Morgunblaðið - 14.08.1998, Side 2

Morgunblaðið - 14.08.1998, Side 2
2 FÖSTUDAGUR 14. ÁGÚST 1998 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Kanadískir slökkviflugbátar á Keflavíkurflugvelli Danskar nautalundir í Nóatúni DANSKAR nautalundir fást nú í verslunum Nóatúns. Að sögn Jóns Þorsteins Jónsson- ar hjá Nóatúni mun nautakjöt ekki hafa verið flutt til lands- ins fyrr, en um er að ræða fimm tonn af nautalundum. Þessi innflutningur á kjöt- inu segir Jón að sé í samræmi við tollkvótaúthlutun Evrópu- bandalagsins sem byggist á því að flytja megi ákveðið hlut- fall af innlendri framleiðslu til landsins. Hann segir nauta- lundirnar fluttar inn undir ströngu eftirliti og með sam- þykki ráðuneytis og embættis yfirdýralæknis. Jón segir að ríkissjóður fái um 35% af því verði sem Nóa- tún selur lundirnar á, en kílóið kostar 2.295 krónur. SÍÐARI hluta dags í gær var óvenjuleg umferð um Keflavíkur- flugvöll. Þar lentu á skömmum tíma þrír flugbátar af gerðinni Canadair CL-215. Þessar flugvél- ar voru á leið til Grikklands frá Kanada. Skógareldar hafa ógnað stórum svæðum í Grikklandi og raunar í fleiri Evrópuríkjum. Sífellt færist í aukana að nota flugvélar til að dæla vatni og öðr- um eldkæfandi efnum á slíka elda. Oft hafa verið notaðar til þess eldri flugvélar, t.d. herflugvélar úr síðari heimsstyrjöld og flutn- ingaflugvélar eins og t.d. Douglas DC-4 Skymaster, Douglas DC-6 Cloudmaster sem íslendingar þekkja. Einnig flugbátar eins og Catalfna. Eftir að Catalínabátam- ir sem Loftleiðir notuðu voru seld- ir voru þeir lengi notaðir til slíks. Eina flugvélin sem hefur verið sérhönnuð til þessa hlutverks er Canadair CI-215 flugbáturinn. Hann getur innbyrt yfir 5.000 lítra af vatni á 10 sekúndum með því að fljúga lágt yfír sléttum vatnsfleti. Þetta magn má síðan losa í einu lagi á um það bil einni sekúndu. Fyrsta flug þessa sérhannaða eld- vamarbáts var í október 1967. Bátarnir sem lentu á Keflavík- urflugvelli vom meðal tíu slíkra sem auglýstir vom til sölu nýlega í Kanada og vom allir framleiddir 1986 og 1987 og hafði tiltölulega lítið verið flogið. Einn flugbát- anna hélt af landi brott strax eftir að hafa tekið eldsneyti hjá Suður- flugi en hinir tveir höfðu nætur- setu. Morgunblaðið/Baldur Sveinsson Vondugilja■ aurar '? Lík bandarikjamannsins fannst \ í i ..m nnn m í Laugahrauni um 200 m frá göngustíg í Grænagili > v / Göngulelð í p. ; Hrafntlr^iuSl Lík Bandaríkja- mannsins fundið ÞYRLA Landhelgisgæslunnar fann lík Bandaríkjamannsins Seans Smiths í Laugahrauni við Land- mannalaugar síðdegis gær. Hann var 28 ára gamall læknanemi frá Fíladelf- íu í Bandaríkjunum og hafði hans verið leitað frá því á þriðjudag. Talið er að maðurinn hafi örmagnast á göngu. Bandaríska sendiráðið náði í aðstandendur mannsins fljótlega eftir að lík hans fannst í gær. Smith kom til lands- ins 6. þessa mánaðar og átti upphafiega bókað far úr landi 8. ágúst en breytti bókuninni án þess að dagsetja heim- ferð, að sögn lögregl- unnar á Hvolsvelli. Hluti af farangri hans fannst á Umferðar- miðstöðinni í Reykjavík í gær og var hann sendur lögreglunni á Hvols- velli, m.a. vegabréf með mynd af honum. Talið er líklegt að Sean Smith hafí orðið úti á sunnudag, að sögn lögregl- unnar á Hvolsvelli. Þá var veður mjög vont í Landmannalaugum og ferða- fólki ráðið frá því að leggja þaðan í göngur. Engar mannaferðir voru því á þessari leið á sunnudag og mánudag en þá var veður enn mjög slæmt. Líkið fannst í um það bil eins og hálfs kílómetra fjarlægð frá skálanum í Land- mannalaugum í Lauga- hrauni sem liggur milli Landmannalauga og Brennisteinsöldu. Far- angurinn sem fannst á þriðjudaginn var í um 200 metra fjarlægð frá líkinu. Tjald, bakpoki og svefnpoki fundust við Göngustiginn við Grænagil í Laugahrauni á þriðjudaginn og fóru þrír menn, frá Hjálpar- sveit skáta í Hafnaríirði og Hundabjörgunar- sveit íslands, með leit- arhund til að grennslast fyrir um ferðir þess sem gæti átt farangur í fyrradag. Engin skilríki fundust í farangrinum þar, aðeins farmiði með nafni mannsins. Tjaldinu hafði ekki verið