Morgunblaðið - 22.10.1998, Page 2
2 FIMMTUDAGUR 22. OKTÓBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Lóðarkaup undir sendiráð í Berlín
95 milljómr
spöruðust
vegna mistaka
VEGNA mistaka Þjóðverja borguðu
íslensk stjórnvöld um 95 milljónum
ki-óna of lítið fyrir land undir sendi-
ráðsbyggingu í Berlín sem keypt var
í sumar, að sögn alnetsútgáfu þýzka
dagblaðsins Taz. Deilur standa milli
borgaryfirvalda og fasteignasölufyr-
irtækis sem sá um sölu landsins fyr-
ir borgina um það hver beri ábyrgð
á mistökunum.
Fyrirtækið, Treuhand Lieg-
enschaftsgesellschaft (TLG) fékk
það verkefni árið 1994 að sjá um
sölu landsvæðis í borginni undir
sendiráðsbyggingar. Nokkru síðar
var íslenska ríkinu tjáð að lóð feng-
ist keypt á tilteknu áætluðu mark-
aðsverði, sem hafði fengist uppgefið
hjá borgaryfirvöldum. Af einhverj-
um ástæðum var stærð lóðarinnar
vanmetin og var því verðið helmingi
lægra en hefði átt að krefjast. Is-
lendingar gi-eiddu því rúmar áttatíu
milljónir fyrir lóðina en ekki tæpar
180 milljónir, eins og eðlilegt hefði
verið miðað við stærð lóðarinnar.
í grein Taz segir að þegar fjár-
málayfirvöld í Berlín hafi viljað láta
tilboðið ganga til baka, hafi íslensk
stjórnvöld hafnað því, snúið sér til
sambandsstjórnarinnar í Þýska-
landi og hótað því að málið gæti haft
alvarlegar afleiðingar fyrir sam-
skipti landanna. Borgaryfirvöld í
Berlín gáfu þá eftir og samþykktu
söluna.
Engar hótanir settar fram
„Við ákváðum að sækjast eftir
þessari lóð í samræmi við þau loforð
sem gefín höfðu verið,“ segir Halldór
Asgrímsson utanríkisráðherra. „Síð-
an gekk illa að ganga frá málinu og
ég ræddi það við starfsbróður minn
Klaus Kinkel og skrifaði honum
reyndar bréf út af því.“
„Mér þykir ekki ólíklegt að [þýsk
stjórnvöld] hafí metið það þannig að
það kynni að vera skaðlegt fyi-ir
mjög góð samskipti landanna að ekki
væri staðið við gefin fyrirheit, en við
settum ekki fram neinar slíkar hót-
anir. Utanríkisráðherra Þýskalands
fannst það að sjálfsögðu eðlilegt að
staðið væri við gefin loforð.“
Halldór bendir á að miklu máli hafí
skipt að ganga frá málinu vegna þess
að skammt sé í að stjórnarskrifstofur
í Þýskalandi flytjist allai- til Berlínar.
Hann segir að fram hafi komið hjá
borgaryfírvöldum að aðrar þjóðir
hafi einnig sóst eftir lóðinni og boðið
hærra verð. „Við vorum að sjálfsögðu
ekki tilbúnir að greiða hærra verð
fyrir hana en upphaflega voru gefin
fyrirheit um. Island er ein minnsta
þjóðin í Evrópu og það er hlutfalls-
lega dýrara fyrir okkur að reka utan-
ríkisþjónustu í mörgum löndum Evr-
ópu en aðra og við hljótum að sjálf-
sögðu að reyna að gera það með sem
hagkvæmustum hætti.“
Morgunblaðið/J úlíus
Harður árekstur á mótum Þrengslavegar og Suðurlandsvegar
Fimm fluttir á slysadeild
HARÐUR þriggja bíla árekstur
varð á vegamótum Þrengslavegar
og Suðurlandsvegar um klukkan 21
í gærkvöld. Ökumaður einnar bif-
reiðarinnar var fluttur með þyrlu
Landhelgisgæslunnar á Sjúkrahús
Reykjavíkur og reyndist hann vera
með alvarlega áverka en ekki í
bráðri lífshættu, samkvæmt upplýs-
ingum frá sjúkrahúsinu.
Sjúkrabílar fluttu fjóra slasaða til
Reykjavíkur. Ökumaður annarrar
bifreiðarinnar, lítið barn, stúlka og
kona, sem voru farþegar í bílunum,
reyndust lítið meidd, að sögn læknis
á vakt á slysadeild.
Suðurlandsvegi var lokað frá
klukkan 21-22.30 vegna slyssins. Að
sögn lögreglunnar á Selfossi voru
bflarnir mjög illa famir, og þurfti að
klippa tvo menn út úr einu flakinu.
Mikið krap og bleyta var á vegum
sunnanlands og brýnir lögregla fyr-
ir ökumönnum að fara varlega.
Andlát
JÓN ÓSKAR
VIÐRÆÐUR íslenzkra, norskra og
rússneskra embættismanna um
lausn á deflunni um veiðar íslenzkra
skipa í Smugunni í Barentshafi
hófiist í Moskvu í fyrradag. Að sögn
Ingvards Havnen, talsmanns norska
Bilun í
símakerfí
BILUN í Múlastöð olli því að
símasambandslaust varð á
þjónustusvæði stöðvarinnar í
gærkvöldi í tæplega klukku-
stund.
