Morgunblaðið - 14.08.1998, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 14.08.1998, Qupperneq 26
26 FÖSTUDAGUR 14. ÁGÚST 1998 MORGUNBLAÐIÐ LISTIR Hvunndagur og karaoke í landi hinnar rísandi sólar Jónas Hallgrímsson sýnir þessa dagana ljósmyndir frá Japan í Galleríi Geysi. Geir Svansson fór á sýninguna og ræddi við ferðalanginn. Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson JÓNAS Hallgrímsson, ljósmyndari. JÓNAS Hallgrímsson var lengi búinn að ganga með það í maganum að fara til Japans. Ekki dró úr lönguninni þegar hann kynntíst tveimur japönskum stúlkum í London, þeim Utako Miyamoto og Hitomi Terashi, sem vildu ólmar fá hann í heim- sókn. „Þegar svo Britísh Airwa- ys bauð farið á 35 þúsund krón- ur íslenskar, fram og tílbaka, frá London, ákvað ég að slá tvær flugur í einu höggi; heim- sækja vinkonur mínar og láta gamlan draum rætast.“ Jónas er 26 ára gamall ljós- myndari. I júlí síðastliðnum lauk hann þriggja ára námi í ljósmyndun í Englandi. Þar af var hann eitt ár i Bournemouth en tvö í Redding. Hann vinnur fyrir sér með skrifstofuvinnu, hjá Olíufélaginu Esso, en tekur að sér ljósmyndaverkefni þar fyrir utan. „Ég er frekar rólegur í þessu,“ segir Jónas aðspurður um framtíðaráætlanir í ljós- myndun. „Ég tek að mér tíl- fallandi verkefni en treystí mér ekki tíl að fara út í þetta í fullri atvinnumennsku enn sem komið er. En auðvitað er maður í þessu í öllum frístundum.“ Þessa stundina er hann t.d. að vinna að tveimur plötuumslögum, öðru fyrir vin sinn, Lárus Sigurðsson gítarleikara og hitt fyrir Onnu Halldórsdóttur söngkonu. Japanir gestrisnir Ferð Jónasar tíl Japans varði tíu daga. Hann dvaldi mest í litlu þorpi skammt frá Tókýó sem heitír Shizu en skoðaði sig um í stórborginni og í Chiba og Yotzikaido sem eru nálægir bæ- ir. Jónasi fannst stórborgin til- komumikil en jafnframt heldur yfirþyrmandi; hann kunni betur við sig í friðsældinni í Shizu. „íbúar í Tókýó eru um 12 millj- ónir en virka daga er sagt að nærri 20 milljónir manna séu í borginni!“ I Shizu gisti hann hjá öldungi einum sem var að læra ensku upp á eigin spýtur. „Það er miklu persónulegra að búa í heimahúsum en á hótelum.“ Tjáskiptí gengu þokkalega vel fyrir sig. „Japanir eru ekki van- ir Evrópubúum en þeir eru greiðviknir og fúsir til að veita manni aðstoð. Það gekk ágæt- lega að bjarga sér þótt maður kunni ekki stakt orð í japönsku og gætí ekki lesið á öll umferð- arskiltín og götumerkingar. Þetta reddaðist allt einhvern veginn.“ Ljósmyndir Jónasar eru lát- lausar og óformlegar. Margar þeirra sýna hversdagslegt líf í stórborginni og sjónarhorn ferðalangsins á það. „Ég ákvað að nálgast þetta verkefni eins og venjulegur ferðamaður. Hafði eina 35mm vél meðferðis. Hélt þessu eins einföldu og hægt er. Var ekkert að flækja málin.“ Sýningin sjálf endur- speglar þessi óformlegheit; myndirnar eru órammaðar og festar á vegg með teiknibólum. Hógværðin sem einkennir sýninguna er Jónasi greinilega eðlislæg. „Það er svo sem ekk- ert mikið um þessar myndir að segja. Þær eru einfaldlega nokkurs konar heimild um ferðalag mitt. Það er allt og sumt.“ Karaoke af innlifun Á einni myndinni er önnur vinkona Jónasar að syngja kara- oke með fyrirmynd á sjónvarps- skjá. En eins og allir vita þá er þessi íþrótt uppruimin í Japan og nýtur þar mikilla vinsælda. Á Vesturlöndum er hún einkum stunduð á börum. Téð mynd er þó ekki tekin á bar: „Þessi stað- ur sem við fórum á, eða réttara sagj;, sem þær drógu mig á, var ekki beint bar. Þarna var nokk- urs konar anddyri og afgreiðsla fyrir um tíu sérherbergi, hvert um sig hljóðeinangrað, með einni svona karaoke-græju, sjón- varpi og tílheyrandi. Þessi herbergi getur maður leigt í hálftíma eða lengur und- ir einkatima í karaoke. Þarna inni eru hægindastólar og mað- ur getur pantað sér veitingar. Við vorum bara þijú þarna inni. Vinkonur mínar sungu báðar af innlifuu og ég söng tílneyddur eitt lag. Það er víst móðgun að segja nei. Og eins gott fyrir við- skiptamenn á ferð að gera sér það ljóst. En einnig því að það er ekki til siðs að syngja betur en gestgjafínn, einkum ef hann er háttsettur.