Morgunblaðið - 14.08.1998, Blaðsíða 50
50 FÖSTUDAGUR 14. ÁGÚST 1998
MORGUNBLAÐIÐ
■k • iolso • popp iöngktkur
Bhct/Trottvr/McLfiod
Sýningar hefjast kl. 20.00. Ósóttar pontanir
í kvöld fös. 14. ágúst — lau. 15 ágúst, næst síðasta sýning.
Sýningar hefjast kl. 20.00.
Miðasala sfmi 551 1475.
Opin alla daga kl. 15-19. Símapantanir frá kl. 10 virka daga og frá kl. 13 um helgar.
SUMARTÓNLEIKARÖÐ
KAFFILEIKHÚSSINS
„Gullaldardjass og
Humarhátíð"
Djassdansleikur í anda stríðs-
áranna með Þóru G. Þórisdóttur
og hljómsveit
í kvöld 14/8 kl. 22.30, laus sæti
r Matseðill Humarhátíðar N
Hvítlauksrístaðir humarhalar í Camus-
koníakssósu bornir fram með fersku
salati og heimabökuðu brauði
_____Og: Ástleitinn eftirréttur._
Miðasala kl. 15 til 18 alla virka daga
Miðapantanir allan sóiarhringinn í síma
551 9055. Netfang: kaffileik@isholf.is
lau. 15/8 kl. 23 Örfá sæti laus
fim. 20/8 kl. 21 Örfá sæti laus
fös. 21/8 kl. 21.
Miðaverð kr. 1100 fyrir karla
kr. 1300 fyrir konur
Vöröufélagar Ll fá 30% afslátt
Sýnt í íslensku óperunni
Miöasölusími 551 1475
Gamanleikrit í leikstjórn
Sigurðar Sigurjónssonar
Miöaverö aöeins kr. 790,-
Innifalið í verði er: Miði á Hróa hött
Miði í Fjölskyldu -og Húsdýragarðinn
Fritt í öll tæki í garðinum
Hestur, geitur og kanínur eru í sýningunni
Sýningin fer fram í sirkustjaldi
Miðasala: 562 2570 * Nótt&Dagur
Söngleikja-leikritið í
Fjölskyldu -og Húsdýragarðinum
Fös. 14. ágúst kl. 14.30
Lau. 15. ágúst kl. 14.00 og 16
Sun. 16. ágúst kl. 14.00
ÞJOMN
f s ú p u n n i
íkvðld kl. 20 UPPSELT
lau. 15/8 kl. 20 UPPSELT
lau. 15/8 kl 23.30 aukasýn./midn.
sun. 16/8 kl. 20 örfá sæti laus
fim. 20/8 kl. 20 örfá sæti laus
fös. 21/8 kl. 20 UPPSELT
fös. 21/8 kl. 23.30 aukasýn./miðn.
sun. 23/8 ki. 20 örfá sæti laus
Mlðasala opln kl. 12-18
ósóttar pantanir seldar dagíega
Miðasölusími: 5 30 30 30
MYNDBOND
N ísnai d í vanda
Njósnarinn
(The Secred Agent)__________
Drama / njósiiasaga
★ ★'/2
Framleiðsla: Norma Heyman. Leik-
stjórn og handrit: Christopher
Hampton. Kvikmyndataka: Denis
Lenoir. Tónlist: Philip Class. Aðal-
hlutverk: Bob Hoskins, Patricia
Arquette. 91 mín. Bandarisk. Mynd-
form, ágúst 1998. Bönnuð börnum
yngri en 12 ára.
ADOLF Verloc (Bob Hoskins)
rekur vafasama verslun í Soho
hverfi Lundúna
við lok 19. aldar.
Hann á fagra
unga eiginkonu
og hjá þeim býr
þroskaheftur
bróðir hennar.
Mikil ástúð ríkir
milli systkin-
anna og Minnie
Verloc (Patricia
Arquette) er
ánægð með hversu vel fer á með
bróðumum og eiginmanninum
sem gerir allt til að halda henni
ánægðri. Verloc lifir hinsvegar
tvöföldu lífi, því hann er njósnari
fyrir rússnesku keisarastjómina,
sem borgar honum fyrir að hafa
auga með öfgasinnuðum anarkist-
um, sem hafa hlotið pólitískt hæli í
Englandi. Þegar nýr sendiherra
tekur við völdum neyðist njósnar-
inn til að breyta um starfssvið, því
hann verður að skipuleggja
sprengjutilræði.
