Morgunblaðið - 11.08.1998, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 11. ÁGÚST 1998 25
f-
ERLENT
Öfgasinnum bannað að
stofna stjórnmálaflokk
Helsingfors. Morgunblaðið
ÖFGASINNUÐUM hægri mönn-
um í Finnlandi verður líklega
meinað að skrá samtök sín sem
stjórnmálaflokk. Fylking þjóðern-
issinna, IKL, hefur lagt inn skrán-
ingarbeiðni til dómsmálaráðuneyt-
isins en nafnaskrá flokksmanna
virðist að hluta til fölsuð.
Stjórnmálasamtök verða form-
legir flokkar með þvi að skrá sig
hjá ráðuneytinu. Þá þarf að safna
5.000 undirskriftum auk þess sem
stefnuskrá og stjórnarhættir
flokksins þurfa að vera lýðræðis-
leg.
I fréttum sem borist hafa frá
flokksskrá ráðuneytisins virðast
allt að 1.000 undirskriftir vera fals-
aðar. Þykir þetta nægileg ástæða
til að meina flokknum skráningu.
Með því að fá viðurkenningu
sem stjórnmálaflokkur gætu sam-
tökin auðveldlega boðið fram í al-
mennum kosningum. Þegar menn
bjóða fram utan flokka þurfa þeir
hins vegar að safna tilteknum
fjölda undirskrifta í hverju kjör-
dæmi fyrir sig.
IKL er endurvakning flokks
hægri öfgasinna sem starfaði á ár-
unum íyrir seinni heimsstyrjöldina
og á stríðsárunum. Hann var ekki
jafn róttækur og nasistaflokkurinn
þýski og fasistaflokkurinn á Ítalíu
en var eigi að síður bannaður þeg-
ar stríðinu lauk.
Ný og betri fóstur-
eyðingarpilla
Lundúnum. Reuters.
LÆKNAR sem prófað hafa nýja
gerð fóstureyðingarpillu, þ.e.
töflu sem taka má inn skömmu
eftir samfarir til þess að koma í
veg fyrir þungun, segja hana mun
betri en þá sem nú er á markaði.
Henni fylgi færri hliðarverkanir
og hún virki betur en sú sem nú
er á boðstólum fyinr konur.
Læknar á vegum Alþjóðaheil-
brigðisstofnunai'innar (WHO)
hafa birt niðurstöður rannsóknai' á
hinni nýju pillu í læknaritinu The
Lancet. Þeir halda því fram að
hormónið levonorgestrel verki bet-
ur eitt og sér en í bland við önnur
hormón sem hingað til hafa verið
notuð í pillur af þessu tagi. Nýju
levonorgestrel-pillunni fylgi líka
minni ógleði og uppköst en eldri
gerðum, sem nú eru á markaði.
Rannsóknin var gerð í 21 landi
og tvö þúsund konur tóku þátt í
henni.
HANN ER ST0W
r HANN ER Smm!
HANN ER ENGINN VENJUUGUR
V HLUTABRÉfASJÓÐUR
Kaupþing hf.
Ármúla 13A Reykjavík
sími 515 1500
fax 515 1509
www.kaupthing.is
KAUPÞING HF
Auölindarbréf fást hjá Kaupþingi, Kaupþingi Noröurlands og í sparisjóðunum
Magnaðir
bílar
á mögnuðu
verði
55 I, 2600 • OPIO LAUCARDACA 13-17 J