Morgunblaðið - 22.10.1998, Blaðsíða 22
22 FIMMTUDAGUR 22. OKTÓBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
ÚR VERINU
Þorsteinn Pálsson um Kvótaþing og Verðlagsstofu
I fullu samræmi
við það sem lagt
var af stað með
Morgunblaðið/RAX
SÆVAR Gunnarsson, formaður Sjómannasmabands Islands
viðsetn-ingu 21. þings sambandsins.
/
„Andstaðan við
Kvótaþing kem-
ur ekki á óvart“
Sævar Gunnarsson formaður SSÍ segir
það hjálpa til að ná utan um kvótabrask
„ÉG TEL að Verðlagsstofa skipta-
verðs muni hjálpa okkur verulega
við að ná utan um verðmyndunina,
sérstaklega bind ég vonir við
gagnaöflun, svo og að tilkoma
hennar verði til að gerðir verði
verðsamningar við sjómenn. En
stóra breytingin er tilkoma Kvóta-
þings, þar kemur mér ekki á óvart
andstaða útvegsmanna við Kvóta-
þingið, einfaldlega vegna þess að
þeir sjá að ef það virkar eins og til
var ætlast, þá hjálpar það okkur til
að ná utan um kvótabraskið að
verulegu leyti,“ sagði Sævar Gunn-
arsson, formaður Sjómannasam-
bands Islands við upphaf 212.
þings SSÍ í gær.
Sævar fjallaði áfram um þessar
nýju stofnanir og sagði: ,Að sjálf-
sögðu verða einhverjir hnökrar á
því til að byrja með eins og við má
búast, en aðallega hafa þar verið
nefnd tvö atriði, annars vegar jöfn
skipti veiðiheimilda. Um það er
það eitt að segja að á fískveiðiár-
inu 1996-1997 voru jöfn skipti
veiðiheimilda innan við 10% af til-
færslum, og svarið við þessu er að
það er ekkert auðveldara en að
selja á Kvótaþingi þær tegundir
sem menn ætla ekki að nota sjálfír,
og kaupa síðan þær tegundir sem
þá vantar í staðinn, en auðvitað er
það rétt að það verður útgerðum
mikið erfíðara að láta sjómenn
taka þátt í kvótakaupunum, við
þessar aðstæður, en það var
einmitt megintilgangur Kvóta-
þingsins.
Tvískinnungur
Formaður LÍU hefur ítrekað
haft í frammi ásakanir á sjómanna-
forystuna fyrir það að hún stuðli að
atvinnuleysi meðal sjómanna með
stuðningi sínum við Kvótaþing.
Þessi sami maður lagði fast að
sjómannaforystunni í samninga-
viðræðunum síðast liðinn vetur að
sameinast LÍÚ um tillögur til
stjórnvalda þess efnis að takmarka
verði það magn sem skip geta flutt
til sín, hann nefndi sérstaklega að
ef til dæmis yrði sett sú regla að
skip geti ekki flutt til sín nema
þrefalt það magn sem á því er fyrir
þá gæti útgerð með skip, sem hefði
tvö til þrjú hundruð tonn, lifað af
en skip sem aðeins hefðu veiðileyfi
gætu ekki flutt til sín, og þar með
væru þau ekki lengur á leigumark-
aðnum. Var formaðurinn þar að
hugsa um atvinnu þeirra sjó-
manna, sem hann nú segist bera
fyrir brjósti, eða þá útgerðarmenn
sem undanfarið hafa verið að
kaupa kvótalaus skip, og eða eru
að selja kvóta af skipunum, og æpa
síðan á sérstakar aðgerðir sér til
handa?
Þessi málflutningur formanns
LIÚ er það sem kallað er tvískinn-
ungur.
Hlutaskiptakerfið
vandamál?
Á aðalfundi Samtaka fisk-
vinnslustöðva nýlega nefndi sjávar-
útvegsráðherra að hann teldi
hlutaskiptakerfí í kjarasamningum
sjómanna og útvegsmanna visst
vandamál og að það stæði í vegi
fyrir bættum samskiptum sjó-
manna og útvegsmanna og fyrir
framþróun í útgerð.
Ég velti því fyrir mér hvort ráð-
herra hafi ekki meiri trú á þeim
breytingum sem hann sjálfur beitti
sér íyrir með lagasetningu í vetur
en það að næsta verkefni sé að
skipta sér með beinum hætti af
kjarasamningum þessara aðila, og
þá ganga lengra en oft undanfarin
ár, þegar lög hafa verið sett á lög-
lega boðaðar aðgerðir sjómanna, til
að reyna að fá útvegsmenn til að
fara að lögum og kjarasamning-
um,“ sagði Sævar.
