Morgunblaðið - 22.10.1998, Qupperneq 12
12 FIMMTUDAGUR 22. OKTÓBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
Bæjarstjórar Hafnarfjarðar og Garðabæjar
Samningur við HR
verði endurskoðaður
HAFNFIRÐINGAR eiga Krísuvíkursvæðið.
MAGNÚS Gunnarsson, bæjar-
stjóri Hafnarfjarðar, og Ingimund-
ui' Sigurpálsson, bæjarstjóri
Garðabæjar, eru sammála um að
samningur við Hitaveitu Reykja-
víkur um kaup á heitu vatni verði
endurskoðaður.
„Við viljum vera þátttakendur í
þeirri umræðu, sem er að hefjast
og verður á næstu árum varðandi
endurskipulagningu í orkumálum,“
sagði Ingimundur Sigurpálsson,
bæjarstjóri Garðarbæjar. „Ég er
hér bæjarstjóri og er að reyna að
gæta hagsmuna bæjarbúa og fá
sem mest út úr því sem ég hef und-
ir höndurn," sagði Magnús Gunn-
arsson, bæjarstjóri Hafnarfjarðar,
en bæjarfélögin hafa samið við
Hitaveitu Suðurnesja um samvinnu
í orku- og veitumálum.
Skoða stöðuna
Að sögn Ingimundar hefur ekki
verið rætt við Hitaveitu Reykjavík-
ur um riftun samningsins frá árinu
1973 en borgaryfírvöld hafa lýst
því yfir að sennilega hefði ekki ver-
ið farið út í átta milljarða fjárfest-
ingu á Nesjavöllum ef ekki hefði
verið fyrir hendi samningur um
þjónustu við sveitarfélögin.
„Þetta snýst um að skoða stöðu
okkar almennt og hvaða leiðir við
getum farið til að tryggja hags-
muni okkar betur en í dag,“ sagði
Ingimundur. „Við erum að horfa
upp á stórauknar arðgreiðslur frá
orkufyrirtækjum og ef það er að
verða drjúgur þáttur í tekjuöflun
sveitarfélaga að hirða arð frá veitu-
fyrirtækjunum þá þarf að meta
stöðu bæjarfélagsins í því ljósi og
meðal annars að skoða forsendur
þessa samnings sveitarfélagsins
við Hitaveitu Reykjavíkur.“
Breyttar aðstæður
Sagði hann að enn hefði ekki
verið rætt við borgaryfirvöld en
verið væri að meta stöðuna og er
meðal annars verið að meta lög-
fræðilega hvort segja megi upp
samningnum ef til þess kemur.
„Samningurinn er ótímabundinn
en hins vegar eru alltaf möguleikar
að taka upp samninga og komast
að samkomulagi um nýja niður-
stöðu eða þá að rifta samningi á
þeirri forsendu að aðstæður hafi
breyst,“ sagði Ingimundur.
„Þetta tengist ekki eingöngu
Hitaveitu Reykjavíkur heldur al-
hliða athugun á orkumálum, heitu
vatni, rafmagni og þess vegna
köldu vatni. Meiningin er að skoða
þetta í samhengi við atvinnuupp-
byggingu á þessu svæði. Aðalatriði
er að vera þátttakandi í þeirri um-
ræðu sem er að hefjast og verður
miklu öflugri á næstu árum varð-
andi endurskipun orkumála. Það er
í undirbúningi að skipan orkumála
verði breytt og við erum að undir-
búa okkur undir þá umræðu og
viljum vera virkir þátttakendur í
því. Það sem hrekur okkur út í
þetta eru þessar arðgreiðslur og
þessi dulda skattheimta sem hefur
verið við lýði og farið vaxandi. Við
getum ekki setið hjá og látið þetta
fram hjá okkur fara.“
Ný stefna mörkuð
Magnús sagði að með samkomu-
laginu við Hitaveitu Suðurnesja
væri verið að marka nýja stefnu.
„Þetta er eðlilegt," sagði hann.
„Við horfum fram á miklar breyt-
ingar í orkumálum landsmanna og
þegar ákvörðun hefur verið tekin
um að við viljum taka þátt í um-
ræðunni koma íýrst upp þau há-
hitasvæði sem við eigum, sem er
Krísuvíkursvæðið með Trölla-'
dyngju og Brennisteinsfjöll. Eftir
að ljóst varð að við áttum raunhæf-
an möguleika á samstarfi við ná-
grannasveitarfélögin lá beinast við
að kanna hvort grundvöllur væri
fyrir viljayfirlýsingu um samstarf."
