Morgunblaðið - 14.08.1998, Side 60
Jtewuál
-setur brag á sérhvern dag!
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN1,103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF5691181
PÓSTHÓLF3040, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1
FÖSTUDAGUR 14. ÁGÚST 1998
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
* >
Islandsbanki hf. gerir ríkisstjórninni tilboð í Búnaðarbanka Islands hf.
Átta milljarðar boðnir
í allt hlutafé bankans
Lífeyrisskuldbindingar rLkissjóðs vaxa um 22 milljarða á þessu og næsta ári
Utgjöld LSR 20% hærri en í fyrra
ÚTLIT er fyrir að heildarútgjöld
Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins
vegna eftirlauna um sjö þúsund rík-
isstarfsmanna vaxi úr 3,7 milljörð-
um króna á síðasta ári í 4,5 millj-
arða króna í ár eða um 800 milljónir
króna. Hækkunin milli ára er um
20% og er að hluta tilkomin vegna
fjölgunar lífeyrisþega milli ára, en
að stærstum hluta vegna hækkunar
eftirlauna í kjölfar kjarasamninga
við ríkisstarfsmenn.
Eins og fram kom í Morgunblað-
inu í gær hækka gjaldfærðar lífeyr-
Framkvæmdastjóri YSI segir um afturvirka
launahækkun til ríkisstarfsmanna að ræða
isskuldbindingar vegna lífeyris-
starfsmanna úr 4 milljörðum króna
í fjárlögum vegna ársins í ár í 13-14
milljarða króna samkvæmt bráða-
birgðamati og það er meginskýring-
in á því að gert er ráð fyrir 7,5 millj-
arða rekstrarhalla ríkissjóðs í ár í
stað lítilsháttar rekstrarafgangs
sem gert var ráð fyrir í fjárlögum.
Þá er gert ráð fyrir að af sömu
ástæðu muni þurfa að gjaldfæra líf-
eyrisskuldbindingar að upphæð 9
milljarðar króna á næsta ári og hafa
þá lífeyrissjóðskuldbindingar ríkis-
sjóðs vaxið um 22 milljarða króna í
ár og á næsta ári.
Ostjórnleg útgjöld
Þórarinn V. Þórarinsson, fram-
kvæmdastjóri Vinnuveitendasam-
bands íslands, sagði að vinnuveit-
endur hefðu þráfaldlega varað ríkis-
valdið við því að það kerfi sem gilt
hefði um lífeyrisréttindi ríkisstarfs-
manna hlyti annaðhvort að halda
aftur af eðlilegri þróun á dagvinnu-
hluta launa eða að það myndi hafa í
för með sér óstjórnleg útgjöld í líf-
eyrismálum og þar með afturvirka
launahækkun til handa opinberum
starfsmönnum, eins og nú hefði orð-
ið raunin á.
■ Útgjöld LSR/9
■ Auglýsing/11
Bunaðarbankmn óskar eftir viðræðum
um kaup á Fjárfestingarbankanum
BANKARAÐ Islandsbanka hf.
ákvað á fundi sínum í gær að gera
ríkisstjórninni kauptilboð í öll hluta-
bréf ríkissjóðs í Búnaðarbanka ís-
lands hf. Var tilboðið kynnt við-
skiptaráðherra á fundi kl. 14.30 í
gær. Kauptilboðið hljóðar upp á átta
milljarða króna.
Stjórnendur íslandsbanka hyggj-
ast fjármagna hlutafjárkaupin með
útgáfu nýs hlutafjár á innlendum
markaði. Tilgangur bankans með
kaupunum er að sameina rekstur
þessara tveggja banka í einn og telja
stjórnendur bankans að með slíkri
sameiningu megi lækka heildar-
rekstrarkostnað um allt að 15% eða
um nær einn milljarð króna.
Forystumenn Islandsbanka telja
mikilvægt að sameining íslands-
banka og Búnaðarbankans geti átt
sér stað um næstu áramót og Ieggja
því til að viðræðum verði hraðað og
þeim lokið fyrir 15. september nk.,
en þá fellur kauptilboðið úr gildi.
Finnur Ingólfsson viðskiptaráð-
herra segist hafa svarað bankaráði
Islandsbanka því til að hann sé til-
búinn að fara í þessar viðræður eins
og óskað hafi verið eftir. Kvaðst
hann vonast til að ríkisstjórnin gæti
svarað tilboðinu íyrir 15. september.
Gert er ráð fyrir að stjórnvöld skipi
viðræðunefnd eftir helgina.
Geir H. Haarde, fjármálaráð-
herra, segir það ánægjulegt að
áhugi skuli vera fyrir því að kaupa
þessar eigur ríkisins og það komi
heim og saman við stefnu ríkis-
stjórnarinnar að koma þeim í verð.
„Ríkisbankarnir hafa ekki verið að
gefa af sér mikinn arð í ríkissjóð.
Það er sjálfsagt að tala við íslands-
banka um þetta og sjá hvað kemur
út úr því,“ segir Geir.
Forystumenn Islandsbanka sögðu
á fréttamannafundi í gær að tilboðið
gerði ráð fyrir að kaupverð hluta-
bréfanna yrði greitt á mjög stuttum
tíma. Kaupin yrðu fjármögnuð með
útgáfu nýs hlutafjár á innlendum
markaði fyrir 1,9 milljarða kr. að
nafnverði.