Síldin ofveidd undir
vísindalegu eftirliti
Sævar fór einnig nokkrum orðum
um stöðuna í sjávarútveginum í dag
og sagði þá: „Það árar vel í sjávar-
útveginum sem stendur. Verð á af-
urðum hefur farið hækkandi að
undanförnu, en því miður hefur sú
verðhækkun þó ekki skilað sér til
sjómanna að öllu leyti. Ástand
helstu fískistofna á íslandsmiðum
er nokkuð gott um þessar mundir.
Til dæmis var þorskkvótinn á þessu
fiskveiðiári aukinn um 32.000 tonn,
að tillögu HAFRÓ. Ýsukvótinn var
hins vegar minnkaður um 5.000
tonn, en í öðrum tegundum, að
rækju og síld undanskildum, var
óveruleg breyting. Fyrir liggur að
vaxandi þorskstofn getur haft veru-
leg áhrif á rækjuna, þar sem ung-
þorskur lifir að stórum hluta á
rækju. En ég hef meiri áhyggjur af
síldinni. Þrátt fyrir góða mælingu á
síldarstofninum 1997 skilaði hann
sér ekki í veiðinni það ár, og því
miður virðist sagan frá því í fyrra
vera að endurtaka sig hvað varðar
veiðina í ár. Margir sfldarsjómenn
hafa lýst verulegum áhyggjum af
því, og óttast að við séum þegar
búnir að ofveiða síldina undir vís-
indalegu eftirliti.“
„ÞAÐ er mikilvægt að menn hafi
það í huga að lagasetningin um
kvótaþing og Verðlagsstofu skipa-
verðs er forsenda iriðar á vinnu-
markaði, forsenda kjarasamninga
og það verða þess vegna ekki gerð-
ar neinar þær breytingar á þessari
löggjöf sem aðilar að kjarasamn-
ingum eru ekki ásáttir um. Það er
líka mikilvægt að menn gefí nýrri
löggjöf tíma. Allar breytingar hafa í
för með sér ákveðið rask. Við verð-
um að gefa nýrri löggjöf eðlilegan
tíma til þess að menn geti lagað sig
að nýjum aðstæðum. Það tekur
tíma að átta sig á því hvemig hlut-
imar ganga fyrir sig með nýjum
hætti og menn þjálfast við að vinna
við nýjar aðstæður. Þennan tíma
verða menn að gefa sér,“ sagði Þor-
steinn Pálsson, sjávarútvegsráð-
hema, í ávarpi sínu við upphaf 21.
þings Sjómannasambands Islands.
Þorsteinn ræddi um þau átök
sem áttu sér stað milli útgerðar-
manna og sjómanna á síðastliðnum
vetri og leiddu til verkfalla sjó-
manna áður en samningar náðust.
Honum varð tíðrætt um löggjöfina
um Kvótaþing og Verðlagsstofu
skiptaverðs, en þessar stofnanir
hafa sætt töluverðri gagnrýni eftir
að starfsemi þeirra hófst í haust.
Þorsteinn sagði ennfremur:
Lagabreytingar fólu
þrennt í sér
„Það má segja að þær lagabreyt-
ingar, sem ákveðnar voru hafí falið
þrennt í sér. I fyrsta lagi að koma á
fót kvótaþingi, þar sem öll viðskipti
með aflamark skyldu fara fram.
Blind viðskipti þannig að með öllu
verði útilokað að tengja saman við-
skipti með hráefni og aflaheimildir.
I annan stað að festa í sessi þann
feril sem áður hafði verið mótaður
með samkomulagi um sérstaka úr-
skurðarnefnd. Það var gert með
því að koma á fót Verðlagsstofu
skiptaverðs, sem á að fylgjast með
fiskverðssamningum og eftir atvik-
um að senda ágreiningsmál til úr-
skurðar hjá úrskurðarnefnd. Það
er lykilatriði í þessu sambandi að
menn vildu viðhalda í meginatrið-
um því grundvallaratriði að verð-
lag myndaðist á markaðnum og þar
sem það gerist ekki með sölu yfir
markað, koma beinir samningar
Menn urðu að taka
meiri hagsmuni
fram yfír minni
milli áhafna og útgerða einstakra
skipa. Verðlagsstofan hefur það
hlutverk að fylgjast með þróun
þeirra og gera viðvart og gera ráð-
stafanir ef í einstökum atriðum
þeir samningar ganga á svig við al-
menna þróun.
