Morgunblaðið - 14.08.1998, Qupperneq 39

Morgunblaðið - 14.08.1998, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR FÖSTUDAGUR 14. ÁGÚST 1998 39 sama frá öðrum. Oft var erfitt að standa undir „nafni“ ömmunnar, og má kannski segja að þar hafi á köfl- um skrattinn hitt fyrir ömmu sína (eða öfugt). Því miður vorum við ekki alltaf sáttar hvor við aðra, en væntumþykja beggja til hvor annar- arr var óumdeilanleg. Elsku amma mín, ég veit þér þóttu „hálf hallærislegar" minningargrein- ar dagblaðanna, ritaðar í bréfsformi til hinna látnu. Ég ætla nú samt að taka „sénsinn“ á að þú getir gluggað í Moggann í hinu framandi landi sól- arinnar. Takk fyrh- allt sem við bröll- uðum saman í gegnum tíðina, þær stundir munu seint gleymast. Lífið eins og Ijóð eða saga, ljóð um nætur og daga, allt sem kemur og fer, liðinn tími og minningar sem sækja á mig, sérhver mynd sem fylgir mér. Allar hugans uppsprettuhndir okkar fortíðarmyndir birtasthéreðaþar, æsku draumar og augnablik sem enginn fær breytt, allt það líf sem áður var. Ævin styttist okkur finnst semárinlíðihraðar. í eldi tímans mun allt það brenna sem áður var til staðar. Nóttin full af stjömum sem stara stund sem verður að fara eins og draumfagurt lag. Tíminn líður og nóttin verður minningin ein, sóhn vekur nýjan dag. Ljúfar stundir, hðin tíð og líf sem allir sakna. Við pjótum lífsins þegar nætur hða ognýirdagarvakna. (Pýð. Kristján Hreinsson.) Marta Jörgensen. Elsku amma mín, það er sárt til þess að hugsa að þú sért búin að kveðja þetta líf. Við vorum alltaf miklar vinkonur og komst þú heim á Bakkafjörð á hverju ári meðan þú hafðir heilsu til. Spilastokkurinn heillaði okkur mjög og eyddum við Ávallt var mjög ánægjulegt að koma í Gnoðarvoginn og heimsækja Geira og Pöllu. Heimili þeirra var smekklegt og gestrisnin eins og best verður á kosið. Á stórafmælum kom sér vel að íbúðin er stór. Þá var venslafólki og vinum boðið til mikill- ar veislu. Eins og gefur að skilja mæddi undirbúningurinn mest á húsmóðurinni og sameiginlega kunnu hjónin að taka á móti gestum. Síðasta stórafmæli húsmóðurinnar féll í skugga þungbærra veikinda. Oddgeir var leigubílstjóri og vann oft langan vinnudag. Það kom því mest í hlut Pálínu að annast dagleg umsvif, koma börnum í skólann, gera innkaup, annast matreiðslu, þvotta, hreinlæti og margt fleira sem of langt yrði upp að telja. Húsmóðirin var dugleg og ósér- hlífin og öll þessi störf leysti hún af hendi með mikilli prýði. Þá vil ég ekki láta hjá líða að geta þess að Pálína var mikil blómarækt- unarkona. Hún átti dálítið gróðurhús í garðinum á bak við íbúðarhúsið. Þar undi hún löngum stundum, hlúði að og annaðist blómin sín af mikilli kostgæfni. Það var gaman að koma og skoða þessa undurfógru blóma- paradís. Stundum gaf blómadrottn- ingin gestum sínum að skilnaði rauða rós eða annað skrautblóm. Pálína var mjög félagslynd og átti gott með að umgangast fólk. Um árabil var hún í stjóm Kvenfélags bifreiðastjórafélagsins Hreyfils. Konurnar í stjórninni og fleiri unnu mikil sjálfboðaliðastörf, undirbjuggu og héldu m.a. basara og skemmtanir í fjáröflunarskyni fyrir góðgerðar- starfsemi. Hjónin voru samhent í hvívetna. Þeim þótti gaman að fara út