Morgunblaðið - 14.08.1998, Side 47
MORGUNBLAÐIÐ
BREF TIL BLAÐSINS
FÖSTUDAGUR 14. ÁGÚST 1998 47
Sagan um
Bing Dao II
Frá Hilmari Þór Guðmundssyni:
ÞESSI fáu orð sem á eftir koma eru
til að fyrirbyggja allan misskilning
eiganda Bing Dao. í bréfi mínu sem
stílað var á Bing Dao sagði ég mis-
góða hluti, þeir standa allir. Ekki
ætla ég að draga eitt aukatekið orð
til baka en þai sem eigandi Bing
Dao, Kristján Sverrisson, hefur
fundið sig knúinn til að hringja í
mig heim og kalla mig „uppa“, „yfír
alla hafinn" og „ómerkilegan" þá vil
ég að eftirfarandi komi fram:
Eigandi Bing Dao hringdi í mig
og sagðist vera leiður yfir því sem
hafði gerst, hann bauð endur-
greiðslu og fría máltíð. Þetta gerði
hann sama morgun og greinin „Sag-
an af Bing Dao“ birtist. Fannst mér
þetta höfðinglegt af eigandanum og
taldi ég að gagnrýni okkar hefði
komið til góða og að það ætti að fyr-
irbyggja svona leiðindi í framtíð-
inni.
Ég var glaður og tók orðum hans
sem orðum góðs rekstraraðila, sem
vill gera vel við þann sem er ekki
ánægður. En ekki var Adam lengi í
Paradís. Eftir mótskrif eigandans í
Morgunblaðinu (sem ég las af
áhuga) þá sá ég að hér var kýrin að
verja kálf sinn. Auðvitað er það ekki
jákvætt að fá slík ummæli í blaðinu
en hver sá sem væri í okkar sporum
hefði gert slíkt hið sama. Eigandi
Bing Dao sagði við mig í símtali
sem hann átti við mig að hann hefði
Frá Guðrúnu Maríu Óskarsdóttur:
Stofnun Auðlindasjóðs
landsmanna
SJÓÐUR þessi yrði ekki sjóður
peninga í eiginlegum skilningi, held-
ur sjóður atvinnutækifæra lands-
manna í formi hins margnefnda
„kvóta“ í aðalatvinnugreinum þjóð-
arinnar, landbúnaði og sjávarútvegi,
atvinnugreinum er hvor um sig
byggist á lífríki jarðar. Eðli málsins
samkvæmt er afkoma mannsins því
háð skilyrðum þeim er maðurinn
hefur skapað, til nýtingar þeirra
auðlinda er sá hinn sami hefur yfir
að ráða.
Ákveðið hlutfall af veiddum afla úr
sjó, t.d. 10% á ári, myndu nytjaaðilar
í sjávarútvegi þurfa að greiða til
baka í sjóð þennan, í formi aflaheim-
ilda, sem og ákveðið hlutfall af fram-
leiðslu lögbýla, t.d. 10% á ári myndu
greiðast til baka í sjóðinn 1 formi
greiðslumarks. Markmið sjóðsins
yrði fyrst og fremst að stýra nýtingu
auðlinda, með tilliti til umhverfis og
landfræðilegra sjónarmiða, með
áherslu á fulla þátttöku af Islands
hálfu hvað varðar alþjóðlegai’ sam-
þykktir og skuldbindingar um
vemdun umhverfisins. Jafnframt
yrði þetta leið út úr þeim ógöngum
er núverandi sjávarútvegs- og land-
búnaðarstefna hefur leitt okkur í.
Úthlutun úr sjóði þessum byggðist
síðan á úthlutun aflaheimilda og
geiðslumarks, til handa þeim er
hygðust snúa sér að lífrænni ræktun
landbúnaðarafurða og sjálfbærri
nýtingu sjávarafurða í sátt við um-
hverfið.