Ekki eingöngu
hitaveita
Magnús sagði að fyrst og fremst
væri verið að kanna möguleika á
samstarfi. „Við settum ákveðin
takmörk sem verið er að ræða,“
sagði hann. „Við erum að skoða
stöðu okkar á öllum sviðum, ekki
eingöngu hitaveituna, og erum
ekki að taka ákvörðun um að
hætta að kaupa vatn af Reykvík-
ingum á morgun," sagði hann. „Við
munum skoða alla okkar samninga
sem eru orðnir gamlir en þessi
hitaveitusamningur er frá 1973 og
við viljum skoða hvaða gildi hann
hefur.“
Engin forsenda fyrir
Jarðgufufélagið
Magnús sagði að sér þætti yfir-
lýsing borgaryfirvalda um hitarétt-
indi í Krísuvík sérkennileg. „Mér
finnst merkilegt ef það er þannig
að við erum að ganga á auðlind í
Krísuvík, sem samkvæmt samningi
frá 1973 á að vera fyrir Hitaveitu
Reykjavíkur á sama tíma og borg-
in, Hafnarfjörður og iðnaðarráðu-
neytið standa að Jarðgufufélaginu,
sem hefur verið að velta upp mögu-
leika á orku fyrir stóriðju á sama
svæði. Ég er reyndar ákveðinn í að
hætta þátttöku í því félagi,“ sagði
hann. „Með viljayfirlýsingunni
liggur beint við að forsendur fyrir
samstarfí við þessa aðila eru ekki
til staðar, þar sem hagsmunir okk-
ar sem að svæðinu standa skipta
okkur meira máli.“
Arðgreiðslur
hafa áhrif
Magnús sagði að auðvitað hefðu
arðgreiðslur hitaveitunnar áhrif á
ákvörðun um endurskoðun. „Er
það ekki spurningin um krónur og
aura í öllu sem maður tekur sér
fyrir hendur?“ sagði hann. „Ég er
hér bæjarstjóri og er að reyna að
gæta hagsmuna bæjarbúa og fá
sem mest út úr því sem ég hef und-
ir höndum."
Tillaga um að Hafnarfjörður hætti í Jarðgufufélaginu
Akvörðunin
hafi ekki áhrif
á verkefni
ÞÓRÐUR Friðjónsson, ráðuneyt-
isstjóri í iðnaðarráðuneytinu,
segir að mestu máli skipti að
ákvörðun meirihluta bæjarráðs
Hafnarfjarðar um að hætta þátt-
töku í Jarðgufufélaginu muni
ekki hafa áhrif á þau verkefni
sem unnið hefur verið að.
Ríkið er ásamt Hafnarfjarðar-
bæ og Reykjavíkurborg aðili að
Jarðgufufelaginu og sagði Ingi-
björg Sólrún Gísladóttir borgar-
sfjóri að beðið hafi verið eftir af-
stöðu nýrrar bæjarstjórnar Hafn-
arfjarðar en að engum yrði hald-
ið nauðugum í félaginu.
Á næstu dögum er að vænta
niðurstöðu hagkvæmniathugunar
bandarískra fjárfesta á að reisa
pappírsverksmiðju í nágrenni
Straumsvíkur. Áætlaður stofn-
kostnaður verksmiðjunnar er
30-40 milljarðar.
„Það sem skiptir mestu máli er
að þessi breyting verði með þeim
hætti að verkefni sem unnið hef-
ur verið að skaðist ekki,“ sagði
Þórður Friðjónsson. „Þetta eru
verkefni sem Jarðgufufélagið
hefur unnið að á undanförnum
misserum og varða einkum
áhuga erlends aðila á að setja
upp verksmiðju sem byggist á
nýtingu jarðgufu. Mestu skiptir
að tefla ekki því verkefni í tví-
sýnu ef fullur áhugi er hjá við-
komandi á að halda verkefninu
áfram og að þessi ákvörðun hafi
ekki áhrif til hins verra á hag-
nýtingu jarðvarmans þegar til
lengri tíma er litið.“
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
borgarstjóri sagðist hafa átt fund
með bæjarstjóra Hafnarfjarðar
um miðjan ágúst, þar sem hún
óskaði eftir afstöðu nýrrar bæj-
arstjórnar til samstarfsins. „Mér
hefur fundist þessi samvinna
ganga heldur treglega,“ sagði
hún. „Bæjarstjórinn sagði ekki
tímabært að lýsa formlegri af-
stöðu til málsins og óskaði eftir
fresti fram í september til að
móta afstöðu. Ég átti von á að
óskað yrði eftir fundi en það hef-
ur ekki verið gert og ég hef ekk-
ert heyrt frá honum síðan.“
Horfa til
annarra átta
Borgarstjóri benti á að Jarð-
gufufélagið hefði skuldbindingar
gagnvart þriðja aðila. „Þetta
snýr ekki eingöngu að okkur í
Hafnarfirði og Reykjavfk," sagði
hún. „Við erum með skuldbind-
ingar gagnvart ríkinu í þessu
samstarfi. Síðan höfum við sett
af stað fyrirtækið Southern Pa-
per Corporation, sem er að vinna
hagkvæmniathugun á pappírs-
verksmiðju. Þeir hafa væntan-
lega gert ráð fyrir að við værum
að vinna okkar heimavinnu
þannig að ég veit ekki hvernig
málin standa eftir þetta útspil en
við verðum að fara yfir það. Það
heldur þeim enginn nauðugum.
Þá verðum við að horfa til ann-
arra átta.“
Ur eru tollfrj
HjtZ lírsiw/ðwMifi '
Helgi Guðmundsson, Laugavegi 82 • Guðmundur Hermannsson, Laugavegi 74 • Gilbert, Laugavegi 62 • Jón & Óskar, Laugavegi 61 • Franch Michelsen, Laugavegi 15 • 4
Paul E. Heide, Glæsibæ • Gullúrið, Mjódd • Jón Bjarnason, Akureyri • Halldór Ólafsson, Akureyri • George 1/ Hannah, Keflavik • Guðmundur B. Hannah, Akranesi • Gilbert, Grindavík■
Helgi Sigurðsson, Skólavörðustíg 3 • Gunni Magg, Hafnarfirði • Tryggvi Ólafsson, Hafnarfirði • Birta, Egilsstöðum • MEBA, Kringlunni • AxeI Eiríksson, isafirði • Carl A- l