Morgunblaðið - 03.10.1998, Síða 61
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 3. OKTÓBER 1998 61
Ahafnar Pourquoi
pas? minnst
B JÖRN Bjamason, menntamála-
ráðherra og Rut Ingólfsdóttir
kona hans verða í borginni Saint-
Malo í Frakklandi laugardaginn
3. október þar sem fram fer at-
höfn til minningar um dr. Jean
Baptiste Charcot og áhöfn hans
sem fórst í ofviðri með franska
rannsóknarskipinu Pourquoi pas?
16. september 1936, skömmu eftir
að skipið hafði haldið út á Faxa-
flóa frá Reykjavík.
Ríkisstjórn Islands ákvað að
tillögu menntamálaráðherra að
afsteypa af styttu sem Einar
Jónsson myndhöggvari gerði
haustið 1936 í minningu skip-
stapans skyldi gefín til Frakk-
lands. Eftir samráð við afkom-
endur dr. Charcot, sem var mik-
ilsmetinn vísindamaður og sæ-
fari á sinni tíð, var ákveðið að
styttan yrði í borginni Saint-Ma-
lo þar sem Pourquoi pas? átti
heimahöfn og dr. Charcot dvaldi
á sumrin. Lík þeirra sem fórust
voru flutt héðan til Saint-Malo í
byrjun október 1936.
Laugardaginn 3. október
verður minningarathöfn í kirkj-
unni Eglise de Sainte Croix í Sa-
int Servan. Síðan verður styttan
afhjúpuð og þar mun René Cou-
anou, þingmaður og borgarstjóri
Saint-Malo, flytja ávarp ásamt
menntamálaráðherra. Þá verður
opnuð minningarsýning um dr.
Charcot og deginum lýkur með
því að kvikmynd Kristínar Jó-
hannesdóttur, Svo á jörðu sem á
himni, sem byggð er á örlögum
dr. Charcot, verður sýnd.
I byrjun næstu viku flytur
menntamálaráðherra ræðu í
París á þingi UNESCO um æðri
menntun.
FRÁ Tilraunastöðinni að Keldum.
Tilraunastöð HÍ að Keldum
Opið hús á sunnudag
í TILEFNI af 50 ára afmæli Til-
raunastöðvar Háskóla íslands í
meinafræði að Keldum á þessu
hausti verður opið hús sunnudaginn
4. október kl. 13-17 þar sem hin
fjölþætta starfsemi Tilraunastöðv-
arinnar verður kynnt á margvísleg-
an hátt þ.e. með veggspjöldum,
myndböndum og fyrirlestrum.
Einnig var afmælisins minnst með
alþjóðlegri vísindaráðstefnu sem
haklin var í ágústlok.
A opna húsinu verða starfsmenn
hinna ýmsu sviða Tilraunastöðvar-
innar á staðnum og leiðbeina fólki,
skýra frá viðfangsefnum sínum og
sýna hin margvíslegustu tól og
tæki. Þessi kynning er ekki hvað
síst ætluð almenningi og skólafólki.
Það verður heitt á könnunni og er
því beint til fyrri starfsmanna og
annarra velunnara Tilraunastöðvar-
innar að koma og rifja upp gömul
kynni og skoða hvað verið er að
bjástra við nú um stundir, segir í
fréttatilkynningu.
Reiki-, heilunar- og sjálfstyrkingarnámskeið
HvaifáHmkentrÍ! #
úr slíkum namskeáum.
^Læra að nýta sér orku til að lækna sig
(meðfæddur eiginleiki hjá öllum)
og/eða koma sér í orkulegt og tilfinningalegt jafnvægi.
^Læ ra að beita hugarorkunni á jákvæðan og uppbyggilegan
hátt í staðinn fyrir að beita henni til niðurrifs.
ra að hjálpa öðrum til þess sama.
Nátnskeið í Reykjavík
10.-11. okt. 1. stig helgamámskeið.
12.-14. okt. 2. stig kvöldnámskeið
20.-22. okt. 1. stig kvöldnámskeið
Lausir einkatímar
í heilun og ráðgjöf
Kem át á land ef óskað er
Upplýsingar og skráning i síma 553 3934 kl. 10-12 virka daga.
Guðrún Óladóttir, reikimeistari.
