Morgunblaðið - 11.10.1998, Blaðsíða 49

Morgunblaðið - 11.10.1998, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11. OKTÓBER 1998 49 FÓLK í FRÉTTUM á skóiabekk í vetur Morgunblaðið/Kristinn „ÉG fékk fegurðina í vöggugjöf. Svo bráði það af mér,“ segir Sævar Karl alvarlegur í bragði þótt hláturinn sé ekki langt undan. Veikur fyrir fegurð í VÖLUNDARHÚSI í Bankastræti er maður að nafni Sævar Karl Óla- son klæðskeri með fataverslun þar sem öllum skilningarvitum er svalað. Bömin hafa lítinn krók út af fyrir sig, kaffihomið er fyrir þyrsta búð- arápara og listagalleríið fullnægir menningarvitunum. AUt þetta em hugðarefni fóðurins, sælkerans, og fagurkerans Sævars Karls Ólasonar. Nú í vetur verður listagyðjan þó ofan á þvi þá mun hann sitja á skólabekk í málaradeild Mynd- og handíðaskólans sem gesta- nemandi. Hann verður aðeins í búð- inni á laugardögum en er „sem betur fer með yndislegt fólk“ sem getur leyst hann af. Héldu að ég væri húsvörður „Eg hef verið 4 til 5 ár í Myndlist- arskóla Reykjavíkur hjá frábæram kennara, Katrínu Briem, og hefur námið verið afskaplega hvetjandi og skemmtilegt,“ segir Sævar Karl. „Þama er mikið af ungu fólki sem stefnir á Mynd- og handíðaskóla ís- lands. Það skoraði á mig í fyrra að mæta í inntökupróf og ég ákvað að skella mér með.“ Sævar Karl fær sér kaffisopa, lítur makindalega i kring- um sig enda gott að setjast niður eftir annasaman dag og heldur svo áfram. „Inntökuprófið var í Vörðuskóla og þama var ég með öllum krökkun- um. „Hvar er klósettið?“ var ég spurður og annar kom til mín vegna þess að hann var að leita að síman- um. Það héldu auðvitað allir að ég væri húsvörður. Eg var ekki einn af þeim 30 til 40 sem náðu í gegn. En árið eftir var hringt í mig og mér boðið að verða gestanemandi í einn vetur. Ég hugsaði með mér að ég hefði engan tíma til að sinna þessu. En fannst þetta svo huggulega gert að ég ákvað að slá til.“ Ekki hægt að kaupa sér smekk Sævar Karl hefur nú setið einn og hálfan mánuð á skólabekk. Hvemig kann hann við sig? „Mér finnst þetta gaman,“ svarar hann og afgreiðir það í einni setningu. ,^Atli Freyr son- ur minn leysir mig af í búðinni og ég verð aðeins á laugardögum. Ég ætla mér nefnilega að leggja mig fram. Það þýðir ekkert hálfkák í þessu frekar en öðru.“ Ætlarðu að leggja listina fyrir þig? „Ég hef engar ambisjónir í þá átt- ina,“ svarar hann og brosir. „Það er hins vegar frískandi að kúpla sig frá þessu harða stressi hér og kafa ofan í aðra hugsun, annan heim. Enda öðlast ég fyrir vikið dýpri skilning á því sem fram fer hjá listamönnum og þroska kannski smekkinn fyrir listinni. Það er nefnilega ekki hægt að fara inn í búð og kaupa sér smekk. Maður verður að tala við fagmann og kynna sér greinina. Kaupa eina og eina flík. Af hverju þessir litir? Af hverju tví- hneppt en ekki þríhneppt?" Hann lít- ur árvökulum augum á blaðamann. „Þér hefði til dæmis ekld dottið í hug að vera í rúllukragabol fyrir nokkram áram.“ Aður en talið fer að snúast um fatasmekk blaðamanns ákveður hann að skipta um umræðuefni, verður litið í kjallarann og spyr: Stefnirðu á að sýna þarna niðri? „Nei, ég held ég fái ekki náð fyrir stjóm gallerísins, - ekki næstu tíu árin,“ svarar hann og hlær. Hverjir sitja í stjóminni? spyr blaðamaður undrandi. „Ég.“ Okkur vantar veggi I versluninni hangir risamálverk eftir Erró og skilst blaðamanni að það sé aðeins ein af mörgum fágæt- um perlum í safni Sævars Karls. ,Átt þú stórt safn?“ er því næsta spurning. „Ég veit það ekki,“ svarar hann og hallar undir flatt. „Hvað er stórt safn? Ég velti því lítið fyrir mér. Það þekur náttúrlega vegg. Ég vil hafa fallegt í kringum mig. En ég legg áherslu á að mynd- irnar séu fallegar óháð því hvort listamennirnir sjálfír era frægir.“ Erla Þórarinsdóttir, eiginkona Sævars Karls, gengur inn í salinn og hann kallar til hennar: „Eigum við mikið af málverkum?" „Okkm- vantar allavega veggi,“ svarar hún brosandi. „Við höfum bú- ið saman í 30 ár og þetta hefur alltaf verið áhugamál.“ „Þetta er minn veikleiki," segir Sævar Karl. „Ég er veikur fyrir feg- urð,“ heldur hann áfram og lítur á konu sína. , ,Það er hægt að hafa verri veik- leika,“ segir hún og hlær. Neeson og Richardson fá bætur ► LEIKARAHJÓNUNUM Liam Neeson og Natöshu Richardson voru dæmdar rúmar 6 milljónir króna í skaðabætur frá Mirror- útgáfufyrirtækinu á föstudag eftir að blaðið hafði birt fréttir um að hjónaband þeirra væri í molum. Hjónin gáfu peningana í sjóð sem stofnaður var til stuðnings fórnarlömbum Omagh- sprengjutilræðisins á Norður- Irlandi. Þar létust 29 manns. Þau hafa verið gift í fjögur ár og eiga tvo syni. ahimalisti Lúllað í þágu loðdýra ► NAKIN pör gerðu sig heima- komin á gangstétt í miðborg Mflanó á dögunum. Þar voru þau búin að koma upp fleti miklu þar sem þau lögðust, undir teppi en ekki feld. Rúmgaflinn var mót- mælaspjald þar sem loðfeldir eru fordæmdir og sagt að eftirsókn eftir þeim stuðli að illri meðferð dýra. Mótmælin vöktu að vonum athygli enda stendur nú yfir tískuvika í Mflanó, sem var vita- skuld tilefnið sem rak pörin til aðgerða. MICHAEL DOUGLAS ' ■ m iiiuiiii iunililm is GWYNETH PALTR' VIGGO MORTENSEN EigimndduT. Eiginkond. Elskuhugi. Hæítulegt frdmhjdhdld. FullkoTnið TTiorð og gerdu The Fugiíiue SYHÐ I ÖLLUH SRMBIOUHUM
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.