Morgunblaðið - 22.10.1998, Side 10

Morgunblaðið - 22.10.1998, Side 10
10 FIMMTUDAGUR 22. OKTÓBER 1998 MORGUNB LAÐIÐ FRÉTTIR Jón Kristjánsson fískifræðingur krefst svara við umsókn um rannsóknaleyfí Hefur leitað til um- boðsmanns Alþingis JÓN Kristjánsson fiskifræðingur vill að sér verði gert kleift að stunda rannsóknir á sama grundvelli og Hafrannsóknastofnun og á þar við t.d. notkun veiðarfæra, veiðar til rannsókna utan kvóta og meðferð afla. JÓN Kristjánsson fiskifræðingur hefur leitað til umboðsmanns Alþingis til að fá svör um umsókn sína til sjávarútvegsráðuneytisins um leyfi til fiskifræðilegra rannsókna. Jón segir bagalegt að fá ekki svör þar sem hann hafi atvinnu af því að stunda rannsóknir og ráðgjöf tengda fiskveiðum. Sam- kvæmt upplýsingum frá sjávarút- vegsráðuneytinu hefur dregist að svai-a umsókninni vegna þess að ekki eru fordæmi fyrir því að farið sé fram á að sá fiskur sem veiðist í til- raunum standi undir kostnaði rannsóknarinnai'. I desember á síðasta ári fór Jón þess á leit við sjávarútvegsráðuneyt- ið að honum yrði veitt leyfi til að stunda rannsóknir á fiski og öðrum dýrum í fiskveiðilandhelgi Islands í samræmi við þær reglur sem ráðu- neytið kynni að setja. Vildi Jón að sér yrði gert kleift að stunda rannsóknir á sama grundvelli og Hafrannsóknastofnun hvað varðar hluti eins og notkun veiðaifæra, veiðar til rannsókna utan kvóta og meðferð afla. I svari sjávarútvegsráðuneytisins við umleitan Jóns var áréttað að aðeins eru veitt tímabundin leyfi sem jafnframt era veitt til tiltekinna rannsókna. Var því óskað efth’ upp- lýsingum um að hverju rannsókn Jóns beindist og hvernig hún yrði framkvæmd. Var í bréfinu tekið fram að þegar þessi gögn lægju fyrir myndi ráðuneytið taka afstöðu til þess með hvaða skilyrðum leyfið yrði veijtt. I júní sl. sótti Jón um rannsókna- leyfi fyrir ákveðið verkefni og sendi ráðuneytinu gögn um hvaða verkefni var að ræða og greinargerð um til- gang þess. Verkefnið átti að vinna í samvinnu við Háskóla Islands. Sjávarútvegsráðuneytið ki'afði þá Jón um nákvæmari útfærslu á rannsókninni. Má þar nefna hversu mikið þarf að veiða í rannsókninni, hvenær tilraunirnar fara fram, hve langan tíma þær taka, hvaða veið- arfæri verði notuð og hvaða skip komi til með að stunda tilraunirnar. Vil aðeins fá svör Jón sendi umbeðnar upplýsingar til ráðuneytisins í júlí en fékk engin svör. Hann segist í tvígang hafa sent ítrekun um svar, síðast í september. Þegar engin svör hafi enn borist í október hafi hann því leitað til um- boðsmanns Alþingis til að ki’efja ráðuneytið um svör. „Mér fínnst ein- kennilegt að fá engin svör um hvort ég megi stunda atvinnu mína eða ekki. Eg get ekki boðið aðilum upp á rannsóknir eða ráðgjöf ef ég hef ekki leyfi til þess að rannsaka. Ég vil fá að vinna á jafnréttisgrundvelli við aðra og fá rannsóknaleyfi með sömu skilyrðum og aðrh'. Ég vil því aðeins fá svör um hvort ég fæ leyfið eða ekki,“ segir Jón. Jón B. Jónasson, skrifstofustjóri sjávarútvegsráðuneytisins, segir for- dæmi fyrir því að utanaðkomandi aðilum séu veittar heimildir til rannsókna innan fiskveiðilögsögunn- ar með þeim skilyrðum að Haf- rannsóknastofnun veiti umsögn og fylgist með rannsóknunum og hafi aðgang að þeim gögnum sem fram kunni að koma. Hins vegar séu ekki fordæmi fyrir því að beðið sé um jafn umfangsmikla heimild til rannsókna á mörgum þeim atriðum sem Haf- rannsóknastofnunin fæst við í sínu starfi. Eins hafi ekki verið áður farið fram á að sá fiskur sem veiðist í til- raununum standi undh' rekstri rannsóknarinnar. Ekki hafi verið mótuð afstaða til slíkra umsókna. „Fiskur og kvóti eru eftirsótt gæði og við höfum verið að fjalla um hvernig beri að taka á málum sem þessum. Meðal annars þess vegna hefur dregist að svara umsókninni," segir