Island taki frumkvæði þjóða í
varðveislu auðlinda
Island hefur nú þegar sérstöðu,
hvað varðar legu landsins, fiskimiðin
og náttúruauðlindir í formi ómeng-
aðra orkugjafa. Þessa sérstöðu eig-
um við ekki að nota til þess að fá
undanþágu til þess að menga meira,
eins og virtist uppi á teningnum í
Kyoto, heldur eiga frumkvæði að því
að hefja á loft umhverfissjónarmið er
geta skapað öllu mannkyni betri skil-
yi'ði tilvistar á þessari jörð. Hver
heilvita maður gerh- sér grein fyrir
því, að endalaust verður ekki hægt
að ganga á auðlindir jarðai’ án þess
að lífríkið umbreytist til hins verra
fyrir okkur íbúana. Spyrja má, hve
talað við alla sem ég „rakkaði niður"
og þau ætluðu öll að ski’ifa í blaðið
og jafnvel hringja í mig. Ég ætlaði
ekki að rakka einn né neinn niður
og ef einhverjir taka persónulega til
sín það sem skrifað var þá er það al-
farið þeirra mál. Ég bað eigandann
vinsamlega ekki að dreifa símanúm-
eri mínu til þeirra sem eru ánægðir
með Bing Dao, sem eru án efa fjöl-
margir. En það breytir ekki að
neinu leyti því sem gerðist hjá mér
og vinum mínum þetta kvöld, sama
hvað oft er hringt í mig og hverjir
það eru. Án efa eru margir mjög
ánægðir með staðinn, sem er bara
besta mál, en ég er ekki í þeim hópi.
Ég er einn af þeim sem voru ekki
sáttir og fannst að þjónustan hefði
mátt vera mun betri. Ef ég hef
móðgað einhvern með skrifum mín-
um þá verður bara svo að vera. Ég
lýsti kvöldinu eins og ég og vinir
mínir upplifðu það. Drógum við
ekkert undan né bættum við. Tel ég
að kröftum eiganda Bing Dao séu
betur varið í að laga vandann en að
rífast og skammast við fyrrverandi
viðskiptavini í síma. Ef það telst
mikið af vorum daglegu þægindum
eru lífsnauðsynleg og hve mikill hluti
íbúa jarðar hefur enn ekki hugmynd
um þessi sömu þægindi. Meðan hluti
Islendinga hefur efni á því að kaupa
rándýr lyf, við kvillum öllum, vantar
hluta mannskyns lyf við hálsbólgu,
sem kann að vera dauðaorsök þeirra
hinna sömu þar í landi. Ódýi’ari og
betri lyf eru því forenda þróunar í
rétta átt. Þar kann ísland einnig að
taka frumkvæði í framtíðinni.
Hræðsla okkar Islendinga við að
skera okkur úr á einhvern hátt, end-
ui-varpar oftai’ en ekki minnimáttar-
kennd sem er óþörf hjá þjóð þar sem
hver maður kann að lesa og skrifa og
hefur þar með möguleika til frekari
menntunar. Aukin menntun á hins
vegar að skila okkur fleiri hæfileika-
ríkum einstaklingum, til þess að
leysa krefjandi verkefni, í stað þess
að skapa þau.
Forsenda þróunar er skynsam-
leg nýting auðlinda allra
Því miður virðist sem hin almenna
mannlega skynsemi fái ekki notið sín
sem skyldi lengur, vegna hinna
gegndarlausu gróðasjónai’miða, er
telja aðeins í stigum hlutabréfa á
verðbréfamörkuðum, einnig hér á Is-
landi. Lýðræði á góðri leið með að
verða mjög afstætt hugtak. Einn
gámur af íslenskri fegurð á síðum
Playboy, hvað mörg störf í gámum
til útlanda? Samkvæmt upplýsingum
Fiskifélagsins, hafa tapast 2.000
störf á árunum 1989-1995. Það er
hverjum manni ljóst að misviturleg-
ar ráðstafanii’ hafa fært nokkrum
mönnum ókeypis aðgang að fiskimið-
um landsmanna, með framsali veiði-
heimilda í formi kvóta, og samþykkt
vú’ðist vera af „framstæðum sjálfs-
sóknarmönnum“ en eins og það
brask varð til mun það ganga til
baka með söfnun veiðiheimilda í
Auðlindasjóð landsmanna, er myndi
útdeilast jafnt á meðal þegnanna til
atvinnu- og verðmætasköpunar.
