Morgunblaðið - 14.08.1998, Page 54

Morgunblaðið - 14.08.1998, Page 54
54 FÖSTUDAGUR 14. ÁGÚST 1998 MORGUNB LAÐIÐ «r FÓLK í FRÉTTUM UTSOLULOK Á LAUGARDAG Hoems l aagar enir \ Enn meiri verðlækkun flllt að % afsl. kn:cxkr3 Mán.-fim. frá kl. 10-18 Fös. frá ki: 10-18.30 Lau. frá kl. 10-16 Langur laugardagur frá kl. 10-17 KNSCXK R3 0X Laugavegi 62, sími 5515444 Hugmyndafrelsi og léttleiki Hljómsveitin Mary Poppins sendi á dögun- um frá sér geisladiskinn Promo og hyggst þreifa fyrir sér á erlendum mörk- uðum. Rakel Þorbergsdóttir talaði við Gunnar Bjarna Ragnarsson, annan meðlim sveitarinnar. ARY Poppins hefur verið starfandi í tæpt ár og segja má að hún sé arftaki Jet Black Joe og Jets sem Gunnar Bjarni var í áður. Geislaplatan Promo er sú fyrsta sem Mary Poppins sendir frá sér en á henni er að fínna sex Iög, þar af eitt gamalt Jet Black Joe lag og lag Davids Byrne „Psycho Killer.“ „Ég fór fljótlega að leita að nýjum söngvara þegar Páll Rósinkrans ákvað að hætta í Jet Black Joe en það gekk mjög illa. Ég ákvað því að gera sólóplötu sem breytt- ist í það að verða hljómsveitin Jets. Hana skipuðu mennirnir sem nú eru hljómsveitin Vínyl en ég hætti því samstarfi og stofnaði Mary Poppins ásamt Snorra Snorrasyni söngvara. Hann er með mjög kraftmikla rödd og fyllti skarðið sem Palli hafði skilið eftir sig.“ Leiðir Gunnars Bjarna og Snorra lágu saman í gegnum sameiginlegan vin og samstarf þróaðist smám saman með þeim. Þeir félagar fá aðra tón- listarmenn til liðs við sig á plöt- unni og þegar þeir spila á tón- leikum en engir fastir menn hafa verið ráðnir í þau störf. „Ég myndi flokka tónlistina okkar sem popp ” frekar en rokk. Ég get sett ákveðið samasemmerki á milli Jet Black Joe og Mary Poppins. Ég samdi stóran hluta af því sem Jet Black Joe sendi frá sér og hef ekkert breytt tónlistar- stíl minum þótt ég prófí mig áfram með njj'a hluti. Ég er mjög ánægður með það sem ég hef verið að gera og við tökum til dæmis eitt Jet Black Joe lag á nýja disknum. Við erum alveg ófeimnir við það því góðar melódíur eru timalausar og ekki hægt að flokka þær undir tísku og strauma." Að sögn Gunnars Bjarna er markmiðið að reyna fyrir sér á erlendum mörkuðum og vísar nafn geislaplötunnar, Promo, í markmið hennar sem er að kynna tón- list Mary Poppins. „Þetta er byij- unin á því sem koma skal og við verðum tilbúnir með aðra plötu fyrir jól sem verður með helmingi fleiri lögum. Svo er- um við að vinna með fyrirtæk- inu Image Bank að margmiðl- unardiski sem inniheldur meðal annars sex myndbönd. Þar er- um við einnig að koma ímynd okkar á framfæri og boðið er — ______ Rokkarar í jákvæð- um skilningi „Þetta er byrjunin á því sem koma skal“ upp á aukalög sem ekki eru á plötunni. Sú tónlist fylgir ekki sömu popplínu og platan og fer meira út í þær tilraunir sem við höfum verið að gera saman og í hvor í sínu lagi.“ Gunnar Bjarni segir stefnuna ekki setta á neitt ákveðið land enda sé tónlistarheimurinn orð- inn svo lítill með tilkomu tækn- innar. Markaðurinn sé ekki lengur bundinn við lönd og poppið sé vinsælt hvar sem komið sé niður í heiminum. „Við höfum þann háttinn á að vera með marga umboðsmenn erlendis og ef þeir útvega okk- ur einhveija samninga eða störf fá þeir pró- sentur af þeim launum. Við erum því í raun ekki bundnir einum eða neinum og gefum öllum tækifæri til að koma tónlist okkar á framfæri.“ Nafn sveitarinnar er tilvísun í hina frægu söguhetju Mary Poppins sem flaug um á regn- hlíf með bros á vör. Þeir félag- ar ákváðu að hljómsveitin skyldi bera kvenmannsnafn og fannst Mary Poppins henta prýðilega. „Mary má túlka sem gleði og er oft notað í líkinga- máli. Poppins er náttúrlega popp auk þess sem kerlingin sjálf er innblástur. Hún flýgur um á regnhlíf og rennir sér öf- ugt um stiga sem sýnir ákveð- ið hugmyndafrelsi og létt- leika.“ Útlit Snorra og Gunnars Bjarna er rokkaralegt, báð- ir með sítt og veglegt hár, og því eðlilegt að spyija hvort þeir séu hinir dæmigerðu rokkarar. „Týpískur rokkari! Mér hefur fundist það HLJÓMSVEITIN Mary Popp- ins vinnur að margmiðlunar- diski þar sem ímynd sveitar- innar eru gerð góð skil. vera frekar neikvætt hugtak og yfírleitt er vísað í það þegar eitthvað hefur farið úrskeiðis, þá venjulega tengt eiturlyfjum og rugli. Við Snorri erum mjög ólíkir og hann er ábyrgur fjöl- skyldufaðir sem þarf að skipta um gír oft á dag. Ég myndi þá frekar segja að við værum rokkarar í jákvæðnum skiln- ingi.“ Hvort sem þeir félagar flokk- ast sem popparar eða rokkarar, með villta eða væmna ímynd, er ljóst að tónlistin skipar stóran sess í Iífi þeirra þessa dagana og unnið er sleitulaust að næstu geislaplötu. „Ég hef verið að vinna nánast allann sólarhring- inn frá því ég byijaði í tónlisý- inni og sleit á öll lyrri bönd. Ég held að ég hafí meira að segja sagt upp kærustunni og íbúð- inni á sinum tíma og tekið al- gjöra u-beygju í lífínu,“ sagði Gunnar Bjarni sem er bjartsýnn á að erfíðið beri árangur. HUITASUNNUKIRKIAH FÍLADELFÍA KYNNIR: liimiiiiD BROAUUtfAY mœti. AGúsna-ztoo Forsalaaðgöngumiðaí Versluninni Jötu • Hátúni 2 Miðaverð kr. 1.50ÍT Á báða tónleikana kr. 2.200

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.