Morgunblaðið - 11.10.1998, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 11.10.1998, Blaðsíða 26
26 SUNNUDAGUR 11. OKTÓBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ Forvinnslufyrir- tæki hafa verið að færa sig upp á skaftið, prent- smiðjur og aug- lýsingastofur taka meira til sín... ur myndgæðum hreinlega hrakað í íslenskum prentiðnaði. Við erum hvað eftir annað að fá í hendumar bæklinga sem fyrirtæki og stofnanir hafa sent frá sér og þar sem hraða og ódýra leiðin hefur verið farin. Það virðist blasa við að menn séu að spara einhverja peninga, en ég full- yrði að sá spamaður er ekki meiri en svo að hann vegi upp það sem kann að skaðast við illa unnar myndir. Sérstaklega þegar fyrirtæki era samhliða útgáfunni að fjárfesta mik- ið í markaðssókn og vöruþróun. Ef ég væri að auglýsa epli m.a. með út- gáfu á bæklingi, myndi ég að minnsta kosti ætlast til þess að eplin á myndunum væru gimileg og myndimar til þess falnar að selja þau. Allt of oft höfum við horft upp á hið gagnstæða, illa unnar myndir sem spilla ímynd þeirra sem era að kynna sig.“ Er þetta nú svona slæmt? Tekur fólk nokkuð eftir svona löguðu? „Já, það er svona slæmt og ég er alveg viss um að ef fólk tekur ekki beint eftir því, þá tekur það óbeint eftir því,“ segir Kom-áð og sýnir bækling þar sem starfsfólkið á myndunum líkist meira uppstoppuð- um líkum heldur en lifandi fólki. „Myndir þú vilja skipta við þetta fyr- irtæki?“ spyr Konráð. „Góð litgrein- ing og skerpa er lykilatriði.Það er hreinlega ótrúlegt hvað myndmálið skiptir miklu máli Því miður er þetta svo algengt að viðskiptavinir era famir að sætta sig við svona vinnubrögð. Halda kannski að þetta sé bara svona. En menn eiga alls ekki að sætta sig við þetta, því tæknin er fyrir hendi að vinna hlutina betur. Ef við væram að tala um verk sem kostaði hálfa milijón þá myndi það ekki kosta nema 5.000 krónur aukalega að fá þessa tilteknu tæknivinnu unna á sómasamlegan hátt. En þama er því miður greini- leg brotalöm, sem vonandi verður löguð.“ Vistvænt umhverfi Konráð vai'ð einnig tíðrætt um þær breytingar sem orðið hafi á ímynd prentunar í gegn um tíðina. Sú hafi verið tíðin að menn hafi gengið um hörandsdökkir af prents- vertu og fá störf hafi verið sóðalegri. Þetta hafi allt verið að breytast í tím- ans rás. „Eitt sem við hjá Litrófi er- um afar stoltir af er það hversu vist- væn okkar starfsemi er. Við mælum t.d. mjög með notkun á endurannum pappír og notum hann í veralega vaxandi mæli í verkefnum okkar og annað sem mætti nefna er að við hreinsum prentvélar okkar með jurtaolíum en ekki eitraðum leysi- efnum.“ Er mildlvægt að vera með svona vistvæna ímynd? „í vaxandi mæli skiptir það miklu máli. Ég væri ekki að nefna það sér- staklega að öðrum kosti. Islendingar eru að verða æ meðvitaðri um nauð- syn þess að ganga vel um landið. Við höfum ekki beinlínis auglýst okkur sem vistvæna, en látið þess getið við hvert tækifæri og það er ekki spum- ing að það eykur hróður fyrirtækis- ins,“ segir Konráð. Konráð er mikið fyrir útiveru og sport sem því tengist. Sérstaklega stangaveiði og er hann einn af leigu- tökum Straumfjarðarár á Snæfells- nesi. Vistvæn viðhorf endurspeglast þar einnig, því fyrir tveimur áram breyttu Konráð og félagar