Morgunblaðið - 14.08.1998, Page 6

Morgunblaðið - 14.08.1998, Page 6
6 FÖSTUDAGUR 14. ÁGÚST 1998 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra, Ástríður Thorarensen, eiginkona hans, og Jonathan Motzfeldt, formaður grænlensku landsijórnarinnar, skoða Hvalseyjarkirkju í gær. Kirkjan er talin hafa verið reist af norrænum mönnum í kringum árið 1300 og er um 20 km frá bænum Qarqortoq. í dag verður svipast um á slóðum Eiríks rauða í Brattahlíð og haldið heim á leið síðdegis. Mikilvægl að samskipti þjóðanna verði efld DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra og Jonathan Motzfeldt, formaður grænlensku landstjórnarinnar, eru á einu máli um að mikilvægt sé að efla samskiptin á milli Grænlands, Islands og Færeyja og segja að sú ákvörðun að koma á reglubundn- um fundum milli forystumanna þessara landa sé mikilvægt skref í þá átt. Kom þetta m.a. fram í sam- tali við forsætisráðherra og land- stjórnarformanninn í gær, en það var þriðji og næstsíðasti dagurinn í opinberri heimsókn ráðherrans til Grænlands. Jonathan Motzfeldt segir að samskiptin milli íslands og Græn- lands hafi aukist og styrkst á und- anförnum árum, t.d. hafi einstakir fagráðherrar landanna haft meira samstarf en oft áður og telur hann mikilvægt að svo verði áfram. Fundurinn með forsætisráðherra Islands á þriðjudag hafi verið enn eitt dæmið um meiri samskipti landanna, en eftir fundinn hafi hann og ráðherrann undirritað yf- irlýsingu um frekara samstarf á ýmsum sviðum, t.d. í mennta-, heilbrigðis- og orkumálum. Davíð Oddsson forsætisráðherra er nú stadd- ur í opinberri heimsókn á Grænlandi ásamt eiginkonu sinni, Astríði Thorarensen. Arna Schram blaðamaður og Kristinn Ingvarsson ljósmyndari fylgdust með för þeirra um Suður-Grænland í gær þar sem kirkjurúst- imar á Hvalsey voru m.a. skoðaðar. Davíð Oddsson tekur undir þau orð Motzfeldts að samskipti land- anna hafi aukist. Forystumenn landanna hafi fundað reglulega fyrir u.þ.b. 10-15 árum, en þeir fundir hafi hins vegar fallið niður. „Nú ætlum við að taka upp reglu- leg samskipti á nýjan leik og verð- ur fyrsti fundurinn haldinn í Reykjavík um mánaðamótin októ- ber, nóvember,“ segir hann og bætir þvi við að viljinn til þess að halda slíka fundi reglulega sýni fram á samstarfsvilja manna á norðurslóðum. Motzfeldt nefnir ýmsar ástæður fyrir því að Grænlendingar vilji eiga gott samstarf við Islendinga. I því sambandi bendir hann m.a. á það að brýnt sé að Grænlendingar og íslendingar komi sér saman um hvernig nýta beri fiskistofnana í Norður-Atlantshafi á skynsamleg- an hátt. Auk þess telur hann nauð- synlegt að Færeyjar og Noregur komi einnig að þeim málum. Þannig yrði málflutningur þessara landa sterkari út á við, ekki síst gagnvart Evrópusambandinu. „Út frá sjónarhóli Islendinga er augljóst að það þarf að vera náið samstarf milli Grænlands og ís- lands þannig að það komi aldrei upp einhver misskilningur milli þjóðanna varðandi nýtingu á stofn- um, til að mynda fiskistofnum sem auðvitað ferðast á milli landamæra án þess að gera boð á undan sér. Okkur hefur fundist vanta dálítið upp á að þarna séu hlutirnir í nógu góðum skorðum," segir Davíð. Þeir tala einnig um frekara sam- starf landanna á fleiri sviðum, t.d. á sviði orkumála, en Grænlending- ar hafa hug á því að byggja fleiri vatnsorkuver. Þar horfa þeir til þekkingar íslendinga og að sögn Davíðs verður farið nánar ofan í það samstarf á næstu vikum. Fleiri mál eru ofarlega í huga ráðherra og formanns landstjórnar og seg- ist Davíð stoltur af því að löndin skuli taka höndum saman um það að varðveita minjar í Brattahlíð. „Eg held að við ættum einnig að taka þátt í því að varðveita kirkj- una í Hvalsey, sem er mjög merki- leg, en það vantar ekki mikið upp á til þess að endurreisa einn vegg- inn, sem hefur hallast mikið.