„Viðræður við alla
þessa aðila“
Bankastjórn Búnaðarbankans
óskaði í byrjun þessarar viku eftir
viðræðum við viðskiptaráðuneytið
um kaup bankans á hlut ríkisins í
Fjárfestingarbanka atvinnulífsins
en fyrir síðustu helgi var ákveðið að
taka upp könnunarviðræður við
Samband íslenskra sparisjóða um
kaup sparisjóðanna á öllu hlutafé í
FBA.
Fjármálaráðherra segir sjálfsagt
að ræða bæði við sparisjóðina og
Morgunblaðið/Ami Sæberg
Barist gegn
barnavændi
SAGA film, í samstarfi við stórt
evrópskt auglýsingafyrirtæki, er
þessa dagana að vinna að gerð
auglýsingar sem ætlað er að
berjast gegn barnavændi. Aug-
lýsingin er gerð fyrir alþjóða-
samtök sem hafa unnið að rétt-
indum barna og barist gegn
barnavændi. Auglýsingin verður
sýnd á flugleiðum frá Evrópu til
Austurlanda, en flugfélagið Air
France hefur þegar ákveðið að
sýna hana næstu 12 mánuði.
Verkefnið er styrkt af Evrópu-
sambandinu.
Morgunblaðið/Arnaldur
FORYSTUMENN íslandsbanka kynntu kauptilboð bankans í hlutabréf
Búnaðarbankans á fréttamannafundi síðdegis í gær. Frá vinstri Ásmund-
ur Stefánsson framkvæmdastjóri, Valur Valsson bankastjóri, Kristján
Ragnarsson, formaður bankaráðs Islandsbanka, Guðmundur H. Garð-
arsson, varaformaður bankaráðsins, og Örn Friðriksson bankaráðsmaður.
Búnaðarbankann um kaup á Fjár-
festingarbanka atvinnulífsins en síð-
an verði að koma í Ijós hvaða kostir
séu hagstæðastir. Of snemmt sé að
segja til um það nú, en margir
möguleikar séu í stöðunni. Geir seg-
ist ekkert geta tjáð sig um tilboð Is-
landsbanka í Búnaðarbankann að
svo stöddu en málið muni væntan-
lega skýrast á næstu vikum.
Finnur segir að farið verði í við-
ræður við alla þessa aðila og spurst
fyrir um hverjar þeirra hugmyndir
séu um framtíðarskipan og framtið-
arþróun á fjármagnsmarkaðinum.
í viðtali við Lars Gustafsson, að-
stoðarbankastjóra SE-bankans í
Stokkhólmi, sem birt er í Morgun-
blaðinu í dag, kemur fram að tengsl
Landsbankans og Vátryggingarfé-
lags Islands eru kostur að mati
stjórnenda SE-bankans. Hann segir
að 50% eignarhlutur Landsbankans
VIS auki á áhuga SE-bankans á
Landsbankanum og að SE-bankinn
hafi mjög jákvæða reynslu af sam-
starfi við tryggingafélög.
H Fjármagna á kaupin/4
H Tengslin við VÍS/30
Landslið
án heima-
manna
ENGINN leikmaður íslensks
félagsliðs er í landsliði íslands
í knattspyrnu, sem leikur æf-
ingaleik við Letta á Laugar-
dalsvelli næstkomandi mið-
vikudag. Mun þetta vera í
fyrsta skipti sem enginn
heimamaður er í landsliðshópi
Islendinga í knattspymu.
Leikmenn landsliðsins koma
frá félagsliðum í Noregi, Sví-
þjóð, Englandi, Skotlandi,
Þýskalandi og Belgíu.
H Sterkasti hópur/Cl
Göngin í
steinasafni
í STEINASAFNI, sem nýlega
var opnað á Akranesi, hefur
verið komið fyrir líkani af hin-
um nýju Hvalfjarðargöngum.
Gestir safnsins geta kynnt sér
legu og gerð ganganna í máli
og myndum, skoðað fágæta
bergkristalla úr jarðlögum
fjarðarins og borið saman við
steintegundir úr öðrum lands-
hlutum.
Steinaríki Islands nefnist
hið nýja safn og hafa ferða-
menn þegar sótt safnahúsið í
hópum þótt kynningarstarf sé
vart hafið.
Þá hafa þegar borist fyrir-
spurnir frá framhaldsskólum
sem hyggjast bregða sér í
heimsókn með jarðfræðinem-
endur með haustinu. Innviðir
eru útbúnir af Þorsteini Þor-
leifssyni safnverði og fjöl-
skyldu hans.
H Kristallar/B8
Tjaldað á
bílastæði
LÖGREGLAN hafði í fyrri-
nótt afskipti af útlendingum
sem höfðu tjaldað á efra bíla-
stæði Kringlunnar. Að sögn
lögreglunnar í Reykjavík
höfðu mennirnir flúið tjald-
svæðið í Laugardal fyrr um
kvöldið og komið sér fyrir á
bílastæðinu við Ki-ingluna.
Ekki er vitað hvers vegna
mennirnir flúðu úr Laugar-
dalnum en ljóst er að ekki hef-
ur nýja tjaldstæðið verið
mýkra en hið fyrra.