fyrir- komulaginu í Straumfjarðará. Nú er einungis leyfilegt að veiða í ánni með flugu, en það er almennt álitið að slíkt fari til muna betur með ána heldur en ef öðram og grófari veiði- aðferðum væri einnig beitt. „Maður þarf að vera sjálfum sér samkvæm- ur,“ segir Konráð Ingi að lokum. Morgunblaðið/Árni Sæberg LITROF HEFUR BREYSTI ALHLIÐA PRENTSMIÐJU inn. Tilraunin tókst vel og ég varð þess vísari að verkefni myndu verða næg. Við fórum því enn út í stóra kúvendingu, m.a. með því að flytja í þetta nýja hús en einnig og ekki síst með kaupum á annarri og stærri fjórlita prentvél. Þar með hefur Lit- róf breyst úr klisjufyrirtæki í alhliða prentsmiðju þar sem okkur er fátt eða ekkert að vanbúnaði." Þið farið þá bara á kaf í jólabóka- útgáfuna? „Já, já, alveg eins. Það liggja fyrir fyrstu verkefnin af því tagi og ég efa ekki að fleira reki á fjörur okkar. Það er mikOvægt fyrir fyrirtæki af þessu tagi að geta boðið upp á sem flest í vinnuferli útgáfu. Helst allt. Það er svo hagkvæmt. Það er alltaf erfitt að þurfa að leita eftir tilboðum út um borg og bí í hina ýmsu þætti verks. Fyrirtækið sem rak prentvél- ina hét Prentstöðin og við eram að bræða það með okkur þessa dagana hvort það nafn verði látið hverfa eða hvort það verður fellt á einhvem hátt að Litrófsnafninu. Og það er nóg af verkefnum fram undan? „Já, það era ótrúlegir möguleikar. Um leið og rofar til í þjóðfélaginu eins og gerst hefur síðustu árin þá fá fyrirtæki og einstaklingar ráðrúm til að kynna vöra sína og þjónustu. Reynslan hefur sýnt að það er best gert með prentuðu efni. Síðan koma upp dæmi eins og þegar Morgun- blaðið kemur sér upp pökkunarvél sem opnar alveg nýjan heim í dreif- ingu. Allt í einu er hægt að koma kynningarpósti inn á nánast öll heimili og jafnvel smærri fyrirtæki geta dreift auglýsingarbæklingum í örfáum þúsundum eintaka á einstök um póstnúmerasvæðum. Þá hefur kynningarpóstur breyst úr því að vera að stærstum hluta svart-hvítur í að vera nær eingöngu prentaður í fjórlit. Við njótum góðs af slíkri þró- un því við höfum alla tíð lagt áherslu á vandaða litprentun." Það hlýtur þá að vera mikil sam- keppni um viðskiptavinina? „Vissulega er það rétt og sam- keppni er af hinu góða. Hins vegar hefur eitt gerst sem við erum alls ekki ánægðir með. Á sama tíma og við höfum fjárfest í fullkomnum tækjum og lagt okkur alla í að vanda sem mest og best til vinnu okkar hef- eftir Guðmund Guðjónsson Konráð Jónsson er fram- kvæmdastjóri og aðaleig- andi Litrófs. Hann heitir fullu nafni Konráð Ingi Jónsson, er fæddur í Reykjavík árið 1956. Hann ólst upp í Heimunum og er Þróttari í húð og hár. Þeir sem ekki era of gamlir muna trúlega eftir honum sem miklum markahróki bæði með Þrótti, síðar KR, og ís- lenska landsliðinu í handknattleik. Konráð er giftur Önnu Sigurðardótt- ur snyrtifræðingi og eiga þau þrjár dætur, Sesselíu tvítuga, Lilju 16 ára og Eddu, sem er nokkur eftirbátur systra sinna í árum talið, eða aðeins 6 ára. Konráð nam offsetljósmyndun í Myndamótum í Aðalstræti á sínum tíma, og starfaði þar fyrstu árin eftir námið. Myndamót var leiðandi á sínu sviði, var m.a. með alla prentmynda- gerð fyrir Morgunblaðið enda vora hæg heimatökin, bæði fyrirtækin í sama húsinu. Árið 1983 þótti Konráð þó kominn