Morgunblaðið - 22.10.1998, Page 1
240. TBL. 86. ÁRG.
FIMMTUDAGUR 22. OKTÓBER 1998 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Morgunblaðið/Kristinn
Þúsundir hermanna eru enn í Kosovo
Milosevic kraf-
inn skýringa
Reuters
KONUR af albönsku bergi brotnar undir-
búa málsverð í búðum sem þær hafa
komið sér upp eftir að þær flúðu heimili
sín í Trpeza á þriðjudagsmorgun, en þá
eru serbneskar hersveitir sagðar hafa
hafíð skothríð á þorpið.
Brussel, París, Belgrad, Strassborg. Reuters.
EFTIRLITSMENN Vest-
urveldanna í Kosovo reyndu
í gær að sannreyna fregnir
þess efnis að átök hefðu
blossað upp á tveimur stöð-
um í Kosovo-héraði fyrr í
vikunni. Fundi Wesleys
Clarks, yfirmanns herafla
Atlantshafsbandalagsins
(NATO) í Evrópu, með
Slobodan Milosevic, forseta
Júgóslavíu, lauk í fyrrinótt
og Clark krafðist skýringa á
því hvers vegna Serbar
hefðu ekki enn flutt herlið
sitt frá Kosovo eins og kveð-
ið er á um í samkomulagi
Richards Holbrookes, samn-
ingamanns Bandaríkjanna,
og Milosevics frá því í vik-
unni sem leið.
Óháð dagblað í Belgrad
greindi frá því í gær að Ser-
bar hefðu nú dregið 7500
hermenn út úr Kosovo en
þar væri enn 4500 hermönn-
um fleira en kveðið er á um í
samkomulagi Holbrookes og
Milosevies. ítrekaði Clark
við Milosevic og Momcilo
Perisic, yfirmann herafla
Júgóslavíu, að NATO myndi standa
við hótanir sínar um loftárásir hefðu
Serbar ekki uppfyllt öll skilyrði sam-
komulagsins í síðasta lagi 27. októ-
ber.
Var haft eftir ónafngreindum full-
trúa NATO í Brussel að bandalagið
væri áfram um að öryggisráð Sam-
einuðu þjóðanna samþykkti ályktun
sem leyfði notkun sérstaks herliðs í
Kosovo sem ætlað væri að flytja alla
eftirlitsmenn Vesturveldanna fljótt
og örugglega á brott ef þeim væri
hætta búin.
ESB fordæmir Iög sem
takmarka fréttaflutning
Fulltrúar Evrópusambandsins
fordæmdu í gær lög, sem Serbíuþing
samþykkti á þriðjudag og takmarka
fjölmiðlaumfjöllun í Júgóslavíu, ekki
síst fréttaflutning erlendra fjölmiðla,
um atburði í Kosovo-héraði. „Petta
er mjög góð vísbending um stjórn-
málaástandið í Júgóslavíu ... þar sem
grundvallarmannréttindi hafa verið
fótum troðin og eru enn,“ sagði Hans
van den Broek, sem fer með erlend
samskipti Evrópusambandsins í
framkvæmdastjóm þess.
Lögin voru samþykkt eftir að
stjómvöld í Júgóslavíu, sambands-
ríki Serbíu og Svartfjallalands,
bönnuðu útgáfu þriggja óháðra dag-
blaða í Belgrad í vikunni sem leið.
Blöðin höfðu birt fréttir af hótunúm
Atlantshafsbandalagsins (NATO)
um loftárásir á skotmörk í
Júgóslavíu vegna harkalegra að-
gerða Serba í Kosovo.
Virt og
dáð af
alþjóð
GUÐRÚN Katrín Þorbergsdóttir
forsetafrú var jarðsungin frá
Hallgrímskirkju í gær að við-
stöddu fjölmenni. Karl Sigur-
björnsson, biskup íslands, jarð-
söng. Hann sagði í minningarorð-
um um Guðrúnu Katrínu að hún
hefði verið virt og dáð af alþjóð.
Um 900 manns voru viðstaddir
útförina. Meðal þeirra voru þjóð-
höfðingjar Norðurlandanna, ríkis-
stjóni Islands og handhafar for-
setavalds. Ráðherrar og sxðan lög-
í'egluþjónar báni kistuna að lík-
bílnum, en forseti íslands, dæturn-
ar, systkin og þjóðhöfðingjar
Norðurlandanna fylgdu á eftir.
■ Forsetafrúin kvödd/24-27
Netanyahu hótar að slíta
viðræðunum við Arafat
Wye Mills. Reuters, The Daily Telegraph.
ÍSRAELAR hótuðu í gær að slíta viðræðunum
við Palestínumenn í Bandaríkjunum, sökuðu
bandarísku milligöngumennina um að hafa
gengið á bak orða sinna og Palestínumenn um
að beita undanbrögðum. Benjamin Netanyahu,
forsætisráðherra Israels, setti Palestínumönn-
um úrslitakosti í gærkvöldi og sagðist slíta við-
ræðunum ef þeir yrðu ekki við kröfum hans fyr-
ir klukkan tvö í nótt. Bandaríkjamenn sögðust
ætla að reyna til þrautar að tryggja samkomu-
lag milli Netanyahus og Yassers Arafats, leið-
toga Palestínumanna, um frekari brottflutning
ísraelskra hermanna frá Vesturbakkanum gegn
öryggistryggingum af hálfu Palestínumanna.
Hótunin kom á óvart þar sem samningamenn-
irnir höfðu tveimur dögum áður iátið í ljós bjart-
sýni á að viðræðumar myndu bera árangur.
Palestínumenn tóku hótuninni sem samninga-
brellu en háttsettur ísraelskur embættismaður
sagði að Israelum væri full alvara. „Bandaríkja-
mennimir hafa fallið frá fyrra samkomulagi við
Israela og Palestínumenn hafa ekki viljað gefa
skýr svör um skuldbindingar sínar í ýmsum
málum,“ sagði hann.
Annar ísraelskur embættismaður sagði að
Palestínumenn vildu að ísraelar létu 13% land-
svæða á Vesturbakkanum af hendi án þess að
bjóða nokkuð í staðinn. „Þeir hafa ekki lagt fram
neina raunhæfa áætlun um baráttu gegn hryðju-
verkum," sagði hann.
Brella til að knýja fram tilslakanir?
Embættismaðurinn kvartaði einnig yfir því að
Palestínumenn vildu ekki handtaka 120 menn á
lista yfir meinta hryðjuverkamenn, lofa að hand-
taka fólk sem myrðir Israela, fækka palestínsk-
um lögreglumönnum, leggja hald á óleyfileg
vopn og boða til fundar í Þjóðarráði Palestínu
(PNC) til að breyta stefnuskrá þess.
Palestínumenn tóku hótun ísraela um að
ganga af fundinum ekki eins alvarlega og banda-
rísku embættismennirnir og sögðu að mai-kmið-
ið með henni væri aðeins að knýja fram tilslak-
anir af hálfu Arafats. „Við teljum að Israelar séu
að reyna að knýja Bandaríkjamenn til að þjanna
að okkur. Við teljum þetta leik,“ sagði einn
palestínsku samningamannanna.
Talsmaður bandaríska utanríkisráðuneytisins
kvaðst búast við því að Bandaríkjamenn myndu
leggja fram nýjar tillögur til að freista þess að
leysa deiluna. Embættismenn í Hvíta húsinu
sögðu að Bill Clinton Bandaríkjaforseti myndi
fara aftur á fund Netanyahus og Arafats ef af-
skipti hans væra talin líkleg til að bera árangur.