Hjá bilanaþjónustu Lands-
símans fengust þær upplýsing-
ar að gert hefði verið við bilun-
ina og símasambandi komið á
um klukkan 21.10 í gærkvöldi.
utanríkisráðuneytisins, er gert ráð
fyrir áð fundinum verði haldið áfram
í dag. Havnen staðfestir jafnframt að
ekki sé byrjap að ræða hversu mik-
inn kvóta Island geti fengið í
Barentshafi, heldur eigi að byrja á
að reyna að ná rammasamningi um
samstarf um veiðar og veiðistjórnun
í Barentshafi.
Norska dagblaðið Nordlys greindi
frá því í gær að um væri að ræða
annan embættismannafundinn af
tveimur; hinn hefði verið haldinn í
Moskvu fyrir tæpum mánuði. Blaðið
segir einnig að margt bendi til að
kröfur íslendinga um kvóta í
Barentshafi séu nú lægri en áður,
enda hafi Smuguveiðin brugðizt
tvær vertíðir í röð.
Að sögn Nordlys er stærð þess
kvóta, sem íslendingar kynnu að fá í
Barentshafi, þó ekki til umræðu
heldur á fyrst að reyna að ná
rammasamkomulagi um samstarf
um veiðar og fiskveiðistjórnun. Hins
vegar sé áformað að gera í framhaldi
af því samkomulag um kvóta handa
Islandi.
Samningsvilji af allra hálfu
Jóhann Sigurjónsson, forstjóri
Hafrannsóknastofnunar, er aðal-
samningamaður íslands á fundinum
í Moskvu en vildi ekki tjá sig um
gang mála í gær. Ingvard Havnen
staðfesti í samtali við Morgunblaðið
að verið væri að ræða um „grund-
vallarsamkomulag", sem gæti stuðl-
að að endanlegri lausn deilunnar.
Hann sagði þó of snemmt að segja
hvort þokazt hefði í samkomulagsátt
á fundinum.
„Við erum ánægðir með að ríkin
þrjú eru nú aftur í sambandi vegna
þessa máls og að það er vilji af allra
hálfu til að finna lausn á deilunni,"
segir Havnen. „Hins vegai' er því
ekki að leyna að það eru ýmsir erfíð-
leikar sem við þurfum að komast yfir
áður en við náum samkomulagi."
JÓN Óskar rithöfundur
lést 20. október síðast-
liðinn á heimili sínu í
Reykjavík, 77 ára að
aldri.
Jón Óskar fæddist á
Akranesi 18. júlí 1921
og voru foreldrar hans
Asmundur Jónsson,
sjómaður og rafvirki,
og Sigurlaug Einars-
dóttir húsmóðir. Hann
lauk gagnfræðaprófi
frá Menntaskólanum í
Reykjavík árið 1940 og
stundaði eftir það fimm
ára nám í píanóleik við
Tónlistarskólann í
Reykjavík. Auk þess
stundaði hann frönsku-
nám á námskeiðum Alliance
Francaise í Reykjavík og París og
ítölskunám á námskeiðum og í
einkatímum í Róm, Perugia og
Genúa.
Jón Óskar gegndi margvíslegum
störfum um ævina. Meðal annars var
hann píanóleikari í ýmsum dans-
hljómsveitum á árunum 1946-1956
og ræðuritari á Alþingi 1953-1958.
Þá var hann einn af ritstjórum bók-
menntatímaritsins Birtings og ritari
Rithöfundafélags ís-
lands og Rithöfunda-
sambands íslands 1967
til 1970. Auk þess var
hann í stjóm Tón-
menntasjóðs kirkjunnar
frá 1981.
Lengst af starfaði
Jón Óskar við ritstörf
og þýðingar og eftir
hann liggur fjöldi
verka. Meðal Ijóðabóka
hans eru Skrifað í vind-
inn, 1953, Nóttin á
herðum okkar, 1958,
Næturferð, 1982 og
Hvar eru strætisvagn-
amir, 1995. Jón skrifaði
auk þess skáldsöguna
Leikir í fjömnni, 1968,
og endurminningar sínar í nokkmm
bindum. Meðal þýðinga eftir hann
mætti nefna ljóðabókina Ljóðastund
á Signubökkum, 1988 og skáldsög-
una Pláguna eftir Albert Camus.
Eftirlifandi eiginkona Jóns
Óskars er Kristín Jónsdóttir mynd-
listarkona. Eignuðust þau eina dótt-
ur, Unu Margi-éti, sem nú er dag-
skrárgerðarmaður.
■ Jón Óskar/33
fsland, Noregur og Russland funda um Smuguna í Moskvu
Leitað samkomulags
um veiðar og stjórnun
JÓN Óskar
rithöfundur.
Sérblöð í dag
mmrj'jíi
VIDSKIFn AMNNULÍF
VERSLUN
17 í
Krínglunni
Tvöfaldar versl-
unarrýmið/C1
TÖLVUR
Vefsíða
verðlaunuð
Islenskur hönnuð-
ur hjá CNN/C5
Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
www.mbl.is