Morgunblaðið - 03.10.1998, Síða 69
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 3. OKTÓBER 1998 69
FÓLK í FRÉTTUM
/
Eskimóarnir á Islandi
► VIÐ BIJUM öll í snjóhúsum og
klæðumst þykkum flíkum af
veiðibráð sem veidd er á íshjarn-
inu sem liggur yfir öllu landinu.
Það gæti maður í það minnsta
haldið þegar skoðuð er auglýsing
frá snyrtivörufyrirtækinu Avon,
sem birtist nýlega í breska
blaðinu Sunday Times.
Þar er stillt upp tveimur
myndum af konum. Onnur er í
léttum samkvæmiskjól og vindur-
inn stendur á hári hennar sem
fellur aftur á bakið og hún brosir
vel snyrt framan í heiminn. Á
myndinni er
prentað „I am a
woman of the UK“, eða
Eg er kona frá Bret-
W H Zíljál neðri mynd-
llmvatn
fyrir
konur
inni er eskimóakona,
líklega frá Græn-
landi, klædd í skinnflík mikla,
fallega bróderaða á öxlunum.
Skinnkraginn umlykur brosandi
andlitið, og við myndina stendur
„I am a woman of Iceland", eða
Eg er íslensk kona.
Auglýsingin er aðferð snyrti-
vörufyrirtækisins Avon til að
auglýsa iimvatn, og líklega er
meiningin sú að hvort sem konan
er bresk stórborgarkona eða „ís-
lensk“ kona í veiðimannasam-
félagi þá sé ilmvatnið slíkum
töfrum gætt að það laði fram
bros hjá hverri konu. Eða hvað?
Blaðamaður reyndi ítrekað að
ná í forsvarsmann Avon-fyrir-
tækisins sem sögð er bera
ábyrgð á auglýsingunni, Delia
Delisser, á skrifstofu fyrirtækis-
ins í New York. Skilin voru eftir
skilaboð á símsvara, búið að
rekja erindið fyrir fjölda ritara,
en aldrei barst svar, nema á þá
leið að umrædd manneskja væri
ekki við, og það sem meira var,
yrði ekkert við á næstunni.
Því verður að láta nægja að
velta fyrir sér ástæðu þessarar
auglýsingar, og þeirra hug-
mynda sem hún endurspeglar um
íslenska kynstofninn.
“íSISf#
Lyst ehf., McDonald’s á Islandi, þakkar
viöskiptavinum góöar móttökur á
undanförnum 5 árum. Á þessum tíma höfum
viö þjónaö u.þ.b. 4,5 milljón manns sem
boröaö hafa 220 tonn af íslensku nautakjöti
og 500 tonn af kartöflum!
McDonald's
Austurslra'ti 20
Suðurlandsbraut 56
.FRITT
SYNISHORN
á breiðbandinu
SÝNISHORNID er OPIN SJÓN-
varpsrás sem þú færð
sjálfkrafa aðgang að þegar þú
tengist breiðbandinu.
í Sýnishominu eru kynntar þær
stöðvar sem í boði eru á Breiðvarpinu. Hver stöð er
send út opin í heilan mánuð í senn og þannig gefst
góður tími til að kynna sér efni hennar.
SÝNISHORNIÐ
SÝNISHORN
í OKTÓBER
í október verður hin vin-
sæla kvikmyndarás TNT
Classic Movies kynnt í Sýnishorninu en hún
sendir út bíómyndir allan sólarhringinn á
Breiðvarpinu.
Hrekkjavökuhelgi!
Síðustu helgina í október verður TNT undirlögð af mörgum
frægustu hryllingsmyndum kvikmyndasögunnar, allt frá
Dr. Jekyll and Mr. Hyde til Poltergeist.
Myndir úr lífi Hollywood
Á hverjum miðvikudegi í október verða sérstakir þættir
tileinkaðir gömlu Hollywoodstjömunum þar sem þekktir
leikarar á borð við Liam Neeson og Jodie Foster fjalla um
líf og myndir Clark Gable, Bette Davis, James Cagney o. fl.
Gamanmyndir
Á mánudögum og miðvikudögum í október eru sýndar
sígildar gamanmyndir sem engu hafa tapað af róman-
tískum sjarma sínum.
TNT er fjölbreytileg kvikmyndarás fyrir
fólk á öllum aldri.
TT KOSTNAÐARMAT
þ)ónus,Un4mar. 800 7474-
20.000 HEIMIIIEIGA ÞESS NU KOST
AÐ TBNGJAST BREIÐBANDINU OG
MUNU ÞÚSUNDIR HEIMILA BÆTAST
VIÐ Á NÆSTU MÁNUÐUM.
Hringdu strax
06 KYNNTU ÞÉR RIEÁUDl
7474
Opið til kl. 22 á kvöldin og 17 um helgar
BREIÐVARPIÐ
SÍÓNVARPSÞIÓmSTA StMANS