Það er glæstur hópur sem
stendur á bak við „Njósnarann“.
Handritshöfundur og leikstjóri er
enginn annar en Christopher
Hampton, sem á að baki meistara-
verk á borð við „Dangerous Liai-
sons“ og „Carrington". Myndin er
byggð á skáldsögu Josephs Con-
rad, þess hins sama og skrifaði
„Heart of Darkness", söguna sem
meistaraverk Francis Ford
Coppola, „Apocalypse Now“, var
byggð á. Og þótt myndin sé vissu-
lega ágæt vantar mikið á að hún sé
það meistaraverk sem efni stæðu
til. Mikið er lagt í raunsæislega
sviðsmjmd og kvikmyndatakan er
einfaldlega stórkostleg. En þrátt
fyrir að stjörnumprýddur leikara-
hópurinn standi sig vel, vantar
neistann sem hefði getað keyrt
upp kraftinn í frásögninni. Ástríð-
ur og tilfinningar, sem era undir-
rót atburða, verða ekki nógu
áhugaverðar til að sagan gangi al-
mennilega upp. En umgjörðin er
sannarlega glæsileg og myndin
þess virði að sjá, þótt ekki væri
nema fyrir myndatökuna.
Guðmundur Ásgeirsson
NÝJASTA breiðskífa Lhooq er tek-
in til umfjöllunar í nýjasta hefti tón-
listartímaritsins Q og fær tvær
stjörnur og miðlungsdóma. í breska
tímaritinu FHM fær breiðskífan af-
bragðs dóma eða 4 stjörnur af 5
mögulegum.
„Áður en Sykurmolarnir komu til
sögunnar hefði tilhugsunin um
„trip-hop“-hIjómsveit frá Islandi að
hita upp fyrir David Bowie vakið
óstöðvandi hlátur,“ segir í FHM.
„Samt sem áður eru íslenskar
hljómsveitir teknar góðar og gildar
á sviði popptónlistar. LHOOQ með
hina ungu Söru Guðmundsdóttir í
fararbroddi hefur sent frá sér
svalandi fyrstu plötu í anda Portis-
Líf í
Lhooq
head og er hljómurinn nógu gríp-
andi til þess að útsendarar hljóm-
plötufyrirtækja geri sér ferð norður
á bóginn í leit að nýju uppgötvun-
um.“
I dómi Q segir: „Það er erfitt að
komast hjá samanburði við Björk:
Hin 19 ára Sara Guðmundsdóttir
deilir ættlandi og stundum, eins og í
Losing Hand og Missile, raddbeit-
ingu Sykurmolans fyrrverandi. Þar
með er það líka upptalið."
Ennfremur segir í dómnum að
hljómsveitin skapi „trip-hop“-
stemmningu af slíkri ákefð að tón-
listin verði jafnvel of draumkennd
og söngkonunni takist ekki að beisla
stemmninguna.
Engu að síður fær sveitin hrós
fyrir lögin More to Life og Bern og
klykkir gagnrýnandinn Anthony
Thornton út með orðunum: „En það
er John-Barry-í-diskói hljómur
Peeping Tom sem færir sönnur á að
það er líf í Lhooq.“
Sýning á matsölustað
Jerrys Seinfelds
AÐEINS brotabroti af þeim sem
sóttust eftir að komast á sviðs-
spaug Jerrys Seinfelds á Broad-
way tókst að verða sér úti um
miða. Hinir geta huggað sig við að
þeir geta heimsótt „Monk’s Cafe“,
þ.e. leikmyndina af matsölustaðn-
um sem gjarnan var sögusvið gam-
anþáttanna um Seinfeld.
Henni hefur verið komið fyrir á
Queens-safninu í New York. Þar
verður básinn þar sem Jerry ræddi
við George, Elaine og Kramer í
ófáum þáttum þau níu ár sem þeir
vora sýndir á NBC-sjónvarpsstöð-
inni. Einnig verður hægt að skoða
potta og pönnur, sinneps- og
tómatsósuflöskur og raslakörfur.
Þá verða búningar af leikurunum
til sýnis, m.a. póstburðarbúningur
Newmans.
Þótt safngestum standi ekki til
boða að tylla sér í básinn þar sem
Seinfeld var fastagestur í níu ár
rekur safnið kaffihús og þar verða
nokkrir réttir úr þáttunum á
boðstólum, m.a. svartar og hvítar
kökur, ávaxtadrykkir, Drake’s-
kökur með kaffibragði og Pez-sæl-
gæti.