“ Jónasi þótti uppákoman skemmtileg og skringileg en var jafnframt feginn. „Ég vissi að það stæði til að draga mig á karaoke-stað og hafði kviðið því að þurfa syngja fyrir framan fullan bar af fólki. Ég er ekki mikill söngmaður.“ Sýning Jónasar í Galleríi Geysi, Hinu húsinu, Aðalstrætí 2, stendur yfir fram til 23. ágúst og er opin alla daga vikunnar. „Ágúst- þrenna“ „ÁGÚSTÞRENNA“ í Lista- safni Amesinga verður opnuð laugardaginn 15. ágúst kl. 15 og stendur til 30. ágúst. Þar mætast myndlistarmennirnir Þorbjörg Höskuldsdóttir, Det- el Aurand og Luigino Valent- in. Þorbjörg Höskuldsdóttir er fædd árið 1939. Hún nam við Myndlistarskóla Reykjavíkur og Listaakademíuna í Kaup- mannahöfn. Þorbjörg hefur haldið 13 einkasýningar til þessa og tekið þátt í fjölda samsýninga hérlendis og er- lendis. Verk eftir hana eru í eigu helstu safna landsins. Auk þess sýnir hún mynd- skreytingar, sem gerðar voru fyrir nýútkomna bók: Erotic Iceland. Berlín og Bandaríkin Detel Aurand er fædd árið 1958. Hún ólst upp í Berlín undir áhrifum ömmu sinnar, sem var málari. Eftir nám í stjómmálafræðum við Berlín- arháskóla sneri Detel sér al- farið að málverkinu árið 1983. Síðan þá hefur hún sýnt verk sín í Sviss, Bandaríkjunum, Þýskalandi og á Islandi og jafnframt haldið námskeið. Málverldn, sem öll em frá þessu sumri, em án titils og leggur listakonan áherslu á mikilvægi þess að „upplifa“ verkin án orða. Luigino Valentin er fæddur í Haag árið 1964. Hann ólst upp í Bandaríkjunum og lærði við School of Visual Arts í New York, þar sem hann býr nú og hefur sýnt verk sín ým- ist einn eða með öðmm. I verkum sínum lýsir Luigino fólki eða einföldum hlutum, sem fyrir augu ber og veltir íyrir sér samhengi þeirra við umhverfið. Opið kl. 14-17 nema mánu- daga á sýningartímanum. MYND af sýningunni í Fiskinum. Mynd af bíl Húberts Nóa myndlistarmanns en titillinn er: Húbert Nói - R 3551. MYND af heimili Atla Heimis Sveinssonar. Titill myndar er: Atli Heimir Sveinsson. Holtsgata hátt (hljóðbært). Stjörnur miðbæjarins kortlagðar ÞORVALDUR Þorsteinsson myndlistarmaður og Jóní Jóns- dóttir myndlistarmaður opna samstarfssýningu í Galleríinu Fiskinum við Skólavörðustíg á morgun, laugardag, klukkan 16. Um sljörnuopnun svokall- aða er að ræða enda er hér sljömusýning á ferðinni að sögn Þorvaldar Þorsteinsson- ar. „Við höfum fengið alís- lenska stjörnu til að koma og vera við opnunina og hún mun leggja hendur sínar í blauta steypu og það verður vonandi aðeins byijunin á að breyta Skólavörðustíg í hið íslenska Hollywood Boulevard," sagði Þorvaldur en hann og Jóní hafa unnið stjörnugötukort fyrir 101 svæðið í Reykjavík, miðbæinn, þar sem sést hvar allt „fræga“ fólkið býr. Einnig eru á kortinu, sem framleitt er af fyrirtækinu Innan handar, upplýsingar um hvað fræga fólkið borðar, hvar það kaupir fötin sín og hvar það skemmtir sér, að sögn Þorvaldar. Þorvaldur sagði sýninguna upphafið á óhjákvæmilegri þróun. Nú væri 101 svæðið tekið fyrir en í framhaldi yrðu önnur svæði hugsanlega tekin fyrir með sama hætti og fræga fólkið kortlagt. Heimildir um yfír 40 íslensk- ar sljörnur verða á sýningunni. „Það verða örugglega margir sárir að komast ekki með í úr- takið en þetta er bara fyrsta út- gáfa. Menn geta komist á kortið seinna,“ sagði Þorvaldur Þor- steinsson og sagði þau Jóní væru þreytt en ánægð nú þegar verkefnið væri komið í höfn. „Það er ekkert áhlaupaverk að afla upplýsinga um íslenskar sljörnur. Leyndin og öryggis- gæslan er slík.“

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.