tími til breytinga. Ey- mundur Magnússon hafði stofnað Litróf árið 1943 og á fertugsári fyrir- tækisins og á 27. aldursári sínu, tók Konráð reksturinn á leigu. „Þetta var bara klisjufyrirtæki á þessum tíma og allar græjur vora brúklegar fyrir offset. Fyrirtækið var til húsa í Einholti og fyrstu þrjú árin má segja að hafi farið í.að fóta sig á markaðnum og átta sig á hon- um. Að þessum þremur árum lokn- um fór ég út í veralega fjárfestingu á þess tíma mælikvarða, flutti í Braut- arholt 8 og keypti fyrsta litgreining- artækið." Nýju tækin rykfalla Þar með var Litróf tekið að „þró- ast og stækka“ og árið 1990 var keypt stærri hæð í Brautarholtinu. En nú vora breytingar allar örar og miklar. „Þróunin hefur verið gífur- leg, allri tækni fleygt svo fram að menn hafa mátt haifa sig alla við að fylgjast með og dragast ekki aftur úr. Þessi þróun hefur öðru fremur verið fólgin í tölvuvæðingu og það er gífurlega dýr þróun. Allt í einu era menn hættir að nota venjuleg ljósa- borð og tæknivinnan er öll meira og minna komin inn í tölvumar," segir Konráð og heldur áfram: „Við lentum illa í því í byrjun þessa áratugar. Fórum út í mjög dýr VIÐSKIFn AIVINNULÍF Á SUNIUUDEGI ►Litróf í Sóltúni 24 hefiir breyst úr því að vera einföld prentmyndagerð í alvöru prentsmiðju. Til að koma breytingunni við, hefur fyrirtækið flutt í nýtt og stærra húsnæði en það sem hýsti starfsemina í Brautarholti. Lit- róf er gamalt fyrirtæki og hefur gengið á ýmsu, en leiðin hefur þó yfírleitt verið upp á við. ALLT á fullu í viunslusalnum. tækjakaup, eyddum 15 milljónum í tæki sem vora orðin úrelt ári síðar. Við voram varla byrjaðir að nota þau og ekki byrjaðir að borga niður lán- in. Þetta er svona néfnt til marks um í hveiju hægt var'áð lenda. Á þess- um áram var mildð kapphlaup í gangi og það fóra margir flatt á því. Við settum hins vegar undir okkur hausinn, sameinuðumst fyrirtækinu Litgreiningu árið 1992 og fóram síð- an út í nýja fjárfestingu, keyptum enn eitt tækið, að þessu sinni á 7 milljónir, og að þessu sinni tæki sem dugði og dugar enn. En það var aldrei kveikt aftur á dýra tækjunum, þau safna bara ryki í skúmaskoti." Þið hafið náð að sigla í gegn um þetta? „Já, það tókst okkur, en það var ekki auðvelt og þarna lærðist dýr- mæt lexía. Það er auðvelt að vera vitur eftir á, en við sáum ekki fyrir okkur á þessum tíma hvað hlutimir voru að gerast hratt. En það var erfitt að standa skil og við máttum selja húsnæðið okkar og flytja inn í farsæla sambúð með DV og ísafoldarprentsmiðju í Brautar- holti 1. Þar voram við svo þár til í sumar, að við fluttum í þetta nýja húsnæði okkar í Sóltúni 24. Vonandi er flakki okkar þar með lokið, að minnsta kosti líst okkur mjög vel á þetta hús og það mun líta enn betur út er við höfum komið okkur endan- lega fyrir.“ Enn breytingar Konráð hugsar sig um og segir svo frá því að allra síðustu árin hafi menn enn verið að horfa upp á mikl- ar og gagngerar breytingar á starfs- umhverfinu. „Forvinnslufyrirtæki hafa verið að færa sig upp á skaftið, prentsmiðjur og auglýsingastofur taka meira til sín. Þessu þurfti að mæta og því hafði ég keypt tvílita prentvél sem ég rak sér um tíma, svona á meðan ég kannaði markað-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.