tjaldað og lá farangurinn nokkuð dreifður meðfram göngustígnum. Enginn hafði orðið var við ferðir mannsins í Landmannalaugum. Sean Smith Verðhjöðnun í síðasta mánuði Sumarútsölur og samkeppni á matvöru- markaði vega þyngst í lægri vísitölu VÍSITALA neysluverðs miðað við verðlag í ágústbyrjun 1998 var 182,6 stig og lækkaði um 0,5% frá fyrra mánuði. Vísitala neysluverðs án hús- næðis í ágúst var 185,6 stig og lækk- aði um 0,6%. Lækkunin stafar m.a. af hagstæðri gengisþróun, samkeppni á matvörumarkaði en fyrst og fremst gætir áhrifa af sumarútsölum, sem leitt hafa til 8% lækkunar á fatnaði og skóm, að sögn Guðrúnar R. Jónsdótt- ur, deildarsérfæðings vísitöludeildar Hagstofu íslands. Guðrún sagði að rekja mætti 0,47% af 0,5% lækkun vísitölunnar til sumarútsölu á fötum og skóm. „Það er einnig lækkun í matvöru,“ sagði hún. „Samkeppnin á matvörumark- aði sem olli 0,4% lækkun á vísitöl- unni í síðasta mánuði heldur áfram og er verð á mat greinilega á niður- leið og Ijóst að samkeppni á markað- inum er mjög hörð. Matvaran lækk- ar vísitöluna um 0,08% þrátt fyrir um 0,07% verðhækkun á grænmeti og kartöflum þannig að samkeppnin á matvörumarkaði er enn geysilega mikil.“ Hagstæð gengisþróun Guðrún benti einnig á að gengis- þróun hefði verið hagstæð það sem af væri árinu. íslenska krónan hefði styrkst gagnvart öllum viðskiptaaðil- um sem gerði verðlag á innfluttri vöru hagstætt og hefði þá væntan- lega áhrif á verðlækkun á fötum, inn- fluttri matvöru og snyrtivörum sem keyptar eru í matvöruverslunum. „Markaðurinn er greinilega að breytast eins og sést á útsölunum,“ sagði hún. „Ég held að þar sé mun meiri verðlækkun heldur en áður og nú eru ekki nokkrar vörur teknar og auglýstar upp heldur eru margar verslanir með útsölu, þar sem boðin er 7%-i0% lækkun á öllum vörum í búðinni. Þetta held ég að sé fyrst og fremst samkeppnin." Betri útsölur I fyrrahaust var í fyrsta sinn farið að taka tillit til útsölu á fötum og skóm í vísitölunni. „Það var mikil lækkun á fataliðnum þegar útsölur hófust í febrúar og svo gekk það til baka en við höfum ekki tekið tillit til sumarútsölu fyrr en nú,“ sagði Guð- rún. „En þó svo að sé finnst okkur útsölurnar vera meiri og betri núna heldur en nokkum tíma áður.“ Síðastliðna tólf mánuði hefur vísi- tala neysluverðs hækkað um 1,1% og vísitala neysluverðs án húsnæðis um 0,5%. Undanfarna þrjá mánuði hefur vísitala neysluverða lækkað um 0,6%, sem jafngildir 2,4% verð- hjöðnun á ári en Guðrún átti ekki von á að sú lækkun gengi eftir. Vísitala neysluverðs í ágúst 1998 er 182,6 stig eins og fyrr segir og gildir til verðtryggingar í september 1998. Vísitala fyrir eldri fjárskuld- bindingar, sem breytast eftir láns- kjaravísitölu, er 3.605 stig fyrir september 1998. Verðbólga í EES ríkjum frá júni 1997 til júní 1998, mæld á samræmda vísitölu neyslu- verðs, var 1,6% að meðaltali. Verð- bólga í Austurríki var 0,8% og í Þýskalandi 1% en á sama tímabili var verðbólga á íslandi 2,2% og 1,4% í helstu viðskiptalöndum ís- lendinga. Landsbankinn nýtir sér kaup- rétt á eignar- hlut í YÍS LANDSBANKI íslands hf. hefur nýtt sér viðbótarkauprétt á hluta af þeim 50% eignarhlut bankans í Vá- tryggingarfélagi íslands hf. sem samið var um í mars á síðasta ári. Heildarkaupverð eignarhlutarins var 3,4 milljarðar kr. og hafa kaupin farið fram í áfóngum. 2. ágúst sl. stóð Landsbankinn svo skil á 680 milljónum kr. og á nú 26% af heild- arhlutafé félagsins. Samkvæmt kaupréttarsamkomu- lagi aðila mun bankinn geta nýtt sér kauprétt á 680 millj. kr. til viðbótar 2. desember næstkomandi og gert er ráð fyrir að gengið verði frá kaupum á eftirstöðvum bréfanna í apríl og júlí á næsta ári og hefur bankinn þá eignast 50% eignarhlut- inn að fullu. 8 úM UR Á FÖSTUDÖGUM Nokkrar algengustu lygasögurnar Gulldrengur f hannyrða- verslun uamnnnní •••••••••••••••••••••••••••••• ; Guðjón Þórðarson velur ; „Útlendingahersveit“ / C1 ; Ólafur Stefánsson í hópi ; þeirra bestu í Þýskalandi / C4 inski boifinn www.mbi.is I < j " I i 4 I I I : 4 c. € < r

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.