Jón. Hafrannsóknastofnun hefur fjallað um umsóknina og segir Jón að búast megi við svari á allra næstu dögum. Hugsanlegar tekjur landeigenda af sölu koltvisýringskvóta 2-5.000 kr. árstekjur á hektara MIÐAÐ við áætlanh- um það hvert verði markaðsverð á losunai’kvóta á tonni af koltvísýringi efth’ að Kyoto- bókunin um losun gróðurhúsaloft- tegunda kemst í framkvæmd, má gera ráð fyrir að landeigendur gætu haft 2-5.000 króna tekjur árlega af hverjum hektara sem þeir ræktuðu upp ef ákveðið verður að gefa við- skipti á kvótanum frjáls. Eins og fram kom í Morgun- blaðinu í gær hafa Nýsjálendingai- og Ástralir mótað þá stefnu að bind- ingarkvótinn skuli vera eign landeig- anda en ekki ríkis. „Slík viðskipti verða alltaf með samþykki stjórnvalda, og samkvæmt leikreglum sem þau setja og það er töluvert langt í að þær liggi fyrir,“ segir Halldór Þorgeirsson, deildar- stjóri alþjóðadeildar í umhverfis- ráðuneytinu. Fyrsta þing aðildarríkja Kyoto- bókunarinnar um losun gróðurhúsa- lofttegunda verður haldið í Buenos Aires í Argentínu í nóvember og seg- ir Halldór að þá muni þessi mál koma til umræðu. Tonnið af koltvísýringi á þúsund krónur Rannsóknir sýna að hægt er að binda árlega 2-5 tonn af koltvísýr- ingi með hverjum hektara ræktaðs lands. Halldór segir að áætlað hafi verið að verðmæti bindingarkvóta upp á eitt tonn geti verið um eitt þúsund krónur. Ef kvótinn verður talinn eign landeiganda gætu til dæmis íslenskir bændur haft 2-5 þúsund króna tekjur af því að rækta einn hektara skóglendis. „Það er ekki ólíklegt að þetta verði mögulegt, en það er spurning 1 hektari graslendis (100x100 metrarjtekur til sín 2 til 5 tonn af koltvíildi (CO2) á ári. Ef bóndi ræktar upp land í viðbót við tún sín, þá getur hann selt þennan kvóta til þess sem rekur framleiðslu þar sem m.a. verður til koltvíildi. hvort binding á íslandi verði sam- keppnisfær við bindingu annai’s staðai’. Reyndar er binding í skógi’ækt á Islandi mjög sambærileg við það sem gerist í öðrum löndum. Vöxtur trjánna er ekki það eina sem skipth máli. Koltvísýringurinn binst ekki aðeins í þeim heldur líka í jarð- veginum. íslenskur eldfjallajarðveg- ur er sérstakur að því leyti að hann safnar í sig töluverðu af kolefni við ræktun." Halldór segir að líklega verði fyrst hægt að hafa tekjur af sölu kvóta þegar fyrsta skuldbindingartímabil Kyoto-bókunarinnar hefst, árið 2008. Hugsanlega verði þó kvóti seldur fram í tímann. „Þetta er enginn skyndigi’óði en getur haft áhrif á hagkvæmni fjár- festingar í skógi’ækt. Ég er þó á því að meiri tekjumöguleikar verði í því að vinna að landgræðslu og skógrækt í því augnamiði að standa við skuldbindingar Islands í þessum málum,“ segir Halldór. Iðnaðarráðherra um orð utanríkisráðherra um möguleika í virkjanamálum Yon á 500 Irum um helgina FIMM hundruð írar eru væntan- legir liingað til lands á föstudag. írarnir koma liingað með leiguflugi á vegum Samvinnu- ferða-Landsýn og dvelja í fjóra daga. Að sögn Helga Jóhannsson- ar framkvæmdastjóra Samvinnu- ferða-Landsýn er þetta Iíklega í fyrsta sinn sem svo stór þota full af írskum ferðamönnum kemur hingað til lands. „Segja má að við séum nú að uppskera það sem við höfum sáð, en við höfum lagt út í heilmikla kynningarstarfsemi í gegnum tíðina á ferðum til Islands meðal Ira. Við gerum ráð fyrir því að eitt þúsund Irar komi til Islands í október og nóvember," segir Helgi, en von er á annarri 500 manna þotu í növember. Samvinnuferðir-Landsýn eru einnig að flytja íslendinga til ír- lands, en um 1.000 manns fara með leiguflugi til Dublin um helg- ina. Helgi segir að langt sé síðan uppselt hafi orðið í þær ferðir, en markmið ferðaskrifstofunnar sé að það fari jafnmargir íslendingar til Irlands, og það fari margir Irar til Islands. ísland fýsilegt til verslunar