Morgunblaðið - 22.10.1998, Qupperneq 6
6 FIMMTUDAGUR 22. OKTÓBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
KRISTINN hefur kennt Snata ýmislegt, meðal annars að hoppa.
Morgunblaðið/RAX
Sirkushesturinn Snati er uppátækjasamur og líklega gáfaðri en flestir hestar
Opnar hlöðuna
og býður hinum
hestunum hey
Sirkushesturinn Snati er mörgum hæfí-
leikum gæddur. Hann hlýðir skipunum og
bendingum, en tekur einnig upp á ýmsu
sem er húsbónda hans ekki að skapi.
HESTURINN Snati er 20 vetra
og eigandi hans er Kristinn Sig-
urður Hákonarson sem stundar
hrossabúskap og hundarækt í
Víðinesi á Kjalarnesi. Kristinn
eignaðist Snata þegar hann var
þriggja vetra, og bar hann þá
nafnið Amor. Fljótlega komu í
ljós einstakir hæfileikar hestsins
til þess að apa hluti eftir og læra
það sem fyrir honum var haft,
og var honum þá gefíð nafnið
Snati.
„Snati var fyrsti hesturinn
sem ég eignaðist og ég byrjaði
að kenna honum kúnstir eftir að
hafa séð hesta leika listir sínar á
hestasýningu í Reiðhöllinni.
Hann var fljótur að læra og síð-
an þá hefur hann komið fram í
þónokkrum kvikmyndum, sýn-
ingum og tamningamyndbönd-
um. Hann lék í kvikmyndinni
Magnúsi, Hvíta víkingnum og
barnamyndinni Ævintýri á norð-
urslóðum," segir Kristinn um
Snata.
Aðstoðar við tamningar
„Segja má að hann sé gáfaðri
en aðrir hestar, og það hefur
stundum komið niður á mér.
Hann getur til dæmis opnað
taumlása auk þess sem hann get-
ur opnað luktar dyr. Það hefur
oft komið fyrir að hann hefur
losað sig úr básnum sinum, þar
sem hann hefur verið bundinn.
Hann nagar reipin í sundur, svo
fer hann og opnar hlöðuna, leys-
ir hina hestana og býður þeim
upp á góðgætið í hlöðunni. Eg
hef reyndar aldrei staðið hann
að verki því hann er alltaf kom-
inn í básinn sinn þegar ég kem
að, á meðan hinir hestarnir eru
ennþá að gæða sér á dýrindis
heyinu. Ég hef þurft að negla
aftur hlöðuna svo hann komist
ekki inn,“ segir Kristinn.
Kristinn segir að Snati sé
skapmikill hestur sem sé gæddur
mannsviti. Hann sé skapgóður,
gæfur við börn, aðrar mannver-
ur og hesta. „En ef aðrir hestar
beita hann harðræði svarar hann
í sömu mynt og hestarnir gera
það yfírleitt ekki nema einu
sinni. Hann er ákveðinn og sýnir
þeim hver ræður. Hins vegar
þolir hann ekki hunda. Hann
hleypur á eftir þeim og reynir að
bíta þá, en það eru einu kvikind-
in sem hann þolir ekki. Það þýð-
ir ekkert að láta hunda reka
Snata, það er frekar öfugt.“
Kristinn hefur kennt Snata
ýmislegt. Hann tekur hann í
hjólbörur, lætur hann hoppa,
leggjast á bakið og velta sér.
Snati hefur einnig hjálpað
Kristni við tamningar, hann
hleypur hringinn sem hann á að
hlaupa án þess að Kristinn haldi
í hann, svo Kristinn getur sleppt
því að borga manni kaup fyrir
þá vinnu. Hann passaði einnig
elstu dóttur Kristins þegar hún
var lítil, og varði hana fyrir
ágangi hinna hestanna.
SNATI er með eindæmum barngóður og Erna Björk, 10 ára dóttir
Kristins, er ekki vitund hrædd á baki hans.
SNATI hlýðir skipunum húsbónda síns, hér leggst hann varlega á
jörðina.
ÞAÐ eru einhvern veginn svona kúnstir sem hundar gera og einnig
hesturinn Snati.
Bóluefni
búið í bili
ALLT bóluefni við inflúensu er
uppurið eins og sakir standa, en
von er á nýrri sendingu í næstu
viku að sögn Hai-aldar Briem, sótt-
varnarlæknis hjá Landlæknisemb-
ættinu.
„Það hefur verið óskaplega
kröftug svörun að þessu sinni við
áskorun um að fólk láti bólusetja
sig við iníúensu," sagði hann.
„Bólusetningin hefur fengið mikla
umfjöllun í fjölmiðlum auk þess
sem gefinn var út bæklingur, þar
sem fólk var hvatt til að hugsa um
málið.“
Haraldur sagði að ekki væri um
neyðarástand að ræða þótt bólu-
efnið væri ekki til. Von væri á nýrri
sendingu í næstu viku. „Við höfum
ekki heyrt um að inflúensan sé
komin og tilmælin eru þau að fólk
láti bólusetja sig í október og helst
fyrir lok nóvember eða áður en hún
er væntanleg," sagði hann.
---------------
Sjöfaldur pottur
í fyrsta skipti
Um 60 milljón-
ir í vinninga
í FYRSTA sinn verður dregið um
sjöfaldan potti hjá Lottó á laugar-
dag. Að sögn Vilhjálms Vilhjálms-
sonar, framkvæmdastjóra íslenskr-
ar getspár, er gert ráð fyrir að
hæsti vinmngur verði 40 milljónir
en heildai-vinningar um 60 milljónir.
„Þetta er hæsta upphæð til
þessa,“ sagði Vilhjálmur. „Við höf-
um alltaf haft það þannig að lofa
ekki of miklu en við reiknum með að
hæsti vinningurinn nái 40 milljónum
og að heildarupphæð vinninga verði
60 milljónir. Það er gn'ðarieg sala
þannig að ég held að þetta muni
standast."
---------------
Mikill reykur
frá sorp-
brennslu
SLÖKKVILIÐIÐ í Reykjavík fékk
í gær kl. 11.23 tilkynningu um mik-
inn reyk frá gróðrarstöðinni við
Lambhaga fyrir ofan Reykjavík.
Þar var verið að brenna sorpi og
hafði reykurinn myndast vegna
plastpoka, sem óvart hafði farið á
eldinn, að sögn slökkviliðsins.
Slökkt var í eldinum á nokkrum
mínútum og hlaust enginn skaði af
utan reyk- og sjónmengun.
Slökkvilið hafði einnig fyrr um
morguninn farið að bænum Saltvík í
Kjós eftir tilkynningu um reyk það-
an. Þar reyndust bændur vera að
brenna hálm og fengu að halda þvi
áfram eftir heimsókn slökkviliðsins.
------♦-*-*----
Bflvelta í
Blönduhlíð
FÓLKSBIFREIÐ valt í mikilli
hálku fyrir neðan bæinn Höskulds-
staði í Blönduhlíð fyrir hádegi í
gær. Ökumaður og tveir farþegar
voru í bifreiðinni og sakaði engan.
Allir voru í bílbeltum og sagði lög-
reglan að bílbeltanotkunin hefði
skipt sköpum fyrir ökumann og far-
þegana. Bifreiðin er talsvert
skemmd.
Mjög hált er í Blönduhlíðinni og
launhált víða annars staðar í um-
dæmi lögreglunnar á Sauðárkróki.
Að hennar sögn eru þó flestir búnir
að búa ökutæki sín til vetrarakst-
urs.