslega og
hins siðmennt-
aða innra með
mannskepnunni.
Minnið varð
mjög vinsælt í
skáldskap róm-
antíkeranna og
hefur síðan fund-
ið sér traustan
vettvang á hvíta
tjaldinu. Kvikmynd Johns Landis,
Amerískur varúlfur í London
(1981), er klassísk varúlfamynd,
ekki síst vegna stórgóðra tækni-
brellna og útlitshönnunar á óarga-
dýrinu. Kvikmyndin sem hér um
ræðir er sjálfstætt framhald af
Lundúnaúlfinum og styðst við per-
sónur og þemu úr henni. Þar segir
frá bandarískum háskólanemum á
Evrópuflakki sem koma til Parísar.
Forkólfur þremenninganna (Tom
Everett Scott) hrífst þar af hinni
dularfullu Serafin (Julie Delphy),
sem reynist vera óhamingjusöm
varúlfastúlka. í kjölfarið lenda þeii-
í klóm varúlfagengis, sem sam-
anstendur af frönskum nýnasistum
sem hata umfram allt ameríkana.
Vel er hægt að hafa gaman af
þessari mynd. Útlitið er athyglis-
vert og nokkur flott atriði eru í
henni, s.s. teygjustökksatriðið úr
Effel-turninum. Þá er eitt og annað
nokkuð skondið ef maður stillir sig
inn á aulahúmorinn. Engu að síður
verður Parísarúlfurinn hjóm eitt í
samanburði við frummyndina. Leik-
stjóra þeirrar myndar tókst að við-
halda hárfinni spennu milli gríns og
hryllings, nútíma og forneskju enda
er kvikmyndin virkilega skelfileg.
Parísarúlfurinn rennur hins vegar
of mikið út á gn'nhliðina svo óhugn-
aðurinn tapast. Þá er útfærslan á
sjálfum varúlfínum illa unnin tækni-
lega og ætti frekar heima í tölvuleik
en kvikmynd. Parísarúlfurinn bætir
engu við frummyndina og er of leit-
andi í nálgun sinni á efninu. Hún
styður því fullyrðingu þá sem sett
er fram í „Scream II“: Framhalds-
myndin er ávallt lakari en frum-
myndin.
Heiða Jóhannsdóttir
Utsalan í fullum gangi
Fatnaöur og skór
30-60% afsláttur
Vegna opnunar
fyrir bflaumferö á
Laugaveginum
er opiö til kl. 17 í dag,
laugardag.
(Sautján, Laugavegn
10-20% afslattur
af nyjum vörum
Frítt kaffi í Cafe 17
LAUGAVEGI, SIMI 511 1717/18
KRINGLUNNI, SÍMI 568 9017