FRÉTTIR
Rit um íþróttir fatlaðra
afhent forsetanum
Framhalds-
skólar þinga
FÉLAG framhaldsskólanema
heldur landsþing félagsins helgina
2.-A. október. Félag framhalds-
skólanema var stofnað árið 1987 og
í dag eru 27 skólar aðilar að félag-
inu víðs vegar af landinu. Tilgang-
ur félagsins er að standa vörð um
hagsmuni framhaidsskólanema og
að efla og bæta tengsl nemendafé-
iaganna.
Á þinginu verða málefni líðandi
stundar rædd, ýmsar málefna-
nefndir verða starfandi auk venju-
legra aðalfundarstarfa. T.d. verður
stefna félagsins í ýmsum hags-
munamálum framhaldsskólanema
rædd, s.s. trúnaður milli skóla og
nemenda, mætingakerfl, aðstoð við
lesblinda, Lánasjóð íslenskra
námsmanna, aðstaða í skólum,
ráðning skólameistara og fleira. Á
þinginu sitja fulltrúar flest alfra
framhaldsskóla á landinu.
Landsþingið er á Ægisgötu 7 í
Reykjavík.
---------------
Aðalfundur
Taflensk-ís-
lenska fé-
lagsins
AÐALFUNDUR Taflensk-íslenska
félagsins verður haldinn sunnudag-
inn 4. október nk. í Félagsmiðstöð
nýbúa við Skeljanes, 101 Reykjavík,
kl. 14.
Fundurinn opinn öllum Taílend-
ingum og þeim sem hafa áhuga á
menningartenslum Taílands og Is-
lands, segir í fréttatilkynningu.
EINTAK af ritinu „Stærsti sigur-
inn“ sem út kom í sumar var af-
hent forseta Islands á Bessastöð-
um nýverið. í bókinni er fjailað
um íþróttir fatlaðra á íslandi í
aldarfjórðung. Á myndinni eru
BORGARAFUNDUR um jöfnun at-
kvæðaréttar verðm- haldinn í Ráð-
húsinu í Reykjavík sunnudaginn 4.
október. Er hann á vegum áhuga-
hóps um málið sem Halldór Halldórs-
son útvegsfræðingur er talsmaður
fyrir.
Á fúndinum verða tekin fyrir nokk-
ur dæmi sem hópurinn telur að sé af-
leiðing misréttisins eins og úr land-
FERMING verður sunnudaginn
4.október kl. 14 í Fella- og Hóla-
kirkju..
Sigurður Á. Friðþjófsson, höf-
undur texta, Sigurður Magnús-
son ritstjóri, Ólafur Ragnar
Grímsson, forseti íslands, og
Sveinn Áki Lúðvíksson, formaður
fþróttasambands fatlaðra.
búnaðarmálum, samgöngumálum og
það nýjasta er flutningur á rflásstofn-
unum út á land, segir í fréttatilkynn-
ingu. Þá verða hin flóknu kosningalög
útskýrð á myndrænan hátt og bent á
leiðir sem raska t.d. núverandi kjör-
dæmaskipan sem minnst. Að lokum
verða almennar umræður. Fundurinn
hefst kl. 14 í Ráðhúsinu og er öllum
opinn.
Fermdir verða: Halldór Andri
Runólfsson og Sigtryggur Runólfs-
son, Jórufelli 2.
Borgarafundur um
jöfnun atkvæðaréttar
Ferming í Fella- og Hólakirkju
Allt veriur miklu auSveldara!
HVfiÐ VILTU VITfi
UH MYNDSKANNA „
OG PRENTRRfl?
EPSON
MICROT6K
y-; aaý.
: w I 1 - ' 1 ' ••
Einn laugardag í hverjum mánuði í vetur býður
Tæknival, Skeifunni, fólki i öllum aldurshópum
til skemmtilegrar og fróðlegrar sýnikennslu
á hvers kyns hugbúnaði og öðru tölvutengdu
efni. Hver laugardagur hefur ákveðið viðfangs-
efni og sérfræðingar á hverju sviði koma
í heimsókn.
Við eigum von á mörgum fróðlegum kynn-
ingum. Sú fyrsta, sem verður í dag, fjallar um
myndskanna og prentara.
DflGSKRfllN I DflG
Tæknival Skeifunni
kl. 11:00- 12:00
Myndskannar og prentarar
Dagskrá hvers laugardags i vetur
verður auglýst sérstaklega.
Tæknival
www.taeknival.is