FÖSTUDAGSMYNDIR SJONVARPSSTOÐVANNA
Stöð 2 ► 21.00 Sígaunar á írlandi
eru í brennidepli í I vesturátt (Into
the West, ‘93), vandamálamynd af
högum þessarar rótlausu þjóðar á
eyjunni grænu. Gabriel Byrne leikur
drykkfelldan föður tveggja drengja
sem lenda í hremmingum útaf gæð-
ingi sem afi þeirra gefur þeim. Þrátt
fyrir góðan mannskap; handritshöf-
undinn Jim Sheridan, leikkonuna El-
len Barkin og leikstjórann Mike
Newell, þá stafar engum töfraljóma
af þessari metnaðarfullu mynd.
Einna helst fyrir stálpaða krakka.
★★
Sýn ► 21.00 Brittaniu sjúkrahúsið
(Brittania Hospital, ‘82). Sjá umsögn
í ramma
Sjónvarpið ► 22.20 Fanny, (‘61), er
gerð eftir samnefndu leikriti Marcels
Pagnol um unga stúlku sem situr
uppi með lítið barn þegar faðirinn
stingur af til sjós. Myndin hlaut fjöl-
margar Óskarsverðlaunatilnefningar
á sínum tíma. Maltin gefur ★★★ og
segir gömlu sjarmörana Charles
Boyer og Maurice Chavalier gefa
myndinni lit. Með Leslie Caron.
Leikstjóri Joshua Logan.
Sýn ► 22.35 Sannur meistari (Saga
Ray Mancini - Heart of a Champion,
‘85). Sagan af fjaðurvigtarmeistaran-
um „Boom Boom“ Mancini. Fyrir að-
dáendur hinnar „göfugu sjálfs-
varnaríþróttar“ (eða hitt þó heldur).
Maltin gefur þessari sjónvarpsmynd
meðaleinkun.
Stöð 2 ► 22.45 Michael Collins,
(‘96) er íburðarmikil, málgefin mynd
um frægustu frelsishetju íra á þess-
ari öld. Liam Neeson fer þolanlega
með titilhlutverkið, en hann og
gæðaleikstjórinn Neil Jordan hafa
oftast gert betur. Það vantar sálina
og taugakerfið. Alan Rickman stend-
ur uppúr kunnum en tilþrifalitlum
aukaleikarahóp. ★★'/2
Stöð 2 ► 00.55 Apollo 13, (‘95).
Endursýning á marglofaðri úrvals-
mynd. ★★★★
Sýn ► 00.30 Af öðrum heimi (Not
Like Us, (95), mun vera vísinda-
skáldsöguleg spennumynd um yftr-
náttúruleg dauðsföll í amerískum
smábæ. Meðal leikenda er pólska
þokkadísin Joanna Pacula og viðund-
rið Paul Bartel. Frumsýning.
Stöð 2 ► 3.10 Höfuð uppúr vatni
Ho’det Over Vandet, ‘94). Þetta er
norska frumútgáfan, varist banda-
rísku eftirlíkinguna einsog heitan
eldinn. Gamall kærasti heilsar uppá
nýgifta konu á brúðkaupsferðalagi í
norska skerjagarðinum. Þokkaleg
meðalmynd. ★
Sæbjörn Valdimarsson
Spítalalíf
að hætti
Andersons
Sýn ► 21.00 Brittania-sjúkra-
húsið (Brittania Hospital),
★★★, er ein af grandvallar-
myndum breska leikstjórans
Lindsay Andersons, ásamt If...,
(‘69), 0, Lucky Man, (‘73) og
This Sporting Life, (‘63). Þeirra
síst, engu að síður forvitnileg,
sem öll önnur verk þessa sér-
stæða listamanns og furðufugls.
Myndin er skemmtileg satíra
sem segir af ótrúlegri ringulreið
er skapast á spítala þar sem eng-
inn á sjö dagana sæla þegar
drottningarmóðirin ætiar að
koma í heimsókn. Gerir ósvikið
grin að hinni bresku þjóðarsál og
stígur skrefið inní hið yfirnátt-
úrulega þegar Malcolm
McDowell lendir á skurðarborð-
inu. Auk hans fara Leonard
Rossiter, Joan Plowright (sem
drottningarmóðirin), Alan Bates
og Marsha Hunt með stór hlut-
verk. Villtur húmor, en varla fyr-
ir aila.***