Mikilvægt innleg’g* í umræðu um nýtingu náttúruauðlinda FINNUR Ingólfsson, viðskipta- og iðnað- aiTáðhen-a, segir að ræða Halldórs Ásgrímssonar, utamíkisráðherra, á fundi með framsóknarmönn- um í síðustu viku, þar sem Halldór kvaðst hlynnt- ur Eyjabakkalóni, en ekki komi til greina að íórna Þjórsárverum eða eyðileggja Dettifoss með virkj- unum, sé mjög mikilvægt innlegg í þá umræðu sem fara þurfi fram um nýtingu náttúruauðlinda annai’s vegar og umhverfissjónanniða hins vegar, en þessi sjónarmið þurfi að sætta. Finnur sagði að áherslur í þessum efnum hefðu mikið breyst frá árinu 1995 þegar mönnum hefði þótt sjálfsagt að virkja sem mest í þeim til- gangi að skapa atvinnu í landinu og auka verðmætasköpun til hagsældar fyrir þjóðina. Núna byggjum við hins vegar við næga atvinnu og meiri velmegun en í mjög langan tíma og þá kæmu upp þau sjónarmið að menn séu kannski komnir dálítið of langt í þessuni efnum. „Það er hins vegar ekki þar með sagt að við getum ekki aftur lent í svipaðri kreppu og við vorum í hér fyrir 1995. Ef fjárfestingarnar drag- ast saman hjá okkur, sem gerist, þá dregur úr hagvextinum og þá er hætt við að við getum upp- lifað svipaða tíma með minnkandi kaupmætti og vaxandi atvinnuleysi," sagði Finnur. Hann sagði hins vegar að ganga yrði fram af mikilli nærgætni við náttúruna þegar horft væri til þessara framkvæmda í virkjanamálum og það væri reyndar það sem gert hefði verið. Lausn myndi hins vegar ekki finnast á málinu með því að öfgasjónarmiðin á báða bóga næðu fram að ganga, hvorki þeirra sem vildu virkja allt sem hægt væri að virkja né hinna sem vildu friða allt. Þurfum einhveiju að fórna „Við þurfum auðvitað einhverju að fórna til þess að nýta náttúruauðlindirnar. Það er hlut- verk okkar stjórnmáiamannanna að leiða saman þessi ólíku sjónarmið til sátta um það að nýta með skynsamlegum hætti náttúruauðlindir okk- ar, en um leið að gæta ýtrustu varfærni í um- gengni við náttúruna og bera fulla virðingu fyrir henni. Þetta verður hinn vandrataði gullni meðal- vegur sem menn þurfa að fara hér og ná sátt og samkomulagi um á næstu árum og fyrir því mun- um við verða að beita okkur. Ræða utanríkis- ráðherra er mjög mikilvægt innlegg í þessa um- ræðu sem núna þarf að fara fram um þessa sátt- argjörð sem verður að verða á milli atvinnu- sköpunarinnar, nýtingar náttúruauðlindanna og umhverfissjónarmiðanna, því að í ósnertri náttúru felast líka alveg gríðarleg verðmæti, það er enginn vafi,“ sagði Finnur. Hann sagði að það væri mikilvægt að menn nálguðust þessi viðfangsefni með þeim hætti að ailir aðilar væru tilbúnir, til að gefa eitthvað eftir, þannig að hægt sé að sætta sjónarmiðin um það sem gera þarf, en öfgasjónarmiðin á báða bóga víki. Hjá Samvinnuferðum-Landsýn hafa íslandsferðir verið markaðs- settar sem stórborgarferðir í bland við náttúruupplifun. „frarnir eru að koma hingað til að skemmta sér og ferðast um landið. Við förum vænt- anlega með þá á Gullfoss og Geysi, til Vestmannaeyja og í jeppaferð. Þetta er stórborgarferð þar sem náttúran er rétt við þröskuldinn. Ef við náum að skila þessum hópum ánægðum heim, þá er aldrei að vita hverju við eigum von á næst,“ segir Helgi, og bendir á að ferðirnar séu mikilvægar fyrir ferðaþjónustuna á íslandi þai’ sem vanalega sé lítið um ferðamenn á þessum tíma. Helgi segir jafnframt að kynn- ingarstarf hafi gengið vel. „Fljót- lega verður sýndur klukkustundar langur þáttur í Irlandi um ísland. Það er mjög mikilvæg kynning, og við erum ánægð með að frændur okkar frar séu farnir að átta sig á því að ísland hefur upp á ýmislegt að bjóða. Til að mynda er verslun á Islandi fýsileg fyrir þá þar sem þeir fá afslátt af virðisauka rétt eins og Islendingar sem versla í írlandi."

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.