öðru hvoru og skemmta sér. Þau höfðu bæði farið á dansskóla og þótti sér- staklega gaman að dansa. Ferðalög voru líka þeirra yndi. Á yngri árum fórum við hjónin og Geiri og Palla stundum saman í veiðiferðir. Þá slógum við niður tjöldum við eitt- hvert fjallavatn og veiddum grimmt urriða og bleikju. Þetta voru dýr- heilu dögunum í að spila og kenndir þú mér mörg spil og sagðir mér sög- ur frá því þegar þú varst ung í Garðakoti. Við gátum gert margt skemmtilegt þegar ég var í 10. bekk í Reykjavík, því að þá var svo stutt á milli okkar og fórum við oft um alla borgina til að spila félagsvist og munaði þig ekkert um þetta ferðalag okkar, því þú varst svo dugleg. Við skrifuðumst alltaf á, þú varst í Reykjavík og ég á Bakkafirði og var alltaf eins og þessi litlu bréf mín gleddu hjarta þitt meira en allt ann- að. Vel orðuð bréf sendir þú mér tíl baka og þegar þú fórst úr landi fékk ég falleg póstkort frá þér, en þú hafð- ir yndi af því að vera á ferðalögum og vera í útlöndum og njóta sólarinnar. Heilagi faðir lýs þú mér. Svo ljós þitt megi lýsa mér. Um myrkvaða dali ogþröngavegi. Trú mín á þér hún bresti eigi. Umjarðarvegu myrkrið er. Enhjartamitt éggeymiíþér. Rata ég svo með Ijós þitt hér og bið þig Guð faðir að hjálpa mér. Heimili þitt var stórglæsilegt og ekki vantaði dugnaðinn hjá þér, handavinnan þín var falleg og allt svo nákvæmlega unnið, eins og Ála- fosspeysurnar sem þú prjónaðir í mörg ár. Þú varst hrein og bein í tali og mjög tilfinningarík. Þú baðst mig að koma til þín þegar ég talaði við þig í síma, nokkrum dögum áður en þú yf- irgafst þetta líf, það var eins og þú vissir að þinn tími væri kominn. Ég kveð þig amma mín, megi Guð og englarnir vera með þér í sælu- reitnum þínum. Elsku amma Steina og fjölskylda, Guð veiti ykkur styrk. Sólveig Helga Ákadóttir. legar ferðir sem ekki gleymast. Hjónin ferðuðust einnig talsvert erlendis. Sólarlandaferðir fóru þau margar. Skemmtilegt ævintýri að bregða sér á nýjar slóðir og njóta skemmtana á suðrænum sólar- ströndum. Nú hefur Pálína lagt upp í hinstu ferðina til ókunna landsins handan móðunnar miklu. Ný fegurð birtist og henni mun vissulega verða fagnað og tekið opnum örmum. Að leiðarlokum er margs að minn- ast og margt að þakka. Við Heiða sendum Oddgeiri, Sigurði, Valdísi, Einari, Rúnari og fjölskyldum þeirra hugheilar samúðarkveðjur. Megi al- góður guð styðja ykkur og styrkja. Minningin lifir um góða og ástríka eiginkonu, móður og ömmu. Guð blessi ykkur öU. Ármann Kr. Einarsson. Elsku amma. í fáeinum orðum langar okkur systkinin til að minnast þín. Margar góðar minningar rifjast upp í huga okkar og geymum við þær í hjörtum okkar. Hugrekki og bjartsýni í langvarandi veikindum þínum var þinn helsti styrkur. Pú komst í hlaðið á hvítum hesti. Pú komst með vor í augum þér. Eg söng og fagnaói góðum gesti og gaf þér hjartað í bijósti mér. Þó h'ði dagar og líði nætur, má lengi rekja gömul spor. Pó kuldinn næði um daladætur, þá dreymir allar um sól og vor. (DavíðStef.) Amma, við biðjum Guð að blessa þig- Þín bamabörn Guðrún Pálína, Ása Sigurbjörg, Kristjana Dröfn og Steinar Hreinn. • Fleiri minningargreinar um Pálinu Sigurðardóttur bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. + Ásgrímur Pét- ursson Lúðvíks- son húsgagnabólstr- ari fæddist í Reykjavík 2. nóv- ember 1916. Hann lést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur 6. ágúst síðastliðinn. Foreldrar hans voru Lúðvík Hjálm- ar Ásgrímsson, pípulagningameist- ari, járnsmiður og vélstjóri, f. 29.1. 