Morgunblaðið - 14.08.1998, Side 46
46 FÖSTUDAGUR 14. ÁGÚST 1998
MORGUNBLAÐIÐ
Ferdinand
Smáfólk
BREF
TIL BLAÐSINS
Kringlan 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
Þjónustan á Bing
Dao til fyrirmyndar
og maturinn góður
Frá Lilju Eðvarðsdóttur:
ÉG get ekki á mér setið að ski-ifa til
blaðsins vegna ömurlegra ummæla
Hilmars Þórs Guðmundssonar ljós-
myndara og félaga hans um veit-
ingastaðinn Bing Dao á Akureyri í
Morgunblaðinu 8. ágúst sl. og vegna
ummæla hans um mig og mína vini
sem vorum gestir staðarins á sama
tíma og Hilmar Þór og félagar um
sl. verslunarmannahelgi.
Vegna ummæla Hilmars um veit-
ingastaðinn vil ég segja þetta: Þjón-
ustan var til mikillar fyrirmyndar
og þjóninn sem þjónaði okkur var
mjög góður eða eins og best verður
á kosið. Hann var bæði lipur, já-
kvæður og kurteis og á ekkert ann-
að en hrós skilið. Maturinn var
mjög góður og ég vil taka það fram
að ekkert af þessu háaldraða
flissandi fólki, (sem allt er um fer-
tugt) kvartaði yfir matnum og fer
Hilmar þar með ósannindi. Eg ít-
reka að maturinn var góður og
smekklega fram borinn.
Ég vil biðja Hilmar og félaga af-
sökunar fyrir mína hönd og vina
minna ef við höfum misboðið þeim
með lífsgleði okkar og hlátri. Þessi
maður á ekki að fara út að borða ef
hann þolir ekld slíkt. Hann á að
sitja heima og panta sér mat heim
og hafa einhvem til staðar til að
taka við matnum því sendillinn gæti
farið í taugamar á honum.
Hilmar hafði ekkert leyfi til að
biðja þjóninn um að segja okkur að
drepa í sígarettunum því við vorum
á reykborði. Það var nóg af lausum
borðum á reyklausu svæði. Ég vil
líka að það komi fram að við vomm
ekki undir áhrifum áfengis þegar
við komum á staðinn en fengum
okkur að vísu mjög gott rauðvín
með matnum og það verður enginn
drakkinn af því. Við voram heldur
ekki beðin um að fara fram á kon-
íaksstofu vegna ónæðis heldur báð-
um við um að fá að færa okkur, því
við vildum fá okkur kaffí og koníak
eftir góðan mat. Ég er mjög spæld
yfir að hafa ekki tekið eftir mara-
þonþjóninum, það hefði verið eitt-
hvað til að hlæja að. Og Hilmar,
svona ósannindi og sleggjudóma fer
maður ekki með í blöðin, það er að
minnsta kosti í lagi að segja satt og
vera ekki að ljúga upp á sessunauta
sína. Maður getur alltaf hitt fólk
sem er ekki eins lífsleitt og snobbað
og maður sjálfur. Vonandi finnst
einhvers staðar á landinu staður þar
sem svona yfirmáta snobb og leiðin-
legt fólk getur fengið að borða í
friði. Eins og kom fram hjá Hilmari
voram við ekki til fara eins og hon-
um þóknaðist, en fæstir era með
pressuð jakkafót og síðkjóla í tjald-
inu. Ég tel hins vegar að við höfum
verið bæði hrein og snyrtilega til
fara. Ég vil að lokum þakka fyrir
hönd okkar starfsfólki Bing Dao
fyrir frábæran mat og góða þjón-
ustu. Ég hef oft áður komið á Bing
Dao og verið hæst ánægð.
LILJA EÐVARÐSDÓTTIR,
GRÉTAR RAGNARSSON,
skipstjóri,
ALDA VERNHARÐSDOTTIR,
KRISTINN AÐALSTEINSSON,
forstjóri,
ÓLöF SIGURÐARDÓTTIR,
JÓHANN KRISTJÁNSSON,
skipstjóri,
GUÐLEIF M. ÞÓRÐARDOTTIR,
KOLBEINN SIGURJÓNSSON,
markaðsstjóri.
Grængolandi díki -
Liturinn á Grundar-
tangaálverinu
Frá Einari Sigurbjömssyni:
í SUMAR hef ég farið nokkrar
ferðir um Hvalfjörð. Alltaf er hann
fallegur og í veðurblíðunni skartaði
hann sínu feg-
ursta. Þar til
horft var til
Grundartanga.
Álverið! Ham-
ingjan góða!
Hvilík ófreskja!
Og liturinn!
Aðra eins hörm-
ung hef ég ekki
augum litið.
Jafnvel Jám-
blendiverk-
smiðjan, sem aldrei hefur verið
augnayndi, bliknar við hliðina á
þessum ósköpum og lítur bara út
eins og umhverfislistaverk við hlið-
ina á umhverfisspjöllum - eins og
málað stígvél úti á víðavangi við
hliðina á stígvéli sem einhver hefur
sparkað af sér, fullur! Var kannske
verið að reyna að ná blöndu af bláu
og grænu, þ.e. litum ríkisstjórnar-
innar? Þá má þakka fyrir að verk-
smiðjan var ekki reist í tíð fyrri
ríkisstjórnar sem var bleik og blá!
Það er einna helst að manni detti í
hug lýsing séra Brynjólfs á Ólafs-
völlum á helviti: „Helvíti er græn-
golandi díki, alveg eins og fjós-
haugurinn í Vorsabæ." Karlgreyið
hafði riðið út í hann einhverju sinni
og það var honum svo sár reynsla
að hann líkti haugnum við þann
stað sem hann vissi verstan. Ekki
veit ég út í hvaða fjóshaug Grand-
artangaálmenn hafa riðið en það er
greinilegt að þeim er ókunnugt um
að sá sem ríður út í fjóshaug, veit
ekkert hvert hann er að fara og er
á algerum villigötum. Þvi stendur
þetta álver nú sem minnismerki
um þær villigötur sem stóriðju-
stefnan er. Von min og bæn er sú
að fleiri slík minnismerki verði
ekki reist.
EINAR SIGURBJÖRNSSON,
prófessor í guðfræði.
Einar
Sigurbjörnsson
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt i upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.