Auknar takmarkanir
á framsali
Loks var í þriðja lagi horfið til
þess ráðs að grípa til aukinna tak-
markana á framsalsmöguleikum á
aflamarki. Auðvitað var það svo að
hvorugur samningsaðili var í einu
og öllu sáttur við þessa niðurstöðu.
Þessar hugmyndir gengu um margt
gegn sjónarmiðum útvegsmanna og
voru ekki í samræmi við hina upp-
haflegu kröfu sjómanna. En vonir
okkar stóðu til þess og standa enn
til þess að þama hafi verið fundinn
meðalvegur á milli þeirra sjónar-
miða, sem uppi voru og byggja
megi á í framtíðinni.
Þátttaka sjómanna í
kvótakaupum stöðvuð
En aðalatriðið er þó það, að við
sem að lagasetningunni stóðum og
berum á henni ábyrgð, töldum að
með þessu móti væri búið að stöðva
það, sem mestum ágreiningi hafði
valdið. Það er að segja óbeina þátt-
töku sjómanna í kvótakaupum.
Það var auðvitað á það bent, þeg-
ar þessi lagasetning var ákveðin, að
hún gæti haft hliðarverkanir í för
með sér og það hlaut öllum að vera
Ijóst frá upphafi að til hvaða ráða,
sem gripið yrði í þeim tilgangi að
koma til móts við meginkröfur sjó-
manna, hlyti það að hafa einhver
áhrif á rekstur þeirra, sem valdið
höfðu mestum ágreiningi. Framhjá
því var ekki hægt að komast ef
menn ætluðu sér að finna lausn á
deilunni og koma til móts við meg-
insjónarmiðin. Á það var vissulega
bent, að ráðstafanir eins og þessar
gætu haft áhrif á útgerð margra
báta sem hafa verið gerðir út með
tiltölulega litlar aflaheimildir, gætu
þrengt möguleika nýrra aðila á því
að komast inn í atvinnugreinina.
Við höfum orðið vör við það í um-
ræðu síðustu vikna, þegar þessi lög
komu til framkvæmda, að menn
hafa dregið þessi sjónarmið fram
og inn í umræðuna. En í því sam-
bandi minni ég á að lagasetningin
var sett til þess að leysa deilu, til að
koma í veg fyrir tiltekið ástand og
það hlaut að hafa í fór með sér
ákveðnar hliðarverkanir. Menn
urðu einfaldlega að gera það upp
við sig hvaða hagsmunir voru mikil-
vægastir í stöðunni, þegar úrlausn-
in var fundin.
Ég er sannfærður um að það var
óhjákvæmilegt að líta til þeirra
sjónarmiða, sem voru efst á blaði í
þessari deilu og finna leiðir til að
koma til móts við þau og búa
þannig til sátt á milli sjómanna og
útvegsmanna. Það gengur ekki í
þessari atvinnugrein fremur en
öðrum að launamenn og forystu-
menn íýrirtækjanna séu í stöðug-
um árekstrum. Svo ég ekki tali um
áralöngum stórátökum. Þessir
hagsmunir voru í húfi, menn urðu
að taka meiri hagsmuni fram yfir
minni. Það er nauðsynlegt að hafa
það í huga, þegar umræðan fer nú
fram í ljósi þeirrar reynslu, sem af
nýrri löggjöf fæst. Það er mjög
mikilvægt að vel takist til um fram-
kvæmd þessarar nýju löggjafar.
Það er ástæða til þess að skora
bæði á forystumenn sjómanna og
útvegsmanna að leggja sitt af
mörkum í þeim efnum.
Ijóst að hverju
menn stefndu
Ég hef ekki orðið var við annað á
íýrstu vikum þessa nýja skipulags
en að fullur vilji sé til þess af hálfu
beggja aðila að framkvæmdin geti
orðið með þeim hætti að hún leiði til
varanlegrar lausnar. Hitt þarf auð-
vitað ekki að koma á óvart að ýmsir
byrjunarörðugleikar komi upp, að
ýmislegt komi fram, sem menn ekki
höfðu séð fyrir. í öllum meginatrið-
um vissu menn að hverju menn
stefndu, vissu hvað menn voru að
gera og það, sem hefur komið á
daginn er í fullu samræmi við það,
sem lagt var af stað með í þessari
löggjöf síðastliðið vor. Ekkert af því
þarf að koma mönnum á óvart,“
sagði Þorsteinn Pálsson.
ÞINGFULLTRÚAR Sjómannasambandsins risu úr sætum og vottuðu þannig samúð sína vegna útfarar Guð-
rúnar Katrínar Þorbergsdóttur, forsetafrúar.