Samtímis munu íslendingar gefa
þjóðum heims fordæmi um sjálfbæra
vitræna þróun í stað stöðnunar, með
heildai-yfii-sýn í skipulagi hagsmuna-
mála er varða ekki aðeins Islendinga
heldui' allt mannkyn er byggir þessa
jörð.
GUÐRÚN MARÍA
ÓSKARSDÓTTIR,
Eiðistorgi 3, Seltjarnarnesi.
fagmannlegt að hringja í fólk heim
til þess og hóta því að þessi og hinn
séu að fara að skrifa á móti því þá
er ég ekki sá fagmaður sem til þarf.
Kæri eigandi Bing Dao, þó að for-
setinn sjálfur skrifi á móti mér þá
breytir það ekki staðreyndum máls-
ins; óánægju okkar með kvöldið. En
eitt er víst að eitthvað hlýtur að
vera til í gagnrýni minni þar sem
eigandinn hringir í mig og vill rífast
um málið, með nafnaköllum og leið-
indum. Vona ég að það hafi hann
gert í bræði sinni og meini ekki það
sem hann sagði, því hvorki er ég
„uppi“ né „ómerkilegur“. Þrátt við
það sem eigandi Bing Dao hélt fram
við mig í einu símtali sínu þá standa
vinir mínir hundrað prósent að baki
mér og er ég, þrátt íyrir allt sem
hann heldur fram, ennþá vinsæll
meðal vina minna.
Já, og meðan ég man, okkur var
aldrei boðinn eftirréttur né kaffi því
án efa hefðum við þegið það. Okkur
var aldrei boðið reyklaust borð og
þegar við báðum um slíkt var okkur
tjáð að ekki væri um neitt slíkt að
velja. Við fengum aðalréttina á litl-
um diskum sem dugðu varla fyrir
tvo og þess vegna urðum við að fá
ábót á réttina, ekki vegna græðgi
eða gæða matarins, einfaldlega til
að fá bita á hvern disk.
Málinu er lokið af minni hálfu
enda vægir sá sem vitið hefur
meira. Ætla ég ekki að rífast um
þetta meir, hef ég sagt meiningu
mína og þar við situr. Gagnrýni sem
þessa mega eigendur og þjónustu-
fólk ekki taka sem persónulega árás
á sig heldur sem ábendingu um það
sem betur má fara. Ætla mætti að
eigendur veitingahúsa myndu sjá
sér hag í að hlusta á viðskiptavini
sína til að bæta ímynd og þjónustu
staðarins í stað þess að ráðast á óá-
nægða viðskiptavini og bera upp á
þá lygar og ósannindi. Tel ég að
veitingastaðurinn afli sér ekki fleiri
viðskiptavina með þess háttar „aug-
lýsingum". En ef þú, kæri Kristján,
hefur áhuga á að standa í frekari
rökræðum og skítkasti við fyrrver-
andi viðskiptavini geturðu mótmælt
gagnrýni Jónasar Kristjánssonar í
Fókus 7. ágúst sl. þar sem hann gaf
veitingahúsinu Bing Dao 0 stjörnur.
En mundu að lokum, Kristján
minn, það er sama þótt viðskipta-
vinur þinn sé „uppi“, „yfir alla haf-
inn“ eða „ómerkilegur“, hann hefur
samt alltaf rétt fyrir sér.
Kær kveðja.
HILMAR ÞÓR GUÐMUNDSSON,
Ijósmyndari.
- frábær föt fyrir flotta krakka
og enn höldum við áfram að bjóða frábær föt á góðu verði
Skólatiboð:
Vesti, 3 bolir og taska................2.990 kr.
Gallabuxur og peysa ..................2.490 kr.
Ungbarnatilboð:
Peysa og sokkar..........................990 kr.
Ungbarnagalli og samfella................990 kr.
Galli og parketsokkar....................690 kr.
í Hafnarfirði og Kirkjuvegi 10 í Vestmannaeyjum
Frumkvæði og
djörfung’ í stað
stöðnunar