“ Halldór Ásgrímsson Utanríkisráðherra í Afrfkuheimsókn Stjórnmála- samband við Malaví undirritað Lilongwe, MalavívMorgunblaðið. HALLDÓR Ásgrímsson utan- ríkisráðherra og Mapopa Chipeta, starfsbróðir hans í Malaví, undirrituðu í gær yfir- lýsingu um stjórnmála- samband Islands og Malaví. Lilongwe, höfuðborg Malaví, er fyrsti við- komustaður utanríkisráðheiTa í tíu daga opinberri heimsókn hans til fjögurra Afríkuríkja. Halldór Ásgrímsson sagði við undirritunina að tengsl Is- lands og Malaví hefðu lengi verið góð og Islendingar væru ánægðir með að hafa getað veitt Malövum þróunaraðstoð. Halldór sagði tilgang heim- sóknar sinnar ekki sízt þann að kanna tækifæri til frekari þróunarsamvinnu landanna. Þróunarsamvinnustofnun hef- ur starfað í Malaví frá 1989. Mapopa Chipeta sagði í sam- tali við Morgunblaðið að stjómvöld í Malaví legðu mikla áherzlu á að koma á stjóm- málasambandi við vestræn ríki á borð við ísland. „Malaví var lengi einangrað á alþjóðavett- vangi og tók ekki fullan þátt í samfélagi ríkja. Stjómmála- samband við ríki eins og ísland gefur okkur tækifæri til að eignast nýja bandamenn, læra af þeim og treysta tengslin til frambúðar. Þess vegna lítum við á þessa heimsókn sem eina þá mikilvægustu á árinu,“ sagði Chipeta. Ráðherrann sagðist vænta mikils af frekari þróunarsam- vinnu við Island. Hann nefndi sérstaklega fiskveiðar, skóg- í'nalrf -X CbiVb, U/-ií 1 V» w rr ríí a Ó1 ncnuj igUiomai menntamál. Fjölflokkakerfi var tekið upp á Malaví fyrir fjómm ár- um, er einræðisherrann Hastings Kamuzu Banda lét af völdum. Halldór Ásgrímsson mun í dag eiga fund með Bakili Muluzi, forseta landsins, og fjölda ráðherra í ríkisstjórn hans. Þá mun ráðherrann kynna sér verkefni Þróunar- samvinnustofnunar í Malaví. Mæðgur saman á fiðlutónleikum EVA Mjöll Ingólfsdóttir fiðluleik- ari, sem búið hefur erlendis í nærri tvo áratugi, er stödd hér á landi og verður með tvenna tón- leika á næstunni, þá fyrri á morg- un i kirkjunni í Stykkishólmi. Eva Mjöll hefur gert víðreist um dagana. „Ég fór 19 ára út til Brus- sel í nám og þaðan til Genfar, síð- an til Amsterdam, Bandaríkjanna, Japan og fleiri staða.“ Inni á milli búferlaflutninga, í á 17. ár, hefur hún dvalið samtals 2 ár á íslandi, annað þeirra árið sem hún átti dóttur sína, Andreu. Það heyrir til nokkurra tíðinda að Andrea, sem nú er níu ára göm- ul, mun leika á hvorum tveggju tónleikunum með móður sinni. Andrea segist hafa byijað að leika á fiðlu Qögurra ára gömul og er staðráðin í því að verða einleikari. Þær mægður eru staddar hér á landi í stuttu frfi en búa í New York ásamt eiginmanni og föður, Kristni Helgasyni, sem er háttsett- ur tæknilegur ráðgjafi við stjórn- sýsludeild Sameinuðu þjóðanna á stefnumótunarsviði. Fjölskyldan mun búa áfram í New York um sinn en er þó farin að huga að heimför. Eva Mjöll og Andrea eru ný- komnar frá Frakklandi þar sem þær sátu sumarnámskeið Tours. „Á námskeiðið koma margir ungir og efnilegir tónlistarmenn en ennig reyndir einleikarar. Flestir kennararnir voru rússneskir og all- ir höfðu lært hjá David Oistrach. Það var ómetanlegt fyrir mig að fá að fylgjast með þeim að störfum. Morgunblaðið/Arnaldur MÆÐGURNAR Eva Mjöll Ingólfsdóttir og Andrea Kristinsdóttir. Kröfurnar eru svo miklar." Mæðgurnar halda utan innan skamms en Eva Mjöll kemur aftur í október til að kynna geisladisk sinn sem kemur út í september á vegum Japis. Á tónleikunum flytur Eva Mjöll verk eftir Bach, m.a. Partitu nr. 2, Sónötu eftir César Franck, verk eftir Kreisler og „Meditation“ eftir Thais. Andr- ea, ætlar m.a. að leika Csardas eft- ir Monti og „Mazurka" eftir Wieni- awski. Ekki ætti að spilla fyrir væntan- legum áheyrendum að vita að fiðla Evu Mjallar er sögufrægur gripur. „Hún er smiðuð af rússneska fiðlu- smiðnum Goffriller árið 1720. Eig- andinn á undan mér, Dmitri Tziga- nov, var einn af þessum allra fræg- ustu. Hann frumflutti t.d. mörg verk eftir Prokofíev og Shosta- kovítsj og sá síðarnefndi samdi kvartett nr. 12 sérstaklega fyrir Tziganov. Rússunum í Tours þótti mikið til koma að ég léki á svona gersemi!" Tónleikarnir í Stykkishólmi heijast klukkan 17 á morgun, laugardaginn 15. ágúst. Þeir seinni verða sunnudaginn 23. ágúst í kirkjunni í Hveragerði og hefjast á sama tíma. Undirleik annast Peter Máté, píanóleikari frá Tékklandi sem kennir um þess- ar mundir við Tónlistarskólann í Reykjavfk.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.