1893, d. 20.6. 1970, og Guðrún Eiríks- dóttir, f. 20.9. 1885, d. 9.8. 1960. Ásgrímur átti tvær alsystur, Guðrúnu, f. 9.12. 1918, d. 7.4. 1933, og Ragnheiði, f. 9.4. 1923, d. 16.11. 1927. Hálfsystkini Ás- gríms sammæðra voru Sveinn Sveinsson, f. 13.6. 1907, d. 17.12. 1942, og Margrét G. Sveinsdóttir, f. 23.1. 1912, d. 5.7. 1994. Hálfbróðir Ásgríms samfeðra er Lúðvík Lúðvíksson, f. 29.9.1938. Hinn 25. maí 1940 kvæntist Ásgrímur eftirlifandi eigin- konu sinni, Þórunni Egilsdótt- ur, f. 12.8. 1912. Foreldrar hennar voru Egill Þórðarson, skipstjóri frá Ráðagerði, f. Mig langar til þess að minnast Ásgríms Lúðvíkssonar, vinar míns og samstarfsmanns til margra ára. Leiðir okkar lágu saman í starfs- greinum okkar. Hann var mikill og góður fagmaður og áttum við góð viðskipti hér áður fyrr. Traustur var hann á því sviði og aldrei voru gerðir neinir skriflegir samningar í þeim efnum. Þess þurfti ekki með, því orð stóðu. Við vorum samstarfs- menn hjá Landssambandi iðnaðar- manna. Hvor fyrir sína iðngrein. Hann var ákveðinn í skoðunum og hikaði ekki við að setja þær fram þótt hann vissi að þær væru ekki allra. Einnig var hann fús til þess að virða skoðanir manna og taka tillit til þeirra. Ásgrímur tók gjaman málstað fámennari iðngreina og vildi að þær fengju góða afgreiðslu á sínum málum. Ég þakka Ásgrími samfylgdina og votta aðstandendum hans samúð mína. Einnig sendi ég kveðjur frá starfsmönnum Húsgagna Co. Karl Maack. í dag kveðjum við bólstrarar heiðursfélaga Meistarafélags bólstrara, Ásgrím P. Lúðvíksson, í senn með söknuði og einnig mikilli virðingu. Nafn Ásgríms heitins og saga bólstrunar á íslandi eru svo samofin að fullyrða má að enginn annar aðili hafi haft eins mikil áhrif á iðngreinina og hann. Sem dæmi um það má geta þess, að Meistara- félag húsgagnabólstrara var aðeins fjögurra ára þegar Ásgrímur hóf sitt nám í húsgagnabólstrun, en þá hafði sú iðngrein ekki enn hlotið það nafn og nefndist húsgagnasmíði. Ásgrímur hóf nám í húsgagna- bólstrun árið 1932 hjá dönskum bólstrarameistara, Moller, sem rak verkstæði á Skólabrú, en lauk því 1937 hjá Konráð Gíslasyni, einn af þeim allra fyrstu sem tóku sveins- próf í húsgagnabólstrun á íslandi. Árið 1940 fékk Ásgrímur meist- arabréf og sama ár hóf hann eigin rekstur, Bólstrun Ásgríms, þar til hann lét reksturinn í hendur sonar síns, Egils, árið 1988. Frá árinu 1952 var verkstæði hans á Bergstaða- stræti 2, en áður á nokkrum stöðum á sömu slóðum í miðbæ Reykjavík- ur. Hjá Ásgrími útskrifuðust um tugur sveina í húsgagnabólstrun, þeirra á meðal tveir synir hans. , Þau eru því ófá húsgögnin sem Ásgrímur hefur farið höndum um síðastliðna sex áratugi og bera þau snilldarhandbragði hans fagurt vitni, enda hann í hópi þeirra bólstr- 3.11. 1886, d. 6.1. 1921, og Jóhanna Halldóra Lárus- dóttir frá Gerðu- bergi í Eyjahreppi í Hnappadalssýslu, f. 9.12. 1886, d. 21.12. 1962. Börn Ásgríms og Þórunnar eru: 1) Egill, bólstrara- meistari, f. 1.4. 1943, kvæntur Sig- ríði Lúthersdóttur og eiga þau tvö börn. 2) Ragnheið- ur Margrét, kenn- ari, f. 12.3. 1946, gift Guðbjarti Sigfússyni verk- fræðingi og eiga þau þrjú böm. 3) Ásgrímur Þór, bólstrara- meistari og verslunarmaður, f. 22.11. 1948, kvæntur Mörtu Kristínu Sigmarsdóttur kenn- ara og eiga þau þrjú börn, auk þess sem Ásgrímur átti son fyr- ir. 4) Jóhann Gunnar, viðskipta- fræðingur, f. 2.6. 1952, kvænt- ur Herdísi Alfreðsdóttur hjúkr- unarfræðingi og eiga þau tvö börn, auk þess sem Jóhann Gunnar á tvö böm af fyrra lijónabandi. Útfor Ásgríms fer fram frá Dómkirkjunni i dag og hefst at- höfnin klukkan 13.30. ara sem staðið hafa fremst í fag- mennsku hér á landi. Sem dæmi um það má nefna, að árið 1961 var hann, ásamt Friðriki Þorsteinssyni húsgagnasmíðameistara, sæmdur gullmedalíu á Der Deutsche Hand- werksmesse, sem veitt var af for- seta Bæjaralands, Ludwig Erhard, fyrir framúrskarandi handverks- verk. Félags- og hagsmunamál bólstr- ara lét Ásgrímur sér annt um, fyrst sem lærlingur og sveinn, en síðar svo um munaði fyrir Meistarafélag húsgagnabólstrara. Það yrði æði langt mál að telja upp öll þau störf sem hann vann fyrir samtök bólstr- ara á sinni löngu starfsævi. Fyrst og fremst má þó nefna að hann var formaður Meistarafélagins í 23 ár, frá 1952-1975, lengur en nokkur annar, prófnefndarmaður áratugum saman og formaður prófnefndar lengi, í samninganefndum fyrir meistara og í stjóm Landssam- bands iðnaðai-manna í um 30 ár. Ýmislegt er þó ótalið í þessu sam- bandi og sem þakklætisvott fyrir fómfysi sína var Ásgrímur gerður að heiðursfélaga Meistarafélags húsgagnabólstrara árið 1993 og sæmdur gullmerki Landssambands iðnaðarmanna árið 1982. Sl. vor hélt Meistarafélagið kaffi- samsæti í tilefni af því að 70 ár vom liðin frá stofnun þess. Þar heiðraði Ásgrímur P. Lúðvíksson, ásamt hin- um tveimur heiðursfélögum Meist- arafélagsins, okkur aðra félags- menn með nærveru sinni. Það er Ijúf endurminning að rifja þá kvöld- stund upp, þar sem Ásgrímur rifjaði upp ýmislegt frá fyrri dögum, en jafnframt sorglegt að hugsa til alls þess fróðleiks sem þessi gamli for- ingi okkar bólstrara bjó yfir um sögu bólstrunar á íslandi og hverf- ur nú með honum. Eitt mun þó ekki gleymast, þótt höfðinginn Ásgrímur P. Lúðvíksson sé genginn á vit for- feðra sinna. Það er minningin um stóran mann, bæði í eiginlegri og óeiginlegri merkingu þess orðs, mann sem samferðamenn hans báru mikla virðingu fyrir og sem svo sannarlega hefur markað spor sín í iðnsögu Islendinga. Við bólstrarar höfum misst mikið, en meiri er missir ástvina hans og þeim sendir Meistarafélag bólstrara hugheilar samúðarkveðjur. Blessuð sé minning Ásgríms P. Lúðvíksson- ar. Stjórn Meistarafélags bólstrara. Til að fylgja sinni sannfæringu í hvívetna þarf bæði kjark og þor, en ÁSGRÍMUR LÚÐVÍKSSON það er ekki nóg til að árangur náist. Þá þarf líka dugnað og eljusemi í ríkum mæli. Alla þessa kosti hafði Ásgrímur til að bera. Hann var einn af þessum menntuðu iðnaðarmönn- um sem lagði metnað sinn í vönduð vinnubrögð, hjá honum var það næst besta einfaldlega ekki nógu gott. Við Ásgrímur kynntumst þó fyrst og fremst vegna starfa okkar fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Störf fyr- ir stjómmálaflokka færir mönnum bæði sigra og ósigra, í báðum til- fellum var Asgrímur hinn trausti félagi sem alltaf var gott að leita til. Við störfuðum saman í Fulltrúaráði sjálfstæðisfélaganna og Hverfafé- lagi Hlíða- og Holtahverfis í mörg ár. Þetta voru umbrotatímar, sam- starfsörðugleikar í æðstu stjórn flokksins svo mikið reyndi á félags- einingar flokksins og oft var erfitt að halda þeim saman. I þessum um- brotum voru skoðanir oft skiptar í stjóm Fulltrúaráðsins sem eðlilegt var. Ásgrímur tók snemma þá af- stöðu að Fulltrúaráð sjálfstæðisfé- laganna í Reykjavík væri megin stoð flokksins og þau samtök mættu alls ekki klofna á hverju sem dyndi. Þessari stefnu tókst að framfylgja og hefur það vafalítið bjargað flokknum frá varanlegum klofningi. Ég minnist þeirra stunda þegar við Ásgrímur hittumst á fundum og ræddum málin. Flokksbundnir menn hafa sætt miklu aðkasti á síð- ustu áram, þeir em afgreiddir í hin- um „frjálsu" fjölmiðlum sem þrælar og þöngulhausar. Mönnum þar á bæ virðist fyrirmunað að skilja hvaða þýðingu það hefur fyrir þjóðina að velja hæfa menn til forystu í stjóm- málaflokkunum hennar og marka þeim stefnu. Þeir skilja heldur ekki hvaða félagsmálaskóli það er að starfa innan jafn sterkra og fjöl- mennra stjómmálasamtaka og Sjálfstæðisflokkurinn er. • Allt þetta skildi Ásgrímur vel, hann skildi nauðsyn þess að starfa saman og komast að sameiginlegri niðurstöðu jafnframt því sem hann var gamansamur og gat oft lyft um- ræðunum upp á léttara stig þegar mest lá við. Ég votta fjölskyldu Ásgríms og ættingjum öllum innilega samúð. Hans minning mun lifa. Jónas Elíasson. Kveðja frá Lions- klúbbnum Þór í dag kveðjum við Lionsmenn í Þór góðan félaga og vin, Ásgrím P. Lúðvíksson. Hann gekk í klúbbinn í október 1975. Við fundum það fljótt að þar var kominn góður liðsmaður með mikinn félagsþroska enda bú- inn að starfa að félagsmálefnum iðnaðarins um margra ára skeið. Ásgrímur var kjörinn varafor- maður Lionsklúbbsins Þórs tímabil- ið 1980-81 og þurfti þá með skömm- um fyrirvara að taka við stjóm klúbbsins þar sem formaðurinn for- fallaðist. Hann var síðan kosinn for- maður næsta tímabil á eftir og gegndi því formennsku í hálft annað ár samfleytt. Ásgrímur stýrði fund- um af röggsemi og festu hins þroskaða félagsmanns. Alla tíð með- an heilsan leyfði tók hann virkan þátt í félagsstarfinu, sat í mörgum nefndum, oft sem formaður. Vegna heilsuleysis fækkaði kom- um Asgríms á fundi hjá okkur síð- ustu ár. Þá var hans saknað og reyndu nokkrir félagar að auðvelda honum fundarsókn með því að sækja hann og aka honum heim af fundum. Ásgrímur var léttur og ræðinn, margfróður og fróðleiksfús. Hann tók því oft virkan þátt í umræðum þegar utanaðkomandi menn héldu erindi á fundunum. Við Þórsfélagar höfum undanfar- ið þurft að horfa á eftir nokkmm okkar elstu félögum yfir móðuna miklu. Nú er Ásgrímur, sem var aldursforseti Þórs til margra ára, fallinn. Við kveðjum þessa félaga með söknuði. Við sendum eiginkonu Ásgríms og öðmm aðstandendum okkar